MORGUNBLADID, MIDVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983 41 fclk í fréttum Sex stórstjörnur + I»art er ekki á hverjum degi, sem fólk fær að sjá sex stórstjörnur saman komnar á sviði í einu lagi, en það átti sér þó sUð vestur í Bandaríkjunum nú fyrir skemmstu. Var astsðan sú, að Feline Center í Wolf Trap Farm I'ark, miðstöð fyrir listamenn og aðra kúnstnera, brann til gninna fyrir ári og er nú verið að safna fé til að reisa aðra. Frá vinstri i myndinni eru: Elizabeth Taylor, Sanuny Davis Jr., Stephanie Mills, Bob Hope og rokksöngv- ararnir Laura Brannigan og sjálfur Meat Loaf. + Drottningarmóðirin enska er lítið hrifin af Jimmy Carter, fyrrum Bandarfkjaforseta: Hann er eini maðurinn, síðan ég missti minn ástkæra eiginmann, sem hefur verið svo óforskammaður að kyssa mig á munninn," segir hún. Drottningar- móðirin er nú 82 ára en maður henn- ar, Georg konungur VI, lést ário 1952. + Móðir Theresa í Kalkútta, sem helgað hefur allt sitt Iff hjálpinni við fátæ kt fólk, var í Kenya nú fyrir skemmstu og aðstoðaði þar trúsystur sinar við hjálparstarf f Nairobi. I þessari ferð lagði hún einnig leið sína til sex annarra Afr- ikulanda. Móðir Theresa fékk frið- arverðlaun Nób- els árið 1979. Hádegis- verðarfundur Fundarefni: Tölvuvædd fyrirtækjalíkön" (Cor porate Models) Framsögumaöur: Árni Gunnarsson, rekstrarhag- fræöingur framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Islands. Fundarstaöur: Veitingastaöurinn Þingholt. Fimmtudagur 7. apríl kl. 12.15- 13.45. Þátttaka tilkynnist fyrir 6. apríl nk. í síma 27577. Þátttökugjald er 260 kr. Athugiö breytingu frá áöur auglýstum fundardegi. Félag viðskiptafræöinga og hagfræðinga. 3ja STxJÖRNU A EGG & Egg jabúió á Vallá Kjalarnesi Símar 66033 og 66032 SPUNNIÐ UM STALIN 16 eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN Hann hefði drepið Stalín sjálfan, ef hann hefði komi/.t í tæri við hann. En hann fær ekki tækifæri til að komast í færi við neinn nema Kíroff. Hann trúir því sjálfur, að enginn hafi komið nálægt morðinu nema hann. Og hann er hreykinn af því, allt fram í líflátið. En þess er að vísu ekki langt að bíða. í vasabókinni hans eru mörg nöfn. Og mörg nöfn hverfa úr manntali ríkisins á næstu mánuðum. Eitt þessara fórnardýra er ung kona, Elísabet Lermola, sem hafði hitt Leonid Nikolayev í Norður-Rússlandi, þar sem hún var í útlegð vegna þess að faðir hennar hafði verið liðsforingi í her keisarans. Falleg kona og greind. Hlutlaus í afstöðunni til flokksins. En Stalín er svo áhugasamur að hann yfirheyrir hana sjálfur, enda þekkir hann til hennar frá fyrri dögum. Það er séð um, að áhugi hans og árvekni fari ekki fram hjá neinum. Hann er ákæruvaldið, rannsóknarlögreglan og dómarinn. Yfir- heyrslur hans yfir Lermola eru gott dæmi um list hans í þeim efnum. Þær eru snilldarlega af hendi leystar: Stalín: Veiztu hver Kíroff var? Konan: Já. Stalín: Veiztu, að hann er ekki lengur á lífi? Konan: Er hægt að komast hjá að vita það? Stalín segir ísmeygilega: Hvernig dó hann? Konan: A ég að vita það? Stalín: Þekktirðu morðingjann? Konan: Ég hafði hitt hann. Stalín: Hvar? Konan: Hann var í einhverjum erindagerðum í litlu þorpi sem ég dvaldist í um skeið. Stalín: Varstu ástkona hans? Konan svarar hneyksluð: Hvernig dirfistu ég við töluðum stundum saman. Af hverju hvernig? Stalín bregzt reiður við, stendur upp og ber í borðið, hann segir: Ef ég segi, að þú hafir verið ástkona hans, þá varstu það. Konan fellur saman, snöktir. Hann kveikir sér í pípu, eins og ekkert hafi í skorizt. Stalín: Nafn þitt fannst í vasabók morðingjans. Konan: Það hefur einhver skrifað það þar. Stalín: Já, einhver. Menn bera ekki á sér nöfn kvenna nema ástæða sé til. Konan ber í borðið og segir: Ég var það ekki, ég var það ekki! Ég hef starfað á vegum Flokksins og hann kom í hans erindum. Við töluðum saman. Stalín: Um hvað? Konan: Ég man það ekki. Félagi Leonid Nikolayev . Stalín: Þarna sérðu, þú manst það ekki. Talaði hann um Kíroff? Konan: Ekki svo ég muni, kannski einu sinni eða tvisv- ar. Hann var á móti öllum valdamönnum. Stalín segir ísmeygilega: Já, einmitt, en hann hefur þó ekki verið á móti Túkhachevsky marskálk, Búkharin rit- stjóra eða Kamenev. Konan: Ég heyrði hann aldrei minnast á þá. Stalín öskrar: Þú lýgur, þetta er þrælskipulagt samsæri, þú veizt að hann var óvinur ríkisins. Konan skelfingu lostin: Já, ég veit það. Stalín: Og einhverja vini hefur hann átt. Konan svarar rugluð: Það þarf ekki að vera. Stalín: Nú, við hvað áttu? Konan: Hér eru margir, sem eiga enga vini. Stalín: Morðinginn talaði hlýlega um Túkhachevsky marskálk, Kamenev og Búkharin, en fordæmdi aðra leið- toga ríkisins. Hann lítur til ritara réttarins og segir: Er það ekki komið á blað? Ritarinn svarar: Jú, félagi. Konan hristir höfuðið og segir rugluð: Ég veit það ekki. Stalín: Víst veiztu það, þú varst að enda við að segja það. Konan grátandi og hrópar skelfingu lostin: Eg veit það ekki, ég veit það ekki. Jú, ætli það ekki! Stalín segir við ritarann: Hún hefur játað. Þetta er nóg. Samsæri afhjúpað, sæktu varðmennina. Ritarinn gengur fram og sækir tvo varðmenn, sem leiða FRAMHALD