Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 1
88 SIÐUR 42. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 20. FEBRUAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaösins Bretar og Nord- menn sakaðir um að hefja verðstríð lyondon, 19. febníar. AP. ALSÍRMENN hafa ráöist harkalega á Breta og Norömenn fyrir að hafa lækkað veröið á olíunni og sakað þá um að hafa byrjað með því allsherjar- olíuverðstríð. London Times sagði í dag, að líklegt væri að verðið yrði lækkað enn ef fylking OPEC-ríkjanna riðlast. BNOC, breska ríkisolíufélagið, tilkynnti í gær að verðið yrði lækkað úr 33,50 dollurum tunnan í 30,50 og er lækkunin afturvirk til 1. febrúar. Samdægurs skýrðu Norðmenn frá verðlækkun, sem nemur 3—3,45 dollurum á tunnu. Hin opinbera fréttastofa Als- írmanna sakaði í gær Breta og Norðmenn um hafa hleypt af fyrstu skotunum í allsherjarolíu- verðstríði. Var sagt, að ákvörðun þjóðanna kynni að „neyða aðild- arríki OPEC til að auka fram- leiðslu, í því skyni að bæta sér upp tekjumissinn en við það ykist hættan á verðstríði með alvarleg- um afleiðingum fyrir jafnt fram- leiðendur sem kaupendur". Jórvík: Byggja víkinga- þorp Jórvík, Knglandi, 16. febrúar. AP. YFIRVÖLD í Jórvík hafa ákveðið, að reisa þorp, eins og þau tíðkuðust hjá víkingum fyrir þúsund árum, til þess að laða ferðamenn að borginni á sumri komanda. Ætlunin er, að undir verslun- arsamstæðu í borginni verði byggt líkan af bæ í líkingu við þann, sem fornleifafræðingar grófu upp snemma á síðasta áratug. Minjar þær er fundust voru mjög vel varðveittar undir lagi af leir og gáfu ótrúlega glögga mynd af lífi víkinganna, sem í borginni bjuggu. Breska ferðamálaráðið telur byggingu þorps þessa munu draga fjölda ferðamanna að Jórvík og af- henti í dag ávísun að upphæð 7 milljónir ísl. króna til uppbygg- ingar þorpsins. Talið er að kostnaðurinn við verkið verði vart undir 75 milljón- um íslenskra króna. Áætlað er að opna þorpið sýningargestum þann 14. apríl á næsta ári. Þeir voru íbyggnir á svip skipverjarnir á Byr þegar þessi mynd var tekin af þeim í Reykjavíkurhöfn í fyrradag. Vertíðin er nú í fullum gangi, að vísu fremur tregt fiskirí en alltaf er von um að úr rætist. Ljósm. Kristján Gífurlegir hitar hafa verið i Astralíu að undanRjrnu og yfir 43 gráður á celcíus dögum saman í borginni Melbourne þaðan sem þessar myndir eru. Efri myndin sýnir ekki reykinn frá kjarreldunum, sem geisa við borgina, heldur aðsteðjandi sandstorm og á þeirri neðri er borgin að hverfa inn í mökkinn. AP. Ástralía: Eldar brenna enn Sydney, 19. febrúar. AP. KJARRELDARNIR í Ástr- alíu, sem orðið hafa 70 manns að bana, geisuðu enn í dag í kringum borgirnar Adelaide og Melbourne og er óttast, aö nýir eldar komi upp því að veðurfræðingar spá áframhaldandi ofsahita sam- fara stormi. Tekist hefur að hefta út- breiðslu eldanna við Mel- bourne og Adelaide en að- stæðurnar eru ólýsanlega erfiðar fyrir slökkviliðs- og björgunarmenn. Kjarr og skógar eru sem tundur vegna óskaplegra þurrka og hita og bætir ekki úr skák, að hvassviðri er mikið. Vit- að er um 70 manns, sem hafa orðið eldinum að bráð, og 3.000 hús hafa brunnið til kaldra kola. Bændur hafa misst á þriðja hundrað þúsund fjár og 20—30.000 nautgripi. Áætlað er, að andvirði skóganna, sem hafa brunnið, sé um 100 milljónir dollara og mann- virki eru metin á um 400 milljónir. Áfiramhaldandi spenna í Beirút Beirút, 19. febrúar. AP. HERMENN úr bandaríska flotan- um áttu að hefja eftirlitsferðir inn í austurhluta Bcirút í dag til stuðnings herliði Líbanon þar, sem tekið hefur borgarhlutann undir yfirráð sín. Þá hafa fámennar sveitir franskra og ítalskra hermanna úr alþjóðlegu friöargæzlusveitunum í Líbanon, sem áður höfðu tekið sér stöðu f miðhluta Beirút, einnig haldið inn í austurhluta borgarinnar. Ekkert er hæft í þeim fréttum, sem komizt höfðu á kreik, um, að ákveðið hefði verið, að brottflutn- ingur erlends herliðs frá Líbanon ætti að hefjast 3. apríl nk. John Hughes, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði í dag, að umræður um þetta stæðu Mútumál frá HM í knattspyrnu 74 afhjúpað í Argentínu: Átta eiga allt að fimm ára keppnisbann yíir höföi sér Buenos Aires, 19. febrúar. AI’. ARGENTÍNSKA knattspyrnusam- bandið hefur skipað nefnd til að rannsaka hvað sé hæft í þeim um- mælum Enrique Wolff, fyrrum landsliðsbakvarðar í knattspyrnu, að leikmenn argentíska liðsins hafi greitt kollegum sínum í pólska landsliðinu 25.000 dollara gegn því að þeir ynnu sigur á ítölum og tryggðu Argentínumönnum þar með sæti í milliriðlum heimsmeist- arakeppninnar 1974. Pólverjar, sem þegar voru ör- uggir áfram í milliriðlana, höfðu ætlað sér að hvíla lykilmenn sína, en svo fór að þeir tefldu fram sínu besta liði og unnu ít- alina 2—1, sem þar með voru úr leik. Komi í ljós, að saga Wolff eigi við rök að styðjast, eiga átta leikmenn, sem enn eru í fullu fjöri, allt að fimm ára leikbann yfir höfði sér af hálfu argent- inska knattspyrnusambandsins. Leikmennirnir átta eru Mario Kempes, Ubaldo Fillol, Miguel Brindisi, Daniel Carnevali, Carl- os Squeo, Carlos Babington, Ruben Ayala og Rene House- man. Þjálfari liðsins frá því í keppninni 1974 lýsti áhyggjum sínum yfir ummælum Wolff og sagði þau hreinasta óþarfa. Ekki aðeins væri þetta löngu liðin tíð, heldur væri hann að koma félög- um sínum á kaldan klaka. „Það þýðir ekkert að neita þessu nú, en ég hefði aldrei skýrt frá þessu," sagði Ruben Glaria, einn félaga Wolff frá 1974. nú yfir og yrði hraðað eftir föng- um, Spenna virðist enn ríkjandi í Beirút og stundum hefur legið við árekstrum milli herflokka friðar- gæzluliðsins og Líbanon annars vegar og ísraelsmanna hins vegar. Þannig lá við að upp úr syði í gær milli eftirlitssveitar ísraels- manna, sem búin var einum skrið- dreka og tveimur brynvögnum, er hún hugðist fara fram hjá lítill herstöð, sem Líbanonher hafði komið sér upp fyrir skemmstu við stræti, er liggur inn í Beirút á suð- urmörkum borgarinnar. Herlið Líbanon lét einn af skriðdrekum sínum loka strætinu þegar í stað. Eftir nokkurt þóf ákvað ísraelska sveitin að láta undan og snúa við, eftir að yfirmaður hennar hafði árangurslaust reynt að tala um fyrir líbönsku hermönnunum til þess að fá að halda áfram för sinni inn í borgina. í einni af útborgum Beirút reyndu ísraelsmenn að afvopna sveit franskra hermanna úr frið- argæzluliðinu, sem áttu leið fram- hjá götuvígi ísraelsmanna. Frakk- arnir brugðust hart við og tóku viðbragðsstöðu. Hótuðu ísra- elsmenn að kalla brynvagna á vettvang, ef Frakkarnir legðu ekki niður vopn sín. Eftir klukkustund- ar þóf féllu ísraelsmenn frá kröf- um sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.