Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 76. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						28

MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983

Höröur Askelsson

Hörður Áskelsson með tón-

leika í Akureyrarkirkju

HÖRÐUR Askelsson orgelleikari

heldur tónleika í Akureyrarkirkju á

morgun, fimmtudag 7. apríl, kl.

20.30. Á efnisskrá verða verk eftir

Cesar Franck, Olivier Messiaen, Pál

ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson og

einnig flytjandann. Hörður hefur

þegiö boð um að halda tónleika við

Postulakirkjuna í Köln í Þýskalandi

í næstu viku, og leikur hann sömu

tónverkin á Akureyri og í Þýska-

landi.

Orgel Akureyrarkirkju er

stærsta pípuorgel landsins og

ræður það vali kirkjunnar fyrir

tónleikana, auk þess að Hörður er

fæddur og uppalinn á Akureyri.

Auk Harðar eru boðnir til orgel-

leiks í Köln organistanir Rudolf

Heinemann og Michael Schneider.

Hörður hóf orgelnám á Akur-

eyri hjá Gígju Kjartansdóttur við

Tónlistarskólann á Akureyri. Síð-

ar við Tónlistarskólann í Reykja-

vík, þar sem hann lauk tón-

menntakennaraprófi og ári síðar

lokaprófi í orgelleik, og var Mar-

teinn Hunger Friðriksson kennari

hans þar. Síðan stundaði hann

framhaldsnám    við   tónlistarhá-

skólann í Dússeldorf i Þýskalandi

og lauk þaðan æðsta prófi í kirkju-

tónlist og orgelleik vorið 1981.

Hann var eini nemandinn er því

prófi lauk það ár og jafnframt

með hæsta vitnisburði, sem veitt-

ur er við skólann, þ.e. meðal-

einkunn A úr öllum greinum.

Honum bauðst starf í eitt ár við

Neanderkirkjuna í Dusseldorf, og

auk einleiks á orgel flutti hann

þar sem stjórnandi nokkur stór

verk fyrir kór og hljómsveit.

Hörður starfar nú sem organisti

við Hallgrímskirkju og samkvæmt

fréttatilkynningu í tilefni af tón-

leikunum var hann aðalhvatamað-

ur að stofnun listvinafélags við

kirkjuna, sem stendur að flutningi

og sýningu kirkjulegrar listar.

Hann stofnaði einnig mótettukór

við kirkjuna, sem flutt hefur tón-

list við ýmis tækifæri. Hörður hef-

ur auk þessa verið aðstoðarstjórn-

andi Pólýfónkórsins og var aðal-

stjórnandi á jólatónleikum hans.

Hann hélt orgeltónleika í boði

dómkirkju Þrándheims á tónist-

arhátíð þar árið 1982 og lék á

Spáni á s.l. sumri.

Dagskrá um

Faulkner í Menn-

ingarstofnuninni

í MENNINGARSTOFNUN Banda-

ríkjanna við Neshaga verður haldin

sérstök dagskrá um líf og störf rit-

höfundarins Williams Faulkners,

fimmtudaginn 7. aprfl kl. 20.30. Dr.

Barbara Kathe talar um skáldið, en

dr. Kathe ritaoi meistararitgerð sína

um skáldsögur Faulkners. Einnig

verður sýnd kvikmyndin „The

Bear" gerð eftir einni af sögum

Faulkners.

Á vegum Menningarstofnunar-

innar hafa verið haldnir fyrir-

lestrar um ýmsa bandaríska höf-

unda í vetur og er Faulkner kvöld-

ið það síðasta að sinni.

William Faulkner fæddist 1897

og fyrsta bók hans var ljóðabók og

kom út 1924. Síðan skrifaði hann

tvö leikrit, en fyrsta skáldsaga

hans, Sartoris, kom út árið 1929,

og síðan kom Sanctuary út 1931,

sem var meðal þeirra skáldsagna

sem aflaði honum mests orðstírs

ásamt með The Sound and the

Fury. Hann fékk bókmenntaverð-

laun Nóbels árið 1950. Faulkner

lézt árið 1962.

William Faulkner

Jónína Gísladóttir, píanóleikari og Unnur Jensdóttir, söngkona.

Tónlistarskólinn á Akranesi:

Breskur barítónsöngvari

með námskeið um helgina

DAGANA 8. til 10. apríl nk. verður

haldið söngnámskeið á vegum Tón-

listarskólans á Akranesi. Breski

barítónsöngvarinn Andrew Knight

kemur frá London til að halda nám-

skeiðið með söngnemendum skól-

ans, en þeir eru nú um 30 talsins.

Þetta er í fyrsta skipti sem slfkt

námskeið er haldið í skólanum.

Andrew Knight mun einnig

halda tvenna tónleika ásamt Unni

Jensdóttur söngkonu við undirleik

Jónínu Gísladóttur á vegum Tón-

listarfélags Akraness. Tón-

leikarnir verða haldnir í Fjöl-

brautaskólanum á Akranesi

fimmtudaginn 7. apríl kl. 20.30 og

í Norræna húsinu mánudaginn 11.

apríl kl. 20.30. Á efnisskránni

verða lög eftir Kaldalóns, Schu-

bert, Granados og fleiri auk þess

dúettar eftir Purcell, Mozart og

Gerswin.

Andrew Knight stundaði nám í

Royal Academy of Music í London

og hefur unnið til verðlauna í al-

þjóðlegum söngkeppnum í París,

Bretlandi og víðar. Hann tekur að

Baráttufundur herstöðvaandstæðinga

HINN 30. mars 1949 samþykkti

Alþingi, að ísland skyldi gerast

stofnaðili að Atlantshafsbandalag-

inu. Þann dag gerðu andstæðingar

þátttöku íslands í vestrænu sam-

starfi áhlaup á Alþingi. Samtök

herstöðvaandstæðinga ákváðu

fyrir nokkrum árum að gera 30.

mars að sérstökum baráttudegi

sínura.

Miðvikudaginn fyrir páska, 30.

mars 1983, boðuðu Samtök her-

stöðvaandstæðinga til útifundar

við Alþingishúsið. Myndirnar

sem sýna fundarmenn alla tók

ljósmyndari Morgunblaðsins

þegar baráttusamkoman stóð

sem hæst.

Til fróðleiks fyrir lesendur

Morgunblaðsins er jafnframt

birt frásögn Þjóðviljans af úti-

fundinum     á     miðvikudaginn

ásamt þeirri mynd sem Þjóðvilj-

inn birti. Þjóðviljinn segir, að

fundurinn   hafi   verið   ágætur,

eins og komist er að orði í blað-

inu.

Breski barítónsöngvarinn Andrew

Knight.

jafnaði þátt í oratóríu- og óper-

uuppfærslu auk tónleikahalds, og

hefur m.a. sungið í Winterreise

Schuberts og Diechterhiebe

Schumans í Wigmore Hall í Lon-

don. Á sl. ári ferðaðist hann um

Bandaríkin með The Singers

Company. Framundan eru ýmis

verkefni, svo sem í Requiem Verd-

is og í lok apríl mun Andrew

Knight syngja í Vesper eftir

Montiverdi í Queen Elizabeth Hall

í London.

Unnur Jensdóttir hefur stundað

píanónám frá unga aldri. Söng

hefur hún lært í Söngskólanum í

Reykjavík og í London og var

Andrew Knight meðal kennara

hennar. Hún hélt sína fyrstu

opinberu tónleika á sl. ári. Unnur

er söngkennari við Tónlistarskól-

ann á Akranesi ásamt Hólmfríði

Benediktsdóttur.

Jónína Gísladóttir stundaði

nám við Tónlistarskólann í

Reykjavík og lauk þaðan tón-

menntakennaraprófi. Hún hefur

komið mikið fram sem undirleik-

ari bæði með einsöngvurum og

kórum hér heima og erlendis. Jón-

ína er píanókennari og undirleik-

ari við Söngskólann í Reykjavík.

Athugasemd

frá Framsýn/

ísmynd

Af gefnu tilefni fréttar í Morg-

unblaðinu            um gengi hljóm-

sveitarinnar Mezzoforte í Bret-

landi, þar sem segir meðal annars

að hljómsveitin hyggði á mynd-

bandupptöku þar „eftir að tilraun-

ir til slíks hérlendis höfðu ekki

tekist nægilega vel", vill mynd-

bandafyrirtækið Framsýn/ís-

mynd taka fram að slíkt verkefni

hér heima var ekki á þess vegum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48