Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 76. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						18

MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983

Hebaheldur

vióheilsunni

Nýtt námskeiö aö hefjast.

Dag- og kvöldtímar tvisvar eða

íjórum sirinum í viku.

Megrunarkúrar - Nuddkúrar

Leíklími - Sauna - Ljós - Megrun

Sól-bekkir- Nudd - HvQd - Kaíii -

Jane Fonda leikfimi

Innritun í síma 42360 - 40935

Heilsurœktin Heba

Auðbrekku 53, Kópavogi.

Heildsölubyrgöir:

Agnar Luóviksson hf.,

Nýlendugötu 21.

Sími 12134.-

ALLTAF A FIMMTUDÖGUM

BROSTU!

MYNDASÖGURNAR

KOMAÁiMORGUN


AF ERLENDUM VETTVANGI

eftir GUDM. HALLDÓRSSON

BANDARÍSKA stjórnin hefur ákveðiö að svipta ríkisstjórn

Rúmeníu beztukjarasamningum og refsa henni fyrir „mennta-

skatt" á fólk sem viil fara úr landi. Bandaríkjamenn hafa haft

betra samband við Rúmeníu en önnur rfki í valdablokk Rússa

og ákvörðunin getur haft alvarlegar afleiðingar í Austur-Evrópu.

Menntaskatturinn var ákveðinn til að stöðva „atgervis-

flótta", eða tryggja að rfkið fai endurgreiddan kostnað af

menntun fólks sem fer af landi brott. Skattgreiðslan er 80.000

kr. eftír 10 ára skyldunám og hækkar um 90.000 við hvert ár í

haskóla.

Nicolae Ceusescu forseti Kúmeníu.

aukin afrek" og á útifundi hrós-

aði forsætisráðherrann „þessum

ákafa byltingarmanni og ætt-

jarðarvini .. óþreytandi bar-

áttumanni frelsis og sjálfstæðis

alþvðunnar."

A sama tima og þjóðin hyllti

Ceusescu bárust óljósar fréttir

til Vesturlanda um tilraun til að

steypa honum af stóli. Fyrstu

fréttirnar hermdu að landherinn

hefði gert byltingartilraun i sið-

ari hluta janúar og að nokkrir

foringjar úr landhernum hefðu

verið líflátnir þegar upp komst

um samsærið. Samkvæmt ann-

arri útgáfu á fréttinni var reynt

að ráða hann af dögum. Síðan

var sagt i Washington að banda-

ríska          utanrikisráðuneytinu

hefðu borizt fréttir um samsæri

í Rúmeniu samkvæmt tíu heim-

ildum.

Samsærisfréttirnar geta verið

sprottnar af óskhyggju Rúmena.

Þær kunna jafnvel að hafa verið

runnar undan rifjum Yuri Andr-

opov, sem er lítið um Ceusescu

gefið. Hvað sem því líður hafa

engar tilkynningar verið birtar

um að liðsforingjar hafi verið

lækkaðir í tign, hvað þá líflátnir

fyrir landráð. Breytingar í æðstu

stjórn rúmenska heraflans eru

að vísu sjaldan kunngerðar

opinberlega.

Rúmenum refsað

Þegar þessar hömlur voru

boðaðar í nóvember varaði

Bandaríkjastjórn Nicolae Ceus-

escu forseta strax við þvi að hún

gæti ekki staðið við beztukjara-

samningana. Siðan hefur hún

reynt af fremsta megni að

hindra að Rúmenar glati þessum

fríðindum. Lawrence S. Eagle-

burger aðstoðarutanríkisráð-

herra fór til Búkarest í janúar

og reyndi að sýna rúmenskum

ráðamönnum að hendur Banda-

ríkjastjórnar væru bundnar

vegna afstöðu Bandaríkjaþings.

Hann skoraði á Rúmena að

endurskoða afstöðu sína. Allt

kom fyrir ekki.

Samkvæmt svokölluðum Jack-

son-Vanik-breytingarlögum eru

beztukjarasamningar Banda-

rikjanna teknir til athugunar á

eins árs fresti og Rúmenum hef-

ur gramizt árlegar umræður i

Bandarikjunum um afstöðu

þeirra til fólksflutninga úr landi.

Breytingarlögin beinast einkum

gegn kommúnistarikjum, sem

leggja „meira en málamynda-

skatt á útflytjendur". Vegna

þessara laga telur Bandarikja-

stjórn að hún hafi ekki átt ann-

arra kosta völ en segja upp

samningunum við Rúmena.

Útflutningur Rúmena til

Bandarikjanna hefur aukizt og

þeir tapa 200 milljónum dollara

á því að njóta ekki lengur beztu

kjara. Þetta er alvarlegt áfall á

sama tíma og Rúmenar skulda

vestrænum bönkum stórfé. Þeir

urðu að fresta greiðslu afborg-

ana flestra erlendra lána í fyrra

vegna skorts á erlendum gjald-

eyri. Tilkynnt var í janúar að af-

borgun eins milljarðs dala á

þessu ári yrði frestað ef sam-

komulag næðist ekki um

greiðslufrest.

Uppsögn samninganna getur

haft alvarleg áhrif á sjálfstæða

utanríkisstefnu Ceusescus og

hálfgerða uppreisn hans gegn

Rússum. Málið hefur vakið reiði

í Búkarest og Ceusescu hefur

sakað Bandarikjastjórn um að

beita „kúgunarráðstöfunum".

Jafnframt varar hann við

„hefndarráðstöfunum". Ef Rúm-

enar stöðva greiðslur erlendra

lána getur það skaðað alþjóða-

bankakerfið.

Ceusescu hefur reynt að nota

sjálfstæða stefnu út á við til að

efla þjóðarstolt Rúmena, en

fylgir óbreyttri harðlinustefnu

heima fyrir. Landið er einangrað

frá umheiminum sem fyrr og

andófsmenn eru stöðugt barðir

niður. En mikil ólga ríkir undir

niðri vegna alvarlegrar óánægju

með matvæla- og orkuskort. Nú

orðið trúa fáir að Ceusescu sé

þróttmikill leiðtogi, sem reyni að

bæta kjör þjóðar sinnar.

Undanfarið hefur borið á ólgu

í Transylvaníu vegna ofsókna

gegn ungverska minnihlutanum

þar. Sambúð Rúmena og Ung-

verja hefur hríðversnað og það

veldur Rússum áhyggjum að

aldrei áður hefur eins litlu mátt

muna að tvö aðildarríki Varsjár-

bandalagsins fari í hár saman.

Ungverski           minnihlutinn

krefst að ungverska verði jafn-

rétthá rúmensku, að ungverskir

skólar verði aftur opnaðir og

svæði, þar sem Ungverjar eru í

meirihluta, fái sjálfstjórn. Sú

stefna að gera ungverska íbúa að

Rúmenum hefur verið efld þrátt

fyrir hörð mótmæli Janos Kad-

ars, leiðtoga Ungverja. í nóv-

ember voru nokkrir leiðtogar

Ungverja handteknir, þeirra á

meðal skáldið Geza Szocs og

heimspekingurinn Attila Kov-

ács. f Búdapest hafa 70 mennta-

menn beðið Kadar að senda önn-

ur mótmæli.

Þrátt fyrir óánægju ungverska

minnihlutans og annarra lands-

manna var Ceusescu hylltur

innilega þegar hann varð 65 ára

nýlega. Sérstakur minnispening-

ur var sleginn, flokksmenn

hældu hetju sinni fyrir „tröll-

Síðan hefur Ceusescu sjálfur

verið bendlaður við annars kon-

ar samsæri — tilræðið við páf-

ann. Blaðið „Daily American" i

Róm bar fram þá furðulegu

ásökun að Ceusescu hefði vitað

um samsærið einum mánuði áð-

ur en reynt var að ráða páfa af

dögum. Blaðið sagði að Ceusescu

hefði reynt að fá Búlgara til þess

að hætta við þátttöku í samsær-

inu „eftir diplómatískum leið-

um". Það sagði: „Hins vegar full-

vissuðu aðstoðarmenn forseta

Búlgaríu og leiðtoga kommún-

istaflokksins, Todor Zhivkov,

rúmenska embættismenn um að

þeir vissu ekkert um málið og

væru ekki viðriðnir slíka starf-

Allt virtist með felldu þegar

Ceusescu ávarpaði árlegan fund

yfirmanna Iandhersins skömmu

síðar og tilkynnti að e.t.v. yrði að

endurskoða á næsta ári ákvörð-

un síðan í fyrra um að hækka

ekki herútgjöld, ef raunverulegri

afvopnun yrði ekki fyrirsjáan-

leg. Herútgjöld nema 2,7 millj-

örðum lei (um 23 milljörðum

kr.). Jafnframt hvatti forsetinn

til aukins aga í hernum og krafð-

ist betri vígaðferða og aukins

skotkrafts.

Rúmenskir hermenn hafa ekki

tekið þátt í heræfingum Var-

sjárbandalagsins í 20 ár, heræf-

ingar hafa ekki farið fram í

Rúmeníu síðan 1964. 1 Búkarest

er stundum sögð þessi saga:

„Hvað tæki Rússa langan tíma

að komast til Búkarest, ef þeir

ákvæðu að gera innrás?" Svar:

„Það færi eftir þvi hvort þeir

mættu mótspyrnu, eða ekki. Ef

rúmenski herinn veitir viðnám

tekur það einn sólarhring. En ef

engin andspyrna er veitt tekur

það a.m.k. tvo sólarhringa. Þeir

verða fyrir töfum vegna þess að

þeim verður fagnað á svo mörg-

um stöðum þegar þeir sækja frá

landamærunum."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48