Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 1
56 SIÐUR MEÐ MYNDASOGUBLAÐI •llttH /. .t j ij yj+jjl j.h. STOFNAÐ 1913 99. tbl. 71. árg. FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984 PrentsmiðjaMorgunblaðsins Fólki var brugðið í Páfagarði: Maðurinn í hjóla- stólnum stóð upp Lundúnum, 2. maí. AP. ÞAÐ VARÐ uppi fótur og fit I Páfagarói fyrir nokkrum dögum. er maóur í hjóla-stól reis á fætur og gekk á brott eftir aó Jóhannes Páll páfi hafði blessað hann. „Þetta er kraftaverk," sögöu nunnur og nærstaddir pflagrímar í kór. Sannleikurinn var þó annar. „Þetta var ekki kraftaverk, heldur vandræðaleg uppákoma fyrir mig,“ sagði Jan Lavric, stálhraustur breskur læknir, sem farið hafði sem fylgdarmaður með nokkrum bækluð- um löndum sínum til Vatíkansins þar sem páfi blessaði þá. „Ég settist í hjólastólinn, því það var enginn í honum og ekki annað sæti að fá meðan ég beið eftir mínu fólki. Svo kom einhver og ók mér af stað til páfa. fcg ætlaði aö segja eitthvað og reyndi að komast á fætur, en ekillinn hélt mér niðri og sagði mér að spara kraftana, það væri komið að mér að hitta páfa. Ég gat ekkert gert annað en að sitja þetta af mér. Svo blessaði páfi mig, en þegar mér var ekið burt aftur, þótti mér nóg komið, ég stóð upp og lagði stólinn saman. Én ég hefði kannski átt að bíða betra augnabliks, því það misstu allir and- litið,“ sagði Lavric. Iir 1 r 1 • • O . öiiiiamyiiu Ar. Walesa 1 krofugongu Lech Walesa, annar frá vinstri, í fylkingarbrjósti kröfugöngu stuðningsmanna Samstöóu. Gangan var f Varsjá og ein af nokkrum I. maí. Til átaka kom víða í Póllandi. Sjá nánar bls. 23. Líbanon: Mikil vandamál blasa við nýiu stjórninni Beirút, 2. maí. AP. HIN NÝJA STJÓRN Líbanons, undir stjórn múhameðstrúarmannsins Kar- ami, sat sinn fyrsta fund í dag. Þrjá skipaða ráðherra vantaði, m.a. shitaleið- togann Berri og drúsaleiðtogann Jumblatt. Þá stóð stjórnin frammi fyrir sínu fyrsta meiriháttar vandamáli, er þrír ísraelskir diplómatar voru handteknir af sýrlenskum hermönnum er þeir villtust af leið fyrir norðan Beirút. Rfkisstjórnarfundur Karamis hófst hálftíma á eftir áætlun, eftir að Karami hafði fallist á að halda fundinn með þeim ráðherrum sem sæu sér fært að mæta. Þeir Jumblatt og Berri voru staddir í Damaskus við skraf og ráðagerðir með sýrlenskum ráðherrum. Er talið að Sýrlendingar óski þess að Berri og Jumblatt setjist í ráð- herrastóla sína og hafi sett tals- verðan þrýsting á þá, enda eru þeir sáttir við hina nýju stjórn. Þriðji ráðherrann sem ekki mætti á stjórnarfundinn var Abdula Rassi, maroniti, sem er harður fylgismaður Sýrlendinga og skipaður innanríkisráðherra. Er dagur var að kveldi kominn, færðust bardagar við „grænu lín- una“ í vöxt og ekki að sjá að stjórnarskipanin kæmi stríðs- mönnunum mikið við. Engar skýr- ingar voru gefnar á vaxandi skær- um, kyrrð hafði verið í Beirút nær allan daginn. Afganistan: Andspyrnuleiðtoginn flúinn frá Pansjher Islamabad, Pakistan. 2. maí. AP. HVORKI GEKK né rak í bardögum afganskra andspyrnumanna annars vegar og stjórnarhormanna og Sov- étmanna hins vegar í Pansjherdal í Afganistan ■ dag. Þar hafa þeir síð- arnefndu sótt mjög fram síðustu daga í mestu hernaðarumsvifum Sovétmanna í Afganistan frá upp- hafi. Mannfall í röðum þeirra hefur hins vegar verið afar mikið og ekki útséð enn hvor aðilinn hefur betur í bardögunum. Leiötogi andspyrnu- mannanna, Ahmad Shah Masud, eða Pansjherljónið, hefur yfirgefið dalinn að því að frá var greint, og fjarstýrir aðgerðum manna sinna. Ekki er þó vitað hvar hann er niður kominn. Óljósar fregnir herma, að Masud hafi flýtt sér frá Pansjh- erdal í upphafi átakanna eftir að sannað þótti að njósnarar höfðu hreiðrað um sig í röðum fylg- ismanna hans. Það hefði verið mikið áfall fyrir andspyrnuliðið, ef Masud hefði fallið í bar- dögunum, en sögusagnir um slíkt voru komnar á kreik. Þá er ekki ljóst hvaða áhrif fjarvera Masud mun hafa á varnir dalsins, en Sov- étmenn reyna nú í sjöunda skipti að ná honum á sitt vald. And- spyrnumenn hafa beitt þeim brögðum, að „teygja á“ herliði andstæðinganna og einangra síð- an smáa hópa sem einangrast hafa frá aðalliðinu. Jóhannes Páll páfi II Lv. og Ronald Reagan Bandaríkjaforseti takast í hendur á flugvellinum í Fairbanks í Alaska. Sfmamynd AP. Reagan og páfi hittust að máli Fairbanks, Alaska, 2. maí. AP. RONALD REAGAN, Bandaríkjaforseti, og Jóhannes Páll páfi 2. hittust stutta stund á flugvellinum í borginni Fairbanks í Alaska í dag. Var það fyrsti fundur leiðtoga Randaríkjanna og Páfagarðs síðan að ríkin hófu stjórnmálasamband í janúar síðastliðnum. Páfi talaði í 12 mínútur og lagði mesta áherslu á að heiðarleiki og virðing yrðu aö vera í hávegum höfð í samskiptum rikja, þannig væri friðurinn best tryggður. Reagan tók undir orð páfa. Þá ræddu þeir einnig um ástandið í Póllandi, Mið-Ameríku og nýafstaðna ferð Reag- ans til Kína. Loks voru þeir Reagan og Jóhannes Páll sammála um að efla samskipti Bandaríkjanna og Páfagarðs. Páfi dvaldi í Alaska í þrjár klukkustundir, því næst hélt hann áfram ferð sinni til Suður-Kóreu, Thailands og víðar, en Reagan hélt til Washington. Mikið fjölmenni tók á móti páfa og fagnaði vel. Sjá nánar á bls. 23. „Berum enga ábyrgð á því sem Bretar finna“ Lundúnum, 2. maí. AP. „VIÐ BERUM ekki ábyrgð á neinu sem kann að koma fram í leit Breta í sendiráði okkar í Lundúnum, þar er nú lögregluvörður og þeir hafa í hendi sér aö segjast hafa fundiö þar hvaö sem þeir kjósa. Til dæmis hafa þeir sjálflr komið fyrir vopnum þeim sem þeir segjast hafa fundið í húsinu til þess að sanna að skothríðin um dag- inn hafl komið frá sendiráðinu. Hið rétta er að Bretar skutu sjálflr á fólk- ið,“ sagði Moammar Khadafy Líbýu- leiðtogi í dag. Orð þessi mælti Líbýuleiðtoginn í tilefni af þeirri tilkynningu lög- regluyfirvalda í Bretlandi, að fund- ist hefði talsvert af vopnum í sendi- ráðinu við leit þar í gær og í dag, sjö skammbyssur, skotfæri, tvö skot- færahylki úr hríðskotabyssum og tóm patróna úr hríðskotabyssu. „Við höfum fundið óhrekjanleg sönnunargögn fyrir því að skotið var úr sendiráðinu og byssumað- urinn hafi verið innan veggja þess,“ sagði talsmaður bresku lögreglunn- ar. Hann gat þess að vopnin hefðu fundist hér og þar um allt húsið og búast mætti við að öll kurl væru ekki komin til grafar enn. Hann sagði að yfirlýsing Khadafys um að Bretar hefðu komið vopnunum fyrir í húsinu ætti ekki við rök að styðj- ast. « í Tripolí sagði Khadafy að stjórn- málaslitin sem Bretar áttu frum- kvæðið að, svo og leit þeirra í líb- ýska sendiráðinu, væru „villi- mannslegar aðgerðir“. Skipaði hann líbýskum hermönnum að framkvæma sams konar leit í húsa- kynnum breska sendiráðsins í borg- inni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.