Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 21
)
Míor tiM p aTiní,anTí/VT'» ntnt rajTtmcn«
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ1984
—
£f*
Réttur
áagsits
Margrét Þorvaldsdóttir
Langi þig í væna kjötmáltíð án
þess að hafa eiginlega efni á
henni, þá eru hér handhægar upp-
skriftir af fljóttilbúnum kjötboll-
um og búlgörskum grjónum.
Kjöt-
bollur
500 gr. hakkað kjöt
% bolli brauðmylsna (fínmöluð)
'h laukur (niðurrifinn)
1 matsk. Worcestershire sauce
1 stk. egg
1 tsk. salt
'A tsk. Oregano
'h tsk. Thyme (Timian)
mjólk
2 bollar vatn
2 kjötkraftsteningar
2—3 matsk. hveiti, hrært út með
mjólk
Hökkuðu kjöti, brauðmylsnu,
lauk, eggi og kryddi blandað vel
saman. Hrært nægilega með
mjólkinni til að úr verði þétt deig.
Mótið litlar kjötboliur 2 sm í
þvermál. (Þetta magn gefur 30
stk.) Á pönnu er suðan látin koma
upp á 2 bollum af vatni og er
kjötkrafturinn leystur upp í vatn-
inu. Bollurnar eru settar út í sjóð-
andi kjötsoðið, pannan er hreyfð
um leið svo bollurnar festist ekki
við botninn. Lok er sett yfir og
soðið í 10 mín. Sósan er jöfnuð
með hveiti, hrærð út með mjólk og
dekkt með sósulit.
Búlgörsk
grjón
1 matsk. matarolía
'h laukur niðurskorinn
l'A bolli grjón
2‘h boliar vatn
1 ten. kjötkraftur
1 dós tómatkraftur (lítil)
1 tsk. paprika
Olían er hituð í potti og laukur-
inn látinn krauma í olíunni í 2—3
mín. Grjónin eru sett saman við
og steikt með þar til þau hafa
fengið hvítan lit. Vatni, kjötkrafti,
tómatkrafti og papriku er síðan
bætt út í og látið sjóða í 10—15
mín. í lokuðu potti. (Þessar bollur
geymast vel frystar.)
Suðutími grjóna og það vatns-
magn sem þau taka til sín fer eftir
því hve langur tími liðinn er frá
uppskeru þeirra. Því lengi tími,
því meira vatn. Þar sem uppskera
sú sem hér er á markaði virðist
ekki nýleg, þá skuluð þið bæta 'h
bolla af vatni í Sýrlenska Pilafið
sem var í Rétti dagsins á fimmtu-
dag.
Eldhúsráð: Nú er á boðstólum í
verslunum iceberg-salat. Það er
hægt að lengja geymsluþol þess
um 1 til 2 vikur með því að skera
þunna sneið af stofni, fara síðan
með oddhvassan hníf inn í stofn-
inn og skera burtu 2 sm keilu.
Salthöfuðið er sett í skál með
vatni sem svarar til hæðar keil-
unnar. Draga saltblöðin til sín
vatn með uppsogi. Áætlið til þess
1 klst. Vatnið er látið renna af
salathöfðinu og það geymt í loft-
þéttum plastpoka í kæliskáp.
Verð hráefnis:
Kjöt kr. 47,50
Brauðmylsna kr. 8,20
Egg
Laukur
Tómatkraftur
Kjötten. (3 stk.)
Grjón
Alls kr.
kr. 7,50
kr. 1,50
6,10
kr. 1,80
kr. 9,90
82,50
bjóðum aöeins
gæðagripi
gKíd <$%)
Fullkomin varahluta- og viðgerðaþ|ónusta
Þekking - öryggi - reynsla
Mesta úrval landsins af þekktum viðurkenndum merk|um
10 ára ábyrgð.
Sérverslun i meira en hálfa öld
„ Reióhjólaverslunin
ORNINN
Spítalastíg 8
Símar: Verzl.: 14661 S. 26888
/CVCLES
PEUCEOT
A) KALKHOFF
MAI
ÚTBOÐ
RÍKISVÍXLA
IRíkissjóður íslands hefur ákveðið að bjóða út
■ ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár-
laga 1984og með hliðsjón af ákvæðum laga nr.
79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana.
2Í boði verða víxlar að nafnvirði samtals
■ 30.000.000 kr. með útgáfudegi 11. maí 1984 og
gjalddaga 10. ágúst 1984.
Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og
■ verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald-
daga.
4Gera skal bindandi tilboð i heilt margfeldi af 5
■ víxlum (þ.e. nafnverð 250.000 kr.). Allir tilboðs-
gjafar skulu láta fylgja hverjc: tilboði sínu gjald-
keratékka, þ.e. tékki sem gefinn er út af innláns-
stofnun, sem tilboðstryggingu. Tékkinn skal
vera að fjárhæð 10.000 kr. og stílaður á Seðla-
banka íslands v/ríkisvíxlaútboðs. Gangi tilboðs-
gjafi frá tilboði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann
fjárhæðinni, ella gengur hún upp í ríkisvíxla-
viðskipti viðkomandi aðila eða verður endur-
send sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem
ekki fylgirgreind innborgun, skal meta ógilt.
Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru:
Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris-
sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu-
neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru
af Tryggingaeftirliti ríkísins.
5Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem
■ fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg-
ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild
Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík,
fyrir kl. 14.00 9. maí 1984 og séu í lokuðum
ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau
séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð".
■
II
6Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað-
■ festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama
tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu-
leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið.
7Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða
■ hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting
eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild
Seðjabankans fyrir kl. 14.00 hinn 9. maí 1984.
8Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er,
■ verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00
hinn 10. maí 1984. Staðfestingarbréf verða auk
þess send til þeirra.
Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er
eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér-
staklega að öðru leyti en með endursendingu
tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti.
9Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega
■ eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til-
boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla.
Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið
■ verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl.
14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir
eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema
þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn
geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma
áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs-
gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrirþann
tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs-
gjafi glatartilboðstryggingu sinni.
Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn-
■ unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu
reglur og gilda hverju sinni um innstæður í
bönkum og sparisjóðum.
Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja
■ frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar-
stræti 10, Reykjavík.
Reykjavik, 3. mai 1984
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS