Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983 Fjölmiðlar, listir og fótamennt eftir Flosa Ólafsson Hér fer á eftir ræda, sem Flosi Ólafsson, leikari, flutti á ráðstefnu Bandalags íslenskra listamanna um „listir og fjölmiðla" í Norræna hús- inu 16. október sl. Hið kunna skáld og heimspek- ingur, Rainer Maria Rilke, segir einhvers staðar: „Ekkert er fjær því að komast í snertingu við listir en umsagnir um þær. Meira eða minna vel — eða illa heppnaður misskilningur er allt og sumt sem á slíku er hægt að græða." Nú hefur það, svona einsog fyrir slys, hent mig að fara að hugleiða það sem að mati Rilkes er fjærst því að komast í snertingu við list- ir, nefnilega „umfjöllun um listir í fjölmiðlum", og má því vænta þess að „meira eða minna vel, eða illa heppnaður misskilningur" verði afrakstur þ°ssara þankabrota og geta þá m<lr'"'ntr'>rvitar og list- vitringar mundað stílvopnin og leiðrétt missKiininginn á prenti, í fjölmiðlum eða á öldum ljósvak- ans. Ég hef lengi verið sama sinnis og kollega minn, skáldið og heim- spekingurinn Maria Rilke, hef lit- ið svo á, að umsagnir um listir kæmu listum harla lítið við og sjálfsagt geta margir fallist á það sjónarmið með mér, að góð list sé alveg einfær um að tala sínu máli. En hér þarf aðeins að staldra við. I því svonefnda „mannúðar- samfélagi", sem hér er sagt vera við lýði, er sú skoðun ofarlega á baugi að list sé mannbætandi og þess vegna sé æskilegt að gera hana að almenningseign, líkt og Sundlaug Vesturbæjar, svo allir geti þá væntanlega fengið að njóta hennar, gegn skynsamlegri þóknun og fara í heita pottinn guði og hinu góða til dýrðar. Allt er þetta að sjálfsögðu gott og blessað, nema bara það, að list- in kemur ekki til fólksins frekar en fjailið til Múhameðs. (Nú er ég kominn á hættulega hátíðlega braut.) Víst er að ólæs maður les ekki Litlu gulu hænuna, hvað þá Sturl- ungu. Ef gengið er út frá því sem vísu, að það sé af hinu góða, að sem flestir séu í stakk búnir að njóta fagurra lista, þá gæti það flökrað að manni, að fjölmiðlamönnum þætti það hluti af köllun sinni að hefja hana til nokkurs vegs, þó ekki væri nema með því að vekja einsog svolitla athygli á menning- arviðleitninni í landinu, líkt og gert er, þegar knattspyrna, lyft- ingar og pönk er annars vegar. Saklaust fólk gæti látið sér detta í hug að það væri fjölmiðlum kappsmál að hafa menningarlegan metnað, sem birtist þá væntan- lega í vitsmunalegri umfjöllun um það sem verið er að sýsla í hinum ýmsu listgreinum í landinu. Gefa kannski af og til örlitla leiðarlýs- ingu, til að auðvelda vegfarendum að nálgast fjallið, svo hinni hátíð- legu samiíkingu sé nú haldið til streitu. Það er ef til vill of mikið sagt, að allir íslenskir fjölmiðlar séu beinlínis menningarfjandsamleg- ir, en stundum get ég ekki varist því að undrast, hvað blöðin, út- varpið og sjónvarpið láta sig listir og menningarviðleitni litlu skipta og af hve litlum metnaði er fjallað um þessi mál. Stundum undrast maður satt að segja innviði blaða og efni sjón- varps og útvarps og manni verður á að hugsa sem svo: Á hvaða vitsmuna- og þroskastigi halda fjölmiðlamenn eiginlega að fólkið i landinu sé? Auðvitað er íslendingum gróf- lega misboðið með því að ætla þeim að hafa áhuga á því efni sem setur mestan svip á flesta fjöl- miðla í landinu og lýsir furðulegu vanmati á þá sem landið byggja. Það hefur meira að segja komið fyrir að fjölmiðlar hafa lagt í um- talsverðan tilkostnað og fyrirhöfn til þess eins — að því er virðist — að sýna íslendingum og sanna, að hér búi vanvitar einir. Og nú ætla ég að taka á mig svolítinn krók, máli mínu til stuðnings. Ef farið yrði vestur á Strandir, gengið í gripahús Strandamanna og búsmalinn í fjósum og fjárhús- um spurður, hvort bragðaðist bet- ur súrhey eða þurrhey, er næsta víst að kýr og kindur svöruðu ein- Flosi Ólafssoa „Auðvitað er íslending- um gróflega misboðið með því að ætla þeim að hafa áhuga á því efni sem setur mestan svip á flesta fjölmiðla í land- inu og lýsir furðulegu vanmati á þá sem landið byggja.“ um rómi súrhey, einfaldlega vegna þess að þurrhey hefur um langan aldur ekki verið á boðstólum sem skepnufóður á Ströndum vestur. Strandamenn verka sinn heyfeng í súr eins og það er kallað og skepn- urnar hafa, í háa herrans tíð, ekki fengið að kynnast öðru en súrheyi til að jórtra í íslenska svartnætt- inu. Ef menn afturámóti gerðu nú för sína vestur á Strandir með nokkra kapla af þurrheyi og gæfu skepnunum í eina viku ekkert ann- að en þurrhey, þá kæmi sannar- lega upp „nýr flötur á málinu", eins og sagt er í stjórnmálunum. Kúm og kindum hefði semsagt ekkert verið gefið í viku annað en þurrhey og eftir þessa sömu viku yrði svo efnt til skoðanakönnunar í gripahúsunum, um það hvað íbú- arnir hefðu étið umrædda viku. Auðvitað stæði ekki á svarinu hjá ferfætlingunum. Allir svöruðu einum rómi þurrhey, einfaldlega vegna þess að ekki hafði verið boð- ið uppá neitt nema þurrhey þá vikuna. Það var einmitt svona skoðana- könnun, sem Ríkisútvarpið efndi til í vor. Hópi sjónvarps- og útvarpsneyt- enda var gefinn kostur á því að svara því bréflega, hvað af „and- legu vikufóðri" sjónvarpsins — vikuna 2. maí til 8. maí — þeir hefðu meðtekið. Nú skal það hér tíundað, hvað sjónvarpið bauð uppá þessa um- ræddu viku: Mánudaginn 2. maí. Fréttaágrip á táknmáli — Fréttir og veður. Auglýsingar og dagskrá — Tommi og Jenni — íþróttir — Já, ráðherra — Erlent sjónvarpsleikrit. Þriðjudaginn 3. maí. Fréttir á táknmáli — Fréttir og veður — Auglýsingar og dagskrá — Bresk barnamynd — Derrick — Áströlsk fræðslumynd. Miðvikudagurinn 4. maí. Fréttir á táknmáli — Fréttir og veður — Auglýsingar og dagskrá — Bresk dýralífsmynd — Dallas — íslensk fræðslumynd. Föstudagurinn 5. maí. Fréttir á táknmáli — Fréttir og veður — Auglýsingar og dagskrá — Á döfinni — Prúðuleikararnir — Umræðuþáttur — Sænsk bíó- mynd. Laugardagurinn 7. maí. Iþróttir — Enska knattspyrnan — Fréttaágrip á táknmáli — Fréttir og veður — Auglýsingar og dagskrá — Þriggja manna vist — Bíómynd og endursýnd bíómynd. Sunnudaginn 8. maí. Hugvekja — Norræn barna- mynd — Bresk brúðumynd — önn- ur bresk brúðumynd — Frönsk teiknimynd — Fréttaágrip á táknmáli — Fréttir og veður — Auglýsingar og dagskrá — Sjón- varp næstu viku — Mynd um Nínu Tryggvadóttur — Ættaróðalið. Þetta var semsagt vikufóðurgjöf sjónvarpsins frá 2. maí til 8. maí og það fóður, sem kom til umsagn- ar þeirra, sem beðnir höfðu verið að horfa á sjónvarpið þá vikuna. Og niðurstöðurnar létu ekki á sér standa. Flestir höfðu horft á það sem sjónvarpið hafði uppá að bjóða framangreinda viku, og flestir af þeim flestu höfðu horft á „Dallas" og „Tomma og Jenna“. Þessar dæmalausu niðurstöður voru svo kynntar öllum fjölmiðl- um rækilega og því síðan slegið upp með heimsstyrjaldar fyrir- sögnum í öllum blöðum, að af öllu sjónvarpsefni væri það „Dallas" og „Tommi og Jenni", sem íslenska þjóðin væri sólgnust í að horfa á. Það virtist einhvern veginn gleymast í fagnaðarlátunum að ósköp lítið annað hafði verið boðið uppá þessa margumræddu fyrstu viku í maí. Já, blöðin voru sannarlega ólöt að parkera landslýð á þetta skræl- ingjaplan, en sjónvarpið brást hart við og pantaði 26 nýja þætti af „Dallas" og hafa okkur þá bor- ist á annað hundrað þættir af þeirri dramatík. Hvernig sem á því stendur, virt- ist mun hljóðara um annan þátt hlustendakönnunar Ríkisútvarps- ins og hafa niðurstöðurnar úr þeim hluta könnunarinnar líklega ekki þótt jafn glæsilegur frétta- matur eins og tilreidd ást þjóðar- innar á „Dallas". Spurt var: „Á hvers konar efni horfir þú?“ Og nú komu svör, sem fjölmiðl- ar hafa, einhverra hluta vegna, ekki kosið að hafa hátt um, svör, sem gefa það til kynna að áhorf- endum hefur ranglega verið ætlað það að vera hálfbjánar, svör, sem almenningur krefst að tekin verði til greina af sjónvarpinu, eins og fyrirheit hafa verið gefin um, svör sem sýna það svart á hvítu, að sjónvarpinu er ekki lengur stætt á því að vanrækja þá skyldu sína að framleiða íslenskt efni, svör sem sýna að sjónvarpið hefur misboðið fólki stórlega með endalausri kassettu-afspilun á alls konar furðulegri afþreyingu, dulbúnum hljómplötuauglýsingum og er- lendri fótamennt. „Á hvers konar efni horfir þú?“ var spurt. Og nú koma svörin. Takið vel eftir. Tuttugu og fimm efnisliðir eru Héraðsfundur Reykja- víkurprófastsdæmis HÉRAÐSFUNDUR Reykjavíkur prófastsdæmis verður haldin í Nes- kirkju í dag, sunnudag, kl. 16.00. Slíka fundi sækja samkvæmt lögum sóknarprestar og safnaðar- fulltrúar, en hin síðari ár hefur sú hefð skapast, að auk þeirra koma formenn sóknarnefndar á héraðs- fund og einnig aðrir úr sóknar- nefnd og annað áhugafólk. Á hér- Póstur og sítni og Intelsat HLUTI niðurlagssetningar í frétt um beinar sjónvarpssendingar enskra knattspyrnuleikja í vetur á baksíðu Mbl. miðvikudaginn 19. október sl. brengiaðist. Þar var haft eftir Gústavi Arn- ar, yfirverkfræðingi Pósts og síma, að gjald fyrir beinar útsend- ingar rynni til Pósts og síma hér og þeirra aðila erlendis, sem tækju upp efni og sendu það í gervi- hnöttinn. Rétt er setningin svona: „Hann gat þess, að Mikla norræna ritsímafélagið fengi engan hlut þess gjalds, það rynni til Pósts og síma hér og Intelsat. Sjónvarpið borgar síðan Visnews-fréttastof- unni sérstaklega fyrir að taka upp efnið og senda upp í gervihnött- inn.“ Þetta leiðréttist hér með og er beðist velvirðingar á villunni. aðsfundum er rætt um málefni prófastsdæmisins með skýrslum prófasts og fulltrúa safnaðanna og annarra kjörinna fulltrúa í nefnd og ráð, reikningar eru lagðir fram og almennar umræður eiga sér stað. En á þennan fund koma einnig nýkjörnir fulltrúar Reykja- víkurborgar í samvinnunefnd borgar og prófastsdæmis, þeir Markús Örn Antonsson, forseti borgarstjórnar, og Sigurður E. Guðmundsson, borgarfulltrúi, en héraðsfundur mun kjósa tvo menn í nefndina fyrir sitt leyti. Þá verð- ur lagt fram endurskoðuð tillaga skipulagsnefndar og hún afgreidd. Sérstakur liður héraðsfundar að þessu sinni verður erindi dr. Gunnars Kristjánssonar, sem fjallar um Martein Lúther á þessu 500 ára afmælisári siðbótar- mannsins. (Jr fréttatilkynningu. Hlutavelta í Hafnarfirði HLUTAVELTA verður haldin í dag, sunnudag, í anddyri Víði- staðaskóla og hefst hún kl. 14. Ágóðinn mun renna til þroska- heftra. Meðal hluta á hlutavelt- unni verða munir sem Karmel- systur í Karmelklaustri gáfu i vetur. Tröllaleik- ir í Iðnó Leikbrúðuland sýnir Tröllaleiki í Iðnó í dag, sunnudag, kl. 15. Þetta eru fjórir einþáttungar, Ástarsaga úr fjöllunum, Búkolla, Eggið og Risinn draumlyndi. I sýningunni kennir margra grasa í brúðugerð og tækni. Þær Helga Steffensen, Hallveig Thorl- acius og Bryndís Gunnarsdóttir standa að sýningunni. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Myndin er af risanum draumlynda, sem leikur sér með strengjabrúðu. íslenzka hljómsveitin: Sala áskriftarkorta er til 28. október í FRETT Mbl. á fóstudag af fyrstu áskriftartónleikum íslenzku hljóm- sveitarinnar féll niður hluti setn- ingar svo að merking gjörbreyttist. Hér á eftir birtist niðurlag fréttar- innar í heild: Nú stendur yfir söfnun áskrif- enda, en alls verða 400 áskriftar- kort seld og er við það miðað að þau seljist öll fyrir upphaf starfs- árs. Því gefst ekki kostur á miðum í lausasölu. Umsóknir um áskrift þurfa að hafa borist skrifstofu hljómsveitarinnar, að Fríkirkju- vegi 11, fyrir 28. október, annað hvort bréfleiðis, eða símleiðis. Að- göngumiðar á fyrstu tónleikana verða afhentir á skrifstofu hljómsveitarinnar 1.—5. nóvem- ber. Áskriftargjald eru kr. 1.600 sem greiða má í tvennu lagi, fyrir 5. nóvember og fyrir 10. desember. Þeir sem kjósa að stykja hljóm- sveitina sérstaklega geta gerst styrktarfélagar, en þeir greiða kr. 2.400 fyrir áskrift, sem greiða má með sama hætti. Blaðið biðst velvirðingar á þess- um mistökum. Garðabær: Aðalfundur Norræna félagsins NORRÆNA félagið í Garðabæ held- ur aðalfund sinn á þriöjudagskvöld- ið í félagsmiðstöðinni Garðalundi. I frétt frá félaginu segir, að auk venjulegra aðalfundarstarfa muni drengir úr tónlistarskólanum í Garðabæ spila og Hjálmar Ólafs- son formaður Norræna félagsins á Islandi koma í heimsókn. p H § Metsölublcid á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.