Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 Áskirkja vígð á sunnudaginn ÁSKIRKJA, kirkja Á.spre.stakall.s við Laugarásveg, var vígð í gsr. Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup íslands, vígði kirkjuna að við- stöddum hátt á fjórða hundrað manns. Kirkjan hefur verið í bygg- ingu frá haustinu 1971 og var kom- in undir þak haustið 1980. Kirkjan sjálf er nú fullbúin að heita má, en eftir er að ganga frá þeim hluta Þyggingarinnar þar sem safnaðar- heimilið verður. Varið hefur verið um 20 milljónum króna til bygg- ingarinnar á verðlagi þessa árs, sem er rúmlega ‘4 áætlaðs heild- arkostnaðar. Prestur í Áspresta- kalli er séra Árni Bergur Sigur- björnsson. Athöfnin i gær hófst með skrúðgöngu sóknarnefndar og presta, en fjölmargir hempu- klæddir prestar úr Reykjavík voru viðstaddir. Kirkjukór Ás- kirkju söng við organleik Krist- jáns Sigtryggssonar og fleiri hljóðfæraleikara. Herra Pétur Sigurgeirsson prédikaði, en ritningalestur önnuðust Árni Bergur Sigurbjörnsson, sókn- arprestuiý Helga Guðmunds- dóttir, formaður safnaðarfélags Ásprestakalls, séra Grímur Grímsson, fyrrverandi sókn- arprestur í Ásprestakalli, og Ólafur Skúlason vígslubiskup. Sigurbjörn Einarsson biskup tók einnig þátt í vígsluathöfninni. í lok athafnarinnar flutti sókn- arprestur ávarp og síðan var öll- um kirkjuprestum boðið til kaffidrykkju í Hrafnistu. Kirkjan tekur á þriðja hundr- að manns í sæti, en fyrir athöfn- ina í gær hafði verið komið fyrir um 340 sætum. „Kirkjan var fullsetin, auk þess sem fjöldi fólks fylgdist með athöfninni standandi. Og því miður þurftu margir frá að hverfa,“ sagði séra MorgunblaAiA/KrHtjáo Einaranon. og nýta salina sameiginlega í framtíðinni. Kirkjan er byggð fyrir gjafa- og söfnunarfé sóknarbarna og velunnara hennar og sagði séra Árni Bergur að á bak við lægi með fádæmum mikið starf sjálf- boðaliða innan sóknarinnar. „Enda hefur þetta gengið ótrú- lega vel sem af er,“ sagði hann. „Kirkjan sjálf er vel búin mun- um, þótt enn vanti kirkjuorgel og kirkjuklukkur. En það segir sína sögu um áhuga og hjálpfýsi sóknarbárna að þessu tvennu var kippt í liðinn fyrir vígsluat- höfnina. Ingólfur Guðbrandsson léði okkur orgel og einn hug- vitssamur maður lagði höfuðið í bleyti og smíðaði einfaldan Frá vígsluathöfninni. klukknabúnað úr skipsklukkum, sem Eimskipafélagið lánaði okkur.“ Húsið teiknuðu Helgi og Vil- hjálmur Hjálmarssynir ásamt Haraldi V. Haraldssyni, sem annaðist allar teikningar innan- dyra. Vífill Oddsson verkfræð- ingur er formaður byggingar- nefndar, en formaður sóknar- nefndar er Þórður Kristjánsson. Trésmíðameistari er Sigurður Kr. Árnason, en allar innrétt- ingar eru smíðaðar af Gamla kompaníinu. Múrarameistari er Hafsteinn Júlíusson og Sigurður Ingólfsson er málarameistari. Pípulögn annaðist Jónas Valdi- marsson, en rafvirkjun Magnús Lárusson. Árni Bergur Sigurbjörnsson sóknarprestur. Sem fyrr segir var hafist handa við byggingu kirkjunnar haustið 1971, en 1980, þegar hús- ið var komið undir þak, var tekin ákvörðun um að ljúka kirkju- skipinu og skrifstofuaðstöðu sóknarprests, en láta safnaðar- heimilið bíða betri tíma. Það húsnæði sem nú er fullbúið er rúmir 500 fermetrar, en þegar safnaðarheimilið kemst í notkun bætast við um 100 sæti. Safnað- arheimilið er í aftari hluta bygg- ingarinnar og er gert ráð fyrir því að hægt verði að opna á milli Áskirkja var þéttsetin við vígsluathöfnina i sunnudaginn. Imrarinn Smári og Guðmundur Haraldsson við nýju prentvélina. Neskaupstaður: Endurnýjun í Nesprenti — elztu tækin á safn Sjómannaskólinn: Skorar á Alþingi að veita fé til kaupa á nýrri þyrlu FULLTRÍIAR nemenda og skóla- stjórnar Sjómannaskólans f Reykja- vík afhentu alþingismönnum í gær undirskriftalista um 200 nemenda, skólastjóra og kennara skólans, þar sem skorað er á Alþingi að beita sér fyrir nýjum þyrlukaupum til Land- helgisgæzlunnar. I meðfylgjandi texta segir eftir- farandi: „Við undirritaðir skóla- stjórar, kennarar og nemendur Sjómannaskólans í Reykjavík skor- um hér með á hið háa Alþingi, að á fjárlögum ársins 1984 verði áætlað fé til kaupa á björgunarþyrlu fyrir íslenzku Landhelgisgæzluna í stað TF Rán, sem fóst í nóvember síð- astliðnum. Með áskorun þessari viljum við undirritaðir leggja áherzlu á þetta mál vegna öryggis allra sjófarenda hér við landið auk annarrar ómet- anlegrar hjálpar og björgunar- starfa, sem þyrlur Landhelgisgæzl- unnar hafa innt af höndum á liðn- um árurn." Stuð-búðin opnar á ný „STUÐ-búðin“ hefur opnað aí nýju á Laugavegi 20. í versluninn er hægt að nálgast sjaldgæfai plötur, plaköt, skyrtuboli og fleira sem tilheyrir framsækinni rokk- tónlist, segir í frétt frá „Stuð- búðinni". Bfldudalur: Velheppnuð aðventuhátíð Aðventukvöld í Reykjahlíð Mývatnssveit, 12. desember. f GÆRKVÖLDI var haldió adventu- kvöld í Reykjahlíðarkirkju. Ilófst það með ávarpsorðum sóknarprests- ins, séra Arnar Friðrikssonar. Síðan sungu nemendur bamaskólans í Reykjahlíð undir stjórn Guðnýjar Jónsdóttur. I*á söng kirkjukórinn, stjórnandi Jón Árni Sigfússon. Anna V. Skarphéðinsdóttir las jólasöguna Fyrsta jólanóttin. Síðan komu Lús- íur, hvítklæddar með kerti í hendi, og sungu með kirkjukórnum. Sóknarpresturinn flutti bænar- orð og að lokum sungu allir við- staddir Heims um ból. Þessi kvöldstund í kirkjunni var mjög hátíðleg. Mikið fjölmenni var við þessa athöfn. — KrLstján Aöventukvöld á Staöarbakka Suðarbakka, Miðrirði, 12. dettember. AÐVENTUKVÖLI) var í fyrsta sinni haldið í Staðarbakkakirkju sl. sunnudagskvöld. Sóknarpresturinn, séra Guðni Þór Olafsson, stjórnaði athöfninni, kynnti atriði og las upp kvæði eftir Kinar Henediktsson. P'rú Sigrún Einarsdóttir flutti aðventuhugleiðingu. Kirkjukór Melstaðar- og Staðarbakkakirkna undir stjórn frú Ólafar Pálsdóttur flutti andleg verk og sálma ásamt veraldlegum söng. Þá léku tvö ungmenni einleik (jólalög) á orgel og ung stúlka lék einleik á fiðlu. Að endingu var almennur söngur við kertaljós. Kirkjan var þéttset- in og samkoman hin ánægjuleg- asta. — Benedikl NeskaupstaA, 19. nóvember. NÝLEGA lauk endurnýjun véla og tækjabúnaðar í Nesprenti, en gömlu vélarnar voru orðnar úr sér gengnar og úr takt við tímann. Allur búnaður er af fullkomnustu gerð m.a. Gtronic 200 setninga- tölva ásamt nýrri Heidelberg- offset prcntvél. I myrkraherbcrgi hefur verið komið fyrir nýrri töflu- stýrðri Rebromaster framköllun- arvél af fullkomnustu gerð ásamt plötutölvuvél. Að sögn Guðmundar Har- aldssonar, prentsmiðjustjóra, opnast nú möguleikar á bóka- prentun og allskonar smáprenti þar sem stuttur afgreiðslufrest- ur og gæði fara saman. Með þessum nýja tækjabúnaði mun vera hægt að auka afköst verk- smiðjunnar sexfalt miðað við full afköst. Til gamans má geta þess, að elstu vélarnar fóru á tækniminjasafn á Seyðisfirði og verða þar framvegis sýninga- gripir, enda framleiddar skömmu eftir aldamót. Kostn- aður þessara nýju tækja mun vera um 3 millj. króna. Sigurbjörg. Ríidudal, 12. de.Hember. í GÆR, sunnudaginn II. desember, var aðventuhátíð í Bíldudalskirkju undir stjórn sóknarprestsins séra Döllu Þórðardóttur. Kirkjan var þétt- setin. Þar sungu börn úr grunnskólan- um sálma við gítarleik Sigríðar Páls- dóttur. Knnfremur fluttu börnin helgi- leik og lásu helgisögu og úr ritn- ingunni. Kinnig söng kirkjukórinn. Kirkjunni var færð vegleg gjöf sem var hökull. Gefendur voru Guð- rún Snæbjörnsdóttir, er lengi bjó hér á Bræðraminni ásamt börnum sínum. Gjöfin var gefin til minn- ingar um son Guðrúnar, Hreiðar Árnason, skipstjóra, sem fórst með mótorskipinu Sæfara frá Tálkna- firði í janúar 1970. Atvinnuástand er gott hér á Bíldudal. Um 40 manns vinna við rækjuvinnslu og fisk hefur verið ek- ið frá Patreksfirði af línubát og einnig hefur togarinn Sigurey frá Patreksfirði landað hér einu sinni, á milli 70 til 80 tonnum. Áður höfðu verið flutt á bílum frá Patreksfirði úr sama skipi um 40 tonn. Páll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.