Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 45 Jón Óskar Hafsteinsson Myndlist Valtýr Pétursson Þegar mér barst boðskort á sýningu Jóns Óskars, hugsaði ég sem svo, er nú skáldið farið að stunda myndlist. En svo sá ég í blaði, að þarna var annar Jón Óskar á ferð, og er sá Haf- steinsson. Ungur maður, sem stundað hefur nám síðastliðin þrjú ár vestur í þeim stóra stað, New York. Hann er nú heim- kominn og hefur efnt til fyrstu einkasýningar sinnar í austursal Kjarvalsstaða. Þar hefur þessi ungi listamaður komið fyrir, á nokkuð sérstakan hátt, 38 mál- verkum, sem eru unnin þannig, að ljósmyndataeknin er notuð til að ná fram vissum áhrifum í málverkinu, en lengra þori ég vart að halda út á tæknihlið þessara málverka. Þekki þar lít- ið til. Það er nokkuð framandi blær á þessari sýningu Jóns Óskars, bæði hvað uppsetningu og annað varðar. Þarna eru hérumbil öll verk unnin út frá manninum. Það er eins og að skoða fjöl- skyldualbúm að vera í námunda við þessi verk, nema hvað hér er allt í miklum stærðum og myndröðum. Það fer ekki milli mála, að hér er á ferð maður, sem hefur mikla hæfileika og tekst að notfæra sér skap sitt og viljaþrek. Það eru mikil átök í sumum þessara verka, og mál- verkið kemst sérlega vel til'skila, þegar best lætur. En verk eins og Paris og Strasbourg eru bestu dæmin um getu þessa unga manns. Ég hafði einnig ánægju af myndröð, er listamaðurinn kallar BOYS, margar myndir, sem settar eru upp í einni heild á Aðlaðandi pönktónlist Hljóm otur a Siguröur Sverrisson Flux of Pink Indians Flux of Pink Indians Spiderleg Records/Gramm Þótt æði langt sé nú um liðið frá því ég heyrði síðast i Sex Pistols sálugu held ég að Flux of Pink Indians sé sá pönkflokkur nútímans sem næst kemst þess- um horfnu hetjum árdaga pönksins. Hvað eftir annað fannst mér ég heyra kunnugleg tilþrif frá því á dögum kynhleyp- anna og það er ekki leiðum að líkjast. Undanfarna mánuði hefur ungur ísiendingur spreytt sig með þessari sveit, sem er býsna þekkt á sínu sviði í Bretaveldi. Þessi íslendingur er að sjálf- sögðu Einar Örn Benediktsson, fyrrum Purrkur, iss!-ari og nú- verandi Kukl-ari. Hefur hann spreytt sig á trompettinu sínu með þeim Flux-urum. Tónlistin frá Flux er að mínu viti mjög áheyrilegt pönk og slíkt er sko ekki hægt að hafa um margar þeirra sveita, sem flytja tónlist af þessu tagi. Keyrslan í lögunum er góð, gít- arleikurinn á tíðum skerandi og jafnvel óþægilegur. Sennilega eru þó textarnir sterkasti hluti laganna hjá þeim indíánastrákum. Þeir eru margir hverjir beinskeyttir og hlutirnir eru ekki teknir neinum vettl- ingatökum. Sér í lagi er hatur þeirra á breska „músíkbransan- um“ einkennandi. Þegar öllu er á botninn hvolft er tónlist Flux of Pink Indians bráðskemmtilegt pönk. Lögin eru hvert öðru betra (þ.e. geti menn meðtekið þessa tónlist á annað borð) og þótt mörg væru góð fannst mér Progress vera best. langvegg salarins. Ég sagði hér áðan, að þessi sýning hefði nokk- uð sérstakan blæ, rétt er nú það, en ég er hvergi viss um, að um frumleika sé að ræða í þessum verkum. Maður hefur áður séð eitthvað þessu líkt, en ég held að megi fullyrða, að Jóni óskari takist samt að koma sínu á framfæri í þessum verkum. Það er einnig greinilegt á þessari sýningu, að Jón Óskar hefur not- ið annars uppeldis í New York en félagar hans, sem fóru út á það flata Holland. Það er viss amer- ískur andi yfir hlutunum á þess- ari sýningu, og er ekkert nema gott um fjölbreytni af þessu tagi að segja. Ekki er ég viss um, að boðskapur í þessum verkum komist til skila, en vera má, að vinnubrögð við sjálft málverkið nægi til að hafa áhrif, og það sé allur sannleikurinn um þessi verk. Hér er þannig tekið á við- fangsefnum, að mér finnst það sanna áræði og dugnað hjá þess- um nýliða. Hann er auðvitað nokkuð óráðinn, en samt fastari fyrir en margur, sem er að ýta úr vör. Það kemur á daginn, hvern- þróunin verður hjá Jóni S skari. Það, sem nú liggur á borði, er nægilegt til að benda á þessa sýningu. Svo koma dagar og koma ráð, enginn veit, hver étur óborinn hval, sagði skáldið. Stærsti bókamarkaður ársins 1984 Fjöldi bóka í síðasta skipti á hagstæðu verði 29. febr.—11. marz MAGN AFSLÁTTUR Auka 5% ef verslað er fyrir meira en kr. 1.000.— Auka10% ef verslað er fyrir meira en 3.000.— Nú er hægt að gera góð kaup og finna marga fáséða bókina á lágu verði! Öll helstu bókaforlög landsins Bókaft% pakkar á hagstæðu verði Notið tækifærið VISA og ©% EUROCARD Opið frá kl. 9—20 í kvöld. Markaðshús Bókhlöðunnar Laugavegi 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.