Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
+
Mín kæra systir,
BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR,
Sunnuvegi 27,
áður Bakkastíg 3,
lést að morgni 17. desember.
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna,
Svava Jóhannesdóttir.
Móöir okkar,
SIGRÍDUR HANSDÓTTIR,
lést á heimili sínu, Sólheimum 27, þann 15. desember.
Jarðarförin auglýst síöar.
Guórún Björnsdóttir,
Þorvarður Björnsson.
+
Eiginmaður minn og faöir okkar,
MAGNÚS HAFLIOASON
frá Hrauni í Grindavík,
andaöist á Elliheimilinu Grund aöfaranótt 17. desember.
Anna Þórdís Guómundsdóttir
og dastur hins látna.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GEIR ÞÓRARINSSON,
vélstjóri,
Hafnargötu 69, Keflavík,
andaöist í Borgarspttaianum laugardaginn 17. desember.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Minning:
Guðni A. Jóns-
son úrsmiður
Fæddur 26. september 1890
Dáinn 5. desember 1983
í aldanna rás hefur manngildið
sífellt verið að breytast og þá um
leið mat mannsins á sjálfum sér.
En allir hlutir í heimi hér eru
hverri einustu lifandi veru og
manninum líka, afstæð atvik og
efnishlutir.
Allt sem við sjáum, heyrum eða
skynjum á annan hátt, mótast í
meðförum heila og hugar og
breytist í það sem reynsla og
hæfni hvers og eins gefur tilefni
til. Það er því maðurinn einsamall
sem á aleinn hugmyndir sínar um
heiminn og þær eru séreign hvers
og eins og öllum öðrum lífssýnum
ólíkar. Þegar maður deyr hverfur
sérstætt líf um leið.
Á löngu lífsskeiði eins manns
reynir oft og mikið á aðlögunar-
hæfni og getu hans til þess að
skilja kall hvers tíma, breyttra
lífsskilyrða og annarra aðstæðna.
Það sýnir sig þá að maðurinn býr
yfir ótrúlegri aðlögunarhæfni
þrátt fyrir það að innsta gerð hans
hefur lítið breyst í þúsundir og
milljónir ára.
Nú er einn af sonum fátækrar
sveitar til feðra sinna genginn.
Guðni A. Jónsson frá Gunnfríð-
arstöðum í Langadal er fallinn til
foldar. Hver var hann? Hvað gerði
hann?
Það er erfitt að meta langt
lífshlaup, nærri aldar gamalt. Til
frásagnar er í rauninni aldrei
neinn anar en maðurinn sjálfur.
Huggerð verður alitaf sú mynd
sem við gerum okkur af öðru fólki
jafnvel þó að kynni og þekking sé
til staðar.
Ég þóttist þó greina ákveðin
eðlismörk hjá hinum látna frænda
mínum. Frá þeim verður þó vart
greint án þess að geta þeirrar
heimspeki sem sett hefur djúp
mörk á samtíðina.
Tilvistarheimspekingar telja að
maðurinn sé eðli sínu samkvæmt
alltaf einn. Honum sé eiginlegt að
lifa og vera í samræmi við þetta
grunneðli sitt. Sé maðurinn hann
sjálfur, heill og óskiptur, þá mót-
ist líf hans og gerðir fyrst og
fremst af eðlislægum eiginleikum
hans sjálfs en ekki annarra.
Að vera hann sjálfur og fyrir sig
sjálfan fremur en fyrir aðra er
samkvæmt þessari heimspeki lífs-
ins sanna eðli.
Það er skoðun margra hugsuða í
dag að sá sem ekki kannast við hið
sanna eðli sitt en reynir fyrst og
fremst að þóknast öðrum, lendi í
andstöðu við sjálfan sig og verði
með því ráðvilltur, leiður og ham-
ingjulaus.
Maðurinn verður ekki nema
hálfur ef hann er ekki hann sjálf-
ur.
Því er á þetta minnst hér að ég
þekki fáa menn sem betur hlýddu
kalli hins sanna manns sem í
brjósti bjó en einmitt frænda
minn hann Guðna.
Guðni var því enginn vafurlogi,
ekki maður sem þjáðist af hiki og
hömluðum vilja. Víllausari mann
hefi ég varla þekkt.
Það var mér mikili lærdómur að
kynnast Guðna einmitt af þessum
sökum. Hann varð mér minnis-
stæður frá því ég sá hann fyrst í
+
Eiginmaöur minn,
EGILL SIGURÐUR KRISTJÁNSSON,
bankaritari,
Einarsneai 46,
andaöist 19. desember í Borgarspítalanum.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna,
Katla Nielsen.
+
Móöir mín, tengdamóöir, amma og langamma,
SVEINBORG BJÖRNSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
andaöist í Landspitalanum 17. desember.
Jónsteinn Haraldsson, Halldóra Kristjénsdóttir,
Borgar Jónsteinsson, Hafdís Jónsteinsdóttir,
Halldóra Ólafsdóttir.
+
Móöir okkar,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Eiósvallagötu 9,
Akureyri,
er andaöist 16. desember, veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 22. desember kl. 13.30.
+
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir,
SKAPTI DAVÍDSSON,
trésmíöameistari,
síóar bóndi í Útey, Laugardal,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 21. desem-
ber kl. 13.30.
Marie Davíösson,
Olav Davíósson, Sólveig Kristjánsd. Davíösson,
Dagmar D. Gröntvedt, Kére Gröntvedt,
Einar Davíösson, Sigríöur Árnadóttir,
Þórdis Skaptadóttir, Valur Guömundsson.
+
Útför eiginmanns míns og fööur okkar,
ÓSKARS SVEINSSONAR,
fré Siglufiröi,
fer fram frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 20. desember nk. kl.
15.00 siödegis.
Elín Jónasdóttir
og börn.
+
JÓN EIRÍKSSON
fré Meiöastööum,
Kleppsvegi 40,
veröur jarösettur frá Utskálakirkju í Garöi fimmtudaginn 22. þ.m.
kl. 14.00. Ferö veröur frá Umferöarmiöstööinni kl. 12.45.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög.
Ingibjörg Ingólfsdóttir
og börn.
+
Hugheilar þakkir til allra sem auösýndu okkur vináttu og samúö
viö andlát og jaröarför
SVEINS GUDNASONAR,
Ijósmyndara fré Eskifiröi,
Mévahlíö 39. Reykjavík.
Aöstandendur.
+
Þökkum auösýnda samúö, vinarhug og hlýju vió andlát og útför
VILHJÁLMS JÓHANNESSONAR,
Fellsmúla 16,
Reykjavík.
Fyrir hönd aöstandenda,
Lilja Ágústa Jónsdóttir og börn.
heimsókn á Svalbarði á Blönduósi.
Hjá okkur fátækum börnum
ljómaði alltaf í kringum nafn
þessa frænda okkar í höfuðborg-
inni.
Þegar hann svo birtist var eins
og borgin og blær hennar væru
komin til þorpsins.
Hann kom eins og stormsveipur,
gustmikill, glaðvær og innilegur,
með áhuga fyrir öllu.
Hin raunverulegu kynni mín af
Guðna voru þegar ég ungur að ár-
um lenti í deilu við hann vegna
föður míns. Hann sagði mér þá
skýrt og skorinort að ég næði ekki
með tærnar þar sem faðirinn hefði
hælana og að óvíst væri hvort svo
yrði nokkurn tíma.
Þetta voru hinar hispurslausu
staðreyndir lífsins. Kynni okkar
urðu ávallt síðan ágæt.
En Guðni var ekki allra. Hann
skynjaði það og skildi að allan
heiminn gat enginn faðmað. Það
var hans að velja og hafna í þess-
um efnum sem öðrum. En hann
var vinur vina sinna, heill og
óskiptur.
Guðni var með elstu mönnum
Oddfellow-reglunnar og starfaði
mikið að þeim stórkostlegu mann-
úðarmálum sem reglan beitti sér
fyrir en hljótt hafa farið. Ég reit
svo um Guðna níræðan:
„Guðni var ekki borinn til auðs
eða auðsældar, ekki til erfða eða
valds en sem frjáls maður í norð-
lenskum dal í fagurri sveit, sem er
fjöll í austri en firð í vestri, sól og
þeyr í suðri en nepurð í norðri.
Guðni var heima á Gunnfríð-
arstöðum þar til hann var vel við
lögaldur eða tvo vetur um tvítugt.
Heimilið þurfti á þegnskap hans
að halda. Þá ræður Guðni sig til
þess að læra bókband inn í
Vatnsdal en flytur þaðan til starfa
á Sauðárkróki.
1916 siglir hann til Danmerkur
og nemur úrsmíðar þar í fjögur ár
og er eftir það um tíma í Þýska-
landi."
1922 kemur hann heim og byrj-
ar þá að versla í Aðalstræti en
flytur verslunina fljótlega í Aust-
urstræti 1 og verslar þar og vinn-
ur í aldarfjórðung. Þá flytur hann
verkstæði sitt og verslun í húseign
sína að Öldugötu 11 en það hús
byggði hann einn og óstuddur á
kreppuárunum 1929—1930.
Það er ekki fyrr en Guðni er
orðinn 49 ára gamall sem hann
festir ráð sitt. Þá kvænist hann
eftirlifandi konu sinni Ólafíu Jó-
hannesdóttur kennslukonu frá
Svínavatni í Húnaþingi. Kotungs-
drengur náði þá í konungsdóttur
en jarðnæði var greinilega ekki
látið ráða enda jafnt á með þeim
komið.
ólafía var yngsta barn þeirra
Svínavatnshjóna og um tuttugu
árum yngri en Guðni. Hjónaband-
ið varð þó farsælt og gott og varð
fjörutíu og þriggja ára gamalt.
Börn þeirra eru: Ingibjörg
Anna, bankastarfsmaður, gift Páli
Stefánssyni auglýsingastjóra við
Dagblaðið-Vísi. Þau eiga tvö börn.
Sunna, húsfreyja, gift Jóni
Bjarnasyni arkitekt og eiga þau
fjögur börn. Jóhanna, banka-
starfsmaður, gift Birni ólafssyni
pípulagningameistara. Eiga þau
tvö börn.
Það duldist engum að Guðni lét
sér mjög annt um börn sín og
barnabörn. Ólafía og Guðni ólu að
miklu leyti upp einn af dótturson-
um sínum, Friðrik Árnason, og fór
Guðni með hann til lækninga utan
oftar en einu sinni.
Heimili þeirra ólafíu stóð að
Öldugötu 11 alla tíð. Þar var oft
gestkvæmt. Áttu Húnvetningar
oft erindi við Guðna.
Miklir dáleikar voru með þeim
frændum Ágústi á Hofi og Guðna.
Eins mun hafa verið um Lárus í
Grímstungu og Jón frá Akri. Alla
þessa menn hitti ég á heimili
þeirra hjóna. Var þar oft glatt á
góðra vina fundi.
Guðni var fæddur að Gunnfríð-
arstöðum á Ásum í Húnaþingi.
Foreldrar hans voru Anna Ein-
arsdóttir, Andréssonar, Skúlason-
ar, Einarssonar. Einar Andrésson,
afi Guðna, frá Bólu í Skagafirði,
var þekktur fyrir kveðskap sinn og
eins taldi Guðmundur Frímanns-
son frá Hvammi hann hafa verið
hálfgildis hómópata.