Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 17 Skúlptúrar Hall- steins Sigurðssonar Myndlist Bragi Ásgeirsson Kjarvalsstaðir bjóða upp á ým- islegt forvitnilegt um þessar mundir. í vestri sal er úttekt á innkaupum borgarinnar á mynd- verkum sl. þrjú ár og kennir þar margra grasa, — er einkum ánægjulegt, að ekki er um neina einstefnu að ræða á þeim vett- vangi. í Kjarvalssal er sýning á úrvali Þingvallamynda Kjarvals, sem afhjúpar ljóslega hinn stemn- ingaríka „artista". Kjarval var aldrei neinn kortagerðarmaður í list sinni, heldur málaði eins og andinn bauð hverju sinni og flétt- aði iðulega inn í myndir sínar sitt- hvað úr eigin sálarkirnu, mynd- efninu alls óviðkomandi. Fyrir framan og þó einkum aft- an húsið hefur Hallsteinn Sigurðs- son komið fyrir nokkrum skúlpt- úrum og er þetta sérsýning lista- mannsins, — hin sjöunda í röðinni hér í borg. Hallsteinn hefur jafn- framt tekið þátt í fjölda samsýn- inga hér heima og erlendis. Þá hefur listamaðurinn unnið að ýmsum verkefnum fyrir opinbera aðila. Hallsteinn Sigurðsson er metnaðargjarn myndhöggvari og vinnusamur með afbrigðum, — undirstöðuna vantar hann þannig ekki og við þetta bætist traust og ......... ^/\skriftar- síminn er 830 33 haldgott nám heima og erlendis. Myndverk listamannsins hafa oft þótt hafa yfir sér nokkuð þungan blæ, verið rammgerðar og efnis- miklar og eru t.d. myndirnar fyrir framan húsið „Adam og Eva“ og „Ris“ dæmi um það. Eg fortek ekki, að þetta kunni allteins að vera aðal og höfuðeinkenni lista- mannsins, en hins vegar met ég léttleikann betur svo sem hann kemur fram í myndverkunum á bak við húsið. Hér þykir mér Hall- steinn einmitt hafa höndlað þann áreynslulausa léttleika, sem er svo mikilvægur í allri góðri myndlist. Einkum þykir mér hvítu myndirn- ar „Fönsun V“, og „Fönsun VI“, sterk og hrifmikil verk. Hér kem- ur það vel fram, að Hallsteinn kann einnig þá list að bregða á leik með formin, þannig að úr verði sannfærandi og öguð mynd- verk. Þetta er nú einmitt galdur- inn, sem allir miklir myndhöggv- arar hafa meistrað til hlýtar í hvaða efni sem þeir nú hafa unnið. Að mínu áliti eru þessar myndir á bak við Kjarvalsstaði einhver öflugustu skúlptúrverk sem frá hendi Hallsteins Sigurðssonar hafa komið. Annað mál er að létt- leikinn í myndunum nýtur sín ekki til fulls á þessum stað og á þeim sökklum, sem listamaðurinn hefur valið þeim. Þungbúin veðr- átta gerir Kjarvalsstaði enn þyngslalegri en ella og mynd- verkin hefðu notið sín ólíkt betur úti á grænu túninu, — fjarri allri þessari steinsteypu. Allt annað mál er, að önnur hvíta myndin í margfaldri stærð gæti lyft um- hverfinu upp. Slíkar myndir í við- unandi stærð eru einmitt vel fallnar til að lyfta upp íslenzkri Rímínísól - Como og zurich í kaupbaeti 22. ág. - 4. sept. Glæsileg hálfsmánaðar ferð, einstök blanda af baðstrandarlífi, alparómantík og stórborgarfjöri. 22. ág. - 31. ág. Rimini 31. ág. - 01. sept. Comovatn - í ítölsku ölpunum 01. sept. - 04. sept. Ziirich - borg borganna í Sviss. Fyrsta flokks hótel á öllum stöðum. Verð kr.19.800. miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Innifalið: Flug, hótelgisting m/morgunverði á Rimini, við Comovatn og í Zúrich, rútuferð Rimini - Como - Zurich, íslensk fararstjórn. Síðustu sætin til Rimini. 22. ágúst 1, 2 og 3 vikur uppselt 29. ágúst 2 vikur nokkur sæti laus 5. september 1 og 3 vikur nokkur sæti laus Allar aðrar ferðir uppseldar! Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Hallsteinn Sigurðsson grámósku í byggingarlist og veð- urfari. Og þar sem ég minntist á veð- urfarið þykir mér tilvalið að vísa til þess, að nú er einmitt kjörið tækifæri til að koma sér í gott skap og gerst um leið virkur listnjótandi, með heimsókn á Kjarvalsstaði. Blaóburdarfólk óskast! JltaKgmilifiiMfe Úthverfi Sogavegur 1C1—212

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.