Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 26. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins RKESKIR HERMENN í BEIRÚT. Hópur 22ja breskra hermanna kom til Beirút í Líbanon í gær en þar munu þeir taka höndum saman vió ítalska, franska og bandaríska hermenn við gæslustörf í landinu. Von er á fleirum næstu daga en alls munu þeir verða um 100 talsins. AP. Andropov haftiar áskorun Reagans — en tillögunni vel fagnað á Vesturlöndum Pólland: Lægri laun handa veik- um verka- mönnum Varsjá, 1. febrúar. AP. Kommúnistastjórn Póllands tókst í gær að yfirstíga áður óþekkta andstöðu á þjóðþinginu og fá þar samþykkt frumvarp, sem ætlað er að draga verulega úr fjar- veru frá vinnu með því að lækka laun stórlega í veikindaforfóllum. Áttatíu og átta af 294 þingfull- trúum, sem viðstaddir voru at- kvæðagreiðsluna, sátu hjá og 10 greiddu atkvæði gegn frumvarp- inu. Margir þeirra þingmanna, sem sátu hjá við atkvæða- greiðsluna eða voru frumvarp- inu andvígir, kvörtuðu yfir því, að frumvarpið myndi skaða hagsmuni heiðarlegra verka- manna. Ætlun stjórnvalda með frumvarpinu er hins vegar að bæta efnahag Póllands, sem hef- ur átt við mikla erfiðleika að stríða að undanförnu. Sam- kvæmt því fá pólskir verkamenn aðeins 50% af launum sínum fyrstu þrjá dagana í veikinda- forföllum, en síðan 80%. Til þessa hafa þeir fengið 80% launa frá upphafi veikinda. Samtímis þessu frumvarpi var borið fram annað frumvarp um betri launakjör til handa námuverkamönnum á eftirlaun- um og var það samþykkt mót- atkvæðalaust. Rússar lækka verð á hráolíu Fjögur Arabaríki boða verölækkun eftir viku Kóm, I. febrúar. AP. SOVÉTMENN hafa lækkað verð á hráolíu um 2,15 dollara og er verðið nú 29,35 dollarar fyrir tunnuna. Vegna þessa er talið, að aðrir olíuframleiðendur neyðist til að lækka sína hráolíu einnig. Fréttastofan í Kuwait sagði í dag, að arabískar olíufram- leiðsluþjóðir við Persaflóa myndu innan viku lækka sitt hráolíuverð um fjóra dollara. Lækkunin á hráolíuverðinu í Rússlandi kemur fram í olíu- kaupasamningi, sem tvö ítölsk fyrirtæki hafa gert nú nýlega. Er haft eftir talsmönnum fyrirtækjanna, að Rússar hafi staðfest við þá þetta nýja verð. í gær var verð á rússneskri hráolíu á skyndimarkaðnum í Rotterdam 28,50 dollarar fyrir tunnuna. Hin opinbera fréttastofa í Kuwait sagði í dag, að fjórar aðildarþjóðir OPEC við Persa- flóa, Saudi-Arabía, Kuwait, Sameinuðu arabísku fursta- dæmin og Qatar, hefðu til- kynnt samtökunum, að innan viku yrði hráolíuverð frá þeim lækkað um fjóra dollara á tunnu. Væri þetta gert vegna áframhaldandi „offramleiðslu" í íran, Venezuela, Nígeríu, Líb- ýu og Alsír, sem einnig undir- byðu aðrar þjóðir í OPEC með því að bjóða a.m.k. fjögurra dollara afslátt á hverja tunnu. I.ondon, I. ft bruar. AP. ÁSKORUN Ronalds Kcagans, Bandaríkjaforseta, á Yuri Andropov, leiðtoga Sovétmanna, um að þeir hitt- ust og semdu um „afnám allra meðal- drægra kjarnorkuflauga af yfirborði jarðar" var í dag fagnað { Vestur- Evrópu en Andropov hefur hins vegar hafnað henni á þeirri forsendu, að í tillögu Kcagans sé „ekkert nýtt“ að finna. Tass-fréttastofan rússneska hafði það í dag eftir Andropov, að tillaga Reagans væri aðeins ítrek- un á núll-stefnunni svokölluðu, sem felst í því, að ekki verði komið fyrir neinum meðaldrægum eldflaugum í Evrópu. Á það hafa Sovétmenn ekki viljað fallast. Sagði Andropov tillögu Reagans óraunhæfa og til þess fallna að koma í veg fyrir samkomulag í Genf. Vel fagnað í Vestur-Evrópu Tillaga Reagans, sem George Bush, varaforseti opinberaði í Ber- lín í gær, hefur verið aðalfréttaefn- ið í Vestur-Þýskalandi og annars staðar í Vestur-Evrópu. Helmut Kohl, kanslari, sagði í gær, að hér væri um „friðarboðskap" að ræða og nú yrðu Sovétmenn að sýna það í viðræðunum í Genf, að þeir vildu í raun semja um frið og afvopnun. Hans-Jochen Vogel, kanslaraefni jafnaðarmanna, sagði, að tillagan væri „skref í rétta átt“ en var hins vegar vantrúaður á jákvæð við- brögð Sovétmanna. Claude Cheyss- on, utanríkisráðherra Frakka, sagði í London í dag, að hann fag- naði tillögu Reagans og kvaðst vera mjög hlynntur fundi æðstu manna stórveldanna tveggja. The Times of London sagði um tillöguna, að með henni sýndi Reagan á áhrifaríkan hátt, að hann vildi semja um frið og ítalska stórblaðið Corriere della Sera og vinstrisinnaða blaðið La Republica sögðu tillöguna „stór- kostlegt" frumkvæði. Harma viðbrögð Rússa Bandaríska utanríkisráðuneytið lýsti í dag vonbrigðum sínum með undirtektir Andropovs við tillögu Reagans um gagnkvæmt bann við öllum meðaldrægum kjarnorkueld- flaugum. Sagði talsmaður þess, Al- an Romberg, að tilboð Reagans um fund þeirra leiðtoganna stæði enn og að vonandi tækju Sovétmenn það til frekari athugunar. Bush, varaforseti, kom til Hollands í dag þar sem hann mun eiga viðræður við stjórnvöld og hvetja til aukinn- ar einingar innan Nato. Danmörk: Verkfalls- menn að gefast upp Kaupmannahofn, I. febrúar. AP. TALIÐ var í dag aó danskir hafnar- verkamenn myndu brátt gefast upp á verkfalisaögerðum en þær hafa nú staðið um tveggja mánaða skeiö. Til verkfallsins var efnt þegar ríkis- stjórnin ákvað að minnka nokkuð atvinnuleysisbætur, sem greiddar eru þeim hafnarverkamönnum, sem ekki vinna fullan vinnudag. Paul Schlúter, forsætisráð- herra, sagði í dag eftir ríkisstjórn- arfund, að verkfallið hefði ekki valdið neinum skorti í landinu og að engin breyting yrði á ákvörðun stjórnarinnar um atvinnuleysis- bæturnar. í Kalundborg og Frede- ricia komu hafnarverkamenn til vinnu í morgun í þeirri trú, að samningar yrðu teknir upp, en í nágrannaborgunum söfnuðust þeir saman við hafnirnar og sneru heim aftur þegar afstaða ríkis- stjórnarinnar var ljós. Atvinna er stundum stopul hjá dönskum hafnarverkamönnum og því hefur þeim verið bætt upp það, sem á vantar 40 stunda vinnudag, með atvinnuleysisbótum. Fyrir tveimur mánuðum ákvað stjórnin að skerða þennan styrk um 20% og var það liður í víðtækum efna- hagsaðgerðum hennar. Hardy Hansen, formaður Verkamanna- sambandsins danska, bauðst í gær til að fá hafnarverkamenn til að snúa aftur til vinnu ef þeir fengju tveggja ára umþóttunartíma en því neitaði Schlúter. Kvað hann verkfallið ólöglegt eins og félags- dómur hefði skorið úr um auk þess, sem það hefði einkennst af ofbeldisaðgerðum nokkrum sinn- um. „Fólk má ekki halda, að verkalýðsbarátta af þessu tagi geti borgað sig,“ sagði Schlúter. Talsmenn vinnuveitenda segja, að verkfallið sé að renna út í sand- inn. Sl. föstudag hefðu 26 skip ver- ið afgreidd, 41 í gær og 51 í dag og nú væru aðeins 20 skip stopp vegna verkfallsaðgerðanna. Christine Stevens, forseti bandarísku dýraverndunarsamtakanna AWI: Mótmæli íslendingar krefj- umst við innflutningsbanns Mótmæli þeir ekki, beitum við okkar fyrir betri viðskiptakjörum Washinglon I. Tebrúar. Krá (>unnari l'álssvni blaóamanni Mbl. „MÓTMÆLI íslendingar ákvörðun Alþjóðahvalveiöiráösins um stqðvun hvalveiða frá og með árinu 1986, sjáum við okkur ekki annað fært en að fara þess á leit við handarísk stjórnvöld, að allur innflutningur á fiski frá íslandi verði stöðvaður. Við skiljum þann vanda, sem fslendingar eiga við að etja nú, en skiljum ekki að þeir skuli auka enn frekar á hann með því að ætla sér að mótmæla hvalveiðibanninu," sagði Christine Stevens, forseti Bandarísku dýraverndunarsamtakanna, Animal Welfare Institute, í samtali við Morgun- blaðið í dag. Christine Stevens sagði enn- fremur, að mótmæltu fslendingar ekki banninu myndu dýravernd- unarsamtökin ekki aðeins hætta mótmælaaðgerðum, heldur beita sér fyrir því, að íslendingar nytu betri viðskiptakjara í Bandaríkj- unum en hingað til. Nefndi hún það dæmi, að Kóreumenn hefði ekki mótmælt banninu og hefðu notið rýmri viðskiptakjara vegna þess gagnstætt Japönum, sem mótmæltu banninu. Aðstoðarmaður fulltrúadeildar- þingmannsins Dons Bonker, sem er formaður þeirrar undirnefndar Bandaríkjaþings, sem fer með mannréttindamál og alþjóða- stofnanir, þar með talið hval- veiðimál, sagði ekki vafa á því að þingið yrði að ræða þetta mál og móta niðurstöðu í því. Væri það vegna þess að í lögum frá 1979 um fiskverndun og ráðstafanir vegna þeirra væri svo kveðið á í Pelly- viðbótarlögunum, að forseta Bandarikjanna væri heimilt að stöðva allan innflutning á fiski frá þeim þjóðum, sem ekki virtu ákvarðanir Alþjóðahvalveiðiráðs- ins. Þegar málið kæmi fyrir á þinginu myndi Don Bonker beita sér fyrir því að þingið ákvæði stöðvun innflutnings sjávaraf- urða frá íslandi. Mæltist við- skiptaráðherrann, Malcolm Baldridge, til þess við þingið, að það ákvæði slíkar refsiaðgerðir, þyrfti ekki að koma til ákvörðun forsetans þar að lútandi. f öðrum viðbótarlögum, Peckwood-Magnusson-viðbótar- lögunum, er kveðið svo á, að við- skiptaráðherra Bandaríkjanna sé heimilt að svipta erlendar þjóðir veiðiréttindum innan bandarísku lögsögunnar virði þau ekki ákvarðanir Alþjóðahvalveiðiráðs- ins. Alls hafa 66 öldungardeildar- þingmenn staðfest Pelly-viðbót- arlögin með undirskrift sinni og má þar nefna marga af þekktustu stjórnmálamönnum Bandaríkj- anna, þeirra á meðal Edward Kennedy og Barry Goldwater.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.