Morgunblaðið - 29.12.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
298. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
17 flýðu
frá borði
Am.sterdam, 28. desember. AP.
SAUTJÁN pólskir ferðamenn
flýðu af pólska skemmtiferðaskip-
inu Rogalin, sem áður hét Edda og
var í siglingum til og frá Islandi,
er skipið hafði sólarhrings viðdvöl
í Amsterdam. Báðu þeir um hæli
sem pólitískir flóttamenn. í hópn-
um eru hagfræðingur, sálfræðing-
ur, tveir vísindamenn, bóndi,
skrifstofumenn, námsmaður, túlk-
ur og hjúkrunarkona.
Ummæli
Jumblatts
vekja ugg
Beirút, 28. desember. AP.
WALID Jumblatt leiðtogi drúsa
sagöi í kvöld aö vonlaust væri aö
halda áfram sáttatilraunum við
stjórn Amin Gemayels forseta.
Talið er að með þessu sé Jumbl-
att að loka dyrum á nýjan sátta-
fund helztu leiðtoga stríðandi afla,
og er óttast að borgarastyrjöld
kunni að brjótast út að nýju í Líb-
anon.
Yfirlýsingin dregur einnig úr
vonum manna að saminn verði
friður st'ríðandi fylkinga í Líbanon
og þannig lagður grundvöllur að
brottflutningi gæzluliða og út-
lendra herja frá landinu.
Sakaði Jumblatt stjórnarherinn
um margendurtekin Srot á vopna-
hléssamkomulaginu með skotár-
ásum á stöðvar drúsa í fjöllunum
umhverfis Beirút og stöðvar shíta
í suðurúthverfum Beirút:
Dýrkeypt
jólakynding
Osló, 28. desember. Frá Jan Erik Laure,
fréttaritara Mbl.
Jólakyndingin reyndist dýr hjá
norskum 82 ára öldungi, því er hann
kveikti upp í kolaofninum haföi
hann gleymt aö þar geymdi hann
sparifé sitt.
Það var ekki fyrr en skíðlogaði í
gamla ofninum að fyrir honum
rann upp ljós, en það var um sein-
an og 12 þúsund krónur norskar í
seðlum að verða að ösku.
Askan er nú í vörzlu og til rann-
sóknar í Noregsbanka og finnist
einhver seðlanúmer í öskunni mun
bankinn bæta öldungnum viðkom-
andi seðla.
Bandaríkin
úr UNESCO
París, 28. desember. AP.
SENDIFULLTRÚI Bandaríkjanna
hjá Menningar- og vísindastofnun
Sameinuöu þjóöanna (UNESCO)
skýröi framkvæmdastjóra stofnun-
arinnar frá því í dag aö Bandaríkin
myndu draga sig út úr stofnuninni
frá lokum næsta árs, aö sögn áreiö-
anlegra heimilda.
Búist er við að yfirvöld í Wash-
ington tilkynni þessa ákvörðun
sína formlega á morgun, fimmtu-
dag. Hefur stjórn Reagans forseta
ákveðið að draga Bandaríkin út úr
stofnuninni vegna óánægju með
störf og stefnu hennar.
Siökkviliösraenn vinna aö því aö ráða niðurlögum elds, sem gars upp eftir sprengingu í vöruhúsi í Buffalo í New York ríki meö þeim afleiöingum aö
a.m.k. sex menn fórust. —, _, , . Sfmamynd AP.
_____________ Sex forust t gassprengingu
SEX menn týndu lífi í mikilli gassprengingu í vöruhúsi í úthverfi
Buffalo og 60 slösuðust. Tugir húsa löskuðust illa og íbúðarblokk
hrundi til grunna.
Talið er að sprengingin hafi orðið vegna própangasleka. Slökkvi-
liðsmenn voru nýkomnir á vettvang þar sem tilkynnt hafði verið um
gasleka við vöruhús brauðgerðar.
Eftir sprenginguna gaus upp mikill eldur sem breiddist ört út til
nærliggjandi húsa. Náðu hundruð slökkviliðsmanna ekki undirtökun-
um í viðureigninni við eldinn fyrr en eftir þrjár klukkustundir.
Slíkur hiti stóð frá eldinum að hlutar slökkviliðsbifreiðanna hrein-
lega bráðnuðu.
Sjá: „Bresturinn bergmálaöi um endilanga borgina" á bls. 19.
AP/ Símamynd.
Fáni brenndur
Sovézki fáninn brenndur á mót-
mælafundi fyrir utan sovézka
sendiráðiö í Delhí. Fundurinn
var haldinn í tilcfni fjögurra ára
afmælis innrásar Sovétmanna í
Afganistan.
Sjá nánar á bls. 19:
„Stjórnin hélt upp á
innrásarafmæ!ið.“
*
Fjármálaráðherra Israels:
Vill fresta landnámi
á Vesturbakkanum
Tel A»iv, 28. desember. AP.
YIGAL COHEN-ORGAD fjármálaráöherra kraföist þess í dag að nánast
öllum byggingaframkvæmdum á hernumdum svæöum á Vesturbakkanum
yröi frestaö, og varö þaö til þess aö valda miklu hugarangri meöal ýmissa
ráöhcrra í stjórn Shamirs, en gyöingabyggöir á hernumdum svæöum er
hyrningarsteinn í hugmyndafræði þeirra.
Cohen-Orgad hefur verið einn
helzti talsmaður þess að gyðingar
hæfu landnám á hernumdum
svæðum og á sjálfur hús í smíðum
í borginni Ariel í bakkanum miðj-
um. Af hálfu ráðuneytisins var
sagt að hugmyndir hans væru
hluti af „efnahagsramma", sem
næstu fjárlög myndu byggjast á.
Einnig vill Cohen-Orgad fresta
smíði meiriháttar áveitukerfis og
vatnsorkuvers, sem tengja mundi
Dauðahafið og Miðjarðarhafið
með miklum skurði. Jafnframt að
numin verði úr gildi lög um
skyldunám, sem tryggja þegnun-
um ókeypis skólagöngu til 15 ára
aldurs, og að foreldrar greiði hluta
kostnaðar við menntun að loknu
barnaskólstigi í hlutfalli við tekj-
ur.
Ýmsir brugðust reiðir við fregn-
inni um áform fjármálaráðherr-
ans, sem boðað hefur verulegan
niðurskurð á ríkisútgjöldum, en
þau endurspegla þá hrikalegu
efnahagskreppu sem ísraelar eiga
við að etja. Þeir skulda erlendis 23
milljarða dollara og búa við 200%
verðbólgu.
Allsherjarverkfall hófst í
baðstrandarbænum Eilat við
Rauðahafið öðru sinni í þessum
mánuði, þar sem verið er að mót-
mæla auknu atvinnuleysi í ísrael.
Andropov fjarverandi á
haustfundi æðstaráðsins
Washintíton, Moskvu, 28. desember. AP.
YURI ANDROPOV leidtogi sovézka kommúnistaflokksins hefur verið í
nýrnavél frá í sumar vegna alvarlegs nýrnasjúkdóms og er mjög þungt
haldinn, aö því er Washington Post hefur eftir læknum og diplómötum.
Andropov var fjarverandi er æðsta ráöið kom saman til haustfundar í dag og
hann var heldur ekki viðstaddur fundi miönefndar kommúnistaflokksins
síðustu daga.
Ráðamenn í Kreml segja
Andropov taka fullan þátt í störf-
um flokks og ríkisstjórnar og því
ekki alvarlega veikan, hann þjáist
aðeins af kvefi. í skilaboðum til
miðnefndarinnar kvað Andropov
„tímabundna örðugleika" valda
fjarveru sinni.
Æðsta ráðið fjallar fyrst og
fremst um efnahagsáætlun og
fjárlög næsta árs, sem miðnefndin
samþykkti á sínum fundi.
Washington Post hefur eftir
heimildum sínum að Andropov
kunni að vera við góða andlega
heilsu þrátt fyrir sjúkdóm sinn og
því hafa tök á stjórn landsins.
Hins vegar sé ekki við því að búast
að hann eigi langa lífdaga fyrir
höndum, vart nema eitt ár eða tvö
í mesta lagi.