Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
35
starfsfólk þar oft um 10—12
manns. Upp úr 1950 fóru að koma
á markaðinn ódýr, hraðsaumuð
karlmannaföt, og var því ákveðið
að leggja saumastofuna niður í
árslok 1953. Bftir það rak Daníel
eiginsaumastofu á Austurvegi 19,
meðan kraftar entust.
Danfel giftist 10. desember 1938
Kristínu Samúelsdóttir frá
Hjálmsstöðum í Hrafnagilshreppi
og hófu þau búskap á Frakkastíg
15. Þegar þau fluttust að Selfossi,
bjuggu þau fyrst í Bankahúsinu en
fluttust í mars 1943 í nýbyggt, eig-
ið hús á Austurvegi 19, þar sem
þau bjuggu næstu 40 árin.
Þau eignuðust eina dóttur,
Kristínu Emilíu, sem er gift Val
Kristni Guðmundssyni, verkfræð-
ingi hjá Reykjavíkurborg og eiga
þau tvær dætur, Sigrúnu 8 ára og
Önnu Dóru 5 ára. I október 1982
fluttu þau Danfel og Kristín frá
Selfossi í litla íbúð í húsi dóttur
þeirra og tengdasonar á Akraseli
33 í Reykjavík.
Danfel var mikill áhugamaöur
um allt, sem hann lagði hönd að og
mjög vandvirkur í öllum verkum
sínum. Hann lét málefni iðnað-
armanna mjög til sín taka. Var
formaður skólanefndar Iðnskólans
á Selfossi í 25 ár og barðist mjög
fyrir stækkun hans og bættum
hag iðnfræðslunnar á Selfossi.
Hann átti mjög lengi sæti í stjórn
Iðnaðarmannafélagsins á Selfossi
og var síðasti formaður þess.
Hann var framúrskarandi skyldu-
rækinn og samviskusamur og lét
ekki auðveldlega þoka sér frá þeim
skoðunum, sem hann taldi sannar
og réttar.
Daníel var í eðli sínu ræktunar-
maður. Hann átti fallegan garð
við hús sitt á Selfossi, sem hann
hafði mikið yndi af að annast. Þau
Kristín voru mjög samhent og
áttu gott og fallegt heimili, þar
sem gott var að koma.
Þegar leiðir nú skilja um sinn,
vil ég þakka Daníel langa vináttu
og ljúft nágrenni. Ég óska honum
blessunar í nýjum heimkynnum og
sendi Kristínu og fjölskyldu henn-
ar alúðarkveðjur.
Guðm. Kristinsson
sigrjón þbr
sjblfsmynd
l|M
Ný Ijóðabók
(JT ER KOMIN 20 sfðna pappírs-
kilja eftir Sigurjón Þór Tryggva-
son. Áður hefir komið út Ljóð 76
eftir höfundinn. Það er útgáfufé-
lagið Pallas, sem sér um útgáfuna.
SVARK)
! f
i í
hanttw fl^rtestinga
Fl" 5 °s handbókm
Fjárfestingartélag
islands
Fjárfestingahandbókin svarar ótal
spurningum einstaklinga og fyrirtækja um
☆ Hagkvæmni og arðsemi fjárfestinga
☆ Ávöxtun sparifjár
☆ Möguleika í verðbréfaviðskiptum
☆ Skattameðhöndlun
Bók sem ALLIR geta haft gagn af.
FJÁRFESTINGAHANDBÓKIN ER
BÓK SEM ÞÚ NOTAR
Fjárfestingarfélag íslands h/f.
M FISHER
VHS myndsegulband
Á aðeins
34.900
stgr.
Þaö er lyginni líkast!
Enda bara örfá tæki eftir.
Þú kemur
LAGMULA 7
REYKJAVÍK. SÍMI 85333
ogsemur SJÓNVARPSBÚÐIN