Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 286. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ferjuskipið „European Gateway“, sem er i eigu brezka fyrirtækisins Townsend Thoresen, sést hér liggja á hlið- inni eftir áreksturinn við „Speedlink Vanguard". Sex farast í árekstri ferja llarwich, Kn^landi, 20. desembnr. Al’. FIMM menn fórust og eins er saknað eftir að tvær ferjur lentu í árekstri í nótt í ofsaveðri úti fyrir austurströnd Eng- lands. Þeir sem létust voru allir af annarri ferjunni, Europ- ean Gateway, en á hinni, Speedlink Vanguard, sakaði engan. Sextíu og fjórum mönnum af European Gateway var bjargað, flestum um borð í danskt skip, Dana Futura, sem varð fyrst á vettvang eftir áreksturinn. Eftir farþeg- um European Gateway er haft, að björgunarbátarnir um borð hafi ekki blásist upp og að einnig hafi björgunar- vesti reynst vera af skornum skammti. Þessum ásökunum hafa eigendur skipsins harðlega neitað. Farþega bjargað í land i Felixstowe í Eng- landi. Neitaði að sam- þykkja fjárveitingu til MX-eldflauganna Washington, 20. desember. Al*. SAMEIGINLEG nefnd beggja deilda bandaríska þingsins neitaði í dag að samþykkja fjárveitingu til Bandaríkjastjórnar til smíði á MX-eldflaugunum svonefndu. Með þessari ákvörðun er komið í veg fyrir, að bandaríska stjórnin fái fjár- veitingu að fjárhæð 988 millj. doll- ara til þess að framleiða fyrstu fimm af 100 MX-eldflaugum, sem Reagan forseti haföi farið fram á að láta smíða. Hins vegar var staðfest fjárveit- ing, sem nemur 2,5 milljörðum dollara til undirbúnings og rann- sókna á smíði þessara eldflauga, enda þótt mestan hluta þessarar fjárhæðar verði ekki unnt að nota, fyrr en Bandaríkjaþing hefur samþykkt, hvar eldflaugunum skuli komið fyrir. Ted Stevens, öldungadeildar- þingmaður frá Alaska, sem er ein- dreginn stuðningsmaður banda- rísku stjórnarinnar í smíði MX-eldflauganna, sagði í dag, að samtímis því sem rannsóknir færu fram á öllu því, sem til þessara eldflauga þarf, þá væri unnt að smíða verulegan fjölda þeirra, en þó ekki fyrr en þingið hefði sam- þykkt, hvar þeim skuli komið fyrir. Forsætisráðherra Portúgals sagði af sér: Afsögnin mælist misjafnlega fyrir Lissabon. 20. desomber. Al\ AFSÖGN Pinto Balsemaos, forsæt- isráðherra Portúgals, í morgun, mánudag, hefur mælzt misjafnlega fyrir innanlands og á fundi stjórn- málanefndar Sósíaldemókrata- flokksins á sunnudag var lagt hart að Balsemao að sitja áfram, að minnsta kosti fram i marz. Þá verð- Morðsamsærið var „annar kostur en innrás í I ólland“ segir ítalska stjórnin og kveðst hafa sannanir fyrir aðild Búlgara að tilræði við páfa Róm, 20. desember. Al\ ÍTALSKA ríkisstjórnin sakaði í dag Búlgara í fyrsta sinn opinberlega um að hafa staðið að baki morðtilræðinu við Pál páfa og sagði varnarmála- ráðherrann, að þar hefði verið um að ræða „sannkallaöa hernaðaraðgerð á friðartímum“. Á skyndifundi italska þingsins í dag sagði Lelio Lagorio, varnar- málaráðherra ítölsku stjórnarinn- ar, að morðtilræðið við Jóhannes Pál páfa II hefði verið ákveðið sem „annar kostur en innrás 1 Pólland". Lagorio nefndi þá ekki, sem kynnu að hafa viljað ráðast inn í Pólland, en Páll páfi hefur barist mjög fyrir málstað Samstöðu, fyrsta sjálf- stæða verkalýðssambandsins í ríkj- um kommúnismans. Emilio Col- ombo, utanríkisráðherra, kvað stjórnina mundu grípa til frekari aðgerða gegn Búlgörum, nánasta fylgiríki Sovétmanna, en fyrir tíu dögum kallaði hún heim sendiherra sinn í Sofia. Á skyndifundinum í dag greindu fjórir ráðherrar frá því, að stjórn- völd hefðu í höndum sannanir fyrir aðild Búlgara að banatilræðinu við páfa og öðrum hryðjuverkum á ít- alíu, þar á meðal að ráni banda- ríska hershöfðingjans James L. Dozier í fyrra. Lagorio, varnar- málaráðherra, sagði, að ítalskir gagnnjósnamenn hefðu frá upphafi verið vissir um, að morðárásin á páfa væri „alþjóðlegt samsæri". Þeir hefðu lengi fylgst með dul- málssendingum milli Ítalíu og Búlgaríu og svo hefði viljað til, að alltaf hefði mikill fjörkippur hlaup- ið í sendingarnar samfara áður- nefndum hryðjuverkum. Það hefði þó ekki verið fyrr en Ali Agca, sem reyndi að ráða páfa af dögum, féllst á að segja allt af létta, að verulegur skriður komst á málið. Einn Búlgari er nú í haldi hjá ítölsku lögreglunni vegna tilræðis- ins við páfa, gefin hefur verið út handtökutilskipun á annan og sá þriðji liggur undir grun. Auk þess er verið að rannsaka mál tveggja annarra í framhaldi af handtöku Luigis Scricciolo, starfsmanns hjá verkalýðssambandinu UIL, sem ját- að hefur njósnir fyrir Búlgara. Scricciolo er sagður hafa haft milli- göngu milli Búlgara og liðsmanna Rauðu herdeildanna og einnig er hann talinn hafa veitt pólskum kommúnistum upplýsingar um leið- toga Samstöðu, sem hann hafði mikil samskipti við. Clelio Darida, dómsmálaráð- herra, sagði á þingfundinum, að Sofia, höfuðborg Búlgaríu, væri „ein af helstu miðstöðvum vopna- smygls og eiturlyfjaverslunar í heiminum" og Colombo, utanríkis- ráðherra, kvað stjórnina nú hafa í undirbúningi viðeigandi aðgerðir vegna þessa máls. ur haldið flokksþing, sem væntan- lega ákveður hvernig forystu- mannavandi flokksins verður leyst- ur. Á fundi stjórnmálanefndarinn- ar flutti Balsemao ræðu, þar sem hann sagðist ekki teysta sér til að sitja áfram, og væri það bæði af pólitískum og siðferðilegum ástæðum. Hann sagði að ágrein- ingurinn innan flokksins væri orð- inn slíkur, að allt beindist nú að því að gagnrýna hann sem forsæt- isráðherra og meðan kröftum væri sóað í það, biðu mál úrlausnar og um þau væri ekki skeytt. Með því að hann færi, gæfi hann öðrum kost á að spreyta sig og þar með væri heldur ekki endalaust hægt að afsaka bágt efnahagsástand með því að halda uppi stöðugri gagnrýni á sig, sem oft virtist persónuleg fremur en málefnaleg. Búizt er við að eftirmaður hans verði valinn allra næstu daga. Sósíalistaflokkur Mario Soares hefur krafizt kosninga vegna ákvörðunar forsætisráðherra, en Ramalho Eanes forseti hefur sagt að hann muni ekki rjúfa þing, a.m.k. ekki fyrr en fullreynt er, hvort PSD finnur nýjan leiðtoga. Sjá: Af erlendum vettvangi“ bls. 18. Kohl kanslari bjartsýnn þrátt fyr- ir sigur jafnaðarmanna í Hamborg llamborK, 20. desember. AP. HELMUT Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands sagði í dag, að flokkur hans, kristilegir demókratar, hefði eftir sem áður mjög góða möguleika á að sigra í almennum þingkosning- um á næsta ári. Þar breytti engu um sá hnckkir, sem flokkurinn hefði beðið í fylkisþingkosningunum í Hamborg nú um helgina. — Úrslit kosninganna í Hamborg sýna aðeins, að kjósendur eru mjög viðkvæmir gagnvart því, sem gerist í stjórnmál- um og óvenju sveigjanlegir eins og er, sagði kanslarinn á fundi með fréttamönnum í Bonn. í kosningunum á sunnudag fengu jafnaðarmenn 51,3% greiddra atkvæða og fengu þar með meiri hluta í fylkisþinginu í Hamborg, en kristilegri demókrat- ar fengu 38,6%. Græningjarnir svonefndu fengu 6,8% og eru þann- ig þriðji stærsti flokkurinn á fylk- isþinginu. Frjálsir demókratar fengu aðeins 2,6% atkvæða og fengu þar með engan mann kjör- inn á fylkisþingið, en til þess þarf 5% greiddra atkvæða. Þetta var í annað sinn á sex mánuðum, sem kosningar fara fram til fylkisþings í Hamborg, en kosningar til þess fóru síðast fram í júní sl. Þá fékk enginn einn flokk- ur hreinan meirihluta á fylkis- þinginu og öll viðleitni til þess að koma á samsteypustjórn fór út um þúfur. Hans-Jochen Vogel, leiðtogi jafnaðarmanna lýsti kosningaúr- slitunum í Hamborg sem svari kjósenda við þeim „rangindum“, sem sambandsstjórnin hefði fram- ið með atburðum síðustu daga, en í síðustu viku lét stórn Kohls sjálf fara fram vantraust á sig til þess að knýja fram þingkosningar í marz nk. Sagði Vogel, að miðað við allt landið þá sýndu skoðanakann- anir, að kristilegir demókratar hefðu enn meira fylgi en jafnað- armenn. Úrslitin nú væru þó mikil uppörvun fyrir væntanlegar þing- kosningar. I kosningunum í júní sl. fengu jafnaðarmenn aðeins 42,8%, en kristilegir demókratar 43,2%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.