Morgunblaðið - 12.06.1983, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.06.1983, Blaðsíða 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983 — segir Gunnar Þórðarson, sem stígur nú aftur á hljómsveitarpall eftir margra ára hlé Gunnar Þórðarson rifjar upp „gömlu taktana'* á aefingu ( Broadway. s „Þesjsi Englandsdvöl mín varð heldur lengri en ég reikn- aði með í upphafi. Eg ætlaði að vera í hálft ár en það teygðist úr þessu í tæpt ár,“ — sagði Gunnar Þórðarson hljómlistar- maður, er við hittum hann að máli í Broadway nú í vikunni, en hann var þar að æfa upp hina nýju hljómsveit sína, sem hefur veirð ráðin til að leika þar fyrir dansi næstu fjóra mánuðina. Nokkuð langt er nú síðan Gunnar hefur stigið á hljómsveitarpall með dans- hljómsveit en eins og kunnugt er hefur hann um árabil verið í fremstu röð dægurtónlistar- manna hér á landi og hefur á undanförnum árum nær ein- göngu helgað sig tónsmíðum og hljómplötugerð og einmitt við þá iðju hefur hann dvalið í Englandi að undanförnu. — „Ég gerði fjórar plötur á þessu tímabili og ég var að reikna það út til gamans að í það heila er ég búinn að gera á milli 60—70 plötur, eða lauslega riknað um 600 lög. Það er bara nokkuö mikið skal ég segja þér og kannski kominn tími til að breyta aðeins til,“ — sagði hann og leit á mig með tvíræð- um svip, svo að ég hætti við að spyrja hvort hann hefði þar með sagt skiliö við hljómplötu- gerð að sinni enda hlyti það atriði að skýrast er lengra liði á samtal okkar. Gunnar Þórðarson hefur ekki verið fastur liðsmaður í dans- hljómsveit í tæp tíu ár og ég spurði hann nánar út í þessa skyndilegu breytingu á högum hans einmitt nú: — „Já, það er orðið nokkuð langur tími sem ég hef verið fjarri góðu gamni og það má segja að ég hafi ekkert fengist við þetta síðan Hljómar hættu 1974, ef undan er skilin stutt ferð um landið með „Lónlí Blú“ sumarið ’75. Síðan hef ég varla komið á svið nema við einstök hátíðleg tækifæri. Það er sagt, að þeir sem hafi einhvern tíma spilað í hljómsveitum, eigi erfitt með að losna við bakteríuna og séu orðnir viðþolslausir eftir tvö ár að komast aftur á svið. En ég verð að játa að ég hef ekkert sak' að þess að vera laus úr þess- um bransa. Það stafar kannski af því að ég hef alla tíð, síðan ég hætti að spila á böllum, verið við- loðandi músíkina og hef kunnað mjög vel við mig í stúdíói. Þetta leggst þó mjög vel í mig núna. Sérstaklega með svona handi, sem býður upp á mikla möguleika. Ég held að ég hefði ekki nennt að stnda í þessu með litlu bandi og ég hefði ekki haft Hin nýja hljómsveit Gunnars Þórðarsonar, f.v.: Ásgeir Steingrímsson trompet, Sigurður Long saxófónn, Ásgeir Guðjónsson hljómborð, Sigurður Karlsson trommur, Sverrir Guðjónsson söngur, Bjarni Sveinbjörnsson bassi og Gunnar Þórðarson. Á myndina vantar söngkonuna Helgu Möller, sem var erlendis þegar myndin var tekin. Gunnar hóf frægðarferil sinn með Kljómum frá Keflavík og hér eru þeir félagar í Cavern-klúbbnum í Liverpool sumarið 1964. í þessum sama klúbbi hófst frægðarferill Bítlanna á sínum tíma. áhuga á að endurvekja Hljóma í þessu tilviki. En svona hljómsveit býður upp á miklu meiri mögu- leika og meiri breidd og ég hlakka til að fara aftur af stað undir svona kringumstæðum.“ Hin nýja hljómsveit Gunnars Þórðarsonar er skipuð átta mönnum en það eru auk hans: Ásgeir Guðjónsson hljómborð, Ásgeir Steingrímsson trompet, Bjarni Sveinbjörnson bassi, Sig- urður Karlsson trommur, Sigurð- ur Long tenor-, alt- og sópran- saxófónn, og svo söngvararnir Helga Möller og Sverrir Guðjóns- son. Gunnar var spurður hvað hefði ráðið valinu á mannskapn- um. — „Suma þekkti ég persónulega en aðrir voru valdir af afspurn ef svo má segja. Ég leitaði m.a. fyrir mér í tónlistarskóla FÍH því ég hafði áhuga á að fá með mér unga og efnilega menn, óþreytta og spilaglaða, þannig að síður verði hætta á að menn séu að þessu með hangandi hendi. Ég vil líka forð- ast allt sukk, sem oft hefur viljað loða við þennan bransa, og valdi menn kannski einnig með tilliti til þess.“ Og þú ert væntanlega ánægður með valið?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.