Morgunblaðið - 03.09.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.09.1982, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982 16 flliKlúmtliIfiMfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö. Thorvaldsen kemur heim til íslands Sýningin á verkum listasmiðsins frábæra Bertels Thor- valdsens sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum í dag er mikið fagnaðarefni. Þar geta menn ekki aðeins kynnst dýr- gripum úr Thorvaldsenssafni heldur einnig myndum og öðru er lýsir ævi listamannsins og starfi. Bertel Thorvaldsen (1770—1844) kom aldrei til Islands, en hann var aldrei í vafa um íslenskan uppruna sinn. Skírnarfonturinn í Dómkirkj- unni er til marks um það. Á honum stendur, að Thorvaldsen gefi ættjörð sinni fontinn. í riti sem út kemur vegna ís- landssýningarinnar á verkum listasmiðsins segir dr. Krist- ján Eldjárn, fyrrum forseti íslands, um Bertel Thorvaldsen: „Hann var danskur, en um leið íslenskur, og þetta er svo einfalt og augljóst sem verða má. Hið rétta er að eigna hann báðum þjóðum, þó hvorri með sínum hætti. Thorvaldsen er líka nógu mikill til þess að tvær þjóðir megi vel deila honum með sér eða eiga hann í sameiningu." Forstöðumenn Thorvaldsenssafnsins í Kaupmannahöfn, sem hefur að geyma 860 höggmyndir listamannsins, hafa af ótrúlegri fórnfýsi og mikilli vinsemd gert okkur íslendingum kleift að kynnast verkum meistarans. í fyrsta sinn síðan safnið var stofnað, 1848, hafa starfsmenn þess undirbúið sýningu á verkum Thorvaldsens utan sinna eigin dyra. Enn einu sinni hafa tengslin milli íslands og Danmerkur verið treyst með verðugum hætti. „Ég hef verið með það í huga að koma á þessari sýningu á verkum Thorvaldsens allt frá því ég kom hingað fyrst," sagði Janus A.W. Paludan, sendiherra Dana á Islandi, í samtali við Morgunblaðið í gær. Um leið og Dönum er þakkað frumkvæði þeirra í þessu máli fögnum við íslendingar því að Thorvaldsen skuli loksins koma heim til íslands og við fá tækifæri til að kynnast ódauðlegri list hans í íslensku umhverfi. Landssöfnun og björgunarstörf Þessa dagana er efnt til landssöfnunar til styrktar slysa- varnar- og björgunarstarfi. Hjálparstofnun kirkjunnar stendur að þessari fjársöfnun í samvinnu við Slysavarnafé- lag Islands, Landssamband hjálparsveita skáta og Lands- samband flugbjörgunarsveita. Vegna nýrra reglna þurfa björgunarsveitir að endurnýja ailan fjarskiptabúnað sinn. Án stuðnings allra landsmanna geta sveitirnar ekki ráðist í svo fjárfrekt átak. Augu manna beinast jafnan að ósérhlífni og hæfni björg- unarsveita, þegar slys verða. í sveitunum starfa sjálfboðalið- ar sem til þess eru búnir á nóttu sem degi, í veðurblíðu sem aftakaveðri, að leggja fram krafta sína til að bjarga mönnum úr lífsháska. Nú snúa þessir menn sér til almennings fyrir milligöngu kirkjunnar og fara fram á fjárstyrk til endurnýj- unar á fjarskiptatækjum. Við slíkum tilmælum er ekki unnt að bregðast nema með einum hætti. Bjartsýni skógræktarmanna Mér er óhætt að segja að mikill hugur sé nú í skóg- f ræktarfólki yfirleitt, enda margt sem bendir til þess ao skilningur á mikilvægi trjá- og skógræktar hér á landi aukist með ári hverju, bæði hjá stjórnvöldum og meðal al- mennings," sagði Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktar- félags Islands, í viðtali við Morgunblaðið að loknum aðal- fundi félagsins um síðustu helgi. Bjartsýni skógræktarmanna er gleðiefni. Þeir skipa þann hóp, sem lætur sér annt um landið okkar. Þeirri staðreynd getur enginn mótmælt, að í ýmsu tilliti höfum við, þær kynslóðir sem nú lifa og fyrri, gengið of nærri landinu með ofbeit og vanrækt. Skógræktarmenn eru svarnir andstæð- ingar þeirrar þróunar. Hugsjónastarf þeirra er tekið að skila árangri með margvíslegum hætti og vissulega er j>að merkur áfangi, að nú er farið að tala um skógrækt á Islandi sem viðurkennda búgrein. Frá fundi trúnaAarráðs LÍÍJ i gær. Ályktun trúnaðarráðs LÍÚ: Undirstöðuatyinnuvegur þjóðarinnar verður ekki rekinn með slíkum halla Hér fer á eftir orðrétt ályktun trúnaðarráös Lands- sambands islenzkra útgerð- armanna sem samþykkt var samhljóða í gær, hún felur í sér, eins og fram kemur í haksíðufrétt blaðsins í dag, yfirlýsingu ráðsins um að það sjái sig knúið til að sam- þykkja stöðvun fiskveiðiflot- ans: „Við ákvörðun fiskverðs um sl. áramót voru rekstrarskilyrði út- gerðarinnar miðuð við, að afla- brögð á þessu ári yrðu sambærileg við það sem var á sl. ári, en þá voru þau betri en nokkru sinni áð- ur. Þetta var óráðlegt því að við aflaminnkun röskuðust rekstr- arskilyrðin verulega eins og raun hefur orðið á. Fyrstu 7 mánuði ársins minnk- aði þorskafli bátanna um 38 þús- und lestir eða um 18% og togar- anna um 44 þúsund-lestir eða um 31%. Auk þessarar aflaminnkunar skerðast tekjur hvers skips mun meira, vegna þess að aflinn deilist á fleiri skip. Stafar það af fjölgun togara og aukinni þátttöku loðnu- skipa í þorskveiðum, en þeim hafa verið bannaðar allar loðnuveiðar. Samfara þessum erfiðleikum hef- ur olía hækkað í verði og er olíu- kostnaður nú hærra hlutfall af tekjum en áður. Olía til fiskiskipa er 40% dýrari hér á landi en í nágrannalöndunum. Ekki var ráðin bót á þessum erf- iðleikum við fiskverðsákvörðun 1. júní og hafa rekstrarerfiðleikarnir því haldið áfram að vaxa. Stjórn LIU hefur varað við þessari þróun mála frá því í júnímánuði, en án árangurs. Taldi hún sjávarút- vegsráðherra hafa skilning á erf- iðleikunum og sérstaklega eftir að ráðherra afhenti LÍÚ tillögur sín- ar til úrbóta dags. 13. og 21. júlí sl. í þeim var gert ráð fyrir bótum til togaranna fyrir fyrstu 5 mánuði ársins, lækkun á olíu um 20%, hækkun fiskverðs er komi að hálfu til útgerðarinnar fram hjá hluta- skiptum, lækkun fjármagnskostn- aðar o.fl. í trausti þess að þessar tillögur næðu fram að ganga hefur fisk- veiðiflotanum verið haldið til veiða eins og mögulegt hefur ver- ið. Vegna almennra efnahagsað- gerða dróst á langinn að í ljós kæmi til hverra úrræða ríkis- stjórnin gripi. Nú hafa þau litið dagsins ljós og er mat Þjóðhags- stofnunar á afkomu fiskveiðanna á þann veg, eftir fiskverðsákvörð- un, að halli sé að meðaltali á minni togurum um 15% af tekj- um. Halli á bátum sé lítillega minni en mun meiri á stóru togur- unum. Ljóst er að undirstöðuatvinnu- vegur þjóðarinnar verður ekki rekinn með slíkum halla og áframhaldandi rekstur leiðir ein- ungis til skuldasöfnunar og stöðv- unar flotans innan skamms tíma, nema viðunandi ráðstafanir verði gerðar til þess að skip með meðal- afla geti greitt skuldbindingar sínar. Trúnaðarráð LÍÚ sér sig því knúið til að samþykkja stöðvun fiskveiðiflotans samkvæmt heim- ild í b) lið 20. gr. samþykkta sam- takanna. Til þess að tækifæri gefist til enn frekari umfjöllunar um mál- efni útgerðarinnar samþykkir trúnaðarráðið að stöðvunin komi til framkvæmda með þeim hætti að skip í eigu félagsmanna LÍÚ láti ekki úr höfn eftir kl. 24.00 föstudaginn 10. september nk., en skip, sem þá eru á veiðum, ljúki veiðiferð. Þó mega bátar, sem landa daglega, halda áfram veið- um til föstudagsins 17. sept. nk.“ Landsbankinn opnar í dag nýtt útibú að Álfabakka 10 í Mjóddinni í Reykjavík. Þar verður öll almenn bankaafgreiðsla en sérstök áherzla verður lögð á ráðgjöf við við- skiptavini Landsbankans. Nánar verður skýrt frá hinu nýja útibúi í blaðinu á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.