Morgunblaðið - 30.03.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.03.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984 47 • Hart barist undir körfu Laugdasla í gi tvö sex stiga sinna í leiknum. srkvöldi. Karl Ólafsson skorar Morgunblaöiö/Friöþjófur KR-ingar í úrslit — lögðu ÍBK í gær í bikarkeppni KKÍ KR-INGAR sigruöu Keflvíkinga í Keflavík í gærkvöldi 74:72 í bik- arkeppni karla í körfuknattleik og leika því til úrslita gegn Val eöa Haukum en þau liö mætast á næstunni í hinum undanúrslita- leiknum. Leikurinn í gærkvöldi var góöur af hálfu beggja liöa, varnirnar voru sérstaklega góðar — og um hnífjafnan og spenn- andi leik var aö ræöa. Staöan í hálfleik var 41:38 fyrir Keflvík- inga. Eins og áöur sagöi var um hníf- jafnan leik aö ræöa — eftir sex mín. munaöi aöeins fjórum stigum ÍBK í hag — einni mín. síðar var jafnt og síöan var jafnt á öllum töl- um þar til sjö mín. voru eftir af fyrri hálfleik. KR-tók þá góöan sprett: skoraöi fimm stig í röö, staöan þá 31:26, en heimamenn undu því illa og skoruöu næstu ellefu stig. Staöan þá 37:31 þeim i hag. KR saxaöi jafnt og þétt á forskotiö og er tvær sekúndur voru til leikhlés stóö 38:39. Þessar tvær sekúndur nægöu ÍBK þó til aö skora: eftir innkast fékk Jón Kr. Gíslason knöttinn, rak hann örlítiö fram og skaut rétt framan miöju vallarins. Flautan gall er boltinn var á leiö- inni og hafnaöi hann í körfunni: staöan sem sagt 41:38 í leikhléi. Mikiö jafnræöi var meö liöunum í seinni hálfleik sem þeim fyrri. Mesti munurinn var aöeins sex stig, 66:60 fyrir KR, er átta mín. voru eftir. ÍBK komst aftur yfir er fjórar mín. voru eftir, 70:68, en jafnt var síöan á öllu tölum næstu tvær mín. KR náöi forystu, 74:70, er tvær mín. voru eftir — og liðin Stúdentar tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni: „Farsæll endir á skemmtilegum vetri“ „ÞETTA er svo sannarlega far- sæll endir á erfiðum en jafnframt skemmtilegum vetri. Ég held aö viö séum vel aö sigrinum komnir eftir aö hafa sýnt góöan körfu- bolta nú undir lok tímabilsins," sagði Kristinn Jörundsson þjálf- ari ÍS eftir aö lið hans haföi sigraö Laugdæli meö 76 stigum gegn 63 í frekar slökum leik. Meö þessum Árni Lárusson: u ,Ég er hálf- smeykur við úrvalsdeildina „Það er stórkostlegt aö liöiö hefur tryggt sér sæti í úrvals- deildinni eftir frekar slaka byrjun í mótinu. Viö náöum upp góöri baráttu og höfum unnið alla okkar leiki frá áramótum. Engu aö síöur er ég hálf smeykur viö úrvalsdeildina, viö veröum aö fá nýja menn í okkar raöir ef viö eig- um aö standa okkur þar, en þetta veröur allt aö koma í Ijós. Aöal- atriöiö er þaö aö viö höfum sigraö hér í kvöld,“ sagöi Árni Lárusson fyrirliði ÍS eftir leikinn í gær. — BJ. Úrslitakeppnin heldur áfram ÖNNUR umferö úrslitakeppni efri liöa 1. deildar í handbolta hefst í Digranesi í Kópavogi í kvöld kl. 20 meö leik Vals og Víkings og strax á eftir leika FH og Stjarnan. sigri tryggöu ÍS-menn sér sigur í fyrstu deildinni og þar meö rétt til aö leika í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. “Það voru miklar sveiflur í þessu móti, allir unnu alla og á tímabili vorum viö allt aö því afskrifaöir. En meö mikilli baráttu tókst okkur aö rífa okkur upp og sýna okkar rétta andlit.“ Eins og fyrr segir var leikurinn frekar slakur, og var þaö varla fyrr en undir lok hans aö fjör fór aö færast í mannskapinn. Byrjunin lofaöi ekki góöu, mönnum gekk illa að finna réttu leiöina ofan í körfuna og eftir sjö mínútna leik var staöan 6—3 fyrir ÍS. Fljótlega fór þó aö rætast úr hittninni og á 15. mínútu var staöan 21—20. Upp frá því fór aö skilja í sundur með liöunum og þær fimm mínútur sem eftir voru af hálfleiknum skoruöu ÍS-menn 14 stig en Laugdælir 8 og staöan í hálfleik því 35—28. ÍS hélt áfram á sömu braut í síö- ari hálfleik og var aldrei spurning um hvort liöiö færi meö sigur af hólmi. IS var einfaldlega betri aöil- inn í leiknum og veröskuldaöi sig- ur. Kristinn Jörundsson og Árni Guðmundsson voru langbestu menn ÍS í þessum leik, böröust báöir af krafti og spiluöu léttan 09 skemmtilegan körfubolta. Hjá Laugdælum bar mest á þjálfaranum Ellert Magnússyni, spilaöi hann félaga sína oft skemmtilega uppi og skoraöi auk þess 11 stig. Þeir Salómon Jóns- son og Unnar Vilhjálmsson áttu ágætan leik, einkum þó sá fyrr- nefndi sem skoraði grimmt í síöari hálfleik. Stig IS: Kristinn Jörundsson og Árni Guömundsson 21 stig hvor, Gunnar Jóakimsson 10, Ágúst Jó- hannesson 8, Karl Ólafsson og Björn Leósson 6 stig hvor og Guö- mundur Jóhannsson og Eiríkur Jó- hannesson tvö stig hvor. Stig Laugdæla: Salómon Jóns- son 20, Unnar Vilhjálmsson 13, Ell- ert Magnússon 11, Snæþjörn Sig- urösson 10, Lárus Lárusson 7 og Þorkell Þorkelsson 2 stig. Dómarar voru Gunnar Bragi og Jón Otti. Dæmdu þeir sæmilega. — BJ. náöu ekki aö skora aftur fyrr en tíu sek. voru eftir er Keflvíkingar skor- uöu siöustu körfuna. KR-ingar héldu svo boltanum síöustu tíu sek. leiksins. Sigurinn heföi getaö lent hvor- um megin sem var í þessum leik — svo jafn var hann og ekki Ijóst fyrr én alveg í lokin hvort liöið stóö uppi sem sigurvegari. Jón Kr. Gíslason var langbestur Keflvík- inga en Þorsteinn Bjarnason — í fyrri hálfleik — og Guöjón Skúla- son léku einnig vel. Páll Kolbeins- son var bestur KR-inga, Jón og Garðar voru einnig góöir. Dómarar voru Davíð Sveinsson og Kristinn Albertsson og dæmdu þeir heldur lítiö. Þaö bitnaöi þó jafnt á liöun- um. Stigin skiptust þannig: ÍBK: Jón Kr. 24, Þorsteinn Bjarnason 16, Björn Skúlason 12, Guöjón Skúla- son 12, Óskar Nikulásson 6, Sig- uröur Ingimundarson 2. KR: Páll Kolbeinsson 18, Jón Sigurösson 16, Garöar Jóhannsson 14, Krist- ján Rafnsson 12, Guöni Guðnason 7, Ágúst Líndal 3, Birgir Guöbjörnsson 2, Ólafur Guö- mundsson 2. —ÓT/SH. „Við verðum að sigra Bielefeld" — segir Asgeir Sigurvinssoní Kicker ASGEIR Sigurvinsson hefur leikið frábærlega vel meö Stuttgart í undanförnum leikjum og um síð- ustu helgi var hann besti maöur vallarins er liöið geröi jafntefli viö Köln eins og viö höfum áöur sagt frá. Asgeir var í liði vikunnar hjá Kicker í sjötta sinn í vetur og einn- ig var hann i liði vikunnar hjá fleiri blööum. Ásgeir segir í viötali viö Kicker, i nýjasta hefti blaösins: „Viö veröum aö sigra Bielefeld nú um helgina til að vera í góöri stööu í deildinni er viö förum til Múnchen og leikum viö Bayern (um næstu helgi)". Stuttgart mætir Bielefeld á heimavelli sínum þannig aö sigur- möguleikar liösins eru miklir. „Þetta gekk betur heldur en þaö hefur gert undanfarnar vikur,“ seg- ir Ásgeir í Kicker, greinilega ánægður meö leik liösins gegn Köln. Stuttgart er nú í fjóröa sæti Bundesligunnar meö 34 stig — aöeins einu stigi minna en Bayern, Hamburger og Borussia Mönch- engladbach. • Lið síöustu helgar í Kicker. Ásgeir er í sjötta sinn í liði vik- unnar hjá blaöinu. Víðavangs- hlaupi frestað Víöavangshlaupi íslands hefur verið frestaö þar sem eigi er unnt aö halda þaö á Miklatúni nú um helgina, samkvæmt upplýsingum víðavangshlaupanefndar FRÍ. Veröur hlaupið háö annaöhvort 13. eöa 14. apríl næstkomandi, en nánar veröur tilkynnt um þaö síö- ar. Meistaramót íslands í sundi um helgina: Allt besta sundfólk landsins tekur þátt MEISTARAMÓT íslands í sundi hefst í Sundhöll Reykjavíkur í kvöld kl. 20. Allt okkar besta sundfólk tekur þátt í mótinu — bæði þeir sem dvaliö hafa erlend- is við æfingar og keppni aö und- Sigurður skoraði tvö SIGURDUR Grétarsson, knatt- spyrnumaður úr Kópavogi, skor- aði tvö mörk fyrir liö sitt Tennis Borussia í vestur-þýsku áhuga- mannadeildinni um síöustu helgi. Liðið hefust átt mikilli velgengni aö fagna í vetur og er efst í sinni deild, „Oberliga Berlin”, meö 35 stig og hefur liðiö aöeins tapaö fimm stigum í vetur. Liöiö sigraöi TuS Makkabi 5:0 á útivelli um síö- ustu helgi. Þess má geta aö markatala Tennis Borussia i deild- inni í vetur er 70:18. Blau-Weiz 90 er i ööru sæti í þessari deild meö jafn mörg stig og liö Siguröar en lakara markahlutfall. — SH. • Siguröur Grétarsson anförnu og aö sjálfsögöu þeir sem hafa veriö á „heimavelli '. Keppni veröur svo fram haldiö í fyrramáliö kl. 8.30. Þá fara fram undanúrslit og úrslit hefjast kl. 15 á morgun. Frá þeim veröur sjón- varpaö beint. Á sunnudagsmorgun hefsjast undanúrslit svo kl. 9.30 og úrslit hefjast kl. 16 á sunnudag. Búast má viö geysiharöri keppni í velflestum greinum á mótinu — og margir munu reyna viö „viömiö- unartölur“ Ólympíunefndarinnar íslensku. Meðal þeirra sem komnir eru til landsins til þátttöku í mótinu eru systkinin Ragnar Guömunds- son og Þórunn Kristín Guömunds- dóttir frá Danmörku, Ragnheiöur Runólfsdóttir og Tryggvi Helgason frá Svíþjóö, Smári Kr. Haröarson frá Danmörku og Árni Sigurðsson frá Bandaríkjunum. Þess má geta aö lágmörk voru nú sett fyrir þátt- töku í Meistaramótinu í fyrsta skipti og er greinilegt aö mikil framför hefur oröiö í sundinu frá því í fyrra. Sem dæmi má nefna aö í 100 metra skriösundi er lágmark- iö 1:12,79 mín. 16 stúlkur syntu á þeim tíma eöa betri fyrir ári en nú eru keppendur 36 í greininni. Keppendur á mótinu eru 170 og hafa aldrei veriö fleiri á Meistara- móti. —SH.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.