Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 17
Reagan lýsir Rúss- um og Kúbumönnum: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 17 „Ogeðslegir draugar...“ Hra.silíu, 2. desember. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti gagnrýndi Sovétmenn og Kúbumenn harðlega í ræðu sem hann hélt fyrir brasiliska viðskiptaleiðtoga í gær. Hann sagði, að vaxandi nhrif Sovét- ríkjanna og Kúbu í Suður-Ameríku væru eins og „ógeðslegur draugur að laumast um jörðina". Reagan kom ekki síður inn á samskipti aust- urs og vesturs í ræðu sinni, en versn- andi efnahag Brasiliu og bandarisk- an vilja til að leggja þar hönd á plóg- inn. Um umsvif austurs sagði Reag- an einnig, bæði í ræðu sinni í gær, svo og öðrum á yfirstandandi ferð sinni: „Einn er sá hlutur sem er heiminum ekki síður hættulegur en hernaður og jafnvel notkun kjarnorkuvopna. Það eru gervi- byltingarmennirnir sem grafa undan löglega kjörnum og sterk- um ríkisstjórnum og efnahagslífi þjóða. í heiminum í dag geisar „gervibylting" af þessu tagi. Sam- særi og landvinningar eru inni í dæminu og valdi er beitt. Síðan er stjórnað með byssuhlaupi og gaddavír er reistur. Ekki til þess að óvinir komist ekki inn, heldur til þess að þjóðin sjálf flýi ekki ógnarstjórnina." Var almennt álit manna, að Reagan gæti ekki átt við aðra en Rússa og Kúbumenn í þessu sambandi. Stokkhólmur: Hommar og lesbíur með fund við ísl. sendiráðið Stokkhólmi, I. desomber. Krá frétta- ritara Mbl. (iuAfínnu Kagnarsdóttur. HOMMAR og lesbíur mótmæltu í dag við sendiráð íslands í Stokk- hólmi meðferð íslenzkra stjórnvalda og íslenzks útvarps á íslenzkum hommum og lesbíum. Það voru sam- tök þeirra, sem berjast fyrir kynferð- islegu jafnrétti, sem stóðu fyrir mót- mælunum. Lítill hópur þeirra safnaðist saman við íslenzka sendiráðið með kröfuspjöld sem á stóð meðal ann- ars: „Stoppið niðurlægjandi með- ferð íslenzka útvarpsins á homm- um og lesbíum" og „Sömu aldurs- takmörk við kynmök lesbía og homma og gagnstæðra kynja". Mótmælendahópurinn kallaði fram mótmæli sín í kór og dreifði kröfublöðum til vegfarenda. Síðan var sendiherra íslands, Benedikt Gröndal, afhent mótmælaskjal til íslenzku ríkisstjórnarinnar. Þar er þess krafizt að íslenzka ríkisstjórnin aflétti banni íslenzka útvarpsins á að nefna lesbíur og homma í fundarauglýsingum og tilkynningum sem beinast til þess- ara hópa. „Aðgerðir ríkisútvarpsins skerða tjáningarfrelsi minni- hlutahóps og möguleika hans á að taka á móti upplýsingum. Þetta er skýlaust brot á tjáningarfrelsinu og brot á Mannréttindaskrá Sam- einuðu þjóðanna," segir í mót- mælaskjali samtakanna. Samtök- in benda einnig á, að Evrópuráðið hafi í október 1981 mælzt til þess, að aðildarlöndin kæmu á sömu aldurstakmörkunum við kynmök fyrir alla hópa, en á íslandi er ald- urstakmarkið átján ára fyrir homma og lesbíur en sextán ára fyrir aðra. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Utb. fra kr. 3.500.- íMatilb00 MA Fullkomið sett MAGNARI 2x25 W (RMS) 8+ ohm eða 2x35 W (DIN) Tónlistartrekkurinn er tryggður með þessum magnara. SEGULBANDSTÆKI Framhlaðin með léttrofa. Spólustillingar: Normal CROM og METAL Dolby sem eyöir suði, teljari þriggja stafa, flúor-upptökumælar, tvö inntök f. hljóðnema. Timer — Standby. ÚTVARPSMÓTTAKARI Allar bylgjur stereo, Ijósa stýring á stöö, Ijósa móttökustyrkmælir. PLÖTUSPILARI Léttarmur tryggir bestu hljómgæði ásamt magnetískum pick-up, anti-skeiting og ná- kvæmri þyngdarstillingu. HÁTALARAR Mikilvægur hlekkur í keðjunni, 60 watta bass-reflex hátalarar sem skila kristal-tærum hljóm. SKÁPUR Sá veglegasti í bænum. Tvær gerðir eftir þínu vali. Jólatilboð Verö 19.980.- staögr. útb. 3.500.- i fffTfrH ^ I niTTTTTlTT.T ÍEfflM merki unga fólksins VERSLIÐ i SÉRVERSLUN MEÐ LITASJÖNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 V BUÐIN • A **

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.