Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG BÓKASKRÁ STOFNAÐ 1913 284. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ósló: „Ég er bara móðir barnanna minna“ Danuta Walesa tekur í dag við friðarverð- launum Nóbels fyrir hönd manns síns Ósló, Varsjá, 9.desember. AP. DANUTA Walesa, eiginkona Lech Walesa, kom til Óslóar í dag en þar mun hún veita viötöku fyrir hönd manns síns friðarverdlaunum Nób- els fyrir árið 1983. Á blaöamanna- fundi eftir komuna kvaöst Danuta hafa lítinn áhuga á pólitík. „Ég er Noregur: Gikkóð kanína Ósló, 9. de.sember. Frá fréttaritara Mbl., Jan-Krik Laure. ÞAÐ fór heldur illa fyrir Norö- manni nokkrum þegar hann ætl- aði að verða sér úti um kanínu í matinn. í stað þess, að það væri hann, sem sendi kanínuna yfir móðuna miklu, munaði minnstu að kanínan, sendi hann inn í ei- lífðina. Hún skaut hann nefnilega í höndina. Kanínuna hafði karlinn í búri og ætlaði að skjóta hana með skammbyssu. Kanínan virtist hins vegar finna á sér hvað til stóð því að hún trylltist í hönd- unum á karlinum og náði að koma öðrum framfætinum á gikkinn og hleypa af. Skotið lenti í hendinni og varð karlinn að gangast undir allmikla að- gerð á sjúkrahúsi. Eftir því sem best er vitað lifir kanínan enn en ekki er ólíklegt, að karlinn hugsi henni þegjandi þörfina. bara móðir barnanna minna," sagði hún. I fylgd með Danutu var elsti sonur þeirra hjóna, Bogdan, 13 ára að aldri, en börnin eru alls sjö. Við komuna til Óslóar var þeim mæðginunum vel fagnað en til hálfgerðra vandræða kom í flug- vélinni á leið frá Kaupmannahöfn til Óslóar. Þar fylltist hún af fréttamönnum og voru þeir svo aðgangsharðir við Danutu á leið- inni, að flugstjórinn hótaði að láta handtaka þá við komuna til Óslóar. Létu þeir sér þá segjast. Á blaðamannafundi í Ósló voru fréttamenn beðnir að spyrja ekki pólitískra spurninga en gerðu það samt og svaraði þá Danuta og sagði, að á pólitíkinni hefði hún lítinn áhuga, hún væri: „bara móð- ir barnanna minna“. Lech Walesa kvaddi konu sína í dag á flugvellinum í Varsjá og höfðu nokkur hundruð manna safnast þar saman. Var lögreglan með mikinn viðbúnað við flugvöll- inn, lokaði nærliggjandi götum og óeirðalögreglumenn hvarvetna á verði. „Af svona öryggisgæslu mætti forsetinn vera hreykinn," sagði Lech Walesa við fréttamenn. Þegar hann var spurður hvar hann ætlaði að vera um miðjan dag á morgun þegar kona hans tekur við verðlaunafénu, um fimm og hálfri milljón ísl. kr., sagðist Walesa helst vilja vera í Osló. „Hins vegar veit ég ekki hvar ég verð eftir fimm mínútur, hvað þá á morgun," sagði Walesa og benti á hermennina gráa fyrir járnum. Metgengi á dollar London, 9. deseraber. AP. GENGI Bandaríkjadollars var í dag hærra en það hefur áður verið gagn- vart breska pundinu, franska frank- anum og ítölsku lírunni. Stafar geng- ishækkunin af þeirri yfirlýsingu Donald T. Regans, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, að vextir muni áfram verða háir vestra. Gullverð hefur lækkað. Dollarinn hefur verið að sækja í sig veðrið í allt haust eftir því sem viðreisn efnahagslífsins hefur gengið betur og vextir hafa verið stöðugir. Á blaðamannafundi í London í dag með Thatcher, for- sætisráðherra Breta, sagði Regan, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, að vextir yrðu óbreyttir fram á mitt næsta ár a.m.k. Thatcher er mjög óánægð með vaxtastefnu Bandaríkjastjórnar og segir hana „ákaflega slæma“ fyrir Evrópu- þjóðirnar. Lech Walesa kvaddi í gær konu sína og son á flugvellinum í Varsjá þegar þau héldu til Oslóar þar sem Danuta mun taka við friðarverðlaunum Nóbels fyrir hönd manns síns. Sjálfur vildi Walesa ekki hætta á ferðina af ótta við að fá ekki að koma aftur til landsins. \|> Utanríkisráðherrafundi NATO-ríkja lokið: Skora á Rússa að taka upp samninga Carrington lávarður útnefndur eftirmaður Joseph Luns, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins Bríissel, 9. deseraber. AP. Utanríkisráðherrafundi Atlants- hafsbandalagsins lauk í dag í Briiss- el og var starf og stefna banda- lagsins aðalumræðuefnið. Skoruðu ráðherrarnir á Sovétmenn að taka upp aftur samninga um meðaldræg- ar eldflaugar í Evrópu og ítrekuðu, að staðið yrði við eldflaugaáætlun NATO-ríkjanna. Carrington lávarð- ur, fyrrum utanríkisráðherra Breta, hefur verið útnefndur eftirmaður Joseph Luns sem framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Lætur Luns af embætti á sumri komanda. Ráðist á menn Arafats af sjó Tripoli, 9. desember. AP. ÍSRAELAR réðust í dag á stöðvar Palestínumanna í Tripoli, liðsmanna Arafats, og skutu á þær frá fallbyssu- bátum úti fyrir borginni. Að sögn ísraela var árásin gerð til að koma í veg fyrir hryðjuverk á borð við það, sem unnið var í Jerú- salem sl. þriðjudag þegar sprengja sprakk í strætisvagni með þeim af- leiðingum, að fjórir farþeganna fórust og 46 slösuðust. Hafa Pal- estínumenn trúir Arafat lýst verkinu á hendur sér. Unnið er nú af fullum krafti að brottför liðs- manna Arafats frá Tripoli. Palestínskir skæruliðar, trúir Yasser Arafat, bíða þess nú að vera fluttir frá Tripoli til Túnis og Norður-Jemen. Biðina nota þeir til að birgja sig upp af alls kyns varningi, sem fá má í verslunum Tripoli-borgar. AP Við lok utanríkisráðherrafund- arins sagði George P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að aðildarþjóðir Atlantshafs- bandalagsins vildu setjast að samningaborðinu með Sovét- mönnum hvenær og hvar sem væri og skoraði hann á leiðtoga þeirra að bregðast vel við. Shultz lagði hins vegar áherslu á, að staðið yrði við fyrri áætlanir um að koma fyrir meðaldrægum eld- flaugum í Vestur-Evrópu og í sér- stakri „Brússelyfirlýsingu“, sem fundurinn lét frá sér fara, segir: „Við erum ákveðnir í tryggja ör- yggi þjóðanna með því að viðhalda vígbúnaðarjafnvæginu og gæta þess um leið að vígbúnaðurinn sé eins lítill og unnt er.“ Utanríkisráðherrar Dana, Grikkja og Spánverja tóku ekki undir samþykktir fundarins um meðaldrægu eldflaugarnar en voru sammála starfsbræðrum sín- um um að skora á Sovétmenn að halda áfram samningaviðræðum. Ráðherrarnir voru heldur svart- sýnir á samningsvilja Sovétmanna en sir Geoffrey Howe, utanríkis- ráðherra Breta, spáði því þó, að þeim snerist hugur snemma á næsta ári. Carrington lávarður, fyrrum utanríkisráðherra Breta, var í dag einróma útnefndur eftirmaður Joseph Luns, framkvæmdastjóra NATO, sem mun láta af því emb- ætti 25. júní á næsta ári. Luns hef- ur gegnt embættinu t 12 ár en áð- ur var hann utanríkisráðherra Hollands um nærri tveggja ára- tuga skeið. Carrington hefur farið með ráðherraembætti í nokkrum ríkisstjórnum og var utanríkis- ráðherra í stjórn Margaret Thatchers 1979—82 þegar hann sagði af sér í kjölfar innrásar Argentínumanna í Falklandseyj- ar. Ribli frestaði Frá Hjálmari Jónssyni, frétlamanni Morgun hlaósins í Lundúnum, 9. desember. UNGVERJINN Zoltan Ribli frestaði 9. skákinni í einvígi sínu við Sovét- manninn Vassily Smyslov, sem fram átti að fara í dag. í gær frestaði Viktor Korschnoi áttundu einvíg- isskák sinni við Garri Kasparov. Ribli er 2 vinningum undir í einvíg- inu við Smyslov þegar 4 umferðir eru eftir. Sérhver keppenda hefur rétt til að fresta skák einu sinni og hafa allir keppendur nema Smyslov nýtt sér þann rétt. Næsta skák verður á morgun og er það átt- unda skákin í einvígi Kasparovs og Korschnois.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.