Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982 41 Minning: Pálmar Isólfsson hljóðfœrasmiður Fæddur 28. júlí 1900 Dáinn 26. ágúst 1982 Pálmar ísólfsson hljóðfæra- smiður andaðist að kveldi þann 26. ágúst sl., 82 ára að aldri. Hann átti við þungbær veikindi að stríða í mörg ár, og kemur því andláts- fregn hans ekki á óvart. Að ósk hans var hann jarðsettur í kyrr- þey- Það er nú liðin nærri hálf öld síðan fundum okkar Pálmars bar fyrst saman er hann kom á heimili foreldra minna til að stilla píanó- ið, en ég var þá að hefja nám við Tónlistarskólann sem þá var ný- stofnaður. Það kom fljótlega í ljós að Pálmar var afburða góður „stemmari" eins og það er oftast kallað, og urðu þessar komur á heimili okkar til þess að hann varð vinur fjölskyldunnar og ávallt boðinn og búinn að halda hljóð- færinu í góðu ásigkomulagi. Ég hefi því alla tíð haft náið samband við Pálmar, og þegar hann fyrir 12 árum flutti á neðri hæðina í hús- inu þar sem ég bý treystust vina- bönd okkar enn betur. Pálmar vann alla sína æfi að hljóðfæra- viðgerðum þ.e.a.s. píanó- og orgelviðgerðum og stillingum og var eins og áður er nefnt hreinn snillingur á þessu sviði. Það var enginn sá konsert haldinn hér í bæ í áraraðir að Pálmar væri ekki beðinn að stemma og gera við ef með þurfti. Hann hafði framúr- skarandi góða heyrn og næmleika svo hljóðfærin urðu sem ný eftir að hann hafði farið um þau hönd- um. Pálmar hélt þeirri reglu alla tíð að láta tónlistarmenn ganga fyrir öðrum ef þurfti að láta stilla eða gera við hljóðfæri þeirra, og senda þeir honum nú hlýjar hugs- anir er leiðir skilja. Pálmar var bráðvel gefinn og viðræðugóður. Hann var mjög „sjarmerandi" maður, og á góðra vina fundum var hann hrókur alls fagnaðar. En í eðli sínu var hann dulur og flík- aði ekki tilfinningum sínum að óþörfu. Ég minnist fjölmargra ánægjulegra stunda er við áttum tal saman og nú síðast sama dag- inn er hann lést. Hann hélt and- legum kröftum til hinnstu stund- ar. Eins og getið er hér að framan átti Pálmar við mikil veikindi að stríða síðustu árin. Naut hann umönnunar Sigurbjargar Björg- vinsdóttur, sem af mikilli alúð og ósérhlífni gerði það sem hægt var til að létta honum þungbær veik- indi, og eins vil ég nefna Bjarna son hans sem kom til hans daglega og stundum oft á dag til að vera föður sínum innan handar ef þess þurfti með. Ég og fjölskylda mín sendum | öllum aðstandendum hlýjar sam- úðarkveðjur. Blessuð veri minning | Pálmars Isólfssonar. 1 Rögnvaldur Sigurjónsson. t Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og vinarhug vlö andlát og jaröarför eiginmanns míns og fööur okkkar, BJÖRGVINS EMILS GÍSLASONAR, byggingarmeiitara, Tjarnarflöt 7, Garöabæ. Einnig þökkum viö starfsfólki á Grensásdeild Borgarspítalans frábæra umönnun, Oddfellow-bræörum, kvenfélagskonum og öör- um vinum sem þátt áttu í aö gera útför hans sem vlröulegasta. Anna Kristinadóttir, Unnur Björgvinsdóttir, Gísli Björgvinsson, Kristinn Björgvínsson, Jóhann Björgvínsson. SVAR MITT eftir Billy Graham Efling í spádómsriti Jesaja er talað um „fjársjóði myrkursins" (á íslenzku: „hulda fjársjóði“. Hvað merkir þetta? Orðið „myrkur" táknar venjulega einmanaleika, aðskilnað eða sálarbaráttu. Mannssálunni líður venjulega bezt, þegar hún þarf að berjast, þegar á hana reynir. Öryggi og velsæld þroska ekki sálina — heldur draga oft úr vexti hennar. Lesið mannkyns- söguna með athygli, og þér sjáið, að andbyrinn efldi menn, gerði þá að beztu mönnum. Enginn verður sægarpur á því að lóna inni á víkum. Stöðugur efna- hagur og velgengni tryggja okkur ekki hamingju né hæfni til að vera til gagns. Píslarvottar fornaldar styrktust í anda gagnvart ofsóknum. Þess vegna veittist þeim kraftur, sem var ofurmannlegur. Nútíminn þyrfti að finna að nýju „fjársjóði myrk- ursins", þyrfti að læra þá list að hugsa í kyrrð og einsemd. Við þurfum að vera á varðbergi fyrir hætt- um hóglífis og sinnuleysis. Það styrkir sálina bezt að lúta aga og reglu. —^ - Peningakassar SHARP peningakassar leggja ekki bara saman tölur — • Þeir halda aöskildri sölu allt aö 8 af- greiöslumanna. • Geyma verðminni, allt aö 630 föst verö. • Halda allt aö 30 vöruflokkum aöskildum á kasastrimli fyrir bókhaldið. • Sjáflvirk klukka stimplar tíma á strimil- inn — hvenær afleysingar taka til, — hvenær þessi eða hin ávísunin kom í kassann. HLJOMBÆR HUOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 Sími 17244 AMSTERDAM FÖGUR OG HEILLANDI BORG Miðstöð menningar og lista. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Ein hagstæðasta verslunarborg Evrópu. Draumaborg sælkerans með fjölbreyti- legum veitingastöðum. Glaðvært skemmtanalíf. Amsterdam er sérkennileg og fögur borg. Feneyjar Norður-Evrópu meö ótal borgarskuröum með líflegri umferð, þar sem sérkennilegur og fagur flæmskur byggingastíllinn speglast á Ijúfum síðsumardögum. Kynnið ykkur fjölbreytta haust- og vetraráætlun. Þaö kostar ótrúlega lítiö aö skreppa í viku til Amsterdam. Verö frá: 4 dagar 4.900.00. 5 dagar 5.300.00. 1 vika 6.200.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.