Morgunblaðið - 17.09.1983, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.09.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983 9 fiOaiEfeö ddqSD Umsjónarmaöur Gísli Jónsson 209. þáttur í síðasta þætti urðu tvær vondar tilvitnunarvillur. Lík- lega eru þær báðar til komnar vegna þess, að prófarkalesari hefur ekki trúað sínum eigin augum og fært til betri vegar. Fyrri tilvitnunin átti að vera svo: „Um konu í Bandaríkjun- um segir að störf hennar hafi aðallega beinst að styrkingu á afköstum fyrirtækja, bættu stjórnskipulagi og boðleiðum hjá fyrirtækjum í rafeinda- iðnaði, fataiðnaði, vörudreif- ingu, flug- og landfluttningum (svo!) og framleiðsluiðnaði." Seinni tilvitnunin átti að vera: „Þetta er ekki búið: „Tark- enton & Company hefur stuðl- að að verulegri framleiðni- aukningu með breyttri stjórn- unahegðun (svo!) í meira en 200 fyrirtækjum." Orðið flutningar var ofan á annað með tveimur téum og orðið stjórnun haft í fleirtölu. Þeir, sem hlut eiga að máli, eru beðnir afsökunar á þessum mistökum. í nútímamáli teljast eignar- fornöfnin vera fjögur: minn, þinn, sinn og vor. Beyging þeirra er ekki vandasöm. I fornu máli voru eignarfornöfn þremur fleiri, sbr. bréf Skúla Magnússonar í síðasta þætti. Til viðbótar voru okkarr, ykk- arr og yðarr. Þau beygðust öll á sama veg og nokkurn veginn eins og fornöfnin annar og nokkur í nútímamáli. Dæmi: Hvárrgi okkarr, sama sem hvorugur okkar, i Eglu, og hvártki okkart, sama sem hvorugt okkar, í Njálu. Enn- fremur úr þeirri frægu bók: „Svá hefr nú borit saman fund okkarn ..." Dæmi úr nútímamáli: „Dan- ir sjá nú vel, að hér er mörg matarholan, og óttast að verða burt reknir, sumpart af rás viðburðanna, en sumpart af voru eigin viti og manndáð okkarri." Svo skrifaði sr. Guð- mundur í Gufudal í Njörð 1918. Búum enn til dæmi: Við sitjum í stofu okkarri. Það varð til stuðnings okkrum málstað. Þetta er gert í þágu barna okkarra. Þessi myndarlegu, en nokk- uð svo stirðlegu fornöfn, eru nú að kalla horfin úr máli okkar (eða okkru), en í staðinn komið eignarfall af persónu- fornafni. Að þessu er mikill skaði, og fyrir þá, sem læra vilja erlend mál, svo sem þýsku, er mikið hagræði að kunna skil á þessum gömlu eignarfornöfnum. Þjóðverjar hafa enn þann hátt á sem höfðu forfeður okkar (eða okkrir), að þessu leyti. Þó að aðrar þjóðir búi til lýsingarorðið korean af lands- heitinu Korea eða Kórea eftir okkar (okkru) lagi, finnst mér það á engan hátt réttlæta orð- myndina kóreanskur sem flestir fjölmiðlar hafa notað í fréttum undanfarið. Flugvélin var ekki suður-kóreönsk, held- ur suður-kóresk. Aðeins hjá Haraldi Blöndal í grein í DV hef ég séð þessa orðmynd og er þakklátur fyrir. Þetta kann að þykja smámunasemi, en á mjóum þvengjum læra hund- arnir að stela. Reyndar rekur mig stundum í rogastans. Ágætur embættis- maður íslenska ríkisins segir frá því í sjónvarpi, að nú eigi að hafa fjölskyldusamverur á Austurlandi. Þetta var skýrt. Orðið var í fleirtölu. Ég býst við að maðurinn hafi átt við einhvers konar fjölskyldu- samvistir. Hverjar eru fjöl- skyldusamverur? Eru það ekki bara verur sem eru saman 1 fjölskyldunni? Skyldulið? Og svo var orðið leki komið í fleirtölu, er mér tjáð. Ég man að vísu ekki hvar lekarnir voru. Mörg verða dæmin um falla- rugling. Ég tek hér tvö dæmi úr bréfi Páls Helgasonar á Ak- ureyri. Fyrra dæmið frá hon- um er svona: „Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar hún gluggar í ind- verskri útgáfu af ævintýrum H.C. Andersens.“ Forsetningin í stýrir þolfalli, þegar hún táknar hreyfinguna til. en þágufalli, þegar hún táknar dvölina á. Hér væri rétt að segja: þar sem hún er að glugga í indverska útgáfu (þolfall) o.s.frv. Það sakar svo kannski ekki að skjóta því inn hér, að Steingrímur Thor- steinsson frumþýddi þessi frægu ævintýri á þess konar íslensku máli sem margir mættu lesa sér til fyrirmynd- ar. Þó sagði eitt sinn í þvílíku lesmáli sem átti að heita rit- gerð um Grím Thomsen: „Grímur Thomsen þýddi ævintýri H.C. Andersens á ís- lensku og heita þau síðan Grímsævintýri." Seinna dæmið: „Jafnframt var löghaldsaðgerðinni á húsi Arnþórs úr gildi felld." Hér á auðvitað að breyta þágufalli í nefnifall. Þetta er þolmyndarsetning. Löghalds- aðgerðin var úr gildi felld. Menn segja að fella eitthvað (ekki einhverju) úr gildi. Að lokum nokkur fleiri gullkorn úr Pálspósti með smávægilegum athugasemdum og leturbreytingum umsjón- armanns: 1. „Veturinn 1959—’60 sat hann í Stýrimannaskólanum með góðum tilstyrk konu sinn- ar og lauk þaóan skipstjóra- réttindum á fiskiskip." 2. „Allir Austur-Eyfellingar urðu fyrir miklum skaða af heimatúnum og af Skógasandi, sem ekki er hægt að meta.“ Já, margur er skaðvaldur- inn, og ekki við öðru að búast en Skógasandur sé ómetanleg- ur. 3. „... þá þarf erindisleit- andi að bera upp einu sinni enn við hvern hann vantaði nú aft- ur að ná sambandi við.“ „Ann- ars erindi rekur“ o.s.frv. orti sr. Hallgrímur, og notkun sagnarinnar að vanta er þarna enskuleg úr hófi. 4. „Ég vil endilega leggja at- hygli á vandamáli einu sem fer mjög í taugarnar á mér.“ Ætli við leggjum ekki áherslu á eitthvað, en vekjum athygli á öðru? Þjóðrekur þaðan kvað: Ríka áherslu á það ég legg, að hver önd skuli búa við stegg; vek líka athygli á því, að þá er allt fyrir bí, ef þau efna ekki í velheppnað egg. PS: Nokkrum dögum eftir að þáttur þessi var skrifaður heyrði umsjónarmaður orðmyndina suður-kóreskur tvívegis í kvöld- fréttum ríkisútvarpsins. Iðnaðarhúsnæði óskast Höfum kaupendur að 300—500 fm iðnaöarhúsnæði á jarðhæð. Æskileg staösetning Ártúnshöföi. Fasteignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 5 - 200 Kópavogur - Símar 43466 & 43805 Sölum.: Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, Þórólfur Kristján Beck hrl. E 29555 — 29558 ) Opið 1—3 Skoðum og verðmetum eignir samdœgurs Blöndubakki Vorum að fá til sölumeöferðar sórlega glæsllega 4ra herb. íbúö á 2. hæö viö Blöndubakka í Reykjavík. fbúöln skiptlst í 3 rúmgóö svefnherb., stofu meö suðursvölum, eldhúsi meö borökrók og wc. Möguleiki er á sérþvottahúsi í íbúðinni. Geymsla í íbúöinni svo og í kjallara, einnig fylgir gott íbúðarherb. í kjallara meö aögangi aö snyrtingu. Litaö gler í gluggum. Fallegt útsýni. Æskileg makasklpti á 2ja—3ja herb. íbúö á Reykjavíkursvæðinu. Eignanaust SUphoiii 5. Þorvaldur Lúðvíksson Síml 29555 og 29558. FLÓKAGÖTU 1 SÍMI24647 Raöhús Endaraöhús á 2 hæð- um í Austurbænum í Kópavogl. 5—6 herb., bílskúrsréttur. Fal- leg ræktuö hornlóð. Raöhús Endaraðh. í smíöum á fögrum staö í Ártúnsholti, 2 hæðir, samtals 200 fm 6—7 herb. Bílskúr 38 fm. Húsiö og bílskúrinn er uppsteypt, járnaö þakið, múrhúöaö aö utan, tvö- falt verksmiöjugler í gluggum. Til afh. strax. Kóngsbakki 5—6 herb. rúmg. vönduö endaíb. á 2. hæö. Sér þvottahús á hæðinni, suður- svalir. Engihjalli 3ja herb. nýl. og vönduö íb. á 6. hæð, Svallr, sér þvottah. á hæöinni. Laufósvegur 3—4 herb. íb. á efri hæð í tvibýlishúsi, sér hiti, sér inng. á viðbyggingu sem er 27 fm. Gott vinnurými, upp- hitaö. Hverfisgata 3ja herb. nýstand- sett íb. á jaröh. Sér hiti, sér inn- gangur. Hesthús til sölu í Hafnarfiröl fyrir 6 hesta ásamt hlöðu. Helgi Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Kvöldsími 21155. RAÐHÚS Hðfum fengið í sölu glæsilegt raðhús á 2 hæöum á fögrum útsýnisstaö. Húslö er alls ca. 200 fm að gólffleti, með inn- byggöum bflskúr. Eignin er ekki alveg fullbúin, en þaö sem komiö er, er af vönduöustu gerö. Ákveöin sala Verö 2.8 millj. BRATTHOLT NÝLEGT RAÐHÚS Tll sölu nýiegt raöhús, alls 130 fm, á 2 hæðum í Mosfellssveit, sem skiptist m.a. í stofur, 2 stór svefnherb., eldhús, stórt baöherb., o.fl. Verö 1.750 þút. MIÐBÆRINN STÓR 4 HERBERGJA Nýstandsett og falleg íbúö á 1. hæö vlö Barnónsstíg. Til greina koma skipti á minni 3ja herbergja íbúö í sama hverfi. Gott verö og skilmálar. VESTURBÆR 3JA HERBERGJA Falieg lítil risíbúö viö Framnesveg. Lítlö áhvflandi. Góö kjör. Laus fljótlega. UGLUHÓLAR VÖNDUÐ 3JA HERBERGJA Ný og glæsileg íbúö í 3ja hasöa fjölbýl- ishús. Stór stofa, 2 svefnherbergi. Lagt fyrir þvottavól i íbúöinni. Gott útsýni af svölum. Lítiö áhvflandi. Laus fljótlega. STÓRAGERÐI 4RA HERB. BÍLSKÚR Mjög falleg íbúö á efstu hæö í fjölbýlis- húsi. Stofa, 3 svefnherbergi, þvotta- aöstaöa í íbúöinni. Stutt í alla þjónustu. Verö 1.650 þús. HJARÐARHAGI 3JA HERBERGJA Rúmgóö ibúö i kjallara i fjölbýlishúsi. Stórar samliggjandi stofur og stórt svefnherbergi. Verö 1.200 þús. SELJENDUR ATHUGIDI Nú er vaxandi eftirspurn eftir öllum teg- undum fasteigna. Á kaupendaskrám okkar er stór hópur fólks sem vantar aö kaupa eignir. VANTAR einbýlishús í austurbæ Kópavogs fyrir góöan kaupanda. VANTAR 4ra herbergja ibúö í Vesturbæ, ekki í blokk. VANTAR 4ra herbergja í Hraunbær fyrlr ofan bensínstöö, á veröbilinu ca. 1.600 þús. VANTAR 5 herbergja vandaöa eign í Vesturbæ. Fjársterkur kaupandi. VANTAR Nokkra viöskiptavini okkar vantar eign meö 2 íbúðum. Vmislegt kemur til greina, t.d. hæö og ris, eöa raóhús o.fl. VANTAR iönaöarhúsnæöl viö Dugguvog eöa i austurbæ Kópavogs ca. 100 fm. VANTAR 2ja herbergja íbúöir í fjölbýlishúsum, i Ðreióholti eöa annars staöar og þá i lyftublokkum. Góöir kaupendur. VANTAR fyrir afar sterkan kaupanda, einbýlis- hús, t.d. tilbúiö undir tréverk eöa skemmra komiö, sem mætti vera alls ca. 250—350 fm. Ekki í vesturbæ, Fossvogi eöa Mosfellssveit. Komum og verðmetum samdægurs. OPIÐ LAUGARDAG KL. 1—4. Atli Va^nsson lögfr. Suöurlandsbraut 18 84433 82110 AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÖTAHF Síeh Opið 1—3 í dag Á Seltjarnarnesi 2ja herb. 80 fm stórglæsileg íbúö á 1. haBÖ. Góöur bílskúr. Nýleg eign. í Miðbænum 3ja herb. risíbúö m. svölum. Verð 1 millj. Glæsileg ný rishæð 2ja herb. 70 fm ný fullbúin rishæö (byggt ofaná gamalt hús) vió miöborg- ina. Verð 1200 þúa. Við Sörlaskjól 3ja herb. ibúö á 1. hæð. Verö 1300 þú*. Við Arnarhraun 3ja herb. góö ibúö á jaröhæö (gengið beint inn). Verö 1350 þús. Við Krummahóla 3ja herb. góö ibúö á 7. hæö. Nýstand- sett baöh. Glæsilegt útsýni. Verö 1350 þús. Bflskúrsréttur. Við Breiðvang m. bíl- skúr 3ja herb 100 fm góö íbúö á 4. hæö. Bflskúr. Vsrö 1500—1440 þús. Við Æsufell 3ja herb. 90 fm góö íbúö á 4. hæö. Vsrö 1400 þús. Við Eiðstorg 4ra—5 herb. 150 fm íbúö á 5. hæö. Vsrö 2,6 millj. Við Hólabraut Hf. Nær fullbúiö parhús á 3. hæöum. Innb. bflskúr. Glæsilegt útsýni. Við Drápuhlíð 4ra herb. 115 fm efri sérhæö ásamt bflskúr. Ákveöin sala. Verö 1,9—2 millj. Við Bauganes 5 herb. 110 fm góö efri hæö. Glæsilegt útsýni. Vsrö 1600—1650 þús. í Hlíðunum Efrí hæö og ris, samtals 170 fm. Ibúöin er m.a. 5 herb., saml. stofur o.fl. Vsrö 2,5 millj. í Fossvogi 5 herb. 140 fm glæsileg á 1. hæö. Bfl- skúr. Við Búðagerði 4ra herb. 100 fm góö íbúð á 2. hæö Ný teppi Við Bugðulæk 4ra herb. 100 fm íbúö á jaröhaeö. Sér- inng. Vsrö 1550 þús. Við Blönduhlíð 150 fm 5 herb. nýstandsett ibúöarhæö. Ðiiskúr. Verö 2,5 millj. Glæsilegt einbýlishús við Barrholt 140 fm 6 herb. nýtegt einbýlishús m. 40 fm bflskúr. Fallegur blóma- og trjágarö- ur. Vsrö 3,5 millj. Giæsilegt raðhús við Ásbúð 180 fm vandað raöhús á tveimur haaö- um. Innb. bflskúr. Vsrö 23 millj. í Austurbænum, Kóp. 220 tm gott endaraöhús á góöum staö (Hjöllunum). Bílskúr. Verö 2,9—3 millj. Skipti á minni eign koma til greina. Parhús á Seltjarnarneei 5 herb. 130 fm parhús vlö Meiabraut. Biiskúr. Verð 2.5 miHj. Við Heiönaberg 200 fm endaraöhús. Bflskúr. Vsrö 3—3,1 millj. Raðhús í Selásnum 200 tm vandaö raöhús á tveimur hæö- um. 50 fm bílskúr. Húsiö er laust nú þegar. Við Laugarnesveg Um 140 tm sýningarsalur (ásamt 60 fm verslunarplássi) rými i kjallara. Qóölr sýningargluggar. Allar nánari upptýs- ingar á skrirstotunnl. Húsnæöi Fyrir heildvsrslun, vinnustofu og fl. 180 fm húsnæöi á jaröhaaö á Teigunum. Hentar vel fyrir heildverslun (meö lager). Verslunar- og vinnupláss o.fl. 25 pcnfimiÐLunin PjNCHOLJSSTRIET. 3 Sölustjörl SvwTlr Krtatinaaon ÞortaMur OuömurKtaaon aðiumaöur Unnstainn Bacfc hrt, sfml 12320 hós ólln. UaHrtdmnn ■ - «- nanoorfton iogir. Kvöldsími sölumannt 30483. Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.