Morgunblaðið - 12.02.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.02.1983, Blaðsíða 1
35. tbL 70. árg. LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Framlög aukin um tæplega 50% WashingU)n, H. fehrúar. AP. FJÁRMÁLARÁÐHERRAR stærstu ríkja heimsins komust eftir sannkallað- an maraþonfund að samkomulagi um að auka framlög um 47,5% í sjóð til hjálpar ríkjum, sem illa eru á vegi stödd fjárhagslega, að því er talsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sögðu í dag. Ákvörðun þessi hefur í för með sér 31 milljarðs dollara aukningu í sjóðinn og hefur hann nú 98 millj- arða dollara til umráða. Alls eiga 146 þjóðir aðild að honum. Sjóður þessi hefur gegnt mikilvægu hlut- verki undanfarið ár og lán úr hon- um til handa fjárhagslega bág- Bretland: Verðbólgan niður í 4,9% Lundúnum, 11. febrúar. AP. VERÐBÓLGAN var í janúar lægri í Bretlandi en hún hefur verið um 13 ára skeið. Hún var þá 4,9% á ársgrundvelli og hafði lækkað um hálft prósentustig frá því í desember. Aðalmarkmið ríkisstjórnar Margaretar Thatcher var að vinna bug á verðbólgunni. Ári eftir að stjórn hennar tók við völdum, í mai 1980, var verð- bólgan komin í 21,9%. Eitt skyggir þó á árangurinn í baráttunni við verðbólguna og það er meira atvinnuleysi en þekkst hefur í Bretlandi frá því í kreppunni á fjórða ára- tugnum. Nú munu 3,2 milljónir manna vera á atvinnuleysis- skrá, eða um 13,8% allra vinnufærra manna. stöddum þjóðum hafa komið í veg fyrir efnahagslegt hrun og kreppu í mörgum löndum. Bandaríkjamenn leggja mest af mörkum í þennan hjálparsjóð og samkvæmt ákvörðuninni koma 6,3 milljarðar dollara í þeirra hlut. Hugsanlegt er talið, að Banda- ríkjaþing verði tregt til að sam- þykkja þessa aukningu, þar sem halli á fjárlögum Bandaríkja- manna sjálfra hefur aldrri verið meiri en nú. Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins hafnaði beiðni fulltrúa fátæk- ari ríkja heims um 100% aukn- ingu framlaga á þeim forsendum, að slík aukning væri ríkari þjóð- um heims um megn í ljósi núver- andi efnahagsástands. ■^****'*' Ariel Sharon gengur til hádegisverðar umkringdur lögreglu og öryggisvörðum. í baksýn eru mótmælendur. Simamynd AP. Sharon segir af sér, en verður áfram í stjórninni Tel Aviv, 11. ferbúar. AP. ARIEL SHARON, varnarmálaráð- herra ísraels, hefur tilkynnt afsögn Stmamynd AP. Lögreglumenn bera burt í kistu líkamsleifar, sem fundust í húsi einu Muswell Hill-hverfinu í Lundúnum. sína úr embætti frá og með mánu- degi. Hann verður þó áfram í ríkis- stjórn Menachem Begins. Sagðist Sharon líta svo á, sem málinu væri þar með lokið hvað hann snerti. Hann mun á mánudag kveðja yfir- menn hersins og samstarfsmenn sína í ráðuneytinu. Ákvörðun þessi hefur kallað á mótmæli frá stjórnarandstöðunni í ísrael, sem segir Begin með þessu ekki fylgja niðurstöðum rannsóknarnefndarinnar, eins og hann hafði sagst mundu gera. Leiðtogar lýðræðislega umbóta- flokksins (Shinui) tilkynntu í dag, að þeir hygðust bera fram van- trauststillögu á stjórn Begins í þinginu í næstu viku. Vangaveltur um eftirmann Sharons í embætti varnarmála- ráðherra benda til þess, að það verði Moshe Arens, núverandi sendiherra ísraela í Bandaríkjun- um. Hann gekk hvað harðast fram í baráttunni fyrir því, að friðar- sáttmálinn við Egypta yrði ekki undirritaður á sínum tíma. Seint í kvöld bárust óstaðfestar fregnir frá Washington um að honum hefði verið boðið embættið. Út- varpið í Tel Aviv skýrði frá því í dag, að Arens væri efstur á óska- lista Begins. Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, fögnuðu í dag afsögn Ariel Sharons, en undirstrikuðu, að brottför Begins yrði að fylgja í kjölfarið til að réttlætinu yrði fullnægt. „Annar hryðjuverkatví- buranna er fallinn," sagði í til- kynningu frá samtökunum, „og nú er hinn einungis eftir.“ Útvarpið í Kairó skýrði frá því í dag, að afsögn Sharons væri bein fordæming og viðurkenning á at- hæfi ísraela í Líbanon. Þá sagði einnig, að afsögnin væri stjórn- arstefnu Begins verulegt áfall og græfi undan stoðum hersins í aug- um almennings, jafnt í ísrael sem um allan heim. Pierre Gemayel, faðir Gemayel forseta og leiðtogi Falangista- flokksins í Líbanon neitaði því í viðtali, sem birt var í dag, að her- menn flokksins ættu nokkra sök á fjöldamorðunum í september. Sagði hann, að engir nema villidýr gætu gert sig seka um þvílíkt at- hæfi og að engin slík væru innan raða flokks hans. Einhver umfangsmestu fjöldamorð í sögu Bretlands: Skipulögð leit hafin að 13—14 líkum til viðbótar l.undúnum, 11. frbrúar. AP. LÖGREGLAN í Lundúnum skýrði frá því í dag, að hafin væri skipuleg leit að 13-14 líkum manna, sem talin eru fórnarlömb einhverra mestu fjöldamorða, sem sögur fara af í Bretlandi. Þegar hafa þrjú lík fundist í Mushwell Hill-hverfinu í Lundúnum. Talsmaður Scotland Yard stað- festi í dag, að fórnarlömb morð- ingjans væru a.m.k. 17 talsins. Hafði morðinginn þann hátt á, að hann kyrkti fórnarlömbin, hlutaði þau í sundur og sauð síðan. Lögreglan hefur haft hendur í hári manns, Bennie Andrew Wil- son, 37 ára gömlum starfsmanni við atvinnumiðlun, sem talinn er vera morðinginn. Formleg ákæra á hendur honum var lögð fram í kvöld og verður hún birt opinber- lega á morgun, laugardag. Játning hans liggur ekki fyrir. Líkin þrjú uppgötvuðust þegar pípulagningamaður, sem kallaður var á vettvang til að kanna hvað ylli undarlegri lykt upp úr niður- falli í húsi einu, dró fram í dags- ljósið líkamsleifar. Við nánari rannsókn lögreglumanna í kjölfar þessa í morgun fundust frekari líkamsleifar í dragkistu í húsinu. Breska fréttastofan Press As- sociated segir handtekna manninn hafa verið leigjanda í umræddu húsi. Maður þessi mun eitt sinn hafa verið í lögregluskóla, en hef- ur undanfarið starfað við atvinnu- miðlun eins og fyrr segir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.