Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 76. tölublaš og Ķžróttablaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						~Ki

glýsinga-

síminn er 2 24 80

ntgMnMaM^

^/¦^skriftar-

síminner 83033

MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1983

Niðurstaða rannsóknarnefndar flugmálastjórnar:

Mistök flugumferðarstjóra

og varnarliðsflugvélarinnar

Gífurlegur fjöldi manna

var í Skálafelli á annan

páskadag eins og með-

fylgjandi mynd Emilíu B.

Björnsdóttur ber með sér.

Margir urðu frá að hverfa

í skíðalöndum Reykvík-

inga vegna skorts á bíla-

stæðum.

Þriðja flugvélin fékk heimild til lækkunar

í gegnum æfingasvæði Orion-flugvélarinnar

„Flugmálastjórn skilgreinir þetta atvik sem „raunverulega árekstrarhættu",

sem orsakast hafi af því aö flugumferðarstjórinn veitti ekki flugumferð í

stjórnsvæði sínu athygli, og af því að flugstjóri Orion-flugvélarinnar fór ekki að

fyrirmælum flugheimildar sinnar," segir í skýrslu flugmálastjórnar um atvikið

s'uður af landinu um miðjan marz sl. þegar lá við árekstri Arnarflugsþotu og

varnarliðsflugvélar. En á blaðamannafundi í gær sagði Pétur Einarsson flug-

málastjóri að frumorsökin fyrir þessu atviki væri sú að varnarliðsvélin hefði

farið út fyrir það svæði sem henni hafði verið úthlutað til æfinga suður af

Reykjanesi. í ríkisfjölmiðlum í gærkvöldi sagði flugmálastjóri hins vegar að auk

mistaka flugstjóra varnarliðsvélarinnar hefði flugumferðarstjórinn sýnt

aðgæzluleysi.

Aðspurður sagði Pétur Einarsson

á blaðamannafundinum að flug-

málastjórn mundi ekki grípa til að-

gerða gagnvart flugumferðarstjór-

anum og hann gaeti þess vegna

haldið áfram störfum óhindrað.

Það væri hins vegar í höndum sak-

sóknara hvort höfðað yrði opinbert

mál á hendur flugumferðarstjóran-

um fyrir vanrækslu í starfi. Fram

kom á fundinum að flugumferðar-

stjórinn gegndi störfum meðan á

rannsókn stóð, og sagði flugmála-

stjóri að engin ástæða hefði verið

til að leysa hann frá störfum á með-

an þar sem öll gögn málsins hefðu

legið fyrir. Strax eftir atvikið hefði

hann verið settur í hæfnispróf og

gengist undir iæknisskoðun og stað-

ist hvort tveggja með ágætum.

f skýrslu flugmálastjórnar kemur

fram að flugumferðastjóranum hafi

orðið á mörg mistök við umferðar-

stjórnun sömu mínútur og atvikið

átti sér stað. Hann hafi ekki veitt

því eftirtekt er Orion-flugvélin fór

út fyrir æfingasvæðið, hann hafi

heimilað þriðju flugvélinni lækkun

niður í gegn um æfingasvæði varn-

arliðsvélarinnar, Orion-flugvélinni

var ekki úthlutað réttum ratsjár-

merkjum, jafnframt hafi hann

stýrt Orion-flugvélinni í veg fyrir

Arnarflugsþotuna með því að láta

hana beygja, og einnig hafi hann

ekki farið að reglum um upplýs-

ingamiðlun til flugmannanna um

flugumferð í nánd þeirra.

Heldur flugumferðarstjórinn því

fram að það kunni að hafa villt

honum sýn að Orion-flugvélin var

með ratsjársvara sinn stilltan sem

þar væri á ferðinni sjónflugsflug-

vél. Einnig kvartaði hann yfir því

að líklega hefði uppsöfnuð þreyta

vegna mikils vinnuálags næstu vik-

ur á undan dregið úr afkastagetu og

viðbrögðum hans.

í skýrslu rannsóknarnefndarinn-

ar kemur fram að flugumferðar-

stjórinn hafi unnið stífa vakta-

vinnu næstu 14 daga fyrir atvikið,

þar af 10 12-stunda vaktir, sem ým-

ist voru unnar að nóttu eða degi. í

skýrslunni er lagt til að vinnutil-

högun og vaktaskipulagi í flugturn-

um verði endurskipulögð, einkum

með tilliti til vaktlengdar og örra

breytinga frá dagvakt yfir á næt-

urvakt. Einnig að reglugerð um

hæfnisþjálfun flugumferðarstjóra

verði hrint í framkvæmd, en flug-

málastjórn fékk á sínum tíma und-

anþágu frá ákvæðum reglugerðar-

innar vegria deilna við flugumferð-

arstjóra, sem lögðust gegn hæfni-

prófunum.

Sjá nánar á bls. 27.

'*-«

','.**•¦. t   i   ' •¦' •  .   i

> "'   >u n »   '¦'ti*i ,

y*-

.W^r/'^ÍÍ'M^

'i^lfl

I >J ,

•"•*#» 9

V:!'' 'é t*\ ''¦¦'' M>;V. l,

'                                              A

MJÖG MARGT fólk var í skíðaUindum Reykvíkinga á annan í páskum, raunar svo margt að lögreglan varð að

vísa fólki frá í Bláfjöllum vegna skorts á bflastæðum. Hreggviður Jónsson, formaður Skíðasambands íslands,

taldi að í skíðalöndum Reykvíkinga gætu rúmast á einum degi hátt í 20 þúsund manns, 6—7 þúsund í

Bláfjóllum og annað eins í Skálafelli og einnig á Hengilssvæðinu, þó afköstin á þeim svæðum væru ekki jafn

mikil. Á toppdegi eins og verið hafi á annan í páskum gætu því hafa verið hátt í 20 þúsund manns, sem nutu

útiveninnar í skíðalöndum Reykvfkinga.

Hreggviður sagði að þetta sýndi að það væri greinilega mjög mikil þörf fyrir bæði betri vegi á sum svæðin og

meiri þjónustu við almenning í sambandi við skíðin. „Við teljum að þetta sé lang fjölmennasta fþróttagreinin

þar sem öll fjölskyldan tekur þátt. Heilu fjölskyldurnar fara á skíði og njóta útiverunnar saman. Það breytir

engu hvað menn eru góðir, hver og einn getur fundið brekku við sitt hæfi," sagði Hreggviður.

Verðlag á vínum í fríhöfnum:

45% hærra í Kefla-

vík en í Amsterdam

VÍN, LÉTT og sterk, eru um 45% I Amsterdam í Hollandi, sem er sú

dýrari í Fríhöfninni á Keflavfkur- fríhöfn, sem er með mest úrval.

flugvelli, en þau eru í fríhöfninni ' |   Þessar upplýsingar koma fram f ný-

Hröpuðu 25 metra niður í sprungu á Breiðamerkurjökli:

„Ég reiknaði með að

þetta væru endalokin

«

segir Þorsteinn Sigurbergsson, sem ásamt Nönnu Gunnarsdóttur slapp furðulítið meiddur úr fallinu

til móts við þau frá

„Ég reiknaði með að þetta væru endalokin," sagði Þosteinn Sigurbergs-

son er Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöld. Hann varð fyrir þeirri

óskemmtilegu reynslu á skírdag, ásamt Nönnu Gunnarsdóttur, að hrapa

hálfan þriðja tug metra niður í jökulsprungu þegar þau voni ásamt

fleirum á ferð á Breiðamerkurjökli á leið tii Esjufjalla á vélsleðum.

„Ég þekki nú jökulinn orðið

dálítið eftir nokkrar ferðir á

hann og bjóst sannast sagna

ekki við því að stoppa svona

snemma í sprungunni. Ég slapp

merkilega vel. Fékk að vísu 15

sentimetra langan skurð á

ofanvert ennið, sem þurfti 25

spor til að loka, en það er mesta

furða hvað maður er hress. Mað-

ur er auðvitað hálfslappur enn-

þá, enda missti ég víst talsvert

blóð."

Þorsteinn og Nanna voru á

ferð með fólki á þremur öðrum

vélsleðum þegar óhappið varð.

Snjórinn lét skyndilega undan

og skipti engum togum að þau

hröpuðu bæði niður í sprungu,

sem opnaðist undir þeim. Vél-

sleðinn stöðvaðist fáa metra frá

brúninni, en þau hröpuðu 25

metra niður í sprunguna, en

stöðvuðust þar á snjótappa.

„Ég missti aldrei meðvitund í

fallinu og minnist þess ekki að

hafa fengið höfuðhögg," sagði

Þorsteinn og bætti því við, að

hann teldi að hann hlyti að hafa

rekið höfuðið utan í ísnibbu á

leiðinni niður. Hann og Nanna

urðu á hírast á syllunni í um

tvær klukkustundir áður en

samferðafólkið bjargaði þeim

upp úr af eigin rammleik.

Þorsteinn kvað dvölina niðri í

sprungunni ekki hafa verið mjög

óþægilega. Samferðafólkið hafði

strax náð sambandi við þau og

stappað í þau stálinu. Sagði

hann þau. strax hafa gert sér

grein fyrir, að þeim yrði bjargað

fyrr en síðar. í gegnum talstöð

kölluðu þau svo á sjúkrabrifreið,

sem kom

Höfn.

Hvorki Nanna né Þorsteinn

brotnuðu í þessu mikla falli, en

Nanna tognaði á annarri öxlinni

og hlaut nokkuð slæmt mar.

Þorsteinn hlaut hins vegar ekki

önnur teljandi meiðsl en skurð-

inn á höfðuðið.

Aðspurður sagði Þorsteinn, að

hann og kunningjafólk hans

hefðu reynt að halda til fjalla

alltaf þegar frí gæfist. Hann

hefði ekki lent í neinum óhöpp-

um af þessu tagi áður og léti

þennan atburð ekki aftra sér frá

frekari fjallaferðum. „Þetta er

óhapp, sem alltaf mátti búast við

að gæti hent," sagði hann.

útkominni bók um verðlag í frfhöfn-

um víðs vegar um heiminn, sem gef-

in er út af sænska útgáfufyrirtækinu

„General Publications".

I bókinni kemur fram, að vín

eru ódýrust um borð í flugvélum

hinna ýmsu flugfélaga. Verðvísi-

talan er sett á 100 stig í Amster-

dam, en um borð í flugvélum Air

France er vísitalan 81 stig. Hjá

Lufthansa er vísitalan 90 stig og

hjá TAP-Air Portugal er vísitalan

73. Verðvísitalan er eins og áður

sagði 145 stig í Keflavík, en til

samanburðar má nefna, að í Lon-

don er hún 137 stig, í Stokkhólmi

153 stig, í Zurich 114 stig, í

Frankfurt 120 stig, í París 106 stig

og í Kaupmannahöfn 136 stig.

í bókinni er verðvísitalan á tób-

aki sett á 100 stig í Amsterdam, en

þá er vísitalan í Keflavík 115 stig.

Dæmi um aðrar fríhafnir eru

Kaupmannahöfn með vísitöluna

129 stig, Frankfurt með 111 stig,

London með 131 stig, París með

118 stig, Stokkhólmur með 145

stig og Zurich með 111 stig. Ef

flugfélögin eru skoðuð kemur í

ljós, að um borð í flugvélum Air

France er vísitalan 95 stig og hjá

Lufthansa er vísitalan 124 stig.

I bókinni kemur ennfremur

fram, að liðlega 300 milljónir

manna ferðist árlega milli landa

og hafi því möguleika á því að

verzla í fríhöfnum víðs vegar um

heiminn.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48