Morgunblaðið - 22.07.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.07.1983, Blaðsíða 11
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLt 1983 43 Kjarvalsstaðir: Sýning á nýjum verkum í eigu Reykjavíkurborgar Á morgun verður opnuö sýning að Kjarvalsstööum á listaverkum í eigu Reykjavíkurborgar, sem keypt hafa verið á árunum 1980—1983, samtals 80 verk. Áriö 1980 var borgarfulltrúum í stjórn Kjarvalsstaða falið að annast innkaup listaverka fyrir Reykjavíkurborg, og var samtímis farið aö veita ákveðna upphæö til listaverkakaupa. Listráðunauti Kjarvalsstaöa var falin framkvæmdin, svo og skráning og umsjá listaverkanna. 80 verk hafa verið keypt á þessu tímabili. I stjórn Kjarvalsstaða 1980 voru Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Davíð Oddsson. Þau keyptu helming verkanna á sýningunni, þ.e. nr. 1—41 í skrá. A miðju ári 1982 tóku viö stjórn Einar Hákonarson, Hulda Valtýsdóttir og Guörún Erla Geirsdóttir. Þau keyptu verk nr. 42—80. Á sýningunni eru málverk, teikningar, grafíkverk, vefnaður og skúlptúr. Guðmundur Benediktsson og Stefán Halldórsson undirbjuggu og settu sýninguna upp í samráöi viö listráöunaut Kjarvalsstaöa. Sýningin verður opnuð kl. 14.00 á laugardaginn kemur, 23. júlí, og verður síðan opin daglega kl. 14—22 fram til 21. ágúst. LEIKLIST „Skáld Rósa“ á Hornafirði Leikfólag Hornafjarðar sýnir leikritiö >Skáld Rósa“ eftlr Birgi Sigurös- son á Höfn í Hornafiröi kl. 15.00 á sunnudag. Veröur þetta eina sýningin en hópurinn leggur brátt land undir fót og fer meö sýninguna til Noregs. gestaleikur í Félagsstofnun Finnskur áhugamannaleikhópur sem nefnir sig „Amatorteatergruppen frán Jonesuu" sýnir á morgun kl. 20.30 í Fólagsstofnun stúdenta leikinn „Söngur Marjöttu" eftir Pirrko Jaakola, sem kemur meö hópnum. Leiö- beinandi er Tuire Hindikka, en tónlist annast Esa Helasvuo og Kari Mikkonen. Leikritiö byggir á goösögninni um Don Juan en konan Marjatta kemur í staö karlsins, Don Juan. Er hún eigi ósnortin af töfrum pilta, elskar þá alla og dregur á tálar. Söngurinn veröur aöeins sýndur í þetta eina sinn í Reykjavík, en hópurinn er nú í leikför um landiö. Anna Elísabet Borg og Kristín G. Magnúsdóttir í hlutverkum sínum. Ný uppfærsla á Light Nights í Tjarnarbíói Sýningar á dagskrá Feröaleikhússins, ætlaöar erlendum feröamönn- um, veröa í Tjarnarbíói í kvöld, laugardagskvöld, og sunnudagskvöld. Hefjast sýningarnar kl. 21.00, en þær eru byggöar á íslensku efni og fluttar á ensku. Undanskiliö er þó efni sem felur í sér þjóölagatexta og lausavisur. Allt talaö efni er flutt af Kristínu G. Magnúsdóttur, leikkonu. MEÐ I FERÐALAGIÐ D3 Hljómplata eða kassetta og bók með textum og myndui BÓKIN FYLGIR ÓKEYPIS Þetta er kassettan sem börnin hlusta á um leiö og þau skoöa bókina og eru róleg í aftursætinu, svo aö allir njóti feröalagsins FRÓÐLEGT FJÖRUGT OG SKEMMTILEGT BARNAEFNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.