Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 48
munið trúlofunarhrin^u litmvndalistann fffl) #uU $c ásulfur Laugavegi 35 .^^iglýsinga- síminn er 2 24 80 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 Mjög harður árekstur í Hveragerði MJÖG harður árekstur varð í Hveragerði á föstudagskvöldið, þegar fólksbíll ók í veg fyrir vöru- bíi, með þeim afleiðingum, að öku- maður fólksbílsins var fluttur töluvert mikið slasaður á Borg- arspítalann í Reykjavík. Fólksbíll- inn er gjörónýtur. Sjónvarps- kerfi í Vík NÚ HEFIJR verid lagt sjónvarps- kerfi í rúmlega helming íhúðarhúsa í Vík í Mýrdal. Er það áhuga- mannafélag bæjarbúa, sem staðið hefur fyrir lagningu kerfisins og er reiknað með því að stofnkostnaður verði um 3.000 krónur á notenda. Að sögn Karls Ragnarssonar, sem er einn af forvígismönnum þessa, hefur verið langur aðdrag- andi að lagningu sjónvarpskerfis- ins eða um hálft annað ár, en tveir dagar eru síðan byrjað var að reyna kerfið og stilla það og hefur það reynzt vel. Sagði hann tilganginn þríþættan; að bæta úr slæmum móttökuskilyrðum sjón- varps í hluta þorpsins; að ná FM-útsendingum, stereo-útsend- ingum, hljóðvarps, og að nota kerfið hugsanlega sem aðvörun- arkerfi. Karl sagði, að fengin yrðu myndbönd frá Heimilistækjum og stafaði það meðal annars af því, að Myndbandaleiga kvikmynda- húsanna leigði ekki bönd til sjón- varpskerfa. Það kæmi þorpsbúum einkennilega fyrir sjónir, þar sem ekkert kvikmyndahús væri í þorp- inu og því varla um samkeppni þar á milli að ræða. Þá væri mik- ill áhugi á að taka myndir um þjóðhætti og þjóðlegan fróðleik úr héraðinu til sýninga í kerfinu. Vilji maður ekki fara í jólaköttinn er vissara að vera vel til fara á jólunum. Því flykktust menn í verzlanir í gær, en þá voru þær opnar Ljósmynd Mbl. RAX. til klukkan 16, en líklega viðraði víðast betur til innkaupa en á útimarkaðnum á Lækjartorgi þar sem þessi mynd var tekin í gær. Einingahúsainnfhitningur- inn hefiir tvöfaldast í ár Innflutningur á innréttingum hefur hins vegar aukizt um 161,3 í peningum talid GÍFURLEG AUKNING hefur orðið á innflutningi húsgagna, innréttinga og tréeiningahúsa á þessu ári, sem hefur gert innlendu framleiðslunni verulega erfitt fyrir, m.a. vinna mörg innlendu fyrirtækjanna aðeins á hálfum afköstum. til jóla Verðmæti innréttingainnflutn- ingsins fyrstu níu mánuðina í ár er liðlega 28,2 milljónir króna, en var um 10,8 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er því liðlega 161,3%, samkvæmt upplýsingum Hlöðvers Arnar Ólasonar hjá Landssam- bandi. iðnaðarmanr.a. Mest er aukningin í almennum innrétting- um, eða 490,9%. Innflutningur málminnréttinga hefur aukizt á umræddu tímabili' nm 314,5%, innflutningur á innréttingum úr tré um 200,9% og innflutningur á „öðrum" innréttingum hefur hins vegar aukizt um 132,6%. Innflutn- ingur á innréttingum úr'stáli hef- ur hins vegar dregizt saman um 33,6%. Innflutningur á stólum hefur aukizt um um 81,6% á þessu ári, miðað við sama tíma í fyrra. Mest hefur aukningin orðið á svokölluð- um „öðrum" stólum, eða um 473,2%. Aukningin á innflutningi stóla úr málmi hefur aukizt um 193,6% á þessu ári. Innflutningur á hillum og skáp- um úr málmi hefur aukizt um 184,2% á árinu. Innflutningur á borðumúr málmi hefur aukizt um 174,3% það sem af er þessu ári, og innflutningur á rúmum úr málmi hefur aukizt um 133,1% á þessu ári. Innflutningur á hillum og skápum úr tré hefur aukizt um 61,2% í ár, miðað við sama tímabil í fyrra. Innflutningur á svokölluð- um „öðrum" húsgögnum hefur aukizt um 271,4% á þessu ári. Þá hefur orðið gríðarleg aukn- ing á innflutningi einingahúsa úr tré, eða um um 250,3% fyrstu ‘níu mánuðina. Verðmæti innflutn- ingsins í ár er tæplega 24,6 millj- ónir króna, borið saman við lið- lega 7 milljónir króna í fyrra. í tonnum talið er aukningin milli ára liðlega 104%, eða úr 864 tonn- um í 1.767 tonn. Af einingahúsum kom mest frá Noregi þessa níu mánuði, en það- an var flutt inn fyrir um 12,4 milljónir króna, sem er um sex- földum frá sama tímabili í fyrra. Frá Danmörku voru flutt inn ein- ingahús fyrir um 10 milljónir króna, sem er um þreföldun frá fyrra ári. Farþegum Flugleiða frá Bandaríkjunum hefur fjölgað um 67% Framsóknarflokkurinn í Norðurlandi vestra: Uppstillingarnefnd sagði af sér vegna óeiningar Uppstillingarnefnd Framsóknar- flokksins í Norðurlandskjördæmi vestra kom saman til fundar á Sauðárkróki í vikunni til að taka ákvörðun um skipan framboðslista flokksins við næstu alþingiskosn- ingar. Mikil óeining var í nefnd- inni og endirinn varð sá, að nefnd- in sagði af sér og vísaði málinu til kjördæmisþings Framsóknar- flokksins. Eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu höfðu Húnvetn- ingar lagt fram tillögu þess efn- is, að Páll Pétursson, aiþingis- maður og formaður þingflokks Framsóknarflokksins, yrði færð- ur úr 1. sæti listans í það 3. Hins vegar myndi Stefán Guðmunds- son flytjast upp í 1. sæti og Ing- ólfur Guðnason upp í 2. Á fundi uppstillinganefndar- innar í vikunni kom síðan fram tillaga frá Siglfirðingum þess efnis, að Páll Pétursson yrði yf- irhöfuð ekki á listanum. Loks kom fram tillaga frá fulltrúum Skagfirðinga þess efnis, að Iist- inn yrði óbreyttur. Eftir miklar umræður varð síðan ljóst, að samkomulag næð- ist ekki og sagði nefndin þá af sér og vísaði ákvörðun um skip- an framboðslista flokksins til kjördæmisþings eins- og áður sagði. Farþegaflutningar Flugleióa frá Bandarikjunum til Evrópu hafa auk- izt um liölega 67% á þessu ári, sem er mun meiri aukning en oröið hefur almennt á markaönum, aö sögn Sig- fúsar Erlingssonar, forstöóumanns Vestursvæðis Flugleióa, en hann hef- ur aósetur í New York. Sætaframboð félagsins var aukið um í kringum 37% á þessu ári og stefnt er að því, að auka það um 30—33% á þessu ári. Sætaframboð hefur því verið aukið um í námunda við 80% á tveimur árum. Aðspurður um ástæður þessarar miklu aukningar sagði Sigfús að þar kæmu nokkrar ástæður til. „Gengisþróunin hefur gert mun hagstæðara fyrir Bandaríkjamenn að ferðast til Evrópu en verið hefur um árabil. Við höfum aukið sölu- starfsemi okkar verulega og það sem hefur kannski ekki sízt haft áhrif á þessa hluti, er að tiltrú fólks á Flugleiðum hefur aukizt gífurlega á síðustu tveimur árum og staðan því styrkzt að sama skapi. Eg tel, að félagið sé í raun búið að ná fyrri tiltrú farþega á því, en eins og kunnugt er áttum við mjög undir högg að sækja á erfiðleikaárum fé- lagsins í lok síðasta áratugar og fram á árið 1980,“ sagði Sigfús Erl- ingsson. Aðspurður um fargjöldin sagði Sigfús þau vera of lág vegna sam- keppninnar, sem væri ennþá tölu- vert erfið. „Ég tel að fargjöld þyrftu að hækka um á bilinu 10—12% til að verða raunhæf. Það bendir hins vegar ekkert til þess að þau hækki neitt á næstunni, eða ekki fyrr en undir páska sem eru óvenju snemma að þessu sinni, í marz. Það hefur enginn áhuga á að selja páskaferðirnar á þessum lágu far- gjöldum," sagði Sigfús Erlingsson. Sigfús Erlingsson sagði að fyrir- frambókanir væru betri á næsta ári en í ár. ^ I vetraráætlun eru flognar fimm ferðir milli Bandaríkjanna og Evr- ópu, en með sumaráætlun, sem hefst 26. marz nk., verða ferðirnar 16 í viku. Sigfús Erlingsson sagði, að ferðatíðnin væri með þessu að ná fyrra hámarki ef undan er skilið tímabilið fyrir sameiningu Loft- leiða og Flugfélagsins, þegar eitt árið var farin 21 ferð í viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.