Morgunblaðið - 23.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.12.1982, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 288. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Lundúnir: Eitt snjókorn á 2,7 millj. kr. Lundúnum. 22. desember. Al*. EF EITT einasta snjókorn fellur á veðurstofuna í Lundúnum á hádegi á jóladag mun það kosta veðmang- arann William Hill hvorki meira né minna en 2,7 milljónir ísl. kr. Eftir að hafa ráðfært sig við veðurspámenn og aðra fjöl- kynngismenn ákvað veðmang- arastofan hans Williams að veðja um það 20 gegn 1, að Lundúna- búar fái rauð jói að þessu sinni, eins og raunar oftast endranær. Ef svo ólíklega fer hins vegar, að þau verði hvít, munu William og vinir hans verða um 2,7 milljón- um ísl. kr. fátækari. „Við setjum allt okkar traust á veðurfræðing- inn en vegna þess, að það eru jól, erum við tilbúnir til að taka nokkra áhættu," sagði William. Ekki er áhættan þeirra þó allt- of stór því að samkvæmt reglun- um verður að snjóa á veðurstof- una þegar klukkan slær tólf á há- degi og skiptir þá einu hvort kaf- aldshríð og kolófært er fyrir og eftir þann tíma. Veðurfræðingar segja, að einu „Bing Crosby-jól- in“, þ.e. hvít jól, í Lundúnum sl. 20 ár hafi verið árið 1970 og að auki hafi aðeins fjórum sinnum gert dálitla slyddu á þessum tíma. Austur-Þýskaland: Landamæravörður flýr með alvæpni Miinchen, 22. desember AP. Prinsinn og prinsessan af Wales léku á als oddi þegar þau leyfðu í gær ljósmyndurum í fyrsta sinn opinberlega að taka myndir af frumburðinum, honum William litla af Wales. Litli prinsinn þótti standa sig vel en setti þó stundum í brýnnar eins og sjá má á myndinni. AP. Viðræður Lábana og ísraela í næstu viku ÁTJÁN ára gömlum austur- þýskum landamæraverði tókst í gær að flýja yfir til Vestur-Þýskalands í fullum herskrúða og þykir það furðu Páfi varar við óhófi og eyðslu Kóm, 22. desember Al*. JÓHANNES Páll páfi II skoraöi í dag á kristna menn um heim allan að breyta ekki jólahátiðinni í „tíma óhófs og óþarfrar eyðslu“. Sagði hann, að á fæðingarhátíð frelsarans ættu menn að hafa í fyrirrúmi auðmýkt hjartans og leiða hugann að þeim, sem hungra og þyrsta í tvennum skilningi. Páfi lét nokkur orð falla á móð- urmáli sínu, pólsku, og sagði, að á þessum dögum væri hugur hans með þeim, sem „aðskildir hefðu verið frá fjölskyldum sínum, í ein- angrun eða fangelsi“. A aðfangadagskvöld mun páfi annast hina hefðbundnu miðnæt- urmessu í Péturskirkjunni og á jóladag flytur hann hann blessun- arboðskapinn „urbi et orbi“, til borgarinnar og heimsbyggðarinn- ar, frá svölum kirkjunnar. sæta, að hann skyldi komast óskaddaður hjá dauðagildr- unum á landamærunum, að því er lögreglan í Bæjara- landi skýrði frá. Landamæravörðurinn ungi hef- ur vafalaust verið vel kunnugur drápstólunum og fyrirkomulagi þeirra því að yfir landamærin er varla neinum fært nema fuglinum fljúgandi. Á 1400 km milli þýsku ríkjanna hafa Austur-Þjóðverjar komið fyrir samfelldu neti af jarðsprengjum og girðingarnar eru tengdar sprengjum, sem springa ef reynt er að komast yfir þær. Að sögn lögreglunnar var landa- mæravörðurinn með sjálfvirkan Kalashnikov-riffil og vel búinn skotfærum þegar hann flúði. Jerúsalcm, 22. desember. AP. ÍSKAELAK og Líbanir munu hefja viðræður í næstu viku um brottflutn- ing ísraelsks herliðs frá Líbanon og öryggissáttmála milli landanna að því er ísraelskir embættismenn sögðu í dag. Fulltrúar Bandarikja- stjórnar munu veröa beinir þátttak- endur í viðræðunum, sem fram eiga að fara í hvoru landinu um sig til skiptis. Kristnir menn og Drúsar börðust i dag í nokkrum þorpum fyrir sunnan Beirut. Fyrirhugað er að viðræðurnar hefjist á föstudag í næstu viku en Líbanir og Israelar draga upp nokkuð ólíka mynd af viðfangsefni þeirra. ísraelar segja, að eitt af meginmálunum verði eðlileg sam- skipti milli ríkjanna en Líbanir fullyrða aftur á móti, að hvorki verði um það rætt né friðarsátt- mála milli ríkjanna. Um slík mál verða höfð samráð við önnur Arabaríki, segja Líbanir. Að sögn Israela liggur ekkert fyrir um að Sýrlendingar og Palestínumenn séu búnir til brottferðar frá Líban- on en Líbanir sjálfir segjast hins vegar hafa fyrir því handsöl og fulla tryggingu. Bardagar brutust út í dag milli kristinna manna og Drúsa í þrem- ur þorpum fyrir sunnan Beirut eft- ir að fimm kristnir menn höfðu verið vegnir úr launsátri. Vopna- viðskiptin hófust þegar skólabörn voru í þann veginn að halda til síns heima og af þeim sökum hafast nú mörg hundruð börn við í kjöllurum skólanna. Foreldrar þeirra hafa í allan dag grátbeðið yfirvöld um að stilla til friðar með vígamönnunum og að sögn er nú verið að semja um vopnahlé. Hussein Jórdaníukonungur er nú í Washington og hefur þar átt við- ræður við Reagan forseta, sem lagt hefur hart að honum að taka þátt í væntanlegum friðarviðræðum. Hussein mun hins vegar setja það skilyrði fyrir þátttöku, að ísraelar hætti að koma upp byggðum Gyð- inga á herteknu svæðunum eins og Reagan hvatti til í friðaráætlun sinni 1. sept. sl. Þá áskorun hafa ísraelar látið sem vind um eyru þjóta hingað til. Smyglhringur tengist banatilræði við páfa Trenlo. Ítalín. 9.9 dewmher A1* Trento, Ítalíu, 22. desember. AP. Kíkissaksóknarinn á Ítalíu gaf i dag út handtökuskipun á hendur Tyrkjanum Bekir Celenk vegna eit- urlyfja- og vopnasmygls en Celenk er einnig eftirlýstur vegna banatilræðis- ins við páfa. Er þetta í fyrsta sinn, sem staðfest eru tengsl milli þessara tveggja mála. Carlo Palermo, ríkissaksóknari, sagði, að Celenk væri ákærður fyrir að hafa „skipulagt smygl á vopnum og eiturlyfjum" en í fyrra mánuði braut lögreglan í Trento á bak aftur „heimsins stærstu sam- tök vopnasmyglara" og handtók átta manns. 214 annarra er leitað og er talið, að margir þeirra séu í Búlgaríu. Auk léttra vopna og skotfæra smyglaði hringurinn þyrlum og brynvörðum bílum, einkum til Miðausturlanda, og var jafnan greitt fyrir með heróíni, Bekir Celenk á blaðamannafundi í Sofia. sem síðan var komið á Bandaríkja- markað fyrir tilstilli mafíunnar. Búlgarar, sem hafa Celenk í „haldi“, segjast sjálfir vera að rannsaka aðild hans að banatil- ræðinu við páfa og héldu með hon- um blaðamannafund í Sofia sl. föstudag. Þar kvaðst Celenk vera alsaklaus af ákærum, hann væri aðeins heiðarlegur kaupsýslumað- ur, sem einkum höndlaði með ávexti og grænmeti. ítalir og Tyrk- ir fullyrða hins vegar, að hann hafi hjálpað Ali Agca að flýja úr fang- elsi í Tyrklandi og seinna, þegar Agca var kominn til Búlgaríu, boð- ið honum nærri 20 millj. ísl kr. fyrir að ráða páfa af dögum. Einn- ig hafi hann kynnt Agca fyrir búlgörskum leyniþjónustu- mönnum, sem áttu að aðstoða hann við ódæðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.