Morgunblaðið - 10.04.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.1983, Blaðsíða 1
Sunnudagur 10. apríl - Bls.45-76 Velgengni íslenskra dægurtónlistarmanna á alþjóðlegum vettvangi að undanfdrnu hefur opnað augu manna fyrir því, að við Islendingar lifum ekki iengur í tónlistarlegri einangr- un hér norður í höfum, heldur höfum við möguleika til að keppa við erlendar stórstjörnur á þessu sviði, ef réttar að- stæður eru fyrir hendi. Þetta endurspeglar reyndar þann aðstöðumun sem orðinn er fyrir íslenska höfunda að koma tónsmíðum sínum á framfæri og minnir okkur jafnframt á, að ekki er ýkja langt síðan að fáir eða engir létu sig dreyma um slíka möguleika. Það reyndist mönnum nógu erfitt að koma lögunum á framfæri hér innanlands, hvað þá að nokkrum dytti í hug að hugsa út fyrir landsteinana í þessum efnum. Það sem nú er að gerast er hins vegar aðeins eðlilegt fram- hald þeirrar þróunar er hófst með baráttu frumherjanna við að koma íslenskri dægurtónlist á framfæri við landsmenn sjálfa. í eftirfarandi grein og spjalli við Svavar Gests, hljómplötuútgefanda, verður rifjað upp starf frumherjanna og einkum staldrað við danslagakeppnirnar svonefndu, sem áttu drjúgan þátt í að ýta undir sköpunargáfu íslenskra dægur- tónsmiða. Og það var ekkert eðlilegra en að leita einmitt til Svavars um upplýsingar hvaö þetta varðar, því hann er einn þeirra manna sem mjög hafa stuðlað að áðurnefndri þróun, fyrst sem hljómsveitarstjóri og forystumaður íslenskra hljómlistarmanna um margra ára skeið og síðan sem hljóm- plötuútgefandi. Jan Morávek var oftast nær hljóm- sveitarstjóri í hinum ýmsu danslaga- keppnum SKT og útsetti flest lögin. Sjálfur samdi hann fáein lög sem komu fram í keppninni. Lag Sigfúsar Hall- dórssonar, „Dagný“, sigraöi í fyrstu dans- lagakeppni sem haldin var á íslandi, árið 1939, og allar götur síðan hefur Sigfús ver- ið í hópi virtustu og vinsælustu tónskálda okkar. Freymóður Jóhannsson átti drjúg- an þátt í að halda á lofti merki íslenskrar dægurtónlistar, bæði með lögum sínum og Ijóðum og svo brautryðjandastarfi sínu í sambandi við danslagakeppni SKT. Af íslenskum dægur- lögum fyrr og nú — og spjallað við Svavar Gests um danslagakeppnir fyrr á árum Alfreð Clausen söng oft f dans- lagakeppni SKT og sfðar mörg lög úr keppninni inn á plötur. Fyrsta danslagakeppnin á íslandi var haldin á Hót- el íslandi síðari hluta árs 1939, sagði Svavar þegar þessi mál bar á góma. „Þar var kosið um vinsældir danslaga eftir íslenska höfunda, en þar var um að ræða lög sem þegar höfðu verið gefin út á nót- um. Fyrstu verðlaun í þessari keppni hlaut lag Sigfúsar Hall- dórssonar, Dagný, en Sigfús mun þá hafa verið innan við tvítugt. Templarar héldu sína fyrstu danslagakeppni árið 1950 og var hún í tvennu lagi. Á laugardögum var kosið um vinsældir gömlu dansanna en á sunnudögum nýju dansanna. Ég spilaði í Góðtempl- arahúsinu veturinn áður en þetta fór af stað og ég held að upphaf- lega hafi tilgangurinn aðallega verið sá að fá meiri aðsókn að dansleikjunum. Þetta virkaði sem aðdráttarafl á böllin. Reyndar bárust ekki mörg lög í fyrstu keppnina en þetta mæltist vel fyrir og þátttakan jókst er á leið. Lögin voru send undir dulnefni og fór undankeppni fram tvær eða fleiri helgar eftir því hve mörg lög bárust og síðan var úrslita- keppnin. I fyrstu keppninni voru öll lögin sem bárust textalaus en áður en undanúrslitin fóru fram var fulltrúum höfunda sagt að þeim væri heimilt að láta semja texta við lögin. Þeir, sem gátu fengið texta við lögin á þessum skamma tíma sem var til stefnu, komu best út úr keppninni og eftir það voru flest lög sem bárust með textum. Kosningin fór þannig fram, að gestir fengu atkvæðaseðil með að- göngumiðanum og síðan voru lög- in leikin á dansleiknum, a.m.k. tvisvar hvert lag, og fólk dansaði eftir þeim, því þetta var jú dans- lagakeppni. Stundum voru úrslitin færð í Austurbæjarbíó og var þá kosið þar og einnig var nokkrum sinnum útvarpað frá þessum úr- slitakvöldum, bæði úr Góðtempl- arahúsinu og einnig úr Austur- bæjarbíói." Jenni Jóns samdi mörg lög og texta sem verðlaun hlutu í dans- lagakeppnum hér fyrr á árum. Gluggað í gömul jazzblöð Svavar sýnir okkur nokkrar úr- klippur úr Jazzblaðinu frá þessum árum, en blaðið var þá eins konar málgagn íslenskra dægurtónlist- armanna. Til gamans birtum við hér glefsur úr blaðinu þar sem fjallað er um danslagakeppni SKT. í Jazzblaðinu frá því í nóv- ember 1950 segir m.a.: „Efnt var til danslagakeppni í Góðtemplarahúsinu nú fyrir stuttu. Alls bárust 17 lög og voru þau leikin og um þau kosið tvo sunnudaga í röð, og voru það eins- konar undanrásir. Fyrstu þrjú lögin, sem kosin voru hvorn sunnudaginn, mættu síðan til úr- slita næsta sunnudag á eftir (15. okt.). — Valdimar Auðunsson átti lagið, er hlaut fyrstu verðlaun og heitir það „Ástartöfrar". Helgi Ingimundarson átti næsta lag og SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.