Morgunblaðið - 21.09.1983, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.09.1983, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983 Krafturinn sá sami þótt hárunum fækki Hljóm- plotur Sigurður Sverrir Páisson Saxon Power and the Glory Carrere/ Fálkinn Eftir að hafa séð Saxon á tón- leikum í Hammersmith Odeon sl. vetur, blandaðist mér ekki hugur um að Biff Byford og hans menn stæðu flestum öðrum bárujárnsrokkurum framar. Ég beið því spenntur eftir komu plötunnar Power and the Glory. Eftir því sem biðin varð lengri varð spennan meiri. Loks þegar mér barst platan, varð spennu- fall. Saxon er ekki lengur alveg sú sveit sem hún var. Á því leik- ur vart nokkur vafi. Það, sem lengstum hefur skap- að Saxon sérstöðu innan báru- járnsrokksins, hefur verið söng- ur Biff Byford. Söngurinn gerir það reyndar ennþá, en lagasmíð- unum hefur hrakað talsvert frá því á fyrri plötum. 1 mínum huga er ekki nema eitt mjög gott lag á þessari nýjustu plötu fimm- menninganna frá Walsall. Það er Warrior og stendur hinum feti framar og gott betur. Hin lögin, 7 talsins, eru öll fremur keimlík. Þótt hárunum hafi fækkað nokkuð á höfði tveggja meðlim- anna, hefur ekkert dregið úr hraðanum í tónlistinni. Hann er reyndar meiri en áður, ef eitt- hvað er. Dúndrandi bassa- trommusláttur Nigel Glockler glymur í eyrunum eins og loft- pressa og Steve Dawson sér til þess að áhrifin verði enn ofsa- fengnari með bassadrunum í takt við Glockler. Ofan á þetta bætist svo gítarleikur þeirra Graham Oliver og Paul Quinn. Þeir hamast sem í ákvæðisvinnu væru og söngur Byford er síðan punkturinn yfir i-ið. Saman hafa þessir fimmmenningar myndað hljómsveit, sem virðist því mið- ur vera að gefa eftir, hægt og sígandi. Power and the Glory er engan veginn besta plata Saxon, en kannski ekki sú lakasta heldur. Þrátt fyrir viss vonbrigði með hana leikur samt enginn vafi á því, að Saxon heldur merki báru- járnsrokksins hærra á loft en flestir keppinautarnir, a.m.k. ennþá, hvað sem síðar verður. Þetta er ekki heppileg plata til fyrstu kynna af Saxon, þannig að ég bendi áhugasömum á ein- hverra eldri platnanna. Saxon- fríkin munu hins vegar „fíla“ þessa í botn. Óvæntur stormur frá Capitol Storm Storm Capitol/ Fálkinn Engin deili veit ég á hljóm- sveitinni Storm, en þessi plata hennar hefur engu að síður orðið mér heljarmikið umhugsunar- efni. Ekki aðeins býður þessi plata upp á mjög góða tónlist á köflum heldur eru lögin einnig svo ólík innbyrðis að undrum sætir. Þá hefur það ennfremur vakið athygli mína hversu hljótt hefur verið um þessa hljómsveit vestanhafs. Sennilegasta skýr- ingin er þó einfaldlega sú, að Storm hafi enn ekki náð að láta vinda sína blása um fremur geldan tónlistarmarkað Banda- ríkjanna. Storm er fjögurra manna flokkur og innan hans er m.a. að finna feikilega skemmtilega söngkonu í formi Jeanette Chase. Ekki aðeins leggur hún til afbragðsgóðan söng heldur leggur hún fram ríflegan skerf til lagasmíða þessarar hljóm- sveitar. Það kemur í hlut Lear Stevens að semja lögin á móti henni og þótt sum laganna séu að mínu mati ekki nægilega sterk, eru þarna önnur sem bæta veikleika hinna fyllilega upp og gott betur. Þó er nokkurt mis- ræmi á milli laganna og stund- um er eins og Storm viti ekki allsendis við hvaða línu hún á að halda sig. Þetta eru þó vonandi aðeins þyrjunarörðugleikar og sem einlægur rokkunnandi vona ég að þyngra rokkið verði ofan á þegar upp er staðið. A þessari plötu er sem fyrr segir að finna ýmsar tegundir rokks. Lagið Running from You hljómar á köflum ekki ósvipað því sem Zeppelin var að gera á tímabili og hjálpar þungur trommuleikur Jimmy Monroe og öruggur bassaleikur Ronni Han- sen til við að styrkja þá kenn- ingu. Chase á það líka til að reka upp þessi ljúfu öskur „a la Plant". Þá er lagið Pez mjög at- hyglisvert, svo og tvö-þrjú til viðbótar. Capitol virðist hafa lag á að grafa upp hljómsveitir, sem eitthvað er spunnið í. Ef ég man, er þetta önnur platan, sem kem- ur mér verulega á óvart á þessu ári og báðar eiga það sammerkt að vera frá Capitol. Gefið þessu nafni, Storm, gaum í framtíð- inni. The Dead Girls Jóhanna Kristjónsdóttir The Dead Girls eftir Jorge Ibargii- engoitia. Útg. Chatto & Windus 1983. Þetta mun vera fyrsta bók mex- íkanska höfundarins Jorge Ibargúengoitia, sem kemur út á ensku. Hann er fæddur fyrir tæp- um sextíu árum í Guanjato í Mið- Mexíkó og hefur að minnsta kosti tvívegis fengið einhver ágæt Mið- Ameríku- og Suður-Ameríku-bók- menntaverðlaun. Hann hefur ver- ið afkastamikill þýðandi spánskra verka á ensku. The Dead Girls mun vera byggð á staðreyndum að grunni til: lík nokkurra ungra stúlkna eru grafin upp í garði hóruhúss nokkurs. Síð- an er sagan rakin, yfirheyrslan og aðdragandinn, og ailt er þetta öllu fremur í skýrsluformi en skáld- sagna-. Þó svo að höfundurinn Roj Friberg hefur gert teikningar við Sólarljóð, sem komu út í Svíþjóð fyrr á þessu ári í þýðingu Gunnars D. Hanssonar, ug er meðfylgjandi mynd úr bókinni. Haustsýning FÍM í október Haustsýning FÍM verður opnuð á Kjarvalsstöðum þann 15. októ- ber nk. Haustsýningin er nú með öðrum hætti en venja hefur verið. Nú verða þar eingöngu sýnd mynd- verk unnin á pappír eða í pappír — s.s. hvers konar myndir unnar með hinum ýmsu efnum á pappír, svo og klippmyndir (collage), papp- írsskúlptúrar og t.d. svifmyndir úr pappír. Öllum er heimilt að senda myndir til sýningarnefndar fé- lagsins, sem jafnframt skipar dómnefnd sýningarinnar. Myndum skal skilað á Kjar- valsstaði föstudag 7. október kl. 4—6 e.h. Sænskur listamaður, Roj Fri- berg, mun sýna teikningar á Haustsýningunni í boði FÍM. Roy Friberg er víða kunnur fyrir teikningar sínar, og hefur sýnt myndir sínar víða um lönd. Hann hefur einnig unnið leik- myndir fyrir t.d. Dramaten í Stokkhólmi. Sýningin stendur til sunnudags 29. október. Mosavaxnar áttir Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Sigmundur Ernir Rúnarsson: ÓSTAÐFEST UÓÐ. Þorvaldur Þorsteinsson teiknaði myndir. Svart á hvítu 1983. íslensk ljóðlist er ekki fátæk af náttúruskáldskap. Gömlu skáldin ortu um náttúruna, formbylt- ingarskáldin líka og ljóst er að ung skáld hafa síður en svo snúið af þraut fyrirrennaranna. Eitt þeirra ungu skálda sem kveða náttúrunni lof er Sigmund- ur Ernir Rúnarsson í bók sem hann nefnir óstaðfest ljóð. Sigmundur yrkir um það hvern- ig náttúran birtist manninum, ljóðin eru nokkuð eintóna, en áberandi vilji til hnitmiðunar. Landið er lifandi í þessum ljóð- um, hreyfingin skiptir miklu til að laða fram rétta stemmningu: gljálitir stormar þenja hörpustrengi í austurátt einsog skelfdir tónar hlaupa þeir eftir slóó og skuggi þeirra svartur stekkur vesturundan Jorge Ibargiiengoitia byggi á staðreynd að nokkru leyti rannsakar hann samt sem áður málið út frá sínu eigin sjónar- horni og dregur þær niðurstöður, sem honum sýnist trúlegastar. Þó Sigmundur Ernir Rúnarsson rjóóur morgunn vekur á heióum fótatak jaróar sem heldur undan svartamyrkri veg til kvölds. Yfirleitt er náttúruskáldskapur Sigmundar fremur sviplítill, en hann nær sér stöku sinnum á strik með persónugervingu sem vekur svo að hér sé sagt að bókin sé í eins konar skýrsluformi fer því víðs fjarri, að hún sé þurr og óað- gengileg. Hún rennur fram af rökvísi og ritleikni sem er bæði heillandi og á stundum illgirnis- lega spaugileg. Lífshlaupi stúlkn- anna, svo og þeirra Baldaro- systra, sem stjórna hóruhúsinu eru gerð skil, svo að persónurnar eru skýrar og manneskjulegar. Grimmd þeirra systra verður líka að minnsta kosti skýranleg og þó er kannski ekki farið mjög djúpt — með snöggum og litríkum dráttum skynjum við harmleik þeirra. The Dead Girls er verulega góð bók, óvenjuleg í hæsta máta. Það er meira en hægt er að segja hverju sinni. athygli. Málið er ljóðrænt og fremur mótað af eldri skáldskap en nýjungum í ljóðlist. Sumt orkar tvímælis í málbeitingu eins og títt er hjá byrjendum, en varla ástæða til að tíunda það af því að ungt skáld á í hlut. Þriðja erindi ljóðsins Tíðarandi er á þessa leið: vesturundan heiAinni er eamlar vöróur aó finna ehki er lengur til þeirra huesaó eóa í þar npáó og mosavaxnar eru áttir þeirra Hefði staðið í þessu ljóði að vörðurnar væru mosavaxnar hvað hefði þá getað bjargað því frá að leysast upp í venjulegan prósa? En með því að kalla áttirnar mosa- vaxnar er fundin lausn sem heldur athygli lesandans vakandi. Vissulega er maðurinn á ferð í náttúru þessara ljóða. En fyrir- ferðarlítill er hann. Eiginlega er hlutverk fuglsins stærra. Hann flýgur hjá oftar en einu sinni í ljóðunum. I Náttfuglinn er að finna töluverða mælsku í ekki lengra erindi: „blæbrigði vind- anna/ hylur gleðina/ grátur skýj- anna/ þekur reiðina". Náttúran speglar hugarástand skáldsins. En örlæti í náttúrulýs- ingum getur orðið til þess að kæfa hugsun, draga úr styrkleika þeirr- ar myndar sem skáldið hlýtur þrátt fyrir allt að vilja gera sem eftirminnilegasta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.