Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 40
HOLUWOOD Opiö öll kvöld ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Skemmdar- verk unnin í sendiráð- inu í London BKOTIST var inn í sendiráð íslands í London sl. föstudagskvöld og brotnar þar allmargar rúður. Lögreglan var kvödd á staðinn og handsamaði gjörningsmanninn, sem nú situr í gæsluvarðhaldi þar í borg. Talið er að hann sé ekki fullkomlega heill á geðsmunum. Einar Benediktsson, sendiherra í London, sagði í símtali við bim. Morgunblaðsins I gær, að það hefði verið um kl. 20 á föstudagskvöldið, eftir að allt starfslið var farið heim, að maður þessi braut rúðu á jarðhæð sendiráðsins og komst þannig inn í húsið. Tók hann til við að mölva rúður innan frá á skrif- stofum starfsmanna sendiráðsins. Húsvörður, sem búsettur er í bygg- ingunni, varð var við hamaganginn og lét hann lögregluna þegar vita. Tókst húsverðinum, eiginkonu hans og gesti þeirra, síðan að haida manninum inni á einni skrifstof- unni þar til lögreglan kom á vett- vang. Einar Benediktsson, sendiherra, kom einnig mjög fljótlega á vett- vang og fékk hann þegar í stað iðn- aðarmenn til að skipta um gler. Það er nokkuð tafsamt verk, því sendiráðið er í gömlu húsi og rúður litlar. Var verkinu lokið í gær. Skemmdarvarginum hafði í sum- ar verið neitað um landvist á ís- landi. Hafði hann áður komið í sendiráðið og borið upp erindi sitt. Þaðan var það sent venjulega boð- leið heim tii íslands, en hann mun ekki hafa verið ánægður með af- greiðslu málsins. Hann er Englend- ingur, sem á barn á íslandi. Vestmannaeyjar: Lóðsinn sigldi í síðu Smáeyjar Vestmannaeyjum, 14. nóvember. ÞAÐ ÓHAi’P vildi til hér í höfninni um miðjan dag á sunnudag, að Lóðs- inn sigldi á mikilli ferð inn í síðuna á Smáey VE. Áreksturinn var töluvert harkalegur og skemmdist síða Smá- eyjar allmikið á um sex metra löngum kafla. Lóðsinn hafði verið fenginn til að ýta Smáey að bryggju og var vél skipsins ekki í gangi. Af einhverj- um orsökum, enn óskiljanlegum, kom Lóðsinn á fullri ferð að Smáey og skall á miðri síðu skipsins með áðurgreindum afleiðingum. Viðgerð á Smáey mun fara fram hjá Skipa- lyftunni og er Ijóst að skipið verður um nokkurn tíma frá veiðum vegna þessa óhapps. Engin slys urðu á mönnum í árekstrinum og ekkert sér á Lóðsinum, enda er hann vel varinn fyrir skakkaföllum af þessu fafíi — hkj. Myndin, sem tekin var um borð í varðskipinu Óðni, sýnir hluta af því braki, sem fundist hafði úr þyrlunni. Menn frá Landhelgisgæslu og rannsóknarnefnd flugslysa vinna við rannsóknina. Morgunblaðíð/ Friðþjðfur. Þyrlan koniin upp á tuttugu metra dvpi TF-RÁN, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, var dregin í gær upp á 20 metra dýpi og unnu kafarar þar við að koma öruggum festingum á hana, áður en þyrlan yrði dregin á minna dýpi, þar sem reynt verður að ná henni upp á yfirborðið. Áður hafði tekist að koma vír- um í bæði hjól þyrlunnar, þar sem hún lá á rúmlega 80 metra dýpi og laust eftir hádegið í gær var hafist handa við að hífa hana upp. Skömmu fyrir klukk- an sjö í gærkvöldi var þyrlan komin á 20 metra dýpi og þá hóf 6—7 manna kafarasveit störf við hana. Kl. 22.20 fundu kafarar lík tveggja manna i þyrlunni, Þór- halls Karlssonar, flugstjóra og Bjarna Jóhannessonar, flugvél- stjóra. Lík hinna mannanna tveggja, Björns Jónssonar, flug- stjóra og Sigurjóns Inga Sigur- jónssonar, stýrimanns, voru ekki um borð í þyrlunni. Ætlunin er að fá flutninga- skipið Oskju, sem var á leið frá Patreksfirði til Bíldudals, til þess að ná þyrlunni upp á yfir- borðið í dag. Varðskipið Óðinn og vélbátur- inn Siggi Sveins frá ísafirði unnu við björgunaraðgerðirnar í gær. Geir Hallgrfmsson, utanríkisráðherra á alþingi: Eldflaugar á Islandi aldrei komið á dagskrá „ÉG IIKLI) að það sé alveg nauð- synlegt að við gerum okkur grein fyrir því að hér er um að ræða mál, sem aldrei hefur komið á dagskrá hjá íslenskum stjórnvöldum, að hér yrði komið fyrir eldflaugum, land- fdstum eldflaugum, hvorki með kjarnaoddum né án kjarnaodda," sagði Geir Hallgrímsson, utanríkis- ráðherra, í umræðum utan dagskrár á alþingi í gær. Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, hóf umræðurn- ar í tilefni af frétt ögmundar Jón- assonar í sjónvarpinu á sunnu- dagskvöld, þar sem hann vitnaði til bandarískrar skýrslu, en í henni er rætt um það, hvernig nýta megi landfastar stýriflaugar til árása á skip. Um skýrsluna sagði Geir Hallgrímsson meðal annars: „Sendiherra Bandaríkj- anna hefur tjáð ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, að það væru margir tugir eða hundruð slíkra skýrslna á ferðinni, m.a. í skrifstofum í Pentagon, sem ekkert væri gert með í raun og veru og þessi skýrsla væri algerlega marklaus." Fyrsta þota Islend- inga seld úr landi Gamli Gullfaxi seldur bandarísku flugfélagi Eldflaugar þær sem hér um ræðir eða stýriflaugar eru ekki búnar kjarnaoddum og yrðu not- aðar, ef þær yrðu smíðaðar, til varnar gegn herskipum. Eldflaug- ar af þessari gerð drægju 250 sjó- mílur og í bandarísku skýrslunni, sem unnin er af einkaaðila en gef- in út af deild í bandaríska varn- FLIJGLEIÐIR hafa gengið frá samningi um sölu á annarri Boeing 727- 100 þotu sinni, TF-FLH, sem er gamli Gullfaxi, elzta farþcgaþota Islend- inga, að sögn Björns Theódórssonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Flugleiða, sem sagði að þotan hefði komið hingað til lands 1967, þá ný. Kaupandi er bandaríska flug- félagið Orion og kaupverð vélar- innar er liðlega 3 milljónir doll- ara, sem svarar til tæplega 85 milljóna íslenzkra króna. Björn sagði Flugleiðamenn vera ánægða með þetta verð, sem væri með því hærra sem fengist fyrir vélar af þessu tagi. Það kom ennfremur fram hjá Birni, að Flugleiðir myndu taka vélina á leigu til eins árs af hin- um nýja eiganda, en hún verður eftir sem áður notuð í leiguverk- efni félagsins í Nígeríu. Björn sagði aðspurður, að vél- in væri um þessar mundir að koma úr stórskoðun hér á landi, en myndi fara beint til Nígeríu á næstu dögum, en þar er hún að- allega í flugi milli Kano og Lag- os. armálaráðuneytinu, er vakið máls á því að slíkar stýriflaugar kynnu að koma að notum við þrengsli á höfum úti eins og til að mynda í GIUK-hliðinu svonefnda eða á svæðinu frá Grænlandi um ísland til Skotlands. Sjá þingsíðu bls. 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.