Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 35 Búi Þorvaldsson — Minningarorð Fæddur 20. október 1902. Dáinn 20. október 1983. Vel er nú unnið, verki lokið, dimm er risin nótt úr dauðans ægi. Gakk nú góður þjónn til Guðs dyra umbun að fá og eftirlæti. Þú vannst með dyggð og vilja hreinum þitt verk um langan ævidag. M. Joch. f dag fer fram í Dómkirkjunni útför Búa Þorvaldssonar, er and- aðist hér í sjúkrahúsi á 81. afmæl- isdegi sínum eftir skamma sjúkra- húsvist. Á Iangri ævi mátti hann hrósa hreysti og heilsan góðri, þó að ellimörk settu svip sinn á hann tvö síðustu æviárin. Leiðir okkar Búa lágu fyrst saman í Flensborgarskóla vetur- inn 1921—22. Hann settist þar í þriðja bekk, er foreldrar hans fluttust til Hafnarfjarðar og sr. Þorvaldur, faðir hans, varð kenn- ari við skólann. Búi var hóglátur piltur, allt að því hlédrægur og tók ekki mikinn þátt í félagslífi skól- ans. En hann naut trausts og virð- ingar bekkjarsystkina sinna. öll- um var þeim ljóst, að hann var enginn veifiskati. Viljasterkur var hann og fór sínar leiðir án tillits til þess, hvort öðrum líkaði betur eða verr. í þröngum hópi var hann gam- ansamur, jafnvel smáglettinn og snjall í tilsvörum. Námsmaður var hann í betra lagi, en stærðfræði og sagnfræði stóðu huga hans næst, ef eg man rétt. Að loknu burtfararprófi dreifð- ust bekkjarsystkinin víðs vegar innan lands og jafnvel utan lands. Einn bekkjarbróðirinn settist að I Argentínu og kvæntist þarlendri konu. Leiðir okkar Búa skildust og lágu ekki saman fyrr en á fimmta áratugnum, er hann hafði sest að í höfuðstaðnum. Séra Þorvaldur, sem var í hárri elli, bjó hjá honum og tengdadóttur við gott atlæti. Oft var þá gestkvæmt á heimilinu, risna góð og vinum að mæta. Sóknarbörn sr. Þorvalds að vestan og gamlir nemendur hans voru oft á ferðinni. Eftir að eg flutti til borgarinnar, bar fundum okkar Búa saman við og við, mat eg hann alltaf mikils fyrir mannkosti hans og tryggð. Búi Þorvaldsson var fæddur i Sauðlauksdal 20. október 1902, sonur prestshjónanna þar, séra Þorvalds Jakobssonar og konu hans, Magdalenu Jónasdóttur Heimilið var í senn rausnar-, mennta- og menningarheimili, þar sem margur naut fræðslu klerks- ins, sem var mikill lærdómsmaður og frábær. fræðari, auk þess sem hann var kunnur kennimaður. Prestshjónin eignuðust sex börn, sem upp komust. Tvær syst- ur eru á lífi, Arndís, kaupkona, og Þuríður, skólahjúkrunarkona, en dáin eru: Finnbogi Rútur, prófess- or, faðir Vigdísar forseta, Guðný, ritari borgarstjóra, Jórunn, handavinnukennari, og Búi, sem við kveðjum í dag, en hann var yngstur þessara merku systkina. Búi naut uppeldis eins og bezt verður á kosið í Sauðlauksdal. Hann fluttist til Hafnarfjarðar nítján ára gamall og átti þar heima um langt skeið. Að loknu prófi vann hann að vetri til við verslun Einars Þor- gilssonar, en stundaði sjó á sumr- um, einkum síldveiðar. En þar kom, að hann vildi leita sér frekari menntunar. Haustið 1926 fór Búi til Reykjavíkur og bjó sig undir frekara nám. Trausti Ólafsson var þá forstöðumaður Rannsóknastofu ríkisins og gaf honum leyfi til þess að sækja fyrirlestra í efnafræði í Háskólan- um, og gerlafræði las hann og vann undir leiðsögn Gísla Guð- mundssonar, gerlafræðings, á rannsóknastofu. Vorið 1928 hleypti hann heim- draganum og hóf nám við Lade- lunds Mejerihojskole, skammt frá Askov á Jótlandi. En sá skóli var í miklu áliti. Á sumrum starfaði Búi í mjólkurbúum víðsvegar um Danmörku og fór námsferð til Hollands. Eftir þriggja ára nám útskrifaðist hann frá skólanum. Á leiðinni heim til íslands kynnti hann sér mjólkuriðnað í Noregi og Svíþjóð. Búi er kominn heim, og hefst nú hið fjölþætta lífsstarf hans við mikla önn alla tíð. Hann verður mjólkurbústjóri við Mjólkurbú Ölfusinga í Hveragerði og gegnir því starfi í sex ár. Mjólkurbúið var reist sem tilraunabú og fyrsta sinnar tegundar, sem rekið var með hverahita. Árin, sem Búi starfaði þar, voru sannkölluð kreppuár, og við ramraan reip að draga um allan rekstur og reyndi mjög á dugnað og hagkvæmni hins unga manns. Allhörð átök urðu um búið og fór svo að lokum, að Búi hvarf frá stofnuninni sem minnihlutamaður í þeim átökum, þótt hann væri best menntaði mjólkurfræðingur landsins. En Búi var manna síst fallinn til þess að falla frá fastmótuðum skoðun- um sínum og selja sannfæringu sína. Og nú var hann atvinnulaus. Vorið eftir að hann flytur frá Hveragerði, ræðst hann til hf. Lýsis og starfar þar við vélgæzlu og efnarannsóknir. Á sumrin er hann hjá Síldarverksmiðjunni á Djúpuvík og fæst við ýmiss konar rannsóknir. Þar þótti honum gott að vera og rann oft seinna til rifja niðurlæging staðarins eftir að hafa orðið vottur að henni við komu þangað. Víðar var gripið til hendinni. Hann var starfsmaður Dósaverksmiðjunnar hf. og Smjörlíkis- og sælgætisverksmiðj- unnar Svanur-Víkingur nokkurn tíma. Frá 1963 var Búi samstarfsmað- ur Arndísar systur sinnar við Um- boð Happdrættis Háskóla íslands, sem hafði vaxið mikið á undan- förnum árum. Þar starfaði hann til 79 ára aldurs, er þau slepptu umboðinu. Öll þessi mörgu starfsár fylgd- ist hann af áhuga með mjólkur- og landbúnaðarmálum þjóðarinnar, og ferðaðist eitt sinn um fornar stöðvar í Danmörku ásamt eigin- konu sinni, gisti Ladelund og gladdist yfir breytingum, sem orð- ið höfðu til framfara í dönskum mjólkuriðnaði. Töluverðan þátt tók Búi í félags- málum. Um skeið átti hann t.d sæti í stjórn Iðju. Vakandi áhuga hafði hann á þjóðmálum og vann nokkuð að félagsstörfum innan Sjálfstæðisflokksins. Hann lét séi mjög annt um kristni og kirkju. Sótti hann bezt sóknarkirkju sína, Dómkirkjuna, og var starfandi I Bræðrafélagi ■ hennar. Hann las fjölda bóka, m.a. kristilegs efnis, og dáði manna mest danska prest- inn Skovgaard-Pedersen, sótti fyrirlestra hans á Danmerkurár- um sínum og hlýddi oft á fyrir- lestra við lýðskólann í Askov, einkum þá er snertu kirkju og kristindóm. Hann unni KFUM og K og vildi veg þeirra sem mestan og studdi ásamt konu sinni þátt- töku barna sinna f kristilegu starfi. 9. janúar 1932 var mikill ham- ingjudagur 1 lífi Búa Þorvaldsson- ar. En þann dag gekk hann að eiga unnustu sína, Jónu Erlendsdóttur frá Hvallátrum í Rauðasands- hreppi, dóttur Erlends Kristjáns- sonar bónda þar og vitavarðar, og konu hans, Steinunnar Ó. Thorlac- íus, frá Dufansdal í Arnarfirði. Frú Jóna lifir mann sinn. Það mun einróma álit allra kunnugra, að hún sé fyrirmyndarkona, í senn mikil móðir, ástrik eiginkona, hagsýn og dugandi húsfreyja, gædd góðum gáfum og kærleiks- lund. Á hjónaband hennar og Búa brá aldrei minnsta skugga. Þau stóðu fast hlið við hlið og studdu hvort annað eins og bezt verður á kosið. Og þess þurfti við til að sjá fyrir stóru heimili og mennta prýðilega gefin börn þeirra. En börnin eru: Sr. Kristján, dós- ent við guðfræðideild Háskóla ís- lands, giftur Erlu G. Guðjóns- dóttur, ritara; Magdalena Jórunn, hjúkrunarfræðingur, gift Hösk- uldi Baldurssyni, lækni; Erlendur Steinar, vélstjóri, giftur Hólmfríði Pétursdóttur, húsmæðrakennara; Þorvaldur, eðlisfræðingur, giftur Kristínu A. Norðfjörð, lögfræðingi og kennara; Þórður ólafur, verk- fræðingur, giftur Hildi Björgu Guðlaugsdóttur, flugfreyju. Barnabörnin eru 15 og barna- barnabörnin 2. Þrátt fyrir langan og strangan vinnudag gaf Búi sér ávallt tíma til að vera með börnum sínum og ræða við þau og þá einkum það, er varðaði sögu og þjóðlegan fróðleik. Meðan þau voru enn ung, las hann oft fyrir þau og talaði um merka menn frá liðnum öldum, skapgerð þeirra, iðju og örlög og miðlaði börnum sínum af þekkingu sinni og lífsreynslu. Hann fékkst nokkuð við fræði- störf, en tímaskortur hindraði hann að sinna þeim svo sem hann hefði óskað. Til er í handriti hans örnefnaskrá Sauðlauksdals og nákvæm lýsing á staðnum. Mörgum þótti gott að leita til Búa, ef þeir rötuðu í vanda um eitt eða annað. Hann var einkar ráð- svinnur og mannvinur og honum var ljúft að greiða götu annarra. Fyrir samverustundir með honum ber margur þökk í hjarta til hans og saknar nú vinar í stað. Þegar ég lít yfir ævitíð hans, sýnist mér hann hafa verið stakur gæfumaður. Hann var giftur val- kvendi, bjó við fágætt barnalán, var öðrum traustur samferðamað- ur, sem vísaði veginn til góðs með hógværð og viturlegum ráðum. Margir munu þeir vera, auk ást- vinanna, sem hafa svo mikils misst, er minnast hans í hljóðri þökk. Sá, er þessar línur ritar, þakkar honum sex áratuga vináttu og tryggð. sem aldrei féll minnsti skuggi á. Og er ég horfi á eftir Búa inn í fylkinguna hljóðu, koma mér í hug orð skátdsins: Svo verður dyggum hvíldin hýr, sem heim með sæmd frá verki snýr. Sigurjón Guðjónsson. Zillertal í Austurríki er meðal þekktustu skíðasvæða í Evrópu. Þar eru bæirnir Mayrhofen og Finkenberg, áfangastaðir Flugleiða í vetur. Skíðaaðstaðan þarna er frábær og hentar öllum. Skammt frá er hinn tignarlegi Hintertux-jökull, þarer annaðaf tveimurbestuskíðasvæðum Evrópu. Skíðalandslið Austurríkis, Islands og Noregs hafa verið þar við æfingar. Fararstjóri í skíðaferð- unum verður Rudi Knapp, fæddur og uppalinn í Tíról. Hann er kunnur sklðakennari og talar ágæta íslensku. Fjöldi lyfta sjá um að flytja þig í þína óskabrekku, bratta eða aflíðandi, í troðna slóð eða lausamjöll. Að loknum góðum degi á skíðum er gott að láta líða úr sér á einhverju veitingahúsinu, í sundi eða sauna. I skíðaferð safna menn kröftum og koma endurnærðir heim. Dæmi um verð: Finkenberg: Sporthotel Stock, frá kr 25.531.- Verð miðað við gist ingu pr/mann í 2 manna herbergi. Hálft fæði. Ibúðir. Verð frá kr. 19.744.- pr/mann. Miðað við 4 f íbúð. Mayrhofen: Café Traudl, verð kr.22.619.-Verðið er miðað við gist- ingu pr/mann f 2 manna herbergi. Hálft fæöi Ef þú hefur áhuga á að fá frekari upplýsingar um skíðaferðirnar í vetur skaltu hafa samband við einhverja söluskrifstofu Flugleiða, umboðsmann eða ferðaskrifstofu. FLUGLEIDIR Gott fólkhjá traustu fétagi Verðútreikningar miðaðir við gengi 30.10. 1983.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.