Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLl 1983
31
gjöld til tslands var verðmunur
hins vegar í mörgum tilvikum
minni en ætla hefði mátt á þeim
vörum sem fluttar eru inn.
Meðal helstu atriða sem úr könn-
uninni má lesa eru eftirtalin:
1. Ósekkjað sement sem framleitt
er í hvoru landi fyrir sig og selt
steypustöðvum er allt að 60%
dýrara í Reykjavík en t.d. í
Stokkhólmi. Hins vegar er lítill
verðmunur á sekkjuðu sementi
og er það að jafnaði heldur dýr-
ara í Svíþjóð. Ef miðað er við
verðlag á sementi nú væri jafn-
vel ódýrara fyrir steypustöðvar í
Reykjavík að flytja það inn frá
Suður-Svíþjóð en að kaupa það
frá Sementsverksmiðju ríkisins.
Söluverð ísl. verksmiðjunnar er
það sama fyrir sekkjað og
ósekkjað sement þrátt fyrir
mikinn kostnaðarmismun vegna
pökkunar (reyndar er steypu-
stöðvum selt með 4—9% af-
slætti).
2. Ef flutningskostnaður er dreg-
inn frá timburverði væri það í
sumum tilvikum lægra í Reykja-
vík en í Svíþjóð.
3. Mikill kostnaður leggst á inn-
kaupsverð glerullar (flutnings-
kostnaður og vörugjald), hrein-
lætistækja (138% tollur og vör-
ugj.), veggflísa (67% tollur og
vörugj.) og fleiri vörutegunda.
Þrátt fyrir það eru sumar þessar
vörur ódýrari til kaupenda í
Reykjavík en í Svíþjóð. Bendir
það til hagstæðra innkaupa inn-
flytjenda á markaði þar sem
samkeppni er mikil.
4. Einangrunargler er mun ódýr-
ara í Reykjavík en í Svíþjóð
þrátt fyrir sömu gæði skv. upp-
lýsingum frá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins. Sam-
keppnin er mikil á glermarkaði
hérlendis og hvetur vafalaust til
hagstæðra innkaupa og hag-
kvæmni í rekstri.
Jafnhliða verðkönnuninni voru
laun starfsmanna í byggingarvöru-
framleiðslu og starfsmanna í bygg-
ingarvöruverslunum á íslandi bor-
in saman við laun sömu starfs-
stétta í Svíþjóð. Nokkurrar óvissu
gætir um launin á Islandi, einkum
er varðar skatta en reynt var að
bera saman ráðstöfunartekjur. Má
þó með nokkurri nákvæmni segja
að tekjur fyrrnefndra stétta að frá-
dregnum þeinum sköttum séu um
30% hærri í Svíþjóð en á tslandi.
Gefur það vísbendingu ásamt
verðupplýsingum um hvað það
kostar þessa launþega á íslandi að
kaupa byggingarvörur í hlutfalli
við laun með hliðsjón af sömu
starfsstéttum í Svíþjóð.
Ljósmjnd Mbl. Guðjón.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, og Áke Hallmann, verðlagsstjóri Svíþjóðar til
vinstri.
Niðurstöðurn-
ar komu mér
verulega á óvart
— segir Áge Hallmann, verðlagsstjóri Svíþjóðar
„NIÐURSTÖÐUR verðkönnunarinnar komu mér töluvert á
óvart. Ég átti óneitanlega von á mun meiri verðmun, en þarna
kemur fram,“ sagði Áke Hallman, verðlagsstjóri Svíþjóðar, í
samtali við Mbl. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri tók í sama
streng og sagði verðmuninn vera mun minni en hann hefði
átt von á. Það sem hins vegar ylli sér ákveðnum áhyggjum,
væri hinn gríðarlega mikli verðmunur á sementi, ísíending-
um í óhag.
Það kom fram hjá sænska verð-
lagsstjóranum, að verðlag er
frjálst á sem næst öllum vöruteg-
undunum sem um ræðir. Hins veg-
ar væri um ákveðna verðgæzlu að
ræða, sem reynzt hefði vel. Georg
Ólafsson sagði þessa könnun stað-
festa þá skoðun sína, að frjálst
verðlag ætti við í ákveðnum til-
fellum, síðan þyrfti að hafa ákveð-
na verðgæzlu í öðrum tilvikum.
Hann nefndi sem dæmi, að verð á
gleri sem er mun lægra hér á landi
heldur en í Svíþjóð. Þar virkaði
mikil samkeppni greinilega vel,
auk þess sem launakostnaður er
lægri hér á landi.
Georg Ólafsson sagði könnunina
ótvírætt gefa til kynna, að í mörg-
um tilvikum gerðu íslenzkir inn-
flytjendur mjög hagkvæm inn-
kaup og væri það ánægjulegt. Áke
Hallmann tók undir það og sagði
eina skýringuna á hagstæðu inn-
kaupsverði íslenzkra fyrirtækja
eflaust vera þá, að framleiðendur
litu íslendinga sérstökum augum,
smæðarinnar vegna. Þeir sæju
einfaldlega fram á, að lækkuðu
þeir verðið ekki nægilega mikið
yrði ekkert af sölu.
Georg ólafsson vakti sérstaka
athygli á litlum verðmun á hrein-
lætistækjum, sem framleidd væru
að hluta í Svíþjóð. Verðmunurinn
væri ekki nema á bilinu 4—27%,
en á CIF-verð hreinlætistækja
legðust 138% í tollum og vöru-
gjaldi hér á landi. Verðið væri því
í raun mun lægra hér á landi.
Sömu sögu væri reyndar að segja
af veggflísum og gólfefni.
Aöalfundur sýslunefnd-
ar Norður-Múlasýslu
SÝSLUNEFND Norður-Múlasýslu hélt
aðalfund sinn á Seyðisfirði dagana
10.—12. júní sl. og voru lögð fram og
afgreidd 97 mál á fundinum.
Á fundinum var fjárhagsáætlun
sýslusjóðs 1983 samþykkt en heild-
artekjur eru um kr. 711.577.000. Þá
var ítrekuð fyrri samþykkt um
Fljótsdalsvirkjun og skorað á Hafnar-
málastofnun að hraða hafnarfram-
kvæmdum á Bakkafirði, Vopnafirði og
Borgarfirði. Einnig var skorað á Al-
þingi að samþykkja frumvarp um kís-
ilmálmverksmiðju á Reyðarfirði og
vegaframkvæmdir yfir Hellisheiði.
Sýslufundurinn samþykkti að koma
á fót sýsluráði sem starfaði milli aðal-
funda og yrðu í því tveir úr hópi sýslu-
nefndarmanna sem væru kosnir,
ásamt sýslumanni sem yrði sjálfkjör-
inn. Þá var ákveðið að fela sýsluráði
að leita úrbóta á ranglátum og úrelt-
um úthlutunarreglum sýsluvegafjár í
landinu.
Áð lokum var gerð sérstök sam-
þykkt vegna tillagna um bre.vtt verk-
svið sýslunefnda og frumvarps til
laga, 79. mál á 104. löggjafarþingi
1981, um að leggja sýslunefndir niður.
Hljómar samþykktin svo: Hjá sýslu-
nefndum er enn það eina sem eftir er
af stjórnarfarslegu valdi landsbyggð-
arinnar. Afnám þess valds er í and-
stöðu við yfirlýst sjónarmið flestra
MBL. HEFUR borist ályktun frá
stjórn og trúnaðarráði Málarafé-
lags Reykjavíkur sem samþykkt
var á fundi þann 14. júní sl. Álykt-
unin er svohljóðandi:
„Stjórn og trúnaðarráð Málara-
félags Reykjavíkur mótmælir
harðlega þeim harkalegu árásum
landsmanna um valddreifingu. Sýslu-
nefnd Norður-Múlasýslu leggur höf-
uðáherslu á sjálfstæði og sjálfs-
ákvörðunarrétt sveitarfélaga að
margvíslegum málum.
Ályktunin var samþykkt samhljóða.
Oddviti sýslunefndar Norður-Múla-
sýslu er Sigurður Helgason, sýslumað-
ur og bæjarfógeti á Seyðisfirði.
á kjör launafólks sem felast í
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar og
tekur undir framkomin mótmæli
miðstjórnar ASÍ.
Stjórn og trúnaðarráð
Málarafélags Reykjavíkur."
Málarafélag Reykjavíkur:
Mótmælir bráðabirgðalögum
Jónóttar
ráðleggur um
mataræði.
|j|
Hjðrdía Magnúadóttir Dagný Péturadóttir, Jónína
íþróttafræðingur danskennari. Benediktsdóttir,
Samkvamitdanaar. íþróttatræóingur.
Jane Fonda.
Jackie Genova.
Fred Schalk,
nuddari.
Nýjung
Jackie Genova
Aerobic þol og teygjur
fyrir basði kynin.
MÁNAÐARKORT AÐEINS 690.
MÆTIÐ 0G
KYNNIÐ YKKUR DAGSKRÁNA ...
ÆriNGASFOÐIN
ENGIHJALLA 8 * ® 46900
LÆKNIR OC LÆKNANEMAR VERÐA Á STADNUM
ÞVI EKKI
Heilsuhelgi
hefst kl, 17.00 fimmtudag 7/7 1983 og lýkur'
þriöjudaginn 12/7. Frjáls mæting.