Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1984 + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, MARGRÉT OTTÓSDÓTTIR, Hringbraut 97, andaðist í Borgarspítalanum þann 4. maí sl. Mór Ársælsson, Lilja Kristjánsdóttir, Hrafnkell Ársælsson, Swava Ágústsdóttir, Snorri Ársælsaon, Hjördís Hjörleifsdóttir og barnabörn. Hlín H. Kristensen Minningarorð Litla dóttlr okkar, ELfN, lést þann 1. maí. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey. Ólöf Guörún Björnsdóttir, Magnús Eövarö Theódórss. + Bróöir okkar og frændl, MARKÚSJÓNSSON fró Skeiðflöt, Silfurteigi 4, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 8. maí kl. 13.30. Grimheióur Jónsdóttir, Auöbjörg Jónsdóttir, Guöjón Heiðar Jónsson, Ólafur Þorsteinn Jónsson. Fædd 1. september 1922 Dáin 28. apnl 1984 Á morgun kveðjum við Hlín Huldu Kristensen, lífsglaða og elskulega konu, sem barðist hetju- lega við sjúkdóminn ægilega sem svo marga leggur að velli fyrir aldur fram. Við sem þekktum Hlín munum hana brosandi og káta, þegar fjölskyldan kom saman á jólum, meira að segja um síðustu jól, þegar sýnt var að hverju stefndi, var brosið og hlýjan á sín- um stað. Það er alltaf sárt að sjá á eftir ástvinum yfir móðuna miklu og dauðinn kemur alltaf óvænt, jafnvel þótt menn þykist vera undirbúnir. En þá er tfminn til að þakka Guði fyrir þau ár sem menn fá að njóta samvista við ástvini sína. Hlín var fædd þann 1. septem- ber 1922, dóttir hjónanna Arne Kristensen frá Þelamörk í Noregi og konu hans, Ingibjargar Þórð- ardóttur, fæddri á Efraseli í Stokkseyrarhreppi. Hlln ólst upp á Þormóðsstöðum I Skerjafirði í stórum systkinahópi, og er hún fyrst sem fellur frá úr þeim hópi. 7. ágúst 1953 giftist Hlín Jens Jónssyni skipstjóra ættuðum frá Skagaströnd, og voru þau mjög samrýnd, og var það sár missir fyrir hana er hún missti hann fyrir 8 árum. Þau Jens og Hlín áttu saman tvö börn, Þorbjöm og örnu. Fyrir átti Hlfn eina dóttur, Karen, sem „ ERT ÞU HUSBYGGJANDI? EDA EIGANDI HUSNÆDIS SEM ÞARFNAST VIOHALDS? ÞA liggur leidin til okkar. ÞVf A 300 FERMETRA GRUNN- FLETI SÝNUM VIÐ HINAR VIDURKENNDU KALMAR-INNRÉTTINGAR ASAMT FJÖLDA ANNARRA VÖRUFLOKKA SEM TENGJAST HUSBYGGINGUM OG VIDHALDI HÚSNÆDIS ÞlNS. L/ttu Inn — Sjón er sðgu ríkari Kalmar-eídhusiö hefur löngum verið í öndvegi haft. UrvaJiö er mikiö og veröiö kemur þér á óvart. Múrsteinaklæöningin frá Kalmar er einstök klæöning sem gefur húsinu sérstakt útlit. Viöhaidslaus, einföld Kalmar-baöinnréttlngar eru fáanlegar í þremur mis- munandi geröum. Skemmtileg hönnun og létt yfir- bragö. Hér kemur veröiö þér einnig þægllega á óvart. Weland-hringstigarnir eru framleiddir af stærsta hringstigaframleiöanda í Evrópu og eru fáanlegir í mörgum mismunandi geröum til notkunar innanhúss og utan. Kalmar SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVÍK - SlMI 82011 Perstorp System 080 er eitt hentugasta veggjakerfiö til þess aö stúka af snyrtiaöstööu, búnlngsklefa og ýmislegt fleira í stærrl bygglngum og félagsaöstööu. Jens gekk í föðurstað og reyndist ætíð sem sinni eigin dóttur. Með þessum fáu orðum kveðjum við góða konu sem alltaf hafði lag á að dreifa birtu í kringum sig með sínu ljúfa brosi og hlýju. Guð blessi henni inngönguna í ríki sitt og minningu hennar. Arne Friðrik Kristensen og fjölskylda. Dofnar f vestri dimmrauð glóð, dagselda slekkur nóttin hljóð, í fljótinu stillir húmið hæng, himbrimi felur nef í væng. Jurtirnar drúpa, dottar hjörð, döggvum og hulu sveipast jörð, mannsbarni sígur svefn á brá. Senn fara draumljóð þín á stjá. (Ólafur Jóhann Sigurðsson) Á morgun kveðjum við f hinsta sinn systur okkar og vinkonu, Hlín Huldu Kristensen, sem lést þann 28. apríl. Hún var dóttir hjónanna Ingi- bjargar Þórðardóttur og Arne Kristensen bifreiðastjóra hjá Al- iance og bjuggu þau á Þormóðs- stöðum við Skerjafjörð. Hún ólst upp f foreldrahúsum ásamt systk- inum sínum átta og er hún sú fyrsta sem kveður þann hóp. Hlín giftist Jens Jónssyni skip- stjóra árið 1953. Sambúð þeirra var með miklum ágætum enda báru þau alla tíð hlýhug hvort til annars og voru samhent um hag og gengi heimilisins. Börnin á heimilinu urðu þrjú, þau Karen, gift Val Sigurðssyni, Þorbjörn, giftur Guðrúnu Kristinsdóttur, og Arna, gift Ola Haugdo, búsett í Noregi. Barnabörnin eru sex. Uppeldi barnanna og umsjón heimilisins kom að miklu leyti f hlut Hlínar þar sem atvinna Jens var sjómennska. Verður ekki ann- að séð en þar hafi henni tekist hið besta, veit nokkur betri minnis- varða móður en þrjú vel heppnuð börn? Jens lést aðeins 48 ára að aldri, úr þeim sama sjúkdóm og Hlín háði hetjulega baráttu við síðastliðin þrjú ár. Við systurnar frá Þormóðsstöð- um og frá Görðum, sem nú sjáum á bak góðri vinkonu, höfum þekkst frá bernsku. Við lékum okkur saman þegar við vorum litlar og héldum vináttu okkar þó árin færðust yfir. Fyrir 43 árum stofn- uðum við saumaklúbb og höfum haldið þeim sið upp frá því að hitt- ast hálfsmánaðarlega. Á svo löng- um tíma tengjast sterk og órjúf- andi bönd vináttu og tryggðar. Við áttum saman skemmtilegar stundir, deildum sorg og gleði og veittum hvor annarri þá vináttu sem nauðsynleg er f lffi hvers manns. Sú vinátta verður aldrei fullþökkuð. Við kveðjum hana og þökkum hennar ljúfa viðmót og hennar tryggu lund. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og vilji hans ræð- ur hvenær við hittumst aftur. Um leið og við þökkum henni samfylgdina og kveðjum hana að sinni sendum við börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Saumaklúbburinn Porstorp-gólfiö fer sigurför um helmlnn. Þægilegt aö leggja. viöhaldslaust og níösterkt. 9 tegundir. + Eiginkona mín, fósturmóöir og amma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Héteigsvegi 19, lést 22. april sl. Jaröarförln hefur fariö fram. Þökkum auösýnda samúö. Friðgeir Björnsson, Svava Guömundsdóttir, Georg Friógeir fsaksson. Kalmar-fataskáparnir eru fáanleglr i mörgum geröum og stæröum, sem aölaga má hvaöa rýml sem er. Nú bjóöum vlö tréstlga frá stærstu stlgaverksmiöju á Noröurlöndum, Trátrappor, í Noröur-Sviþjóö. Stigar sem standast hæstu gæöakröfur á veröi sem þú ræöur vlö. + Móðir okkar, tengdamóöir og amma, HLÍN HULDA KRISTENSEN, Maríubakka 16, verður jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. maí kl. 13.30. Karen Aradóttir, Valur Sigurösson, Þorbjörn Jensson, Guörún Kristinsdóttir Arna Jensdóttir, Ola Hangbo, og barnabörn. LEGSTEII VAR H.F. ími81960 MOSAIK Hamarshöföa 4 — S Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um Ífi S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA ■ SKEMMUVEGI 48 SÍMt 76677

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.