Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983 „Ég man eftir svartnætti, hauga- sjó og rigningarslepju þegar skipið steytti á ísnum. Áreksturinn var all- harður, en þó tæplega jafn harkaleg- ur og ef um árekstur tveggja skipa hefði verið að ræða. Á þessum árum var auðvitað engum ratsjám til að dreifa. Menn stóðu i brúnni og rýndu út í sortann. En það kom allt fyrir ekki. Jakinn reif göt á búkinn bæði stjórnborðs- og bakborðsmegin og sjór tók að streyma inn í fram- rúmið. Það fylltist á u.þ.b. átta klukkustundum." I þessum orðum byrjaði Gustav Bendick, fyrrverandi háseti á þýzka flutningaskipinu Baiha Blanka, að rifja upp er skip hans varð fyrir því óhappi að sigla á ísjaka út af Látrabjargi 10. janúar 1940. Eins og mörgum er i fersku minni var það togarinn Hafsteinn, sem kom áhöfninni til bjargar og flutti hana til Reykjavíkur. Ben- dick sagðist kominn til íslands til að litast um á gömlum slóðum og endurnýja kunningsskap við eftir- lifandi fólk, er hann kynntist með- an á dvöl hans hér stóð. „Við vor- um fjóra mánuði á íslandi 1940,“ sagði hann, „frá janúar fram í maí. Þá var farið með okkur til Englands í stríðsfangabúðir í tvo mánuði og því næst til Kanada. Heim komst ég ekki fyrr en eftir að stríðinu lauk í ársbyrjun 1946.“ Isjakar í staö kafbáta Bendick sagðist vera fæddur í Danzig árið 1920 og hafi því verið tvitugur að aldri er Baiha Blanka fórst. Flutningaskipið, sem var tólf þúsund og átta hundruð tonn að stærð, hafði sextíu og tveggja manna áhöfn og komust allir af. En hvers vegna hafði skipstjóri ákveðið að sigla um Grænlandshaf norður fyrir ísland á leið til Þýzkalands? „Ástæðan fyrir þvi að þessi leið var valin var einföld. Hefðum við siglt beinustu leið yfir Atlantshaf- ið hefði okkur verið bráð hætta búin af völdum kafbáta. Norðvest- ur af íslandi beið okkar hins vegar danskt skip, er skyldi leiða okkur til Bergen í Noregi, en þaðan hefð- um við getað fylgt skipalest suður til Þýzkalands. Isinn sá auðvitað til þess að við náðum ekki fundum við skipið." Aðspurður bætti Bendick við að farmurinn hefði að mestu verið kaffi og tóbak, sem sett var um borð í Rio de Janeiro. Sæfarinn var að því spurður hvað honum væri minnisstæðast um björgunina, fjörutiu og þrem árum síðar. „Mér er líklega minnisstæðast hvernig við komumst um borð í Hafstein. Eftir áreksturinn við jakann tókst okkur að losa okkur og byrjuðum þá strax að dæla sjó. Við tókum stefnuna til lands f von um að ná þangað í tíma. Hins veg- ar kom brátt í ljós að dælurnar myndu ekki hafa undan lekanum og stefni skipsins seig jafnt og þétt í sjóinn. Þegar við loksins MENN í DULARGERVUM? - Áhöfnin af Baiha Blanka. Myndin er tekin á þrepum Þjóðleikhússins. Há- setinn Bendick er lengst til vinstri í þriðju röð. sendum neyðarskeyti var langt liðið á kvöld. Ég held að skipstjór- inn hafi þá ennþá gert sér vonir um að hægt væri að draga skipið til lands. Þegar Hafsteinn kom svo á staðinn, u.þ.b. fjórum klukku- stundum eftir að skeyti var sent, var þó ljóst, að áhöfnin yrði að yfirgefa skipið. Það voru fjórir björgunarbátar um borð i Baiha Blanka, en þar sem sjór var mjög úfinn gekk illa að komast burt frá skipinu. Þá var brugðið á það ráð að hella olíu í sjóinn og gerði það okkur kleift að láta reka frá skipshliðinni. Með þessu var þó ekki bitið úr nálinni fyrir okkur, því myrkur og öldurót gerðu að verkum að erfitt var fyrir skip- verja á Hafsteini að koma auga á okkur, eða fyrir okkur að nálgast togarann. Á endanum var okkur þó öllum borgið og er erfitt að lýsa þeim þakklætistilfinningum sem við bárum til áhafnarinnar og skipstjórans, ólafs ófeigssonar, sérstaklega." Gestrisnin gleymist seint Um veru sína í Reykjavik frá því í janúar fram í maí 1940, sagði Bendick að hún hefði verið líkust ánægjulegu hvildarleyfi. „Hótelið þar sem ég bjó ásamt hluta áhafn- arinnar hét Skjaldbreið og olli mér vonbrigðum að það er nú horfið. Gestrisni fslendinga gleymist mér seint, því okkur var í alla staði vel tekið. Hvernig við höfðum ofan af fyrir okkur? við dönsuðum, sungum, átum vel og sváfum," sagði hann og hló við. Aðspurður hvort brögð hefðu ver- ið að því að íslendingar legðu óþokka á skipbrotsmenn út af stríðsbrölti Hitlers, dró hann seiminn og kvaðst ellin hafa gefið því neinn gaum. Bendick sagði að sér sýndist að íslendingar hefðu lítið breytzt. Þeir hugsuðu og töluðu eins og fyrir fjörutíu árum og væru engu síðri gestgjafar en þá. Varðandi borgina sjálfa sagðist hann hafa tekið eftir nokkrum breytingum og hefði hann fyrst rekið augun í kirkjubygginguna á Skólavörðu- holti, sem honum þótti stór í hlutfalli við bæinn. Til Kanada í fangabúöir En sæludagar í Reykjavfk tóku skjótan enda. Daginn sem Bretar hernámu landið voru skipverjar settir í herskip og fluttir til Bret- lands. Mun fæstum hafa komið það á óvart, enda höfðu málsmet- andi menn, þ.á m. lögreglustjóri, haft mennina grunaða um að vera útsendara nazista, sem ættu að vera tiltækilegir ef innrás yrði gerð (sjá ramma). Bendick virtist hafa lítið að segja um slíkar vangaveltur, en lét þess getið að sér hefði þótt miður að yfirgefa ísland. „Bretar fóru vel með okkur,“ sagði hann, „en náttúrlega vorum við ekki lengur frjálsir ferða okkar. Aðeins tveimur mánuðum eftir komuna til Bretlands var far- ið með okkur vestur um haf til Kanada og okkur komið fyrir í nokkurs konar fangabúðum fyrir óbreytta borgara. Ég minnist þess í V‘ .1 BJARGVÆTTURINN — TogarÍMH Hafateinn, sem kom BUnka-mönnnm til bjargar. Samkvæmt Gylfa Guðmnnds- syni hjá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, var togarinn síðar seldnr til Færeyja og breytt í dutningaskip. Fyrir nokkrum irum rak skipið i land í Óiafsflrði með sahfarm fri Færeyjum — og liggur flak þess þar enn. HmtudaKur 11. janúar 1940. MO’RGUNBLAÐIÐ Þyskt flutningaskip rekstá ísjaka út af Látrabjargi Togarinn „Hafsteinn“ bjargar skipshöfninni, 62 mönnum Erfið björgun í stórsjó Kí. 4.50 nnnhrit ii IIHBHHi SJÓSLYS — Morgunblaðið segir fri einu eftirminnilegasta sjóslysi við strendur íslands, fimmtudaginn 11. janúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.