Morgunblaðið - 15.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.12.1982, Blaðsíða 1
64 SIÐUR 281. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna (t.v.), og Francois Mitterrand forseti Frakklands í Elysées- höll í dag, en bandaríski utanrikisráðherrann er á ferðalagi um Evrópu um þessar mundir. Fundur þeirra stóð í þrjár klukkustundir og sagði Shultz að viðræðunum loknum að þær hefðu verið „gagnlegar". Næsti viðkomu- staður Shuitz á ferðalaginu er Madrid, þar sem hann mun ræða við hina nýju stjórn sósíalista undir forvstu Felipe Gonzales. „Sigurinn mun verða okkar“ — segir Lech Walesa í ræðu er dreift var í Varsjá í dag, þar sem hann hvetur einnig til friðsamra aðgeröa Varsjá. 14. desember. AP. DREIFT var i Varsjá í dag fyrstu ræðu Lech Walesa frá setningu herlaga fyrir einu ári síðan. Þar hvetur Walesa landa sína til að beita friðsamlegum aðgerðum í þágu ólöglegu verkalýðsfélaganna Samstöðu og segir: „Sigurinn mun verða okkar.“ Ræðu Walesa var dreift til vest- rænna fréttamanna, en áætlað er að hann flytji hana við athðfn á fimmtudag fyrir utan skipasmíða- stöðina í Gdansk, þar sem óháðu verkalýðsfélögin Samstaða voru formlega stofnuð í ágúst 1980. „Ég er trúr þeim hugm.vndum er mótaðar voru í ágúst 1980“, segir Walesa einnig í ræðunni, en ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna hann ákvað að birta hana fyrirfram. Hins vegar er talið líklegt að Wal- Reagan endurskoðar hugmyndir um staðsetningu MX-flauganna Washinffton, 14. desember. AP. RONALD Reagan Bandaríkjafor- seti, samþykkti í dag tilslökun í þeim tilgangi að reyna að bjarga frumvarpi sínu um MX-eldflaugar frá falli í öldungadeildinni. Til- slökun þessi felur í sér að fram- Norður-Yemen: Tala látinna er komin yfir 1000 Manama, Bahrain, 14. dcsembír. AP. JARÐSKJÁLFTINN sem gekk yfir Norður-Yemen á mánudag mun hafa orðið meira en 1000 manns að bana og eyðilagt 136 þorp, samkvæmt heimildum hinnar ríkisreknu útvarpsstöðvar. Erlendir stjórnarerindrekar álíta að meira en 3000 manns hafi særst. Enn er talið að tala látinna eigi eftir að hækka. í fregnum útvarpsstöðvarinnar kom fram að meðal þeirra sem lét- ust hafi verið 250 nemendur grunnskóla sem grófust undir rústum skólahússins. Forseti Norður-Yemen, Ali Abdullah, mun hafa hraðað sér til Mið-Yemen til að stjórna björgun- araðgerðum þaðan, en í dag munu enn hafa verið að finnast lík í rústum. AIi Lufti Al-Thor, utan- ríkisráðherra landsins, mun hafa kallað á sinn fund fulltrúa er- lendra stjórnvalda i dag og farið fram á það að þeir kæmu á fram- færi hjálparbeiðni til stjórna sinna vegna hörmunga jarð- skjálftanna. Einnig munu taka þátt í björgun- araðgerðum liðssveitir PLO, sem hafa aðsetur í Norður-Yemen, og komu þangað frá Beirút fyrr í sumar. leiðsu MX-eldflauganna verður haldið áfram, en forsetinn leggur fram aðrar hugmyndir um stað- setningu þeirra. Samkvæmt þessari tillögu, sem miðar að því að ná fram samþykki öldungadeildarinnar, verða öll fjárframlög til fram- leiðslu og staðsetningar flaug- anna „fryst" innan kostnaðar- áætlunarinnar til varnarmála, sem nú er til umræðu, og ekki notuð nema til komi nýjar tillög- ur forsetans um staðsetningu flauganna, auk nánari upplýs- inga um fyrirkomulag hennar. Reagan hefur frest til 1. mars til að koma með nýjar tillögur í stað hinna fyrri um staðsetningu flauganna, en hún hefur mætt mikilli andstöðu jafnt í fulltrúa- sem öldungadeildinni. Þegar þessi nýja tillaga er komin fram hefur þingið hana síðan í 45 daga til umfjöllunar. Til þess hún öðlist gildi verður hún að hljóta samþykki bæði öldunga- og fulltrúadeildarinn- ar. esa hafi valið þann kostinn, þar sem hann var ekki viss um að fá leyfi stjórnvalda til að ávarpa mannfjöldann á fimmtudag. Walesa hafði tilkynnt, er hann var látinn laus úr stofufangelsi, að hann þarfnaðist eins mánaðar hvíldar og umhugsunar áður en hann tæki næsta skref og haft er eftir vestrænum heimildum í Varsjá í dag, að augljóst sé að hann hafi íhugað mál sitt vand- lega. A sama tíma tilkynntu yfirvöld að auknar hömlur hefðu verið lagðar á vegabréfsáritanir til Bandaríkjanna og einnig hefði verið skorið á öll vísinda- og menningarleg tengsl við þau vegna „afskipta þeirra af innan- ríkismálum Póllands.” „Stjórnvöld í Póllandi voru neydd til að taka þessa ákvörðun til að vernda stjórnmála-, vísinda- og menningarlega hagsmuni þjóð- arinnar", segir í yfirlýsingu stjórnvalda varðandi mál þetta, sem birtist í fréttum opinberu fréttastofunnar PAP. Dreifði 1500 flöskum af kúbönsku rommi Stokkhólmur, 14. desember. AP. S/ENSKA utanríkisráðuneytið bar í dag fram mótmæli við sendiherra Kúbu í Stokkhólmi, eftir að 1500 flöskum af kúbönsku rommi var dreift á hátíðarsam- kundu nokkurri til heiðurs Nóbelsverðlaunahafanum Gabriel Garcia Marquez. Rommið var gjöf frá Fidel Castro, forseta Kúbu. Tólf hundruð manns voru viðstaddir hátíðahöldin sem fram fóru á sunnudag og voru þeir allir leystir út með gjöfum Castros, kúb- anska romminu. „Haldi menn veislu er nauðsynlegt að hafa romm,“ mun Castro hafa sagt vini sínum Marquez, sem kom við í Havana á leiðinni til Stokk- hólms. Stjórnvöld í Svíþjóð hafa hins veg- ar tilkynnt að þau líði ekki svona gáleysislega dreifingu á áfengi, og sendiherra Kúbu mun hafa borið fram formlega afsökun vegna athæf- írland: Fitzgerald kjörinn forsætisráðherra Dvflinni, 14. desember. AP. GARRET Fitzgerald, leiðtogi Fine Gael-flokksins, var í dag kjörinn forsæt- isráðherra írska lýðveldisins í annað skipti á undanförnum átján mánuðum. Hann mun verða leiðtogi samsteypustjórnar með Yerkamahnaflokknum. Hann tekur við embættinu úr höndum Charles Haughey, sem tókst ekki að vinna meirihluta í kosningunum þann 24. nóvember síðastliðinn. Irska þingið, Dail, kom saman í fyrsta skipti eftir kosningar í dag og hinir 166 þingmenn þess greiddu atkvæði um forsætisráðherra- embættið. Fitzgerald hlaut 85 at- kvæði gegn 79. Þessi nýja stjórn er fyrsta meiri- hlutastjórn írska lýðveldisins frá því í júní 1981. Fitzgerald hefur áður lýst því yfir, að hans aðalbaráttumál verði að reyna að binda endi á 13 ára blóðugar erjur á Norður-írlandi og finna viðunandi lausn á vanda- málum þar. Mesta peningarán í sögu Bandaríkjanna New York, 14. desember. AP. TVEIR grímuklæddir menn rændu í gær stærstu fjárfúlgu sem rænt hefur verið i heilu lagi í Bandarikjunum, þeir höfðu a.m.k. 5,3 milljónir dollara á brott með sér og skildu þó eftir 20 milljónir. Ránið var framið hjá Sentry Armoured Car Courier-fyrirtæk- inu, sem tekur að sér að flytja verðmæti með brynvörðum vöru- bílum hlöðnum vopnuðum vörð- um. Ræningjarnir tveir hjuggu sér leið með skrúfjárni í gegnum meters þykkt flatt þak fyrirtæk- isins sem mun vera úr tjöru- pappa að meira og minna leyti, sigu síðan niður í skrifstofu í kaðli og afvopnuðu síðan eina vörðinn á svæðinu, sem var að horfa á sónvarp í næsta her- bergi. Eftir að hafa handjárnað hann, þustu þeir að peninga- hirslum fyrirtækisins og létu greipar sópa. I hirslurnar kom- ust þeir með kúbeinum og járnklippum, en þar voru geymdar 25 milljónir dollara. Ræningjarnir hirtu aðeins seðla- pokahrúgu sem næst þeim stóð og fluttu til vörubifreiðar sem þeir höfðu lagt skammt frá dyr- um fyrirtækisins. Óljóst er, hvers vegna þeir létu afganginn af peningunum eiga sig. Lögreglunni í New York þykir sem margt bendi til þess að um „innanhúsmáP sé að ræða, ræn- ingjarnir hafi verið einum of kunnugir aðstæðum til þess að um utanaðkomandi bófa geti verið að ræða. Tveir varðhundar létu ekkert í sér heyra og er ver- ið að athuga hvort þeim hafi ver- ið gefin lyf. Þjófavarnarkerfi fyrirtækisins vældi ekki og síð- ast en ekki síst þykir í hæsta máta óeðlilegt að aðeins einn vopnaður vörður skuli hafa verið í húsinu miðað við þær fjárupp- hæðir sem þar voru geymdar. Loks greindi ónafngreind en trygg heimild frá því, að hver einasta króna sem hvarf hafi verið tryggð. Sem fyrr segir, er þetta mesta rán sögunnar í Bandaríkjunum. Gamla metið, ef svo mætti að orði komast, var sett fyrir fjór- um árum, er verðmætum að and- virði 5,8 milljóna var stolið úr farangursgeymslum Lufthansa- flugfélagsins þýska á Kennedy- flugvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.