Morgunblaðið - 19.07.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.1983, Blaðsíða 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 161. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Strangari hömlur í stað herlaganna Varsii. 18. iúlí AP. J Varsjí, 18. júli. AP. YFIRVÖLD í Póllandi samþvkktu í dag, að herlögum skyldi aflétt. Var frá þessu skýrt í opinberu pólsku fréttastofunni, PAP. Hins vegar var ekki getið um neina ákveðna tímasetningu. Almennt er þó talið, að miðað sé við næsta föstudag. Endanleg dagsetning verður væntanlega Ijós á miðvikudag eða fimmtudag er þing kemur saman til fundar. Sumir þingmanna, sem óttast nýja mótmælaöldu af hálfu stuðn- ingsmanna Samstöðu, er þess verður minnst í næsta mánuði, að þrjú ár eru liðin frá stofnun verkalýðssamtakanna, eru þeirrar skoðunar að fresta beri þessari ákvarðanatöku. Opinber starfs- maður sagði, að þessa stundina væru þingmennirnir að reyna að kanna nýjar og strangari hömlur sem ættu að koma í stað herlaga. Lech Walesa sneri í morgun aft- ur til vinnu sinnar við Lenín- skipasmíðastöðina i Gdansk eftir að hafa verið í tveggja vikna OPEC ákveður óbreytt olíuverð Helsinki, 18. júlí. AP. SAMÞYKKT var á fundi OPEC-ríkjanna í Helsinki f dag að halda óbreyttu olíu- verði og framleiðslukvótum. Verð og kvótar voru ákveðin á síðasta fundi landanna 13, sem að samtökunum standa. Afslappað andrúmsloft ríkti á fundinum, andstætt því sem var á fundinum i Lundúnum í mars. Þá var hart deilt um verð og fram- leiðslukvóta. Virtust allir full- trúar einhuga um að styrkja inn- byrðistengsl aðildarríkjanna 13. Haft var eftir Humberto Cald- eron frá Venezúela, að lítilla tíð- inda væri að vænta á fundi sam- takanna að þessu sinni. Sagði hann markaðinn hafa brugðist vel við þeim ákvörðunum, sem teknar voru í Lundúnum. Fund- urinn í Helsinki væri einkum æt- laður til þess að íhuga stöðu sam- takanna. iamani, olíumálaráðherra Saudi-Araba, umkringdur fréttamönnum á IPEC-fundinum f Helsinki Simamynd ap. sumarleyfi í trássi við yfirboðara sína. Walesa var tekið með kost- um og kynjum og kvað við dynj- andi lófatak 5.000 samstarfs- manna hans, sem safnast höfðu saman við aðalinnganginn, er hann kom til vinnu. Þá ákváðu yfirboðarar Walesa að veita hon- um tveggja vikna sumarleyfi til viðbótar. „Ég ber alltaf sigur úr býtum spyrni ég við fóturn," sagði Walesa við fréttamenn er hann kom til vinnu. f viðtali í gærkvöld sagði Walesa, að hugmyndafræði Sam- stöðu liði aldrei undir lok. „Sá dagur kemur, að þær hugmyndir verða viðurkenndar. Hvenær það verður get ég ekki sagt.“ Aðspurður um hinar hugsan- legu nýju aðhaldsaðgerðir i stað herlaga sagði hann: „Það er nokk- uð, sem ég get ekki sætt við mig. Ég hef séð sumar af tillögum stjórnvalda varðandi nýju lögin og vona að þeim verði hafnað. Af tvennu illu eru herlögin betri." Lech Walesa snýr hér aftur til vinnu sinnar við Lenín-skipasmíðastöðina í gærmorgun. Slmamynd AP. E1 Salvador: Stjórnvöld ljúka her- ferð gegn skæruliðum Su Salvador, 18. júlí. AP. HERMENN stjórnarinnar skutu til bana eða særöu 30 skæruliða í tveggja vikna langri herferð, sem lauk um helgina. Það var varnarmálaráðuneytið í San Salvador, sem skýrði frá þessu í dag. Ekki var getið um manntjón í röðum stjórnarhersins, en alls tóku um 2.500 hermenn þátt í aðgerðunum. Þá bárust fregnir af því að 6 stjórnarhermenn hefðu fallið í gær er þeim var gerð fýrirsát. Útvarpsstöð skæruliðanna sak- aði í dag hermenn frá Hondúras um að hafa farið inn yfir landa- mærin til E1 Salvador á föstudag, skammt norðan þess staðar þar sem aðgerðir stjórnvalda gegn skæruliðunum áttu sér stað, í Chalatenango. Fjögur ár eru á morgun frá því stjórn sandinista tók við völdum í Nicaragua. Verður þess minnst með miklum hátíðahöldum í land- inu. Talið er að um 130.000 manns sæki meginhluta hátíðarinnar, sem verður í Leon. Stjórnarand- stæðingar, sem hafa bækistöðvar í Hondúras, hafa undanfarið hótað róttækum aðgerðum í tilefni há- tíðahaldanna. Reagan Bandaríkjaforseti til- kynnti í dag, að Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra, myndi verða í forsæti í sérstakri Mið- Ameríkunefnd beggja þingflokk- anna. Er nefndinni ætlað að verða forsetanum innan handar við ráð- gjöf varðandi málefni Mið-Amer- íku. Á fundi fjögurra forseta Suður- Ameríkuríkja í Mexíkó í gær var þeirri ósk komið á framfæri við Castró, leiðtoga Kúbumanna, og Reagan, að þeir tækju höndum saman við þá í tilraunum til þess að koma í veg fyrir að stríð brjótist út á milli Hondúras og Nicaragua. Auk forseta Mexíkó sátu fundinn forsetar Venezúela, Kólombíu og Panama. Þrettán ára piltur fannst í jökulsprungu: Yakinn til lífsins og leikur nú á als oddi Sms Fee, Sviss, 18. júlf. AP. ÞRETTÁN ára belgískur drengur, Christoph Netels, getur þakkað æðri máttarvöldum fyrir að vera enn í tölu lifenda. Honum var í gær bjargað úr 18 metra djúpri jökulsprungu, þar sem hann hafði hírst með- vitundarlaus í 5 klukkustundir, illa búinn undir slíka dvöl. Var hann einungis í stutterma bol og gallabuxum. Þegar honum var loks bjargað upp á yfirborð jökulsins var hjarta hans hætt að slá og líkamshitinn kominn niður í 17 gráður. Hann var því „fræði- lega“ látinn. Eftir 40 klukkustunda linnu- lausa aðhlynningu á gjörgæslu- deild nærliggjandi sjúkrahúss náði hann loks meðvitund að nýju og braggaðist ótrúlega fljótt. Var líðan hans í morgun á þann veg, að ætla mætti að hann hefði ekki lent í neinu óvenju- legu. Christoph hafði laumast frá foreldrum sínum á fimmtudag, þar sem þau nutu veitinga í einu fjölmargra fjallaveitingahúsa við Fee-jökulinn og skellti skollaeyrum við öllum viðvörun- um um sprungur á jöklinum. Hvítasunnufjöl- skylda til Vínar Vío, 18. júll. AP. FIMMTÁN meðlimir hvítasunnu- safnaðar frá Síberíu komu í dag til Vínarborgar frá Sovétríkjunum. (iáfu sovésk yfirvöld leyfi til brott- flutnings í kjölfar linnulausrar bar- áttu fólksins í 20 ár fyrir að fá að fiytjast úr landi. Um tíma virtist svo sem fólkinu ætlaði ekki að takast að komast úr landi í dag, þar sem seinlega gekk að koma greiðslum fyrir fiugmið- ana til Vínar áleiðis til réttra að- ila í Sovétríkjunum. Það hafðist þó að lokum og fólkið fékk að fara leiðar sinnar. Hér er um að ræða stóra fjöl- skyldu, hjónin Pyotr og Maria Chmykalov og fimm börn þeirra. Tvö barnanna eru gift og eru mak- ar þeirra í þessum 15 manna hópi, fimm börn þeirra, svo og systir Mariu. Þetta er önnur fjölskylda hvitasunnumanna, sem fær að fiytja frá Sovétríkjunum á skömmum tíma. Tóku 19 í gíslingu Islamabad, PakisUn, 18. júlí. AP. FRELSISSVEITIR Afgana náðu á sitt vaid 19 opinberum afgönskum embættismönnum á laugardag er þeim var gerð fvrirsát. Fréttastofa, sem styður frelsi- sveitirnar, sagði, að á meðal gísl- anna væri einn yfirmanna afg- önsku leyniþjónustunnar. Það er enn óstaðfest.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.