MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983 37 Smyslov Hiibner &Æ2lÁ: Oldungurinn ræður ferðinni Hubner telur því að Smyslov hafi hegðað sér ódrengilega eftir að hafa sjálfur syndgað upp á náðina. Eins og áður sagði, hefur Smyslov yfirleitt reynt að stýra skákunum út í endatafl, en sú varð þó ekki raunin í fjórðu skákinni. Þá bauðst honum upp- lagt tækifæri í miðtafli eftir slaklega taflmennsku Húbners og með skemmtilegri fléttu náði hann óstöðvandi sókn: Margeir Pétursson Vassily Smyslov, 63ja ára gamall fyrrum heimsmeistari í skák, lætur engan bilbug á sér fínna í einvígi sínu við Robert Hú'bner í Velden í Austurríki, þrátt fyrir að hann sé 30 árum eldri en andstæðingurinn. Sex skákum er nú lokið í einvíginu og hefur fímm þeirra lokið með jafntefli, en Smyslov vann þá fjórðu og hefur því eins vinnings forskot. Skákirnar hafa flestar verið með rólegra móti og Smyslov hefur lagt sig mjög eftir því að komast út í endatöfí, en þar er hann sterkastur fyrir. Hiíbner hefur ekki tekist að hrekja þessa taktík gamla mannsins og segja sérfræðingar í Velden að hann verði að tefla miklu hvassar til að geta gert sér nokkrar vonir um sigur í ein- víginu. í upphafi einvígisins fór vel á með keppinautunum tveimur, en nú hefur komið upp deila á milli þeirra sem olli því að í sjöttu skákinni neitaði Híibner að tak- ast í hendur við andstæðing sinn bæði fyrir og eftir skákina. Smyslov Ástæðan fyrir því er sú að Hubner hafði í nokkrum skák- anna fengið nuddara sinn til þess að nudda á sér hálsvöðvana meðan á taflinu stóð. Þetta kærði Smyslov og dómarinn, Júgóslavinn Bozidar Kazic, úr- skurðaði að þetta háttalag bryti í bága við þá grein skáklaganna sem bannar afskipti aukamanna af keppendum. Hubner brást hinn versti við þessari kæru, því í upphafi ein- vígisins leyfði hann Smyslov tví- vegis að fresta fyrstu skákinni, pó slíkt sé óheimilt skv. sam- þykktum FIDE. Hefði Hubner krafist þess, hefði hann getað fengið sér dæmdan sigur í fyrstu skákinni vegna þessara endur- teknu forfalla Smyslovs," stað- hæfðu aðstoðarmenn Þjóðverj- ans í samtölum við fréttamann. Hvítt: Vassily Smyslov 30. Bxg6! Da8+, 31. Kgl Bg8, 32. Bxh7! Hxh7, 33. Rg6+ Kg7, 34. Dd7+ - Hf7, 35. Hxf7+ Bxf7, 36. Rxe5 Dd5, 37. Dxa7! Hh5, 38. Rxf7 - Dxf7, 39. Bd4+ Rxd4, 40. Dxd4+ og með tvö peð yfir og miklu betri kóngsstöðu vann Smyslov auðveldan sigur. í sjöttu skákinni, sem tefld var um helgina, fékk Hubner í fyrsta sinn vinningsmöguleika er hann vann peð og átti þægi- lega stöðu. En Smyslov varðist af hörku og náði um síðir að skipta upp í endatafl með mislit- um biskupum sem engin leið var að vinna. Einsöngur Tonlist i Jón Asgeirsson Dóra Reyndal, sópransöng- kona, og Guðríður St. Sigurðar- dóttir, píanóleikari, fluttu tón- list eftir Haydn, Mozart, Strauss, Mussorgsky, Pál ís- ólfsson og Jórunni Viðar, á tón- leikum í Norræna húsinu rétt fyrir páskana. Dóra Reyndal hefur sterka tilfinningu fyrir formgerð laga og innihaldi text- ans, bæði er varðar frásögn og túlkun tilfinninga. Flutnings- miðillinn, röddin, er helst til stífur og einlitur, sem verður því meira áberandi er lagið hallast nær því að vera tæknileikur, eins og Konsertarían eftir Mozart, sem söngkonan hefði átt að láta ósungna. Lögin eftir Haydn, Heyr það er unnustinn minn, eftir Pál ísólfsson og Barnaher- bergið, eftir Mussorgsky voru bestu viðfangsefnin, sem segir nokkuð til um kunnáttu Dóru, því t.d. Barnaherbergið er erfitt í flutningi og túlkun. Ljóð ófelíu eftir Strauss er ankanalegt tón- verk, þar sem reynt er að tón- setja sturlun ófelíu. Svona list- ræn tóntúlkun á barnslegri sturlun verður óhjákvæmilega fölsk, jafnvel þó vel sé að verkinu staðið. Eitt það sem bætti virkilega um, þar sem á vantaði, var undirleikur Guðríð- ar St. Sigurðardóttur. Frá fyrsta tóni til hins síðasta var ieikur hennar gæddur mýkt og fegurð og þar sem á reyndi í tækni var leikur hennar skýr. Guðríður er frábær undirleikar. Félagsmálaráöuneytið: Ný reglugerð um innflutt hús Morgunblaðinu barst í gær eftir- farandi fréttatilkynning frá félags- málaráðuneytinu: í dag hefur félagsmálaráðu- neytið gefið út reglugerð um breytingu á gildandi byggingar- reglugerð. Breyting þessi varðar innflutn- ing verksmiðjuhúsa (eininga- eða málmgrindarhúsa) og hljóðar svo: Þegar um er að ræða innflutn- ing verksmiðjuhúsa (eininga- eða málmgrindarhúsa) skulu bygg- ingarfulltrúar og byggingarnefnd- ir krefja hlutaðeigandi innflytj- endur um vottorð frá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins um að þau standist þær gæðakröfur sem gerðar eru samkvæmt gild- andi byggingarlögum og bygg- ingarreglugerð." Jafnframt hefur ráðuneytið lagt fyrir Húsnæðisstofnun ríkisins að hún veiti ekki, eftir gildistöku þessarar reglugerðar, ný lán vegna umræddra húsa, nema fyrir liggi vottorð Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins samkvæmt TwlnoTArAínni u TIMEX ^miinganír-feimtngarverð Kvenúr með gylltri keðju, vekjara og dagatali. 71017- Kr. 1.298. Tónúr sem vekur með lagi. Skeiðklukka, niðurteljari, tvöfalt tímakerfi, 12 og 24 tíma kerfi, dagatal, hljóðmerki á heilum tímum, vatnsþétt, hert gler. 62327 - Kr. 1.498.- Silfurlitað quartz-úr með ól. 56311 - Kr. 1.498. Kafaraúr, vatnsþétt niður á 100 metra dýpi. Hert gler, stálkassi, tímahringur og dagatal. 58347 - Kr. 2.498. Umboðsmenn á höfuðborgarsvæðinu: Árni Höskuidsjson Jóhannes Leifsson gullsmm Árni Laugavegi 30 Gullhöllin, Laugavegl timex úr fást einniq Timex elegance. Glæsilegt úr með gylltri keðju og kassa, - heilsteypt. 54217 - Kr. 2.298.- Reiknivélarúr með vekjara, 12 og 24 tíma kerfi, hljóðmerki á heilum tímum, skeiðklukku og dagatali. 61311-Kr. 1.378.- gullsmm. Bergstaðastræti 4 79 Gleraugnaverslun Benedik í öllum vandaðri verslunum Gyllt quartz-úr án trekkjara. Vísastilling rafdrifin. 53611-Kr. 1.298.- Quartz-úr með vísum og rómverskum tölutáknum. 56021 -Kr. 1.349. Valur Fannar gullsmm. Lækjartorgi , Kopavogi Magnus Guðlaugsson utan stór-Reykjavíkur Gyllt tölvuúr með ól. Lítið, nett og takkalaust með dagatali, vekjara og hljóðmerki á heilum tímum. 74611 - Kr. 1.098.- Tvísýnarúr með vekjara, 12 og 24 tíma kerfi, dagatali, hertu gleri og hljóðmerki á hellum tímum. Vatnsþétt. 79321 - Kr. 2.490. Halldór, Skolavöröustig 2 ursmiöur, Hafnarfirði