Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.02.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI STOFNAÐ 1913 30. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaösins (AF-símamynd.) í ófærð í Bandaríkjunum Mynd þessi sýnir fannfergið í Norður-Ilakota í Bandaríkjunum eftir óveðrið, sem gekk yfir norðanverð Bandaríkin nú um helgina. Svo mikil var fannkoman, að bflar stöðvuðust þúsundum saman vegna fannfergis- ins, sem olli feiknalegum samgöngutruflunum. Sjö manns biðu bana af völdum óveðursins í Norður-Dakota en einn í Minnesota og varð flest af þessu fólki úti. Á myndinni sér á þak eins bflsins sem festist í skafli í Norður-Dakota og sýnir hún glöggt, að það getur orðið ófært víðar en á íslandi. Tékkóslóvakía: Mótmæla sovézk- um kjarnavopnum Vín, 6. febrúar. AP. ALLS hafa 939 manns í Tékkó- slóvakíu undirritað nýlegt bréf með mótmælum gegn uppsetn- ingu nýrra sovézkra kjarnorku- eldflauga á tékknesku land- svæði. Voru mótmæli þessi borin fram 1. febrúar sl. í bréfi sem sent var Gustav Hussak, forseta Tékkóslóvakíu. í bréfi þessu segir, að enginn, sem í einlægni er fylgjandi friði, geti staðið afskiptalaus gagnvart hvers konar vígbúnaði. Það er þess vegna sem við erum andvíg kjarn- orkuvopnum alls staðar í heimin- um, einnig í Tékkóslóvakíu, segir í bréfinu. Stjórnir Tékkóslóvakíu og Austur-Þýzkalands hafa sam- þykkt að komið verði fyrir nýjum sovézkum eldflaugum búnum kjarnorkuvopnum í löndum þeirra. Er þetta fyrirhugað sem svar við uppsetningu bandarískra meðal- drægra eldflauga í aðildarlöndum NATO í Vestur-Evrópu. Jumblatt, leiðtogi drúsa: „Líbanska ríkið til- heyrir nú fortíðinni“ Ekkert lát á bardögum Beirút, 6. janúar. AP. HARÐIR bardagar brutust út um allan vesturhluta Beirút í dag milli stjórnarhersins í Líbanon og liðs- sveita múhameðstrúarmanna. Virtist sem stjórnarherinn hefði misst öll tök á borgarhluta múhameðstrúar- manna. Þá kom einnig til harðra bardaga í miðhluta borgarinnar, ekki fjarri aðalstöðvum frönsku friðargæzlusveitanna þar. Síðdegis í dag lagði stjórnarherinn á útgöngu- bann í borgarhlutum múhameðs- trúarmanna og kristinna manna, en óvíst var með öllu, hvort unnt yrði að draga úr hernaðarátökum í borginni með þeim hætti. Fer ástandið í borg- inni nú hríðversnandi. Mjög örðugt er hins vegar að gera sér grein fyrir, hverjum hinna stríðandi aðila veitir bezt í hernaðarátökunum í landinu, sem magnast nú dag frá degi. Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, sagði í dag, að ekki væri unnt að semja við Amin Gemayel, forseta landsins, um pólitíska lausn á inn- anlandsdeilunum þar. Lýsti hann Gemayel sem „einræðisherra Líb- anons og hann verður að skjóta". Kvaðst hann vona, að senn tækju að berast „samúðarskeyti vegna dauða Gemayels". Þá tók Jumblatt af skarið með framtíð Líbanons og sagði: „Ekkert getur komið í veg fyrir, að borgarastyrjöldinni verði haldið áfram. Líbanska ríkið til- heyrir nú fortíðinni." Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, og stjórn hans eru ekki þeirr- ar skoðunar, að Gemayel, forseti Líbanons, hafi misst öll tök á ástandinu í landinu. Sagði Larry Speakes, talsmaður Bandaríkja- forseta, í dag, að vonir stæðu til, að Gemayel forseta tækist fljótlega að mynda nýja starfhæfa ríkis- stjórn á breiðum grundvelli í stað stjórnar Shafiz Wazzan, sem sagði af sér á sunnudag. Minnti Speakes á það, að Wazzan hefði fallizt á, að vera í forsæti fyrir bráðabirgða- stjórn, sem stjórna skyldi landinu næstu tvo til þrjá mánuði eða þar til tekizt hefði að mynda nýja stjórn. Shafiz Wazzan, forsætisráðherra Líbanon, sagði af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt á sunnudag og hefur það orðið til þess að auka enn á glundroðann í landinu. Wazzan hefur hins vegar heitið því að vera áfram forsætisráðherra til bráðabirgða, eða þar til tekizt hefur að mynda nýja ríkisstjórn. Glístrup rek- inn af þingi kaupmannahofn, 6. febrúar. AP. Sovézkur njósnari sendiherra í Sviss Brrn, 6. febrúar. Frá frétUriUra Morgnnblaúsins, Önnu Bjarnadúttur, ot> AP. IVAN Ippolitow, nýjum sendiherra Sovétríkjanna í Sviss, hefur verið gefið að sök að vera njósnari. Hefur blaðiö Sonntagsblick, sem er út- breiddasta fréttablaðið í Sviss, haldið því fram, að bandaríski Rússlandssérfræðingurinn John Barron hafi flett ofan af njósnaferli Ippolitows, sem er sagður vera liðsforingi í KGB, sovézku leyni- þjónustunni. Þá hefur þingmaður úr svissn- eska bændaflokknum, Christoph Blocher að nafni, lýst því yfir, að hann muni taka málið upp á þingi næst þegar þjóðþing landsins kemur saman. John Barron kom einnig upp um njósnir Valeri M. Vavilovs, sem var fréttaritari sovézku fréttastofunnar TASS. Svissnesk stjórnvöld vísuðu Vavilov úr landi fyrir njósnir árið 1976, en 13 árum áður hafði honum verið vísað burt frá Noregi og þá einnig fyrir njósnir. Ippolitov, sem er 68 ára að aldri, er þegar kominn til Sviss og mun hann afhenda innan skamms trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Sovétríkjanna þar í landi. Svissneska stjórnin sam- þykkti í desember sl. að Ippolitow yrði sendiherra Sovétríkjanna þar. DANSKA þjóðþingið samþykkti í dag að svipta Mogens Glistrup, leiðtoga Kramfaraflokksins, þinghelgi og þar með þingsæti hans. Verður hann því að snúa aftur til fangelsisins innan skamms. Kom það honum að litlu haldi, þótt hann berðist af hörku fyrir frelsi sínu og framtíð í dönskum stjórnmálum og segði: „Það er verið að misbjóða lýðræðinu, ef ég fæ ekki að sitja á þjóðþinginu það fjögurra ára kjörtímabil, sem ég hef verið kosinn til. Mér ætti að vera það full- komlega kleift að sinna starfi mínu hér, jafnvel þó að ég yrði að dveljast annars staðar eitthvað af þessum tíma,“ sagði Glistrup og átti þar að sjálfsögðu við fangelsið. Það þykir ekki laust við kald- hæðni, að auk þingmanna Framfara- flokksins, urðu þingmenn vinstri sósíalista einir til þess að greiða því atkvæði, að Glistrup héldi þingsæti sínu. Héldu þingmenn vinstri sósíal- Fang- elsið bíður hans ista því fram, en þeir eru nú fimm talsins, að líta bæri á endurkosningu Glistrups sem umboð frá dönsku þjóðinni, er þingið gæti ekki fellt niður. I þingkosningunum 10. janúar sl. fékk Glistrup yfir 8.000 atkvæði og náði þannig kjöri í kjördæmi sínu i Lyngby, enda þótt hann fengi 10.000 atkvæðum minna en í þingkosning- unum í desember 1981. Við brott- rekstur Glistrups af þingi í dag af- henti Þjóðþingið samtímis þingsæti hans í hendur Piu Kjærsgárd, sem var önnur á lista Framfaraflokksins í kjördæmi Glistrups í Lyngby.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.