Morgunblaðið - 29.08.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1982
59
Þorkell spnngv um súlubyggdina og virdir fyrir sér dýrdina.
Þótt Eldey sé ein af staðreynd-
um íslenzkrar náttúru og eitt sér-
stæðasta náttúruundur í íslenzku
fuglalífi er þessi eyja engu að síð-
ur varla til í hugum landsmanna
nema sem eins konar þjóðsaga.
Veldur þar bæði að Eldey er tor-
sótt bæði vegna sjávargangs og
illkleifra hamra og einnig hitt að í
liðlega 40 ár hefur eyjan verið
friðlýst og mönnum meinað að
ganga um þennan hluta íslands
hvað þá meir. Með greinaskrifum
og kvikmynd sjónvarpsins um
þessa ágætu eyju ætti nokkuð að
rætast úr fyrir fólki, en lið sjón-
varpsmanna fór með í Eldeyjar-
leiðangurinn og sýndi hin mestu
tilþrif til þess að ná sem beztum
árangri.
Það var 18 manna lið Eldeyjar-
fara tilbúið til brottfarar laugar-
daginn 14. ágúst, en þá gaf ekki í
Eldey og tók nú við mikil yfirlega
SJÁ NÆSTIT SÍÐU
„Þad þýðir lítið að vera að eiga þessa eyju
ef enginn má sjá hana,“ sagði dr. Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur og einn af nátt-
úruverndarráðsmönnum þegar fjallað var
um beiðni undirritaðs um leyfi til Eldeyj-
arleiðangurs þar sem gerð skyldi kvik-
mynd um Eldey, ljósmyndir teknar og
vísindamönnum gert kleift að vinna verk
sín, en eftir að beiðni um landgöngu í Eld-
ey hafði verið hafnað sl. vetur hjá Náttúru-
verndarráði fékkst málið tekið upp aftur
og leyfi samþykkt, þar sem vísindamenn
mæltu eindregið með leyfisveitingunni. Á
rúmlega 40 ára tímabili hefur aðeins einu
sinni verið klifið á koll Eldeyjar, fyrir 11
árum þegar 8 Vestmannaeyingar klifu
eyna og þar af vorum við fimm aftur á
ferðinni í umræddum Eldeyjarleiðangri 20.
ágúst sl.
Grein: Árni Johnsen
Myndir: Ragnar Axelsson
Trausíi og Halldóra merkja súhmnga i Mbi ferd, en merkingamenn skiptn Hdi í þeim verkum.