Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 76. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983

17

Á hjara veraldar?

Kvikmyndir

OlafurM. Jóhannesson

Á HJARA VERALDAR?

Handrit og stjórn: Kristín Jóhannes-

dóttir.

Aðstodarleikstjóri: Sigurður Pálsson.

Kvikmyndataka: Karl Óskarsson.

Hljóð: Sigurður Snæberg.

Leikmynd og búningar: Sigurjón Jó-

hannsson.

Förðun og hárgreiðsla: Guðrún Þor-

varðardóttir.

Klipping: Sigurður Snæberg, Hákon

Oddsson og Kristín Jóhannesdóttir.

Nafn á frummáli: Á hjara veraldar

(Rainbow's End.)

Sýningarstaður: Austurbæjarbíó.

í ágætu viðtali sem Illugi Jök-

ulsson á við höfund kvikmyndar-

innar Á hjara veraldar, Kristínu Jó-

hannesdóttur, í ellefta tölublaði

Lesbókar, segir Kristín meðal ann-

ars um tilurð myndarinnar: „Ég

lagði upp með þá sannfæringu að

með því að reyna að komast sem

næst sjálfri mér; sýna einhverskon-

ar upprunalega mynd, tilfinningu,

lifssýn — reyna sem sé að birta það

sem ég ætti sannast; þannig myndi

ég finna leið til annars fólks, þó svo

það yrði ekki með nákvæmlega

sama hætti og í flestum þeim

myndum sem við erum yfirleitt að

horfa á." Sannarlega er lifssýn

Kristínar Jóhannesdóttur eins og

hún birtist i Á hjara veraldar nálæg

kvikmyndahöfundinum Kristinu

Jóhannesdóttur, en hversu nærri

hjarta hins almenna bíógests geng-

ur bessi sýn?

Eg get aðeins svarað fyrir sjálf-

an mig, að lífssýn Kristínar J6-

hannesdóttur eins og_ hún er til-

reidd í kvikmyndinni A hjara verald-

ar gengur misnærri minu hjarta.

Máski er það vegna þess að hjarta

mitt er karlkyns, en eins og Kristín

segir í fyrrgreindu Lesbókarviðtali,

þá er „ ... heiminum jú óumdeil-

anlega stjórnað gegnum maskúlin,

eða karlkyns, tilvisanir sem við

(konurnar) höium aldrei fengið að

koma nálægt. Þess vegna hlýtur

staða okkar að vera hinum megin

við það táknmál sem búið hefur

verið til um heimsmyndina", en það

var einmitt táknmilið í kvikmynd

Kristínar sem fór að mestu fyrir

ofan garð og neðan hjá mér. Og þar

sem kvikmyndin Á hjara veraldar er

bókstaflega hlaðin margræðu

táknmáli er slæmt að skilja ekki

tilvísanirnar. Það má kannski segja

að það sé hægt að njóta þessarar

kvikmyndar án þess að brjóta stöð-

ugt heilann um hvert táknmálið

vísar; slík er fegurð sumra mynd-

skeiða að nægir alveg að falla i til-

finningarús.

Samt finnst mér eins og Kristín

sé í þessari mynd að reyna að segja

heillega sögu þriggja persóna;

dæmigerðrar islenskrar húsmóður

sem gengur með brostna von um

listframa í útlandinu, og svo sonar

hennar sem á vissan hátt verður

hinum brostnu vonum móðurinnar

að bráð, og svo annað barn þessar-

ar konu sem er stúlka sem einnig

tapar fyrir aðstæðunum líkt og

móðirin — það er lokast inni í

valdahring karlmannsins. En þessi

valdahringur virðist i hugsýn

Kristínar, tengjast öllu þvi sem er

fjandsamlegt úr gróandi mannlífi i

skauti stóriðjulausrar náttúru.

Fannst mér býsna vel farið af

stað í myndinni við að sýna firr-

ingu fyrrgreindrar húsmóður, einn-

ig var mjög áhrifamikil stigmogn-

un undir lok myndarinnar, þegar

hin listhneigða kona er til moldar

borin og systinin eins og losna und-

an þeim öflum sem ætíð heftu móð-

ur þeirra. Það var næstum eins og

hljómkviöan fullkomnaðist ef mað-

ur bara hefði skilið táknmálið um

miðbik myndar. Það var ekki nóg

að einstakar senur á þessu skeiði

myndarinnar hrifu augað og jafn-

vel klipu í hjartatugarnarnar, eins

og þegar byssukúla breytist i fugl i

fangi Arnars Jónssonar eða svipir

úr Hugsýn Einars Ben. birtast á

skjá Héðinshöfða. Frásögnin af sál-

arstríði systkinanna, sem Arnar

Jónsson og Helga Jónsdóttir leika,

er einfaldlega ekki nógu hnitmiðuð

og jarðtengd til að maður skilji

samhengið milli upphafs myndar-

innar og enda. Þetta er ekki ósvip-

að og að horfa á steindan glugga i

kirkju. I lotningu skoðar maður

hinar einstöku glerflísar, en þegar

maður i sjónhending vill upplifa

fegurð gluggans, þá er eins og

myndirnar rimi ékki saman og

áhorfandanum er fyrirmunað að

sjá gluggann í heild. Einkenni mik-

illa listaverka er að þar getum við

bæði dást að einstökum hlutum

verksins og heildarmynd þess. En

látum útrætt um inntak verksins

og form, en víkjum að hinum lif-

andi efniviði sem birtist i Á hjara

veraldar.

Það var aldeilis bráðsniðugt að

láta systkinin Arnar og Helgu leika

systkinin í myndinni. Ekki leynir

sér ættarmótið með þessum föngu-

legu systkinum. Það hefur nú

hingað til ekki verið talið til fyrir-

myndar að gera upp á milli systk-

ina, enda leiðir slíkt oft meiri bölv-

un yfir fólk en séð verður i fljótu

bragði, samt get ég ekki stillt mig

um að bera leik þeirra Arnars

Jónssonar og Helgu Jónsdóttur

svolitið saman. Ég er orðinn dálitið

leiður á að hæla Arnari, en ekki er

hægt að segja annað en hann upp-

lifi hið vandasama hlutverk sonar-

ins með slíkum hætti að fáheyrt

verður að tetjast. Það er næstum

eins og maður sjái persónuleika

þessa unga manns leysast upp og

Móðirin (Þóra Kriðriksdóttir) og sonurinn (Arnar Jónsson) snæða fisk i

hádeginu.

verða geðklofa að bráð. Ef Arnar

væri gæddur augnaráði Jack Nich-

olson myndi frammistaða hans i Á

hjara veraldar vekja heimsathygli

— og þarf kannski ekki augnaráð

Nicholson til. Leikur Helgu var

mun ójafnari, enda er hún með öllu

óvön kvikmyndaleik; þó stóð hún

jafnfætis bróður sinum í þeim sen-

um er reyndu hvað mest á tilfinn-

ingastyrk eins og þegar hún slitur

sig lausa úr karlaveldinu undir lok

myndarinnar. Þóra Friðriksdóttir

er einnig óvön að standa fyrir

framan kvikmyndavél, en skilaði

hlutverki móðurinnar prýðilega.

(Jafn metnaðarfullur leikstjóri og

Kristín Jóhannesdóttir má ekki

láta lík anda, að það gerði hún Þóra

á likbörnunum.) Ég veit ekki hvort

ég á að minnast á aðra leikara

myndarinnar, því allt snérist jú

kringum þessi þrjú; en get þó ekki

stillt mig um að minnast á Hjalta

Rögnvaldsson, sem virðist einkar

vel lagaður fyrir kvikmyndaleik.

Rúrik Haraldsson bar af hvað

varðar framsogn í hlutverki rosk-

ins þingmanns, en hér var vel að

verki staðið hjá hljóðmanninum

Sigurði Snæberg. Fannst mér

hljóðupptakan heppnast ágætlega í

gegnum myndina, nema hvað á

nokkrum stöðum heyrðist litt til

Arnars. Það er venjan að nefna

kvikmyndatöku í sömu andrá og

hljóðupptoku, og verð ég að hæla

Karli Óskarssyni og félögum fyrir

fagmannlega stjórn myndavéla.

Leikmynd og búningar Sigurjóns

Jóhannssonar eru með þeim ágæt-

um að maður tekur ekki eftir þeim

sérstaklega, svo vel falla þeir inn í

heildarmyndina.

Sem sagt, kvikmynd Kristínar

Jóhannesdóttur, Á hjara veraldar, er

hnökralaus tæknilega, raunar mjög

vel unnin og þar að auki gædd

skáldlegum anda sem ég tel að eigi

rætur að rekja ekki síöur til aðstoð-

arleikstjórans Sigurðar Pálssonar

(sérstaklega ýmis tilsvör). En þvi

miður skortir eitthvert jarðsam-

band til að fuglinn nái að svifa al-

skapaður. Hitt er svo aftur annað

mál, að þótt karlkyns veru sem hef-

ir þann furðulega starfa hér úti á

hjara veraldar að dæma um kvik-

myndaframleiðslu heimsins skorti

innsæi til að samsamast drauma-

heimi Kristínar Jóhannesdóttur, þá

er ekki þar með sagt að fullkomn-

ari verur annarsstaðar á hnettin-

um geti ekki komið auga á kjarn-

ann í þeirri mikilfenglegu lifssýn

sem hefir borið fyrir augu Kristín-

ar Jóhannesdóttur á Frakk-

landsströndu, þá hún leit i norður-

átt. Ég spái því að við verðum ekki

lengur á hjara veraldar þegar mynd

Kristínar hefir verið frumsýnd í

París, svo fremi sem atriðið með

ponkaranum og Jóni Sigurðssyni

verði klippt í burtu. Slík atriði

passa ekki lengur inn i íslenska

kvikmynd. Svo langt hefur okkur

miðað þrátt fyrir allt, og þegar um

jafn stórfenglega myndsýn er að

ræða og hjá Krisinu Jóhannesdðtt-

ur, kemur slíkt „andhvarf ekki til

greina. En meðan ég man, þá ber að

þakka hinum stórgóðu islensku

söngvurum sem undir forystu

hetjutenórsins_ Kristjáns Jóhanns-

sonar hljóma Á hjara veraldar; von-

andi berst söngur þeirra til fjar-

lægra stranda.

FERÐIN HEfST MED HÖTELDVOL

SUMARHÚS í SKOSKUiHÓTEL-AFANGAR

HÁLÖNDUNUM           I í BRETLANDI

SUMARHUS

í FRAKKLANDI

við Lochanhully vatn.

Bróðtalleg og vel búin hús. Þeim íylgir allt sem þarí

til dvalarinnar utan matur og drykkur.

Kostnaður hvers þátttakanda íyrir íerð með

ms. Eddu, og eina viku í sumarhúsi:

Þú ekur um Bretland dhyggjulaus þvi Swallow

hótelið pantar gistingu íyrir þig og þína áður

en þú leggur cd stað.

Endaðu meginlandsdvolina með 7 dogum

í sumarhúsi á Bretagne skaganum, eða annars

staðar í Frakklandi.

ó í hópi kr

5 í hopi kr

4 í hopi kr

8.800

9.100

9.500

3 í hópi ki.

2 saman kr.

10.050

11.000

11.457,-

íyrir manninn.

10.285,-

íyrir manninn

Inniíalið: Sigling með Eddu Reykjavik - Newcastle - Revkjavík

9 nœtur ó Swallow hótelum með morgunverði i tveggja manna

herbergi                         Brottlarir. 1/6, 8/6. 15/6, 22/6, 24/8 og 31/8

IFJÖGURRA TÍMA FJARLÆGÐ

FRÁ BREMERHAVEN

Innilalið Sigling með Eddu  Reykjavik - Newcastle   Reykjovik

Sigling   Dover - Calais - Dover og sumarhus í 7 daga

Brottlor fra Reykjavik: 1/6,8/6, 15/6.22/6.24/8 og 31/8

REIÐUBÚiri TIL felÓNUSTU

í ADALSTRÆTI7

IFJOGURRATIMAFJARLÆGÐ FRA BREMERHAVEN

er indœlis hótel í íögru umhveríi: Ferienhaus

Vier-Jahreszeiten í Hahnenklee.

Þar er gott að dvelja, njóta náttúrunnar og

skreppa í dagsíerðir um Norður-Þýskaland.

gengi 15.3 83

13.844,-

tyrir manninn,

íar með ms. Eddu til og lrá Bremerhaven og íjórar

nœtur ósamt hólíu íœði d þessu ágœta hóteli.

FARSKIP

REYKJAVI'K SÍMI 2 5166

5

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48