Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 15
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983 íþróttabandalag ísafjarðar Sigurrtur Jóns- son, markvörður, 23 ára kennara- háskólanemi. Guðmundur Jó- hannsson, varn- armaður, 23 ára háskólanemi. Jón Björnsson, varnarmaður, 23 ára málari. Bjarni Jóhanns- son, varnarmað- ur, 25 ára íþrótta- kennari. Kristinn Kristj- ánsson, miðvall- arleikmaður, 25 ára trésmiður. Kúnar VífiLsson, varnarmaður, 27 ára háskólanemi. Örnólfur Oddsson, mið- vallarleikmaður, 27 ára íþrótta- kennari. Kúnar Guð- mundsson, mið- vallarleikmaður, 31 árs verkstjóri. Jóhann Torfa- son, miðvallar- leikmaður, 29 ára verkstjóri. Jón Oddsson, Gunnar P. Pét- sóknarmaður, 25 ursson, sóknar- ára háskólanemi. maður, 28 ára há- skólanemi. Ámundi Sig- Atli Kinarsson, mundsson, sókn- sóknarmaður, armaður, 21 árs 16 ára nemi. íþr.k.nemi. Atli Geir Jó- hannesson, mið- vallarleikmaður, 22 ára háskóla- nemi. Garðar Gunn- arsson, varnar- maður, 24 ára nemi. Svavar Ævars- son, miðvallar- leikmaður, 23 ára verkamaður. Guðjón Reynis- son, miðvallar- leikmaður, 20 ára nýstúdent. Benedikt Ein- arsson, varnar- maður, 19 ára há- skólanemi. Magnús Hans- son, varnarmað- ur, 27 ára hús- gagnasmiður. Gunnar Níels- son, miðvallar- leikmaður, 20 ára nýstúdent. Guðmundur Magnússon, sóknarmaður, 16 ára nemi. „Mótlætið hefur styrkt okkur“ „MÓTIÐ leggst bara nokkuð vel í mig — ég er ánægður með byrj- unina hjá okkur," sagði Halldór Jónsson, formaður knattspyrnu- deildarinnar á ísafirði, í samtali við Mbl. „Það var nú reyndar búið að afskrifa okkur að hluta til — t.d. vegna vandræða í þjálfaramálum — en ekkert lið getur bókað sig- ur gegn okkur nú frekar en áður. Mótlætið hefur aðeins styrkt okkur ef eitthvað er.“ Halldór sagði að fsfirðingar hefðu að vísu misst fastamenn úr liði sínu frá því í fyrra — en þeir hefðu fengið menn í þeirra stað, sem hefðu fyllt í skörðin, og kannski rúmlega það. Eins og fram hefur komið réðu fsfirðingar til sín enskan þjálf- ara, Martin Wilkinson að nafni, á síðustu stundu þar sem þjálf- ari sá er þeir höfðu fengið varð að láta af störfum af persónu- legum ástæðum Wilkinson kom Halldór Jónsson formaður knattspyrnudeildarinnar. hingað til lands á dögunum en fór síðan utan á ný til að ganga frá sínum málum. Hann kemur á ný hingað til lands á morgun. „Fyrstu kynni okkar af þess- um þjálfara voru mjög góð — hann var með afbrigðum al- mennilegur og kom mjög vel fyrir. Hann hefur sagt margt af viti — þannig að þetta er engin loftbóla," sagði Halldór. Hvað með peningamálin? „Þau eru auðvitað erfið hjá okkur eins og annars staðar. Ferðakostnaður er sennilega mestur allra liða í deildinni hjá okkur — og þetta ár verður að vera aðhald í peningamálum. Við höfum þurft að horfa meira í peninginn en í fyrra. Við vorum með skuldahala síðan þá sem við höfum náð að greiða, þannig að það gæti verið bjart framundan. Það var metaðsókn á fyrsta leikinn hjá okkur — og ef heldur svo áfram ættum við ekki að þurfa að kvarta." — SH. Wilkinson kem- ur til lands- ins á morgun Englendingurinn Martin Wilk- f inson þjálfar ísafjarðarliðið í sumar. Hann er nú staddur í Eng- landi þar sem hann gengur frá sín- um málum — en hann var samn- ingsbundinn 4. deildarliðinu Pet- erborough. Hann kemur til lands- ins á morgun þannig að ekki var unnt að spjalla við hann. Wilkinson var staddur hér á landi á dögunum er hann ræddi við fsfirðinga og ræddi blm. Mbl. þá við hann. Hann sagði þá að sér litist ágætlega á aðstæður á ísafirði, og sagðist hafa hrifist af því hve allir væru metnað- argjarnir þar. „Ég er auðvitað metnaðargjarn líka, og vil að lið- ið standi sig sem best,“ sagði hann. Hann hafði skiljanlega ekki mikið að segja um íslenska knattspyrnu, þar sem hann hafði ekkert kynnst henni, nema hvað hann hafði skoðað myndir á myndbandi frá leikjum ÍBf í fyrra. „Mér sýnist að liðið hafi leikið mikið „kick and chase“- knattspyrnu — þ.e.a.s. sparkað var fram og síðan áttu framherj- arnir að ná boltanum. Liðið hef- ur að vísu á að skipa mjög fljót- um framherjum þannig að þessi aðferð hentar því vel.“ Orðrómur var uppi um það áð- Wilkins þjálfari ÍBÍ. ur en Wilkinson kom til landsins að verið gæti að hann léki með liði ÍBÍ síðari hluta sumars, en ekki vildi hann gefa ákveðið svar við því. Sagðist þurfa að sjá hversu góð knattspyrnan væri áður en hann tæki ákvörðun þar að lútandi. — SH Hópurinn sam- einast ekki fyrr en í byrjun júní „VIÐ MUNUM leggja allt í sölurn- ar til þess að halda sæti okkar í 1. deildinni í ár. En baráttan verður erfið. Að mínum dómi skiptist deildin í tvennt. Það verða Valur, Víkingur, Breiðablik og Akranes sem skera sig úr og berjast um efstu sætin en hin liðin geta öll fallið og munu berjast jafnri bar- áttu um að falla ekki,“ sagði Hreiðar Sigtryggsson fyrirliði IBÍ um mótið sem er framundan. - Við í liði ÍBÍ eigum við vissa erfiðleika að etja sem önn- ur liö þekkja ekki. Hluti leik- manna okkar er fyrir vestan en svo er stór hluti leikmanna hér fyrir sunnan við nám og hópur- inn nær ekki að sameinast fyrr en í byrjun júnímánaðar. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á leikskipulagi og fleiri hlutum varðandi þjálfun okkar, og setur strik í reikninginn. En við erum síður en svo með einhverja svartsýni. Við munum berjast af krafti og ákveðni eins og í fyrra og vonandi uppskera vel. — Þar sem þjálfun í yngri flokkum er ábótavant má segja að okkur skorti ef til vill meiri boltatækni en við bætum það upp með leikgleði og sigurvilja. Nú, við lentum í 5. til 6. sæti í fyrra og vil ég minna á að ekkert lið skoraði þá fleiri mörk í mót- Heiðar Sigtryggsson fyrirliði ÍBÍ. inu. Þannig að við gátum vel við unað. — í ár setti það strik í reikn- inginn að við skiptum um þjálf- ara, og slíkt er ávallt slæmt. Þorsteinn varð að hætta hjá okkur af persónulegum ástæðum og nú fáum við enskan þjálfara. Við vonum að samvinna og ár- angur með honum verði góður. - ÞR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.