Morgunblaðið - 07.10.1983, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
Sakar ísraela um
samkomulagsbrot
Beirút, 6. október. AP.
SHAFIK WAZZAN forsætisráðherra Líbanon, sagði í dag, að hann útilokaði
ekki möguleikann á endurskoöun samkomulagsins, sem gert var við ísraela
þann 17. maí. Sagði Wazzan, að brot ísraela á umræddu samkomulagi hefði
leitt til þess að átök blossuðu upp í landinu að nýju í þrjár vikur eftir að allt
hafði verið með kyrrum kjörum um skeið.
Með ummælum sínum vitnaði
forsætisráðherrann til þeirrar
ákvörðunar fsraela að kalla hluta
herliðs síns brott frá fjallahéruð-
unum í nágrenni Beirút þann 4.
september. Skelltu ísraelar skolla-
eyrum við beiðni líbönsku stjórn-
arinnar og fuiltrúa Bandaríkja-
stjórnar um að kalla herliðið ekki
brott.
Ummæli Wazzan koma á sama
tíma og illa gengur að halda
Ritari sænsku akademíunnar, Lars Gyllenstein, skýrir frá ákvörðun
hennar í gærmorgun.
Bókmenntaverðlaun Nóbels 1983:
W. Golding hlotn-
aðist heiðurinn
Stokkhólmi, 6. október. AP.
BRESKI rithöfundurinn William
Golding hlaut í morgun bókmennta-
verðlaun Nóbels. Hann er annar
breski handhafi þessara verðlauna á
þremur árum. I»egar Elias Canetti
hlaut verðlaunin 1981 voru 30 ár
liðin frá því Breta hafði hlotnast
þessi heiður. Winston Churchill
hlaut verðlaunin 1951.
Sagði m.a. í álitsgerð sænsku
akademíunnar, að skáldsögur
Golding bæru vott um ríka frá-
sagnargáfu og vörpuðu skíru ljósi
á þær aðstæður, sem mannkynið
býr við á vorum tímum. „Segja
má, að William Golding sé rithöf-
undur goðsagna. Það er einhver
dulúð, sem einkennir ritstíl hans,“
sagði ennfremur í álitsgerðinni.
Utnefning Golding kom talsvert
á óvart og nafn hans var ekki
nefnt í umræðum um hugsanlega
rithöfunda fyrir útnefninguna.
Flestir voru þeirrar skoðunar, að
landar hans, Graham Greene og
Anthony Burgess, kæmu helst til
greina af rithöfundum Breta.
Golding er 72 ára gamall, fædd-
ur í Cornwall þann 19. september
1911. Hann segist sjálfur aðeins 7
ára gamall hafa ákveðið að verða
rithöfundur. Fyrsta skáldsaga
hans leit hins vegar ekki dagsins
ljós fyrr en 1954, „Lord of the
Flies“. Hlaut hún afbragðs viðtök-
ur og hefur selst í milljónum ein-
taka víða um heim.
A meðal nýrri verka hans má
nefna „Darkness Visible" frá ár-
inu 1979 og „Rites of Passage" frá
1980. í fyrra kom svo út ritgerða-
safnið „The Moving Target".
Skáldsögur hans eru alls 11 tals-
ins. Golding hefur einnig skrifað
leikrit og nokkrar smásögur. Hafa
sum verka hans verið kvikmynd-
uð.
Sjá nánar á bls 19: „Verk hans
varpa Ijósi á aðstæöur nútíma-
mannsins."
Símamyndir AP.
Handhafi bókmenntaverðlauna
Nóbels 1983, William Golding.
vopnahlé það, sem samið var fyrir
skemmstu. Má heita að það sé rof-
ið daglega. Þá gengur stjórnvöld-
um í Líbanon erfiðlega að brjóta á
bak aftur andstöðu Sýrlendinga
gegn því að efnt verði til ráðstefnu
um málefni þjóðarinnar.
Sýrlendingar tilkynntu Banda-
ríkjamönnum í dag, að ekki kæmi
til greina af þeirra hálfu að sam-
þykkja að eftirlitssveit frá Sam-
einuðu þjóðunum yrði send til Líb-
anon til sjá um að umsömdu
vopnahléi verði framfylgt. Khadd-
am, utanríkisráðherra landsins,
sagði, að í Líbanon geisaði borgar-
astyrjöld og ekki kæmi til mála að
SÞ færu að blanda sér í innanrík-
ismál. Slíkt væri hættulegt for-
dæmi.
Sækja bygg-
ingarefni í
Kínamúrinn
Peking, 6. október. AP.
SVO VIRÐIST sem skörð séu tekin að
myndast í Kínamúrinn heimsfræga og
það án þess að nokkuð sé aðhafst.
Dagblaði alþýðunnar í Peking
barst fyrir skömmu bréf frá bónda,
sem sagðist hafa orðið vitni að því er
rafmagnsstarfsmenn og hópur
jarðfræðinga sprengdu skörð i múr-
inn, samtals 180 metra breið. Notuðu
þeir steinana til að byggja skýli yfir
rafal. Sagði bóndinn þetta athæfi
hafa verið látið óátalið, sér og öðrum
til undrunar.
Yfirvöld í Kína munu nú hafa tek-
ið við sér og gripið til harðra að-
gerða eftir að fréttist að óbreyttur
almúginn hefði notað tækifærið og
sótt sér byggingarefni í múrinn.
Cecil Parkinson gengur á fund Margaret Thatcher í gær. Símamynd ap.
Breskur ráð-
herra flækt-
ur í hneyksli
Lundúnum, 6. október. AP.
FRÍXTIR dagblaða í morgun þess efnis, að Cecil Parkinson, fyrrum formað-
ur breska íhaldsflokksins og nú ráðherra í stjórn Margaret Thatcher, hafi
orðið uppvís að ástarsamhandi við fyrrum ritara sinn, Söru Keays, ollu
miklu fjaðrafoki í Bretlandi í dag. Ráöherrann hefur viðurkennt víxlspor
sitt.
Talsmaður Margaret Thatcher,
forsætisráðherra, sagði í dag, að
hún liti á þetta sem einkamál
Parkinson. Jafnframt hafði tals-
maðurinn eftir forsætisráðherr-
anum, að „ekki hefði komið til tals
að hann segði af sér og til slíks
myndi ekki koma“.
Þrátt fyrir yfirlýsingu Thatch-
er töidu bresku síðdegisblöðin
víst, að framhjáhald ráðherrans
yrði honum dýrkeypt. Ársþing
breska íhaldsflokksins hefst í
næstu viku og að öllu óbreyttu
hefði Parkinson mátt eiga von á
hrósyrðum fyrir vel unnin störf í
embætti.
Parkinson er 52 ára gamall,
lögfræðingur að mennt, kvæntur
og þriggja barna faðir. Hann
gegnir embætti verslunar- og iðn-
aðarráðherra í stjórn Thatcher og
hefur átt sæti á þinginu frá árinu
1970.
Breskum blöðunum bar al-
mennt saman um að fréttin um
framhjáhald ráðherrans yrði
Thatcher verulegt áfall. Parkin-
son er í miklum metum hjá for-
sætisráðherranum og frami hans
á stjórnmálasviðinu hefur farið
ört vaxandi.
Það var seint í gærkvöldi, að
Parkinson viðurkenndi áralangt
ástarsamband við hinn 36 ára
gamla fyrrum ritara sinn. Hann
upplýsti jafnframt, að um tíma
hefði hann verið að hugsa um að
kvænast ungfrú Keays, en hefði
horfið frá þeirri hugmynd og
ákveðið að fórna ekki hjónabandi
sínu. Ritarinn á von á barni Park-
inson í janúar.
Enn mótmæli
á Filippseyjum
— Reagan víttur fyrir að hætta við för sína þangað
Manila og Washington, 6. október. AP.
TIL MÓTMÆLA KOM í Manila, höfuðborg Filippseyja, í dag á sama
tíma og Marcos forseti bað fólk í landinu að sýna stillingu. Marros hélt
ræðu í morgun í kjölfar gengisfellingar pesoans. Sagðist hann þess
fullviss að leysa mætti efnahagsvandamál þjóðarinnar á farsælan hátt.
Ræðu forsetans var útvarpað
beint. Um leið og hún hófst var
eins og sprengju hefði verið
varpað inn í Makati-verslunar-
hverfið í höfuðborginni. Öku-
menn þeyttu horn bifreiða sinna
og fólk þusti út í glugga og hróp-
aði ókvæðisorð í garð forsetans.
Slíkar uppákomur eru nánast
orðnar daglegar í Manila.
Margir starfsmenn í hverfinu
hlupu út á götur og þegar fjöl-
mennast var er talið að um 4.000
manns hafi verið saman komin
á einum stað. Salvador H. Laur-
el, leiðtogi stjórnarandstöðunn-
ar, ávarpaði mannfjöldann og
sagði m.a., að þótt Marcos færi
með völd, réði yfir vopnum og
fjármunum væri alþýðan að
baki stjórnarandstöðunni. Var
honum ákaft fagnað. Fyrr í
morgun hafði lögregla beitt
táragasi til að tvístra minni
hópum, sem safnast höfðu sam-
an.
Nefnd innan Bandaríkjaþings
samþykkti í dag að víta Reagan
forseta fyrir að hætta við för
sína til Filippseyja. Jafnframt
varaði nefndin Marcos forseta
við vegna morðsins á Aquino,
leiðtoga stjórnarandstöðunnar.
Þá var samþykkt samhljóða í
undirnefnd fulltrúadeildar
þingsins, sem fer með málefni
Asíu, áskorun um að Banda-
ríkjamenn hefji sjálfstæða
rannsókn á dauða Aquinos.