Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983 5 Sjónvarp kl. IS: Stundin okkar STUNDIN okkar er að venju á dagskrá í dag kl. 18. í þætt- inum í dag les Geirlaug Þorvaldsdóttir ævintýrið Dimmalimm, sem Guðmund- ur Thorsteinsson mynd- skreytti. Herdís Egilsdóttir kennir okkur að föndra, börn úr Bjarkarási sýna lát- bragðsleik, Krókpókó verður á sínum stað og Smjattpatt- arnir einnig. Að lokum kem- ur gestur í heimsókn í Stund- ina okkar, en gesturinn er lítil apabrúða. Sjónvarp kl. 21: Wagner — 5. þáttur Þættirnir um Wagner eru nú hálfnaðir. Fimmti þáttur af þeim 10, sem framleiddir voru, verður á skjánum í kvöld milli kl. 21 og 21.50. Það er Rich- ard Burton sem er í hlut- verki Wagners. rædu á kirkjudegi Bessastaðasókn- ar. Kirkjudagur BessastaÖasóknar HINN árlegi kirkjudagur Bessa- staðasóknar er í dag, sunnudag, og hefst með helgisamkomu í Bessa- staðakirkju kl. 14. Formaður sókn- arnefndar, Bjarni Guðmundsson, flytur ávarp og Haraldur Bessason, prófessor við Manitoba-háskóla, flytur ræðu sem hann nefnir „I fjarska við Bessastaði'*. Álftaneskórinn syngur við at- höfnina undir stjórn John Speights, söngvara og mun hann einnig syngja einsöng. Sóknar- presturinn séra Bragi Friðriksson, prófastur, annast altarisþjónustu. Að lokinni kirkjuathöfn verða kaffiveitingar seldar í Álftanes- skóla á vegum Kvenfélags Bessa- staðahrepps til ágóða fyrir líknar- sjóð byggðarinnar. (KrélUtilkynning.) Hafnarfjöröur: Kaffidagur Fríkirkju- safnaðarins ÁRLEGUR kaffidagur Fríkirkju- safnaðarins í Hafnarfirði verður haldinn í dag, sunnudag, f Góð- templarahúsinu í Hafnarfirði. Hefur kaffidagurinn verið árlegur viðburð- ur sl. 70 ár. Kvenfélagskonur sjá um kaffi- veitingar og hefjast þær strax að lokinni messu. Ágóða kaffidagsins verður að vanda varið til að bæta aðbúnað kirkjunnar, en við Fri- kirkjuna í Hafnarfirði hefur ný- lega verið byggt útskot fyrir snyrtingu, viðtalsherbergi og geymslur. Úr frétutilkynninpi. ^^Vskriftar- síminn er 83033 Í KANARÍSÓL MCDARNARTLLJOI Þetta er engin draumsýn. Svona gengur lífið fyrir sig á Barbacan Sol, gististaðnum einstaká sem Arnarflug býður farþegum sínum. Þar er allt á einum stað, - nýjar og fallegar íbúðir eða smáhýsi, tvaer frábærar sundlaugar með öllu, golf- og tennisvellir, verslunarmiðstöð, veitinga- staðir, barir, spilasalir og fleira - allt er fyrsta flokks. Stórkostlegur gististaður sem íslenskir Kanaríeyjafarar hafa lengi óskað sér, en fá nú fyrst að njóta. (slenskur fararstjóri. GISHNGIN GERIR GÆTLMIJMNN Þú vaknar að morgni og eftir hressandi steypibað og morgunverð skellirðu þér út í sólina á sundlaugarbarminum. Færð þér svalandi sundsprett annað slagið og undir hádegið tekurðu léttan tennisleik með ferðafélögunum. Eftir Ijúffengan hádegisverð á sundlaugarbarnum hallarðu sólstólnum þínum aftur og lætur þér líða vel í sólskininu. Seinnipartinn röltirðu svo kannski í verslunarmiðstöðina, eða ferð hring á golfvellinum, eða kíkir í spennandi bók og slakar á fyrir stórsteikina á veitingastaðnum. Og eftir kvöldverðinn . . . í fjörið á næturklúbbnum, eða rólegheit heima í glæsilegri íbúðinni... ( góðum sólarferðum gerir gistingin gæfumuninn. Viðburðarík Amsterdamdvöl í kaupbæti. VCRD tQÁ KR.22.6ft6 (miðað við 4 í 3 herb. íbúð). Brottför: Alla þriðjudaga. 10, 17 og 24 daga ferðir. Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting á lúxushótelinu Pulitzer í Amsterdam og íbúðagisting á Kanaríeyjum ásamt íslenskri fararstjórn. Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs eða ferðaskrifstofanria og fáið litmyndabækling með ítarlegum upplýsingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.