Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Innilega þökk til allra þeirra er glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum og skeytum á áttræðisafmæli mínu þann 5. febrúar. Guð blessi ykkur öll. Þórdur Ingþórsson, Sólheimum 14. VEISLUSALIR (Obnnt Fáeinir dagar lausir til árshátíða og einkasamkvœma Við gerum yður tilboð sem erjitt er að hafna. Upplýsingar í síma 20132 — 17759 SKRIFSTOFU STJÓRNUN Námskeiðið er ætlað skrifstofustjórum og öðrum sem annast skipulagningu og stjóm á skrifstofum. Tilgangur námskeiðsins er að kynna stöðu skrifstofu innan fyrirtækja og hvaða þýðingu starfsemi þar hefur fyrir fyrirtækið í hetld. Gera grein fyrir hvernig skipuleggja á starfsemi á skrifstofu í heild, hvernig verka- skiptingu er eðlilegt að koma á og hvernig nýta má ritvinnslu til að auka hagræðingu verkefna. Fjallað er um hlutverk skrifstofunnar og gerð grein fyrir þeim verkefnum sem þar eru unnin. Kynnt verður hvemig stjórnskipulag má hafa á skrif- stofum, verkaskiptingu og annað varðandi starfsmannahald. Að lokum verður fjallað um mögulegar hagræðingaraðgerðir og kynnt nýjustu skrifstofutæki sem notuð verða á skrifstofu framtíðarinnar. Lelðbeinendur: Sveinn Hjörtur Hjartarson rekstrarhagfræðingur. Lauk prófi í rekstrarhagfræði frá rekstrarhagfræðideild Gautaborgar- háskóla 1979. Starfar nú sem rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi h/f. Kolbrún Þórhallsdóttir ritari. Lauk prófi frá Verslunarskóla Islands en starfar nú hjá Skýrslutæknifélagi Islands. Tfmi: 1984. 20.-30. febrúar kl. 14-18, samt. 16 klst. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenniunarsjódur Slarfsmannafélags Kíkisstofnana styrkja félagsmenn sína til þátttöku á þessu námskeidi. Upplýsingar gefa vidkomandi skrifstofur. STJORNUNARFELAG ÍSLANDS ií»23 AF ERLENDUM VETTVANGI Eftir DREW MIDDLETON Víetnamski herinn er nú hinn öflugasti í SA-Asíu. Rússar hafa hreiðrað vel um sig í Víetnam BANDARÍSKI flotinn fylgist æ betur með vaxandi umsvif- um Sovétmanna í Suðaustur-Asíu, einkum og sér í lagi í herstöðunum í Cam Rahn flóa og Da Nang í Víetnam, eftir því sem hermálasérfræðingar og diplómatar i Bandaríkj- unum og Asíu segja. Hafa Bandaríkjamenn, Japanir og fleiri lönd í næsta nágrenni talsverðar áhyggjur af hinum sívaxandi herstyrk Sovétmanna, sem nær nú óslitinn í lofti, á landi og legi frá Síberíu til Víetnam. Að sögn bandarískra hernað- arsérfræðinga bendir þetta til þess að Sovétmenn hafi á síð- ustu árum verið að styrkja geysilega stöðu sína. Þeir segja, að allt frá lokum síðari heims- styrjaldarinnar hafi Sovétmenn búið yfir miklum herstyrk í Vla- divostok og fleiri síberískum hafnarborgum. Ef til ófriðar kæmi, væru þær hersveitir vel staðsettar til að höggva strand- högg í Japan og Kína. Á hinn bóginn henta herstöðvarnar ekki til að láta til skarar skríða í Suður-Kínahafi, gegn skipalest- unum sem sigla milli Persaflóa og Mið-Austurlanda annars veg- ar og Japan hins vegar. Meðan á Víetnamstríðinu stóð, byggði Bandaríkjaher gífurleg hernaðarmannvirki sem Sovét- menn njóta nú góðs af í Cam Rahn. Er þar flotaaðstaða góð og úrvalsherflugvöllur, sem og í Da Nang. Vel upplýstir aðilar á þessum slóðum hafa fullyrt að uppbygging hernaðarmann- virkja og herstyrks Rússa hafi farið ört vaxandi síðustu sex mánuðina eða svo. Framan af létu Sovétmenn sér nægja að fljúga eftirlits- og njósnaflug frá flugvöllunum í Víetnam, en síðla á síðasta ári voru sex TU-16- sprengjuflugvélar, „greifingjar" svokallaðir, komnar til Cam Rahn. Einnig eru í höfninni herskip og kafbátar, auk þess sem stöðvarnar við Cam Rahn og Da Nang eru einungis mannaðar Sovétmönnum. Frá Cam Rahn geta Sovét- menn sótt að suðausturhluta Kína. Þeir hafa styrkt heri sína við síberísk-kínversku landa- mærin verulega. Þar eru nú alls 52 herdeildir, 9 af þeim búnar skriðdrekasveitum, auk þess sem Sovétmenn hafa komið fyrir 125 SS-2o meðaldrægum kjarnorku- flaugum á þessum slóðum og hafa til taks milli 50 og 60 TU-22M-sprengjuflugvélar, sem færar eru um að flytja kjarn- orkusprengjur 5.000 mílna vega- lengd. Frá hernaðarlega mikilvægu sjónarmiði geta Sovétmenn nú vel við unað. f fyrsta lagi hafa þeir nú umkringt Kínverja ef svo mætti að orði komast, með her- stöðvum fyrir sunnan og norðan landið. í öðru og víðtækara lagi, má segja, að Sovétmenn séu nú í úrvalsaðstöðu til að sækja tií vesturs, til Malakkasunds og klippa á olíuflutninga til Japan. Komi til átaka við Persaflóa og Sovétmenn sjá ástæðu til að blanda sér beint í átökin, geta kafbátar, herskip og tundurspili- ar þeirra „valsað um“ allt norð- anvert Indlandshaf og gert nær hvað sem nafni er gefandi undir vernd orrustu- og sprengjuflug- véla sem myndu hefja sig til flugs frá sex fullkomnum her- flugvöllum Sovétmanna í Afgan- istan. Þá má ekki gleyma því, að staða Sovétmanna er nú geysi- sterk í Suðaustur-Asíu þrátt fyrir að sex ríki.á svæðinu hafi bundist samtökum til að sporna við framgangi kommúnista. Víetnamar eru Sovétmönnum afar mikilvægir bandamenn. Stjórnarher Víetnams telur eina milljón manna, en það er stærri her en bandalagsríkin sex geta stillt upp til samans. Banda- ríkjamenn hafa herstöðvar á Filippseyjum og höfðu þær áður en ítök Rússa í Víetnam komu til sögunnar. Uppgangur Rússa hef- ur því að minnsta kosti skapað jafnvægi milli stórveldanna í þessum heimshluta, jafnvel ýtt því dálítið Sovétmönnum í hag. Drew Middleton er blaðamaður hjá New York Times.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.