Morgunblaðið - 21.10.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR
241. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Brazilía:
Stjórnin hótar
neyðarástandi
Rraxilíu, Krazilíu, 20. október. AP.
BRAZILÍUSTJÓRN, scm nýtur
stuönings hersins, tók sér í gær þau
völd, sem kveðid er á um í lögum um
neyöarástand, og tilkynnti nokkru
Dagur Martin Luther Kings
Símamynd AP.
Oldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær, að þriðji mánudagur í janúar, frá 1986 að telja, skuli vera
þjóðhátíðardagur, almennur frídagur, í minningu mannvinarins Martin Luther Kings. Fulltrúadeildin hafði áður
samþykkt tillöguna, en þessi heiður hefur aðeins fallið einum öðrum Bandaríkjamanni { skaut, George
Washington, fyrsta forseta Bandaríkjanna. Þessi mynd var tekin nokkru áður en greidd voru atkvæði í
öldungadeildinni af þeim Corettu King, ekkju Martins Luthers, syni hennar, Martin Luther King III, og
Howard Baker, leitoga repúblikana f öldungadeildinni.
Líbanon:
Genf sennilegust
sem fiindarstaður
Beirúl, 20. október. AP.
RÍKISSTJÓRN Amin Gemayels hefur lagt til, að væntanleg ráðstefna um
þjóðarsátt í landinu verði haldin í Genf. Upphaflega var áætlað að halda
ráðstefnuna á flugvellinum í Beirút en á það vildu andstæðingar stjórnarinn-
ar, sem Sýrlendingar styðja, ekki fallast.
Líbanskir embættismenn sögðu
í dag, að líklega myndu allir deilu-
aðilar fallast á að halda ráðstefn-
una um þjóðarsátt í aðalstöðvum
SÞ I Genf en á ráðstefnunni á að
ræða friðsamlega sambúð mú-
hameðstrúarmanna og kristinna í
Líbanon. Þrír helstu leiðtogar mú-
hameðstrúarmanna höfðu áður
hafnað flugvellinum í Beirút sem
fundarstað enda hafa leyniskyttur
beint spjótum sínum að vellinum
og mannvirkjum þar. Gemayel
forseti hafði sjálfur mestan áhuga
á Jidda í Saudi-Arabíu sem fund-
arstað en Sýrlendingar aftóku það
vegna þess nána sambands, sem er
á milli Saudi-Araba og Banda-
ríkjamanna.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
sem nú er staddur í Búdapest í
Ungverjalandi, fór í dag hörðum
orðum um ótilgreind Arabaríki,
sem hann sakaði um klofninginn í
röðum PLO. Ekki fór á milli mála
að hann átti fyrst og fremst við
Sýrlandsstjórn. Arafat gaf í skyn,
að í deilunum nyti hann stuðnings
Sovétmanna, sem hann sagði hafa
„sýnt okkur mikinn skilning".
Wales:
Stöðin með
stóra nafnið
til sölu
Llanfairpwlljíwyngyll. Wales,
20. október AP.
AFLÓGA járnbrautarstöð í Wales
ásamt nærri 11 metra löngu
nafnskilti stöðvarinnar er nú til
sölu fyrir sanngjarnt verð. Eigend-
urnir hafa hins vegar af því nokkr-
ar áhyggjur, að nafnið kunni að
standa dálítið í væntanlegum
kaupendum því að það er hvorki
meira né minna en 58 stafir.
Llanfairpwllgwyngyllgoger-
ychwyrndrodwllllantysiliogog-
ogoch-stöðin, sem var gerð að
ferðamannamiðstöð árið 1973
eftir að bresku járnbrautirnar
hættu að stoppa þar vegna far-
þegaskorts, var auglýst til sölu í
dag og 170.000 pund, um sjö
milljónir ísl., sett upp fyrir
hana. Innifaiið í verðinu er veit-
ingastaður, bílastæði og minja-
gripaverslun, sem selur ógilda
farseðla með nafni stöðvarinnar.
Stöðin er á Angelesey (eða Öng-
ulsey eins og hún heitir í íslensk-
um sögum).
Á velsku þýðir nafnið „Kirkja
heilagrar Maríu við lindina und-
ir heslitrjánum, skammt frá
hylnum við hinn rauða helli hjá
kirkju heilags Tysilios". Sam-
kvæmt metabók Guinness er
þetta ekki lengsta örnefni, sem
vitað er um, því að á tungu ma-
óría á Nýja Sjálandi er annað,
sem hefur samtals 85 stafi.
Grenada:
Fólk „skotið á staðnum“
ef útgöngubann er rofið
Bridgetown, Grenada, 20. október. AP.
AÐEINS HERMENN með alvæpni sáust í dag á götum bæja á Grenada
en í gær tók herinn í landinu völdin í sínar hendur eftir að hafa tekið af
lífi Maurice Bishop, forsætisráðherra, og a.m.k. fimm stuðningsmenn
hans. Hudson Austin, yfirmaður hersins, er nú valdamestur maður á
Grenada.
Ríkisútvarpið á Grenada
hvatti í dag fólk til að „vera á
varðbergi gegn tilraunum
heimsvaldasinna til gagnbylt-
ingar" en varaði það jafnframt
við og sagði, að þeir, sem brytu
gegn útgöngubanninu, yrðu
„skotnir á staðnum". Erlendir
sendiráðsstarfsmenn á Grenada
segjast hafa það eftir vitnum, að
Bishop og Unison Whiteman,
utanríkisráðherra, hafi verið
handteknir í gær, miðvikudag,
og skotnir. Austin, yfirmaður
hersins, sagði í yfirlýsingu, sem
lesin var í útvarpinu, að Bishop
og það fólk, sem leysti hann úr
haldi, hefði hafið skothríð á her-
menn en vitnum segist öðruvísi
frá. Segja þau, að Bishop hafi
gefist upp fyrir hermönnunum
og verið fluttur til aðalstöðva
hersins.
Austin sagði, að „byltingar-
herráð" færi nú með völdin í
landinu og að skólum hefði verið
lokað og vinna bönnuð í öllum
fyrirtækjum þar til „eðlilegt
ástand" ríkti á ný. Útgöngubann
allan sólarhringinn gildir fram á
nk. mánudag og hafa hermenn
fyrirskipun um að „skjóta á
færi“ þá, sem brjóta gegn því. I
yfirlýsingu Austins sagði, að auk
Bishops hefðu Unison White-
man, utanríkisráðherra, Norris
Bain, húsnæðisráðherra, Jacqu-
eline Creft, menntamálaráð-
herra, verkalýðsleiðtoginn Vinc-
ent Noel og Fitzroy Bain „ásamt
öðrum" verið teknir af lífi.
Forsætisráðherrar Barbados,
Dominica, Jamaica og Antigua
og Barbuda, sem allt eru ríki í
Karabíska hafinu, fordæmdu í
dag morðið á Maurice Bishop og
kváðust þeir aldrei mundu viður-
kenna þá sUórn, sem nú ræður á
Grenada. „Eg mun aldrei setjast
til borðs með þessum viðbjóðs-
legu morðingjum," sagði Tom
Adams, forsætisráðherra Barba-
dos.
Sjá ennfremur Erlendan vett-
vang á bls. 23 og „Svipmiklum
leiðtoga ... “ á bls. 14.
seinna, að nýtt lagafrumvarp um
strangar efnahagsráöstafanir heföi
verið lagt fram á þingi. Koma þessar
ráöstafanir i kjölfar ósigurs stjórnar-
innar á þingi í gær, en þá felldi full-
trúadeildin nýtt lagafrumvarp um
vísitölubætur.
Lagafrumvarpið, sem fellt var,
kvað á um, að takmarkaðar skyldu
launahækkanir í landinu við 80%
framfærsluvísitölunnar en 30%
vantar hins vegar upp á, að fram-
færsluvísitalan sé jöfn verðbólg-
unni, sem er 175%. Allir þing-
menn stjórnarandstöðunnar voru
andvígir frumvarpinu og að auki
29 þingmenn stjórnarinnar. Nýja
frumvarpið er líkt hinu fyrra en
þó meira tillit tekið til þeirra
lægstlaunuðu.
Samkvæmt neyðarástandslög-
um er heimilt að handtaka fólk og
leita í húsum, leysa upp þing og
segja stjórnum verkalýðsfélaga og
annarra samtaka fyrir verkum.
Enn er aðeins um heimild að ræða
fyrir stjórnina en hún kveðst ekki
hika við að beita lögunum ef til
ókyrrðar kemur í landinu.
Brasilíumenn skulda mest allra
þróunarþjóða og erlendur gjald-
eyrir er uppurinn. Segja stjórn-
völd, að til að þjóðin geti staðið í
skilum og fengið ný lán verði ekki
komist hjá því að lækka launin.
Friðartil-
lögur frá
Nicaragua
Washington, 20. október. AP.
Utanríkisráðherra Nicaragua,
Miguel D'Escoto, átti f dag fund
meö bandarískum embættismönn-
um og lagöi þar fram „mjög ítarleg-
ar“ tillögur um friö í Miö-Ameríku.
Bandaríska fulltrúadeildin sam-
þykkti í dag, aö hætt skyldi stuön-
ingi viö andstæðinga stjórnarinnar í
Nicaragua.
D’ Escoto átti fund með aðstoð-
arinnanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Langhorne Motley, og lagði
fyrir hann friðartillögur, sem
hann sagði „mjög ítarlegar" og
uppfylla þau skilyrði, sem sett
hefðu verið fram af Contadora-
ríkjunum svokölluðu, Mexíkó,
Venezúela, Panama og Kolombíu.
Eftir fundinn kvaðst D’Escoto
vera mjög ánægður með áhuga
Motleys á að „semja sátt í Mið-
Ameríku með öðrum aðferðum en
hernaði".
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti i dag að hætta stuðn-
ingi við uppreisnarmenn í Nicar-
agua og er það í annað sinn á
þremur árum, sem hún gerir það.
Ólíklegt þykir, að öldungadeildin
komist að sömu niðurstöðu enda
eru repúblikanar þar í meirihluta.
í gær sagði Reagan, að leyniað-
gerðir væru „hluti af skyldum
stjórnarinnar" og átti þá m.a. við
stuðninginn við andstæðinga Nic-
aragua-stjórnar.