MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983 27 rpið jluna son hafi krafist rannsóknar á Center for Defense Information, en það gerði hann í umræðum utan dagskrár í efri deild alþing- is síðdegis þennan sama dag. Um þetta skeyti segir Ólafur R. Grímsson í Þjóðviljanum: Það er merkilegt samráð að tarna og ekki veit ég hvað þeir sjálfir vilja kalla þetta." Athygli vekur að í Þjóðviljanum sleppir ólafur R. Grímsson öllum dagsetning- um, þegar hann afhjúpar" þá staðreynd að bandaríska sendi- ráðið skýrir yfirboðurum sínum í Washington frá því fréttnæm- asta í kjarnorkuumræðunni" fimmtudaginn 22. maí 1980. Að lokum vil ég láta það koma fram til að útiloka misskilning að Hallgrímur Thorsteinsson er síður en svo eini útvarps- eða sjónvarpsmaðurinn sem ég hef neitað þegar ég hef verið beðinn um að koma fram í Ríkisútvarp* inu. I því tilviki sem hér um ræð- ir þótti mér fráleitt að fara í þátt sem til var stofnað vegna vand- ræða sem fréttamaður var kom- inn í vegna óvarlegra vinnu- bragða. í mínum huga var þeim mun fráleitara fyrir mig að taka þátt í þessum leik þar sem ég hafði bent fréttamanninum á það áður en hann sendi hinn um- deilda þátt út, að hann skyldi kanna allar heimildir rækilega. Mér finnst ástæðulaust að leggja blessun yfir þá starfshætti, að starfsmenn hinna óhlutdrægu" ríkisfjölmiðla búi til vandamál" með óvönduðum vinnubrögðum og láti svo eins og þeir séu að þjóna kröfunni um óhlutdrægni með því að kalla þá til sem þeir telja á öndverðum meiði til að rífast á fáeinum mínútum ríf- ast á þeim forsendum sem frétta- maðurinn er bjó til vandamálið" ákveður. Röksemdir af þessu tagi telja fréttmenn Ríkisútvarpsins auðvitað marklausar og munn- höggvast mörgum árum síðar við menn sem leyfa sér að setja þær fram. Mér er það enn hulin ráð- gáta hvers vegna þeim Hallgrími Thorsteinssyni og ólafi R. Grímssyni var svo mikið í mun að fá mig til viðræðna við sig um kjarnorkusprengjuna og hvers vegna þeim datt ekki það snjall- ræði í hug að fá einhvern annan þegar ég neitaði. En þegar þeir gera báðir þetta ómerkilega at- vik að höfuðatriði í umræðum um kjarnorkubóluna tæpum þremur árum síðar vekur það a.m.k. þann grun, að Hallgrími Thorsteinssyni hafi í raun verið att af stað án þess að hann sæi við þeim sem leiddu hann í gildru, hann hafi verið nytsam- ur sakleysingi". En viðbrögð Hallgríms í Þjóðviljanum 31. mars sl. benda þó frekar til þess að hann hafi verið virkur þátt- takandi í málinu frá upphafi. Hitt er svo til marks um end- anlegt rökþrot ólafs R. Gríms- sonar og annarra sem trúa á Gene la Rocque, fyrrum aðmírál, að nú ræðst tilvist kjarnorku- vopna á íslandi af því hvort menn vilja fara í útvarpsþætti og fréttum frá bandaríska sendiráð- inu í Reykjavík til utanríkisráðu- neytisins í Washington. Flugmálastjóri boöaði í gær til blaðamannafundar þar sem kynnt var niðurstaöa rannsóknar á atviki því er lá við árekstri Arnarflugsþotu og Orion-flugvélar frá varnarliðinu við suðurströnd landsins þriðjudaginn 15. mars sl. Niðurstöður rannsóknar- nefndar flugmálastjórnar eru í megin- dráttum þær að flugumferðarstjóri hafi sýnt aðgæsluleysi og að flugstjóri varnarliðsflugvélarinnar hafi ekki far- ið að settri flugheimild. Flugmálastjóri sagði er hann var spurður hvort ekki væri við flugum- ferðarstjórann að sakast, að ekki væri hægt að skella skuldinni á einn aðila fremur öðrum, margir samvirkandi þættir hefðu leitt til þessa atviks, en frumorsökin væri sú að varnarliðsflugvélin yfirgaf æfingasvæði sitt. í skýrslu rannsóknarnefndar flugumferðarstjórnar kemur fram, að flugumferðarstjóra hafi orðið á mörg mistök. í fyrsta lagi hafi hann ekki úthlutað Orion-flugvélinni Frá blaðamannafundi flugmálastjóra. Fréttamenn og starfsmenn flugmálastjómar skoða myndsegulbandsupptöku af ratsjárskermi flugumferðarstjórans, sem stjórnaði flugi við suðurströndina þegar lá við árekstri Arnarflugsþotunnar og Orion-flugvélar varnarliðsins. Við sjónvarpstækið situr Skúli Jón Sigurðarson í loftferðareftirlitinu og skýrir það sem fyrir augu ber. Á skjánum mátti sjá hvernig flugvélarnar nálguðust á gagnstæðum stefnum, hvernig Orion- flugvélinni var stýrt fyrir Arnarflugsþotuna, hvernig þriðja flugvélin lækkaði sig niður í gegnum æfingasvæði Orion-flugvélarinnar, auk þess sem öll fjarskipti við flugturninn heyrðust. Morgunblaðio/ Kristján Einarsson Rannsóknarnefnd flugmálastjórnar: Leggur til að vinnutilhögun og vakta- lengd í flugturnum verði breytt blindflugsratsjársvarmerki er flugvélin hélt til æfingasvæðisins, eins og reglur gera ráð fyrir, heldur sjónflugsmerki. Ratsjársvarmerkið kemur fram sem tala á skermi flug- umferðarstjórans og auðkennir við- komandi flugvél. Einnig hafi hann heimilað annarri flugvél lækkun niður í gegnum æfingasvæði Orion-flugvélarinnar án þess að veita henni athygli. Ennfremur hafi hann ekki veitt því eftirtekt fyrr en fjórum mínútum seinna að Órion- flugvélin hafði yfirgefið svæði sitt. Jafnframt hafi flugumferðarstjór- inn stýrt Orion-flugvélinni í veg fyrir Arnarflugsþotuna með því að láta hana sveigja til hægri. Jafn- framt hafi hann ekki farið að regl- um er hann gaf hvorki flugmönnum Orion-flugvélarinnar eða flug- mönnum Arnarflugsþotunnar til kynna hvað væri að og hvernig flugvélarnar stefndu mót hvorri annarri. f stuttu máli eru málsatvik þau að Orion-flugvél frá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli fékk heimild til æfingaflugs á afmörkuðu svæði suður af Reykjanesi og á sama tíma var Arnarflugsþotan að koma til landsins í áætlunarflugi frá Amst- erdam. Þegar varnarliðsvélin hafði flogið rúma klukkustund í sínu svæði fór hún út fyrir svæðið og flaug um stund út á móti Arnar- flugsþotunni. Flugmenn Arnar- flugsþotunnar afstýrðu síðan árekstri flugvélanna, og samkvæmt afriti af flugfjarskiptum þegar at- vikið átti sér stað, segir flugstjóri Arnarflugsþotunnar að hann hafi orðið að grípa til aðgerða til að forða árekstri, einnig að flugvélarn- ar hafi mæst í sömu flughæð og 60 metrar verið á milli þeirra. Flugvélarnar nálguðust með ofsahraða, eða um 20 kílómetra á mínútu, og sögðu fulltrúar flugmálastjórnar á fundinum, að þótt það sé skylda flugmanna að fylgjast með öðrum flugvélum ef þeir eru við blindflug í sjónflugs- skilyrði, þá væri nánast útilokað fyrir flugmenn að fylgjast með um- ferð á móti þegar nálgunin væri jafn mikil og þarna hefði verið. Samkvæmt skýrslu rannsóknar- nefndarinnar voru varnarliðsflug- mennirnir að æfa flug þar sem líkt var eftir því að vökvastýribúnaður vélarinnar væri óvirkur. Flugstjór- inn hafi verið að fylgjast með að- stoðarflugmanninum, sem stýrði flugvélinni, og því ekki veitt því at- hygli að flugvélin fór út fyrir svæð- ið, enda hafi merki frá fjölstefnu- vitanum á Keflavíkurflugvelli, sem notaður var til staðarákvörðunar, dottið út af og til. Tóku flugmenn Orion-flugvélarinnar ekki eftir Arnarflugsþotunni fyrr en hún var komin framhjá. Samkvæmt skýrslunni var varn- arliðsflugvélin búin að fljúga fyrir utan svæði sitt í rétt tæpar fjórar mínútur þegar flugumferðarstjór- inn verður þess var. Skipar hann henni þá að beygja til hægri vegna umferðar en við það beygir varnar- liðsflugvélin þvert í veg fyrir Arn- arflugsþotuna, sem var örlítið til vinstri við sína flugleið. Það kemur einnig fram í skýrsl- unni, að um sama leyti heimilar flugumferðarstjórinn annarri flugvél lækkun niður í gegnum æf- ingasvæði Orion-flugvélarinnar. Segir í skýrslunni að flugumferðar- stjórinn virðist ekki hafa tekið eftir Orion-flugvélinni, sem átti að vera í svæðinu, en var þá rétt fyrir utan svæðið á flugi beint mót Arnar- flugsþotunni. Einnig kemur fram í skýrslunni að flugumferðarstjórinn hafi haft eftirlit með flugi fjögurra flugvéla er atvikið átti sér stað. Þá kemur fram að flugumferðarstjórar skipt- ast um að vakta ratsjána á um það bil klukkustundar fresti. Flugum- ferðarstjórinn sem var við skjáinn þegar atvikið átti sér stað, en það var klukkan 13:19, tók við umferð- arstjórn klukkan 13:08. Hann hafði áður setið við skjáinn frá klukkan 9:30 til 10:35 og frá 11:20 til 11:48. Af þessum sökum var annar flug- umferðarstjóri við skjáinn þegar Orion-flugvélin hóf sig á loft og var úthlutað sjónflugsmerki þótt hún fengi heimild til blindflugs. Haft er eftir flugumferðarstjór- anum í skýrslunni að hann telji sig Á þestu korti mé »já »f ingatvatoi Orion -tlugvélsr Varnarliðaint. Brota- línan or flugbrautln, aom Arnarflugtþotan var aö fljúga ftir er hún kom iil landtint fré Hollandi. Orion-flugvtlin fór úr afingatvstoi tinu rétt viö ttröndina Ofl tlaug inn i braul Arnarflugavélarinnar, þannig að flugvsl arnar flugu um tíma btint hvor mot annarri. A þtim tlóðum þar ttm krottinn or mattutt flugvalarnar og voru pé aðaina tugir mttra á miHi þairra. ! Þnöja Mugvélin lær . heimild til laskkunar niour I í gegnum asfingaavssoi Orion-flugvélarinnar hafa verið settan nægilega" vel inn í stöðuna er hann tók við stjórninni klukkan 13:08. Einnig aö hann hafi ekki tekið eftir því er Orion-flugvél- in yfirgaf svæði sitt og flaug beint mót Arnarflugsþotunni. Hins vegar segir í niðurstöðum skýrslunnar, að álíta megi að flug- umferðarstjórinn hafi ekki verið nægilega settur inn í stöðu mála er hann tók á ný við stjórninni. Einnig segir í skýrslunni að flug- umferðarstjórinn segi að það kunni að hafa villt fyrir honum að Orion- flugvélin var með ratsjársvarann, sem sendir merki inn á ratsjá flug- umferðarstjórans, stilltan á sjón- flugskvóta, og hafi það orðið þess valdandi að hann var ekki jafn yel á verði og honum bar skylda til. Áður kemur fram að það voru mistök flugumferðarstjóra að flugvélin var með sjónflugsmerki í stað blind- flugsmerkis. Ennfremur hafi flugumferðar- stjórinn kvartað undan því að upp- söfnuð þreyta, vegna mikils vinnu- álags næstu vikur á undan, hafi lík- lega skert afkastagetu sína og and- legan frískleika. Jafnframt hafi hópur skólabarna birst í stjórn- herberginu skömmu fyrir atvikið. Hann hafi ekki fengið fyrirfram vitneskju um þessa heimsókn og orðið gramur, en það kunni að hafa dregið úr eftirtekt hans eða raskað athyglinni við skjáinn. Mikil vinna í skýrslu flugmálastjórnar kemur fram að vinnuálagið í flugturninum á Keflavikurflugvelli sé mikið, en þar starfa 10 flugumferðarstjórar í stað 15, sem heimild er fyrir að þar starfi. Þannig hafi flugumferðar- stjórinn, sem var við skjáinn er lá við árekstrinum, fyrstu 15 daga marsmánaðar verið 14 daga að störfum, á tíu 12-stunda vöktum og þremur 57-stunda vöktum, þar sem hann var að prófa flugum- ferðastjóraefni. Hann var á 12 stunda dagvakt 9. og 10. mars, næt- urvakt 11. og 12. mars, og dagvakt 13. og 14. mars, en atvikið átti sér stað 15. mars. Rannsóknarnefndin leggur til í ljósi þess er fram kom við rannsókn málsins, að vaktaskiptakerfið og vinnuskipulag í flugturnum verði endurskipulagt, sérstaklega vakt- lengdir og skipting dag- og nætur- vakta. Einnig að kannað verði hvort einhver ávinningur geti af því orðið að setja upp sérstakt tölvueftirlit með flugumferðarstjórum, en tölvukerfi af þessu tagi gæti leið- rétt flugumferðarstjóra jafnóðum. «gás. ___________