Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
31
Tilraunabúið á Reyk-
hólum verði lagt niður
Rannsóknastofnun landbúnaðarins:
MióhÚHum í BaróaHtrandarsýslu, 14. desember.
FRÉTTARITARI hafði fregnir af því, að leggja ætti niður
fjárbú tilraunastöðvarinnar á Reykhólum og náði hann því
sambandi við Inga Garðar Sigurðsson tiiraunastjóra og spurði
hann hvort rétt væri að slíkt væri í bígerð. „Já, samkvæmt
ákvörðun stjórnar Rannsóknastofnunar iandbúnaðarins,
RALA, sem á fundi sínum með aðstoðarmanni landbúnaðar-
ráðherra, samþykkti að leggja niður fjárbúið.
Fjármagn til tilraunastöðv-
anna á undanförnum árum hefur
farið minnkandi en þó keyrir um
þverbak á þessu ári. En það
sama hefur ekki gerst í höfuð-
stöðvunum í Reykjavík, þar hef-
ur starfsemin vaxið mikið frá
því að lögin um RALA tóku gildi.
Stjórnarmenn viðurkenndu að
skerðing á Reykhólum væri gerð
til þess að auðvelda að halda
hinum tilraunastöðvunum gang-
andi. Afurðir eftir vetrarfóðraða
á eru heldur meiri á Reykhólum
en öðrum ríkisbúum og tilkostn-
aður ekki meiri. Kjötframleiðsla
eftir vetrarfóðraða kind er svip-
uð en ullarmagn og gæði eru
langt fyrir ofan önnur ríkisbú.
Ullin gefur umfram landsmeðaltal
átta dilka verð miðað við hverjar
100 *r. Fram kom á stjórnar-
fundi RALA að hún hyggst varð-
veita Reykhólastofninn, en ekk-
ert lá fyrir hvernig hún ætlaði
að framkvæma þá varðveislu,
eða hvað það myndi kosta."
— Hvað kostar það ríkið mik-
ið að reka fjárbúið á Reykhól-
um?
„Það er ekki hægt að svara
þessari spurningu nákvæmlega,
vegna þess að rekstur tilrauna í
jarðrækt og búfjárrækt tvinnast
saman og mætti nefna tölurnar
100 til 300 þúsund miðað við árið
1982. Væri hægt að færa álíka
góð rök fyrir hvorri tölunni sem
væri. Álit mitt á þessari ákvörð-
un er það að ég er mjög andvígur
því að rekstur fjárbúsins verði
lagður niður og er búið að vinna
að ræktun hvíta fjárstofnsins í
20 ár og hefur náðst mjög góður
árangur í ræktun hreinhvítrai
ullar og betri skinna. Þessi full
yrðing mín er byggð á umsögi
þeirra iðnaðarmanna, sem hafí
fengið þessa vöru til vinnslu.
Ég tel það grundvallaratrið
að Reykhólastofninn sé á til
raunaþúi vegna þess að gæti
verður varúðar í blöndun vi<
aðra stofna, sem ræktaðir hafi
verið með önnur ræktunarsjón-
armið í fyrirrúmi, þar sem ekki
hefur verið tekið tillit til ullar-
ræktunar. Ekki verður heldur
hægt að flytja Reykhólastofninn
á önnur tilraunabú, því ekki er
leyft að flytja fullorðið fé yfir
varnarlíriur sauðfjárveikivarna."
— Nú heyrist það stundum
manna á milli, að sauðfjártil-
raunir megi aðeins framkvæma
eftir pólitískum línum ráða-
manna í landbúnaði. Telur þú að
hér sé um flokkspólitíska
ákvörðun að ræða?
„Nei, ég vil ekki trúa því, að
ákvörðun um jafn faglegt mál
geti verið tekin á flokkspólitísk-
um grunni. Það hlýtur að vera
tilviljun, að þegar það hefur
komið til umræðu að leggja
niður tilraunir í sauðfjárrækt, á
því 20 ára tímabili, sem ég hef
verið tilraunastjóri á Reykhól-
um, þá hefur alltaf verið fram-
sóknarmaður landbúnaðarráð-
herra. Meðan Ingólfur Jónsson
var landbúnaðarráðherra heyrði
ég ekki á þetta minnst og í ráð-
herratíð Pálma Jónssonar lá
þessi umræða í láginni. Á þessu
bryddaði á síðari hluta ráð-
herratímabils Halldórs E. Sig-
urðssonar og þegar Steingrímur
Hermannsson var landbúnað-
arráðherra skipaði hann sér-
staka nefnd til þess að gera út-
tekt á tilraunastöðvunum og í
því nefndaráliti var lagt til að
fjárbúskapnum á tilraunastöð-
inni á Reykhólum yrði hætt. En
að sögn eins nefndarmanna var
það gert til þess að koma á móts
við ákveðin sjónarmið í landbún-
aðarráðuneytinu. Þegar þessi
ákvörðun er tekin nú, er Jón
Helgason landbúnaðarráðherra,
og fulltrúi hans sat á stjórnar-
fundi RALA,“ segir Ingi Garðar
að lokum.
— Sveinn.
Frá Reykhólum.
Ný bdk frá Guðrúnu Helqadóttur
-jolagjof bamanna i ar
Sitji Guðs englar
SITJI CIIIÐS ENCiI.AR eftir Guörúnu Helga-
dóttur. Heillandi og ncerfœrin saga um
marga krakka í litlu húsi. Þar búa Hka afi
ogamma ogauövitaö mamma ogstundum
kom pabbi og ruglaöi öllu. Bræöumir hjól-
uöu upp í eldhús og Páll tábraut hermann-
inn. En petta bjargaöist allt pví krakkamir
unnu stríöiö.
Ungir lesendur bíöa meö eftirvcent-
ingu eftir hverri nýrri bók frá Guö-
rúnu Helgadóttur. SITJI GUÐS ENGLAR
er jólagjöf barnanna í ár.
Kr. 348.25
BræÓraborgarstíg 16 Pósthólf 294
121 Reykjavík Simi 12923-19156