Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR 278. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 Prentsmiöja Morgunblaösins Hafréttarráðstefna SÞ: Sáttmálinn undirrit- aður af 120 ríkjum Montego Bay, Jamaica, 10. de8ember. Al\ Hafréttarsáttmálinn var í dag und- irritaður af fulltrúum 120 ríkja við sögulega athofn, sem leiðir tii mynd- unar alþjóðlegrar hafsbotnsnefndar er skipuleggja mun vinnslu málma af hafsbotni. Tuttugu og eitt þeirra ríkja, sem áttu aðild að gerð sáttmálans, und- „Sérfræðinga- ráð“ kosið í Iran Nicosia, Kypur, 10. desemlKT. AP. MILLJÓNIR írana gengu að kjör- borðinu í dag til að kjósa sérstakt „sérfræðingaráð", sem mun síðan velja einstakling eða nefnd til að taka við af Ayatollah Kuhollah Khomeini við dauða hans, sam- kvæmt fregnum frá hinni opinberu írönsku fréttastofu, Irna, í dag. Samkvæmt fregnum frétta- stofunnar munu kjörstaðir hafa verið opnaðir klukkan sjö í morg- un að staðartíma og munu þeir verða opnir í tíu klukkustundir. Kjósendur munu velja 83 með- limi í ráðið af 146 frambjóðend- um, en mikill áróður hefur verið í landinu að undanförnu og allir kjósendur verið hvattir til að neyta atkvæðisréttar síns. Allir íranir sem eru eldri en 16 ára hafa kosningarétt. Fréttir útvarpsins í Teheran herma að allur akstur bifhjóla hafi verið bannaður í borginni á kosningadaginn „til að koma í veg fyrir hugsanleg samsæri gagnbyltingarmanna". irrituðu hann ekki í dag, en meðal þeirra voru Bandaríkin, Vestur- Þýskaland, Belgía og Bretland. Þessi ríki eru á móti ákvæðum sáttmálans sem varða vinnslu málma af hafsbotni. Japan undir- ritaði ekki heldur samninginn í dag, en þarlend stjórnvöld hafa áður til- kynnt að vel sé hugsanlegt að þau undirriti hann síðar. Yfirmenn Sameinuðu þjóðanna tilkynntu við undirritunina í dag, að yfirvöld Fiji-eyja í Kyrrahafi hefðu þegar staðfest undirritun sína, en sáttmálinn gengur í gildi þegar sextíu ríki hafa staðfest und- irritun fulltrúa sinna. Fulltrúar ríkjanna undirrituðu samninginn í stafrófsröð og hófst undirritunin klukkan níu í morgun að íslenskum tíma og var Perez de Cuellar aðalritari SÞ viðstaddur ásamt meira en 220 fulltrúum ríkj- anna 129. Sjá nánar á bls. 2. Reagan um Pólland: Mynd þessi er tekin í Buenos Aires í dag og sýnir hvar lögreglulið á hestum og lögreglubifreiðum reyndi að stöðva mannfjölda er safnast hafði saman og mótmælti mannréttindabrotum í landinu og krafðist lausnar pólitískra fanga og upplýsinga um þúsundir „horfinna" manna. Afnám herlaga leiðir til slökunar á refeiaðgerðum Washington, 10. deNember. AP. RONALD Reagan Banda- ríkjaforseti hélt í dag ræðu er varöaöi Pólland og framtíö þess. Hann sagöi hugsanlegt að yfirvöld í Póllandi afléttu herlögum nú er þing kæmi Friðarverðlaun Nóbels afhent Osló, 10. desember. AP. ALVA Myrdal frá Svíþjóð og Alfonso Garcia Robles frá Mexíkó tóku í dag við friðarverðlaunum Nóbels fyrir árið 1982, sem þeim var úthlutað sameig- inlega vegna starfa þeirra í þágu afvopnunar. Verðlaunaafhendingin fór fram í dag á alþjóðlega mannréttindadegin- um og sagði formaður Nóbelsverð- launanefndarinnar, Egil Árvik, að þau tvö hefðu skarað fram úr öðrum sem til greina komu á tveimur svið- um: „í fyrsta lagi vegna þrotlausra starfa í þágu afvopnunar hjá Samein- uðu þjóðunum og í öðru lagi vegna þeirra starfa sem þau hafa unnið við að uppfræða mannkynið urú vanda- mál vígbúnaðarkapphlaupsins og sameiginlegrar ábyrgðar þess,“ sagði formaðurinn við afhendinguna. Verðlaunahafarnir hlutu hvor um sig upphæð sem neraur um 1,15 millj- ónum sænskra króna ásamt orðum og heiðursskjölum. Sjá nánar um Nóbelsverðlauna- afhendingu í bókmenntum og vís- indum bls. 18. Friðarverðlaunaþegarnir Alva Myrdal og Alfonso Garcia Robles ræða við Ólaf Noregskonung við afhendinguna í dag. Utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins: NATO vill áþreifanlegar sannanir frá Sovétmönnum Kríisstd, 10. desember. AP. lltanríkisráðherrar Atlantshafs- bandalagsins luku tveggja daga fundi sínum í dag með þeirri yfirlýs- ingu að hin nýja sovéska forysta verði að sýna það með „áþreifanleg- um sönnunum'* ef vilji hennar er bætt samskipti við Vesturlönd. George P. Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hélt ræðu við lok fundarins og sagði raunsæi vera nauðsynlegt til að varðveita styrkleika Vesturlanda. „Við erum reiðubúnir til viðræðna, en hvort það hefur eitthvað að segja á eftir að koma í ljós.“ Utanríkisráðherrarnir lögðu einnig áherslu á það við lok fund- arins að aðildaríki Atlantshafs- bandalagsins séu reiðubúin til við- ræðna um bætt samskipti við Sov- étmenn, sem þau segja að hafi margsinnis gefið í skyn að undan- förnu að þau séu reiðubúin til samninga, en hins vegar ekki verið með neitt áþreifanlegt því til sönnunar. George P. Shultz hélt þegar að loknum fundinum til viðræðna við yfirmenn Efnahagsbandalags Evrópu, en þar var ráðgert að til umræðu yrðu kvartanir Banda- ríkjamanna vegna niðurgreiðslna landbúnaðarafurða sem grafi und- an mörkuðum þeirra í öðrum lönd- um. Einnig var ítrekuð fyrri ákvörð- un bandalagsins þess efnis að í engu yrði hvikað frá fyrri áætlun um að koma fyrir eldflaugum í Vestur-Evrópu á næsta ári, nema að Sovétmenn fallist á samkomu- lag um raunverulegt eftirlit með vígbúnaði í viðræðum þeim sem fram fara í Genf um það efni. saman, og ef um yrði að ræða „raunveruleg skref í átt til frelsis“, tæki hann refsiað- geröirnar til gagngerrar end- urskoðunar. Reagan kynnti þessar ákvarðanir sínar á fundi með nokkrum fulltrúum þingsins og hópi pólsk-bandarískra leiðtoga og sagði: „Allar ákvarðanir í þessu sambandi verða teknar í samráði við bandamenn okkar, en ef um einhverjar raunveru- legar framkvæmdir verður að ræða munum við taka okkar eigin ákvarðanir. En afnám herlaga, lausn pólitískra fanga og viðræður milli stjórnvalda og fulltrúa almennings í land- inu er algjör forsenda þess að til þess komi.“ Pólska þingið mun koma saman á mánudag og er talið líklegt að herlögunum, eða hluta þeirra, muni verða aflétt. Ekki er hins vegar talið að það muni hafa miklar breytingar í för með sér á næstu mánuðum þó svo verði. Yfirmenn hafa gefið í skyn að flestir þeir er fangelsaðir voru vegna setningar herlag- anna verði látnir lausir fyrir jól og einnig verði ferðalög gefin frjálsari. Hins vegar er ekki talið líklegt að þeir pólitískir fangar er kallaðir eru „öfga- menn“ af yfirvöldum verði leystir úr haldi að sinni. Pólsk yfirvöld hafa nú til- kynnt að 10.131 maður hafi ver- ið handtekinn á þessu ári sem liðið er frá setningu herlaganna og á miðvikudag hafi 317 þeirra enn verið í haldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.