Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982 Thorvaldsen kemur heim tQ íslands og lét höggva í marmara. Hann dvaldist á ítaliu næstum alla manndómsævi sína og undi þar vel hag sínum, nefndi fæöingardag sinn þann dag sem hann kom fyrst þangaö. ítalskur varö hann þó aldrei. Hann var danskur, en um leið íslenskur, og þetta er svo ein- falt og augljóst sem veröa má. Hiö rétta er að eigna hann báöum þjóöum, þó hvorri meö sínum hætti. Thorvaldsen er líka nógu mikill til þess aö tvær þjóöir megi vel deila honum meö sér eöa eiga hann í sameiningu." Ég sþyr frú Helsted hvaöa verk sýningarinnar á íslandi sé þekkt- ast. „Já, eins og ég sagöi fyrst eru þetta bæöi verk unnin af Thor- valdsen og einnig hans per- sónulegu munir. Af þessum 75 verkum eftir hann fer mest fyrir fjórum marmaramyndum. Þaö er Heba, sem er um einn og hálfur metri aö hæö, Amor og Psykke, sem er fremur stór stytta, Gany- medes-mynd Listasafnsins og Hin dansandi stúlka, sem er stærst. En þekktasta verkiö er án efa Nótt og Dagur sem Thorvaldsen geröi nokkur pör af. Eitt er hér niöri í safninu, fast í veggnum. En þær myndir sem fara til islands hafa veriö í langtíma láni hjá Victoria and Albert Museum í Lundúnum og fara þangaö aftur aö sýningu lokinni. Þetta eru afar vel geröar myndir og jafnvel betur geröar lág- myndir en þær sem hér eru fastar í vegg safnsins. Nóttin er e.t.v. frægari, en þessar tvær myndir eru þekktustu munir sýningarinnar. En um leiö eru myndirnar þekktustu verk Thorvaldsens ásamt Krists- styttunni i Frúarkirkjunni hér í Kaupmannahöfn." Og hver er staöa Thorvaldsens nú?, spyr ég frú Helsted. „Thorvaldsen rís sem klettur. Hann var aö vísu frægari í lifanda lífi, en hann stendur óhagganlegur í danskri list. Og i heimslistinni. Thorvaldsen vill hafa mikla ró yfir höggmyndum sinum. Hann sleppir smáatriöunum. Stíll hans er strangur, en náttúrulegur. Verkin eru í fornrómverskum anda. Lík- aminn er tignaöur sem fagur og fullkominn. Og ekkert er huliö. A tímum Thorvaldsens áttu hlutirnir aö vera fullgeröir. Þá tíökaöist ekki aö halda upp á ófullgeröar teikn- ingar eöa skissur. Og þaö er því fyrst nú sem gildi uppdrátta Thor- valdsens aö höggmyndum er viö- urkennt. Þaö er þó vafamál, hvort hann er færari teiknari en högg- myndasmiður. Þaö fer eftir smekk manna. En hann var nákvæmur og næmur myndhöggvari eins og t.d. lágmyndin Nóttin sýnir. Teikningar hans eru mjög frjálslega teiknaöar og líkjast því ekki höggmyndunum sem hann geröi eftir þeim. Eftir- menn Thorvaldsens breyttu út af stíl hans. Myndir þeirra voru meira í smáatriöum og uröu þá um leiö raunsærri. H.W. Bissen hét einn lærisveina Thorvaldsens, en hcinn geröi t.a.m. Sveitahermanninn og mynd af Friöriki sjötta sem stend- ur í Fredriksberg Have, ásamt myndinni af Friörik sjöunda fyrir framan Kristjánsborgarhöll. Viö lít- um þó ekki á hreyfingu í högg- myndalist sem þróun. Meö oröinu þróun er gefiö í skyn að eitthvaö betra og fullkomnara leiöi af ein- hverju sem er ekki eins fullkomiö og vel gert. Viö lítum því á hreyf- inguna i höggmyndum sem breyt- ingu. Marmaratækni næstu kyn- slóöar á eftir Thorvaldsen var frá honum komin, svo og viðhorf til þess hvaö væri fagurt og hvaöa drætti bæri aö hefja fram.“ , Thorvaldsen var nýklassíker. Meö endurreisninni var horfiö aftur til menningar fornaldar og sú hreyfing liföi áfram í barokk-list- inni. En myndverkin uröu flókin. „Það sem nú var þörf fyrir voru lýsingar á frumeöli og tilfinningum mannsins. Taliö var aö verkið gæti boöað eilífan sannleik og höföaö til manna aöeins ef það var fært í fornan búning sem hæfi þaö yfir stund og staö. Á ytra borðinu var þar meö komist frá hinu einstakl- ingsbundna og aö hinu algilda. Til aö hugmyndir þessar heföu ein- hver áhrif varö aö klæöa þær í ein- faldan búning. Mannslíkaminn skyldi sýndur í fögrum og sam- ræmdum hreyfingum þar sem hinn andlegi boöskapur kæmi í Ijós. Óþarfa smáatriöum sem gætu haft truflandi áhrif var svo til sleppt. Þessi breyting í átt aö stílhreinni og einfaldari formum í listum gerö- ist á löngum tima á síöasta þriöj- ungi 18. aldar.“ Svo kemst Eva Henschen aö oröi í sýningarritinu. Þessi breyting nefndist Hinn sanni stíll, en síöar Nýklassík. Á tímum Thorvaldsens liföi á Ítalíu maöur aö nafni Antonio Canova. Hann var einn af frumherjum þess- arar stefnu og hefur list hans ugg- laust kynnt Thorvaldsen fyrir hinni fornrómversku list í búningi Ný- klassíkur. „Er Canova lést áriö 1822 var Thorvaldsen talinn eftir- sóttastur og frægastur mynd- höggvara Evrópu. í verkum sínum stefndi Thorvaldsen aö enn ein- faldari formum í fornum anda og náöi sú þróun greinilega hámarki í Róm. Eftir aö hann var kominn til Kaupmannahafnar áriö 1838 uröu formin þó nokkuö mýkri eins og þau aölöguöust hinum nýju aö- stæðum,” segir Eva Henschen ennfremur. Thorvaldsen naut almennrar frægöar í lifanda lífi og eftir dauöa sinn. En frægö hans dalaöi. Þaö var með áhuga Dana á erlendri og innlendri nútímalist í lok 19. aldar sem Thorvaldsen fóll ekki lengur í kramiö. En meö „... áhuga á ný- klassík undanfarna áratugi má segja aö Thorvaldsen hafi veriö uppgötvaöur á ný. Hann mun aldrei skipa sama sess og hann geröi i samtíö sinni, en hann er aö öölast viöurkenningu i listasögunni sem klassíker sem ber svip af róm- antík og sameinar þar þær tvær listastefnur sem ríkjandi voru á hans tíma,“ segir Bjarne Jernæs um stööu Thorvaldsens innan list- arinnar. Albert Thorvaldsen var lengst af í Róm og þaö er þess vegna sem islendingar hafa ekki kynnst verk- um hans betur en raun ber vitni. Myndverk hans eiga sér fyrirmynd- ir er voru íslendingum framandi fyrr á tiö. islendingasögurnar héldu lífinu í þjóöinni og hvöttu hana til dáöa. Hugarheimur eddukvæðanna, Hávamála og Völuspár vakti hins vegar ekki áhuga Thorvaldsens. List hans er einstök og þarf náin kynni. Þaö er því gleöilegt aö verk hans komi til islands til aö bera þessum mesta listamanni Noröurlanda vitni. Sr. Helgi Konráösson skrifaöi bók um ævi Thorvaldsens (1944) og þótt deila megi um ýmislegt sem þar stendur ritaö er viöbúið, aö margir muni kynna sér bókina, er sýningin kemur heim, svo og sýningarritiö sem hefur aö geyma stórfróðlegar ritgeröir um lista- manninn, líf hans og starf. En sýn- ingin mun ekki síst leiöa hugann aö Ijóöunum sem Jónas Hallgríms- son orti til Alberts Thorvaldsens, stoltur og þakklátur í garö þessa heimsfræga landa síns. Þar segir Jónas m.a.: í höfum noröur viö himin gnæfir eyja ísi skygnd og eldí þrungin; þar rís in fagra feöra þinna móöur-mold úr marar skauti. -- ij. I , , ... .................. Fasöingarstaöur Thorvaldsens viö Grasnugötu 7 f Kaupmannahöfn. Hann faaddist ( bakhúsi lóöarinn- ar nr. 7. Kristsstyttan ( kómum ( Frúarkirkjunni ( Kaup- mannahðfn. Fyrsta Ijósmyndin sem tekin var (Danmðrku og hin eina sem til er af Hðggmyndin af Hebu, unnki ( Thorvaldsen. marmara. Thorvaldsenssafn í Kaup- mannahöfn. Byggingin var opnuö almenningi ériö 1894. En Thorvaldsen sé hana þó rísa. Byggingin er sérstök hvaö byggingarlag varöar, og Ifkist ekki heföbundnum byggingum Kaupmannahafnar. Aöstandendur sýningarinnar é Kjarvalsstööum. Taliö fré vinstri: Dyveke Helsted, safnstjóri, og safnveröirnir Eva Henschenn og Bjarne Jernæs. í baksýn er upp- runalega gifsstyttan af Amor og Psykke, en marmaramyndin veröur é sýningunni. Fjórir þýskir sérfræöingar voru fengnir til aö né styttunni niöur af stallinum sem hún var föst viö og pakka henni. Þeir notuöu skinnhanska og krana, en marmaramyndin var meitluö laus. Öllum munum sýn- ingarinnar var pakkaö ( géma. MyndverkR Amor og Psykke prýöir auglýsingaspjald sýningar- innar é fslandi. (Ljóani. Svend Asg* MortwiMn, NOratSK rrNMVOIO.j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.