Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 76. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLADID, MIDVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983

8—9 bátar hirtir

í „þjófstarti"

Einum vísað í land vegna vítaverðs

kæruleysis varðandi öryggisbúnað

LANDHELGISGÆZLAN stóð 8—9

báta að „þjófstarti" í gærmorgun út

af Reykjanesi ádur en þorskveiði-

banni lauk á hádegi í gær. Þá var

einum báti, Sæfjóma, sem gerður er

út frá Grindavík, vísað í land undir

eftirliti gæzlunnar vegna sama brots

og einnig vegna vítaverðs kæruleysis

varðandi óryggisbúnað. Brot af þessu

tagi, þ.e. að hefja veiðar áður en

banntíma lýkur, jafngilda landhelg-

isbrotum og verða bátseigendur kærð-

ir.

Landhelgisgæzluskip og Rán,

þyrla Landhelgisgæzlunnar, komu

á vettvang vegna kvartana skips-

hafna sem komu á vettvang á til-

skildum tíma. Að sögn varðskips-

manna var aðkoman um borð í Sæ-

ljóma ömurleg. Björgunarbátur

hafði ekki verið skoðaður síðan árið

1981. Talstöð var biluð, engin neyð-

arstöð um borð, einvörðungu ðr-

bylgjustöð var nothæf. Þá voru eng-

in slökkvitæki finnanleg og ekkert

haffærisskírteini af framangreind-

um ástæðum. Sæljómi var eingöngu

kominn með bauju í sjó en hinir

bátarnir með net.

Að sögn varðskipsmanna hafa

fleiri bátar, en þessir sem staðnir

voru að verki, mjög líklega þjóf-

startað, en Landhelgisgæzlunni er

ekki unnt að komast yfir stærra

svæði á svo skömmum tíma.

Stefán Pétursson útgerðar-

maður frá Húsavík látinn

STEFÁN Pétursson, útgerðarmaður

og skipstjóri frá Húsavík, lézt í

Borgarspítalanum í gær, 76 ára að

aldri.

Stefán fæddist á Húsavík 23.

júní 1906 og var sonur hjónanna

Péturs Jónssonar frá Rauf á

Tjörnesi og Hólmfríðar Eiríks-

dóttur af Djúpadalsætt í Skaga-

firði. Stefán ólst upp hjá foreldr-

um sínum á Húsavík og hóf

snemma sjósókn með föður sínum

og bróður og þá á þilfarsbátum og

opnum bátum annarra fyrst í stað.

1931 keyptu þeir bræður Stefán

og Þór lítinn bát, Skallagrím, og

samhliða útgerð hans hófu þeir

fiskverkun í landi. Þann bát

misstu þeir 1939 og létu þá smíða

fyrir sig 21 lestar bát í Siglufirði

og hlaut hann nafnið Barðinn og

var útgerðin nefnd eftir honum.

Umsvif þeirra bræðra jukust síð-

an ört, bátunum fjölgaði og þeir

reistu fiskverkunarhús í Sand-

gerðí og á Húsavík, keyptu hrað-

frystihús í Kópavogi og fiski-

mjölsverksmiðju í Sandgerði. Þá

gerði fyrirtæki þeirra bræðra út

bátana Náttfara, Dagfara og

Ljósfara, svo eitthvað sé nefnt.

AIls var Stefán um 45 ár á sjó og

þar af um 24 vetrarvertíðir frá

Sandgerði. 1976 var fyrirtækinu

skipt upp og 1979 fluttist Stefán

alfarinn frá Húsavík til Reykja-

víkur.

Stefán vann alla tíð mikið að

félagsmálum útvegsmanna og átti

um tíma sæti í stjórn LÍÚ. Þá var

hann einn af stofnendum Komm-

únistaflokks íslands.

Banaslys í Hrunamannahreppi

TVITUGUR maður, Hjalti Ingvars-

son, Reykjahlíð, Skeiðum, lézt er

bifreið valt ofan í skurð við þjóðveg-

inn austan undir Miðfelli í Hruna-

mannahreppi árdegis á skírdag.

Auk Hjalta voru tveir farþegar í

bifreiðinni, en þeir sluppu ómeidd-

ir og komust til bæja í nágrenni

slysstaðarins. Talið er að Hjalti

hafi látizt samstundis. Hjalti

fæddist 23. júní 1962 og var því

tvítugur að aldri. Hann bjó í for-

eldrahúsum.

Siguröur Pálsson, aðstooarleikstjóri, Kristín Jóhannesdóttir og Þóra Friðriksdóttir, leikkona.

A hjara veraldar frumsýnd sl. laugardag

ISLENSKA kvikmyndin A hjara

veraldar, var frumsýnd í Austur-

bæjarbíói á laugardag fyrir páska.

Meðal frumsýningargesta var for-

seti íslands, Vigdís Finnbogadótt-

ir. Fyrir sýningu hélt handritshöf-

undur og leikstjóri myndarinnar,

Kristín Jóhannesdóttir, stutta tölu

en eftir sýninguna var henni og

leikurum og öðrum aðstandendum

myndarinnar fagnað ákaflega með

langvinnu lófataki.

Aðalleikarar í Á hjara verald-

ar eru þau Þóra Friðriksdóttir,

Arnar Jónsson og Helga Jóns-

dóttir, en auk þeirra kemur fram

fjöldi aukaleikara. Kvikmynda-

tökumaður var'Karl Óskarsson,

Sigurður Snæberg sá um hljóð

og klippingu, Sigurjón Jóhanns-

son sá um leikmynd en aðstoðar-

maður leikstjóra var Sigurður

Pálsson. Þetta fólk og margt

annað sem vann við gerð mynd-

arinnar var klappað upp á svið

Austurbæjarbíós að frumsýn-

ingu lokinni.

Á hjara veraldar kostaði tæp-

ar fjórar milljónir í framleiðsiu

og er nú sýnd á almennum sýn-

ingum í Austurbæjarbíói.

Rafmagnsveitur ríkisins:

38 línumönnum

sagt upp störftim

RAFMAGNSVEITUR ríkisins hafa sagt upp störfum þrjátíu og átta

línumönnum, sem undanfarið hafa unnið við Suðurlínu. Margir starfs-

mannanna eru gamlir starfsmenn Rafmagnsveitnanna og áttu þeir rétt á

þf'tídja mánaða uppsagnarfresti, en ákveðið hefur verið að eitt gangi yfír

þá alla og hætti þeir störfum 30. júní næstkomandi, að því er Kristján

Jónsson rafmagnsveitustjóri sagði í samtali við blaðamann Morgun-

blaðsins í gær.

ný þegar þar að kæmi, vegna þess

að starfsmenn dreifðust og ólík-

legt væri að þeir yrðu allir til taks

með litlum fyrirvara þegar vinna

hæfist á ný.

Kristián sagði ástæðu uppsagn-

anna vera þá, að Landsvirkjun er

væri frafhkvæmdaaðili að Suður-

línu, hefði ákveðið að stöðva fram-

kvæmdir við línuna, þar sem ekki

hefði tekist að afla fjár til að Ijúka

verkinu á þessu ári. Upphaflega

hafði verið ráðgert að Ijúka við

línuna hinn 1. desember næstkom-

andi. Ekki hefði því verið um ann-

að að ræða fyrir RARIK en að

segja þeim starfsmönnum upp

störfum, sem að línunni vinna.

Kristján Jónsson sagði þetta

tvímælalaust óheppilega ráðstöf-

un á þessum tíma. Verkið væri í

fullum gangi og búið að kaupa til

landsins allt efni í línuna. Auk

þess yrði þetta til þess að ekki yrði

unnt að ljúka hringtengingu

byggðalínanna á þessu ári eins og

stefnt hefði verið að, og raforku-

kaupendur á Vestur-, Norður- og

Austurlandi yrðu því enn um sinn

að búa við fyrra óöryggi, er ekki

hyrfi fyrr en hringtengingu yrði

komið á.

Kristján kvaðst að lokum vilja

ítreka, að hann teldi óheppilegt að

stöðva framkvæmdirnar nú. I

raun væri ekki verið að spara neitt

annað en innlent vinnuafl þar sem

efni hefði þegar verið keypt. Þá

yrði fresturinn til að mannvirkið

yrði óarðbært í þann tíma er liði

uns því lyki, en með tilheyrandi

vaxtakostnaði. Enn yrði dýrt og

tafsamt að koma verkinu af stað á

Steingrímur um að ríkisstjórnin sitji að loknum kosningum:

„Hryllir við tilhugsuninni"

Mun leggja til við forsetann að fremur verði mynduð embættismannastjórn

„MIG HRYLLIR við tilhugsun-

inni. Ég mun leggja til við for.seta

Islands, að þá verði frekar mynduð

embættismannastjórn," svaraði

Steingrímur Hermannsson for-

maður Framsóknarflokksins á

blaðaraannafundi í gær spurning-

unni um, hvort til þess gæti komið,

þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar hans,

að framsóknarmenn sætu áfram í

núverandi ríkisstjórn eftir kosn-

ingar og þar til ný ríkisstjórn hefði

verið mynduð. Tómas Árnason

kvaddi sér þá hljóðs og lýsti sig

algjörlega andvígan embætt-

ismannastjórnum, sagðist vilja

þinglegar      ríkisstjórnir.      Sneri

flokksformaðurinn sér þá að hon-

um og spurði: „Þú ætlar þó ekki að

sitja í ríkisstjórninni fram á

haust?"

Spurningin var fram borin

vegna yfirlýsinga Tómasar

Árnasonar á fundinum um að

hann reiknaði með að stjórn-

armyndun gæti dregist í nokk-

urn tíma, jafnvel í mánuði.

Steingrímur svaraði því til að

hann teldi eðlilegan hlut að

Gunnar Thoroddsen leitaði að

loknum kosningunum 23. apríl

Iausnar fyrir sig og ráðuneyti

sitt, sérstaklega þar sem hann

hefði   ákveðið   að   vera   ekki   í

framboði. Hann var þá spurður,

hvort framsóknarmenn myndu

sitja áfram í ríkisstjórn, ef for-

seti íslands færi þess á leit að

hún sæti áfram sem starfsstjórn

á meðan stjórnarmyndunar-

viðræður færu fram, og jafnvel

fram yfir aðrar kosningar, sem

til umræðu hefur verið að komið

geti til á árinu. Hann svaraði að

venjan væri víst sú, að ríkis-

stjórnir sætu þá áfram, en að

hann hugsaði til þess með hryll-

ingi að sitja kannski fram á

haust víð slíkar aðstæður. Hann

kvað sína persónulegu skoðun að

þá bæri fremur að skipa emb-

ættismannastjórn og lýsti því

yfir að hann myndi a.m.k. leggja

það til við forseta íslands.

Tómas Árnason tók þá til

máls og sagði í tilefni af yfirlýs-

ingum Steingríms, að hann væri

persónulega algjörlega andvígur

embættismannastjórnum. Hann

vildi fremur þinglegar ríkis-

stjórnir. Steingrímur sneri sér

þá að honum og spurði hvort

hann ætlaði sér þá að sitja í rík-

isstjórninni fram á haust. Tóm-

as kvað það ekki vilja sinn, en á

móti embættismannastjórnum

væri hann.

Skákþing íslands:

Sigurinn

blasir við

Svíanum

ALLAR líkur benda til þess að Sví-

inn Dan Hansson beri sigur úr být-

um á Skákþingi íslands, sem lýkur

í kvöld. f gærkvöldi vann Dan

llansson Ágúst S. Karlsson í bið-

skák.

Staðan fyrir 11. og síðustu um-

ferð er sú, að Dan Hansson hefur

8 vinninga og nægir jafntefli í

kvöld til sigurs í mótinu. Hann

getur þó ekki orðið Islandsmeist-

ari, þar eð hann er sænskur

ríkisborgari, en giftist íslenzkri

stúlku nú um páskana. Næstu

menn berjast um titilinn

„Skákmeistari Islands", en þeir

eru Ágúst S. Karlsson, Hilmar

Karlsson og Sævar Bjarnason

með 7 vinninga og Elvar Guð-

mundsson með6'/2 vinning.

Sjá  ennfremur skákþætti  á

bls. 29 og 37.

Landssöfnun

Sjálfstæðis-

flokksins

Sjálfstæðisflokkurinn efnir til

landssöfnunar vegna komandi al-

þingiskosninga. Er leitað til vel-

unnara Sjálfstæðisflokksins um

300 kr. framlag til þess að „styrkja

Sjálfstæðisflokkinn fjárhagslega í

þeim mikilvægu þjóðfélagsátök-

um, sem framundan eru". Nánar

verður sagt frá landssöfnun

Sjálfstæðisflokksins síðar.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48